Tíminn - 25.03.1964, Page 23
BAULÁRVELLIR
Framhald af 19. síSu.
þyki leitt að kirkjan skuli ekki
hafa farið í mál vegna jarðarinnar
svo mikla umhyggju, sem hann
virðist bera fyrir henni. Til hvers
ætti hún að höfða mál, þar seiii
hér er um ótvíræða skráða eign
hennar að ræða. Þetta er ósk-
hyggja greinarhöf. S. Ól. sem mér
finnst ekki sennilegt, að hann
fái uppfyllta.
Landfræðilega séð er miklu
eðiilegra, að Baulárvellir tilheyri
Helgafellssveit, en sunnanfjalls
byggðum. Það, sem hefur ráðið
því mest, hvorum megin fjalls þeir
teldust til sveitar, hefur vafalaust
verið að styttra var til byggða í
Helgafellssveit, einkum meðan
Selvellir voru í byggð og aðrar
útbotnajarðir. Skiptir engu í þessu
sambandi, til hvaða kirkjusóknar
hún hefur talizt, það fer ekki eftir
sveitamörkum og er hægt að nefna
mörg dæmi þar um
Þá er komið að því atri'ði, sem
S. Ól. telur, að taki af allan
vafa um, til hvaða sveitar Baulár-
vellir teljast þ. e. fjallskilareglu-
gerð Snæfellinga. Skilst mér helzt,
að hún eigi að vera aðalhaldreipi
hans. Sé svo, að hún skeri úr um
mörk hreppa, ér það verðug
áminning til fulltrúa Stykkis-
hólmshrepps á sýsíufundum, að
hafa látið slíkt viðgangast og með
öllu afskiptalaust Annars mótmæli
ég því ákveðið, að fjallskilareglur
skeri nokkuð úr um hreppamörk.
Þau ráða ekki alltaf og má nefna
dæmi því til sönnunar m. a. á
Snæfellsnesi. Hafi þetta átt að
taka af allan efa, hefur það al-
gjöriega brugðizt.
Að endingu vona ég, að við
S. Ól. getum orðið einhvern tíma
sammála um, að Baulárvellir hafi
verið og séu eign Stykkishólms-
kirkju. Sé svo ekki verður hann
(eða hans úmbj.) að freista máls-
höfðunar.
Á næstunni fer fram mat á
öllum fasteignum og vérða Baulár-
vellir þá auðvitað metnir til eign-
ar sínum rétta eiganda ( St,-
hólmskirkju) og verða S. Ól. eða
aðrir, að sanna eignarétt annarra
eða reyna > að rifta eignarrétti
kirkjunnar með málshöfðum, ef
MYNDIN sýnir fyritu Íslendíngana, sem tóku Helmsmerklð t dansl. Tóku þau það í febrúar síðastliðnum. Þau hafa lært dans I 17 mánuðl og byrj-
uðu að æfa fyrlr Heimsmerklð í október síðastllðnum. Þesslr nemendur gengust fyrir stofnun dansklúbbs I fyrravetur, þar sem þau og aðrlr
nemendur Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar hafa haft tækifærl tll að koma saman einu slnnl í mánuðl til að æfa dans. Formaður klúbbsins
er Bergsteinn Jónsson. Má geta þess, að áfengl er aldrel haft um hónd á skemmtunum klúbbsins.
þeir telja hana ekki réttan eiganda
Vonandi tékst S. Ól. ekki að
etja sunnanfjallsbændum út í slík
málaferli, enda hafa bændur
annáð og þarfara við sína fjár-
muni að gera, en greiða lög-
fræðingum laun og bera svo
ekkert úr býtum í staðinn.
Leifur Kr. Jóhannesson ráðun.
Heimkeerðui pússningar
sandur oj? irikursándur
sigtaS;:t eðá (dsigtaðúr eið
húsdvrnar eða kominn upp
á hvaða hæð sem er. eftir
óskum kaupenda
Sandsalan viS Elliðavog s.f
Sími 41920
Fjórir árekstrar
á Miklubraut á
tveimur tímum
KJ-Reykjavík, 24. marz.
Það var ekki að sökum
að spyrja með árekstrana
á Miklubrautinni, þegar föl
in tók að falla í kvöld. Á
tímabilinu frá 20—22 urðu
þar fjórir hálkuárekstrar,
og að auki einn á Hofsvalla
götunni. Lögreglan í
Reykjavik lét útvarpa að-
vörunum til ökumanna um
að aka varlega, þegar hálka
tók að myndast á götúnum
og enn fremur voru bæjar-
starfsmenn kallaðir út til
að bera sand á þær götur
þar sem hálkan var mest.
