Tíminn - 07.05.1964, Page 4

Tíminn - 07.05.1964, Page 4
RITSTJÓRI: HAUUR SÍMONARSON Þótt enn sé meira en rúmt ár þar tfl tólfta Landsmót Ungmennafélags íslands verð- ur haldið að Laugarvatni, er fyrir löngu hafinn undirbúningur í sambandi við mótið, * sem að öllum líkindum verður það umfangsmesta frá upphafi. Það er Héraðssamband- ið Skarphéðinn, sem sér um framkvæmd þ essa landsmóts og hefur fjárhagsábyrgð með höndum. — Nýlega spjölluðu stjómarmenn Ungmennafélags íslands og Skarp- héðins við fréttamenn og skýrðu þá frá því helzta, sem verður á dagskrá í sambandi við mótið. Stefán Jasonarson, sem er formaður Landsmótsnefndar, sagði m. a. við fréttamenn, að sumum þætti það kannski allt of snemmt að ræða um mót, sem fer fram árið 1965, en við viljum, sagði Stefán,skapa stemmingu og áhuga fyrir mótinu um aflt land, bæði íþróttalega og félagsiega og því er nauðsynlegt að fara strax af stað. 12. Landsmót UMFI Víðtækur undirbúningur er þegar hafinn vegna mótsins Auk Stefáns eru í Lands mótsnefndinni þeir Björn Sigurðsson, Úthlíð, Her- mann Guðmundsson, Blesa stöðum, Hermann Sigur- jónsson. Raftholti og frá ÚMFÍ Ármann Pétursson, Reykjavík. Það er kunnara en frá þurfi að segjá, að öll að- staða að Laugarvatni er mjög heppileg tfl að halda mót eins og þetta. Húsrými er mikið, greiðar samgöng- ur að staðnum, mikfl nátt- úrufegurð qg síðast en ekki sízt er það mikilsvert, að íþróttakennaraskóli Is- lands með tilheyrandi íþróttamannvirkjum er staðsettur að Laugarvatni. Þá má geta þess, að um þessar mundir standa yfír framkvæmdir á fleiri mannvirkjum, sem vonir standa tfl, að verði tilbúin tfl notkunar á Landsmót- Inu 1965. Mótsmerki í fiambandi við undirbúning mótsins hefur verið ákveðið að efna til samkeppni um merki fyrir 12. lándsmót UMFÍ. Merk ið skal vera þannig að nota megi það í oddfána, aðgöngu- miða o. fl. er mótlnu viðkem- ur. Landsmótsnefnd hefur ákveðið að veita verðlaun kr. 2000,00 fyrir tillögu að merki því, er valið verður. Tillögur að merkinu skulu hafa borizt formanni landsmótsnefndar, Stefóni Jasonarsyni, Torsabæ, fyrfr 1. Jóní 1964. Skal nafn höfundar fylgja uppdrættinum, í lokuðu umslagi. Dómnefnd skipa: Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi, Gísli Sigurðs- son, ritstjóri og Halldór Pét- ursson, teiknari. Reglur um tflhögun íþrótta keppninnar á XII. lands- móti UMFÍ 1965 Samþ. á 23. sambandsþingi UMFÍ. Keppnisgreinar mótsins verða: Frjálsar fþróttir: Karlagreinar: 100 m. hlaup, 400 m. hlaup, 1500 m hlaup, 1000 m hlaup boðhlaup, langstökk, þrístökk, hástökk, stangarstökk, kúlu- varp, kringlukast og spjótkast. Frjáísar iþróttir: Kvennagreinar: 100 m hlaup, 4x100 m boð- hlaup, langstökk, hástökk, kringlukast og kúluvarp. f boðhlaup má hvert héraðs- Þessl mynd er frá Laugarvatnl. samband aðeins senda eina sveit. Sund, karlagreinar: 100 m frjáls aðferð, 200 m bringusund, 800 m frjáls að- ferð, 4x50 m boðsund (frjáls