Á nýja veginum fyrir
ofan Hafnarfjörð lenti bíll
imíi í garði, en ekki urðu
nein slys.
VARMA
PLAST
FINANGKUN
LYKKJUR
OG
MÚRHÚÐUNARNET
P Porgrimsson & Co.
Suðurlandsbraut 6 Símii 22295
Auglýsið i
TÍMANUM
Á 15 TIMUM
Framhald af 19. síðu.
og lögðu upp kl. 6 í gærmorgun
frá Reykjavík og komu til Súg-
andafjarðar eftir 15 tíma akstur
klukkan 9 í gærkveldi.
Verst var færðin uni Þing-
mannaheiðina. Urðu þeir víða að
aka utan vegarins. Telja þeir
óhugsandi, að leiðin sé fær nema
bifreiðum með drifi á öllum hjól
um og álíta að erfiðara muni
vera að fara suður eftir en norð-
SMÁKIPPUR
FB-Reykjavík, 23. marz.
Vart var við smájarðskjálfta i
Ármúla um klukkan 8 á laugar-
dagskvöld, en.síðan hefur .ekki orð
ið vart jarðhræringa, að sögn Sig-
urðar bónda í Ármúla. Hartn sagði
okkur í kvöld, að jarðskjálftamæl
irinn, sem farið var með vestur,
væri hættur að sýna nokkuð, þar
eð rafhlaða hans væri orðin tóm.
LÖNGU SJÓDAUÐUR
Framhald af 24. síðu.
sjódauðir menn verið á ferð. Sér
staklega kveðst hún hafa orðið
vör við enskan- mann. Heyrði hún
jafnframt skothvelli samfara
þessum manni. Finnst Láru, án
þess að hún vilji nokkuð full-
yrða ,um það, að einhver röskun
hafi orðið á jarðneskum leifum
þessa manns, og hafi það hrund-
ið þessu af stað.
Enginn á staðnum þekkti til
þéss, að þarna hefði Englending-
ur verið á ferð, en að vísu mundu
menn til þess að þarna undan
hefði farizt skip á stríðsárunum.
STARSFRÆÐSLA
Framhaid af 24. síðu.
létu dynja á starfsgreinafulltrúuh-
um. Flestar fyrirspurnirnar bár-
ust um flugmál, íþróttakennslu,
húsmæðrafræðslu, rafvirkjun óg
snyrtingu. Þeir skólastjófarnir
Þorsteinn og Páll báðu fyrir
beztu þakkir til allra þeirra, er
aðstoðuðu við starfsfræðsluna.
ÞÁKKARÁVÖRP
Alúðarþakkir til vina minna, er mundu eftir mér á
sextugsafmæli mínu 20. marz 1964.
Lifið heil.
Geir Guðmundsson frá Lundum
Þakka innilega þann heiður og vinarhug, sem mér
var sýndur á 80 ára afmæli mínu 8. marz s. 1., með
heimsóknum, heillaskeytum, gjöfum, hlýjum
handtökum og vinarorðum.
Lifið heil.
Hrólfur Kristbjörnsson, ,
Haugum, Skriðdal.
Beztu þakkir færum vl8 öllum þeim, sem sýndu okkur samúð oa vin-
arhug við fráfall og jarðarför
Guðmundar Guðmundssonar
frá Brekkum
Sérstaklega mlnnumst við vináttu og hjálpfýsi hjónanna Brands
Stefánssonar vegaverkstjóra og frú Guðrúnar Jóhannesdóttur og
þeirra nánustu, sem voru hans sto3 og stytta f mörg ár.
Börn og tengdabörn.
Eiglnmaður minn, faðlr og tengdafaðlr
Guðmundur Guðjónsson
bóndi að Melum f Melasvelt
andaðlst 21. þ. m. Jarðárförln ákveðln slðar.
F. h. vandamanna
Helga Eggertsdóttir
ÚtföV rnóður okkar
Jóhonnu Þorgrímsdóttur
Freyiugötu 34,
fer fram frá Fríkirkjunnl, laugardaglnn 28. marz kl. 10.30.
Hólmfrtður Pálsdóttlr, Lárús Pálsson.
TÍMI’NN, miðvlkudaginn 25. marz 1964 —
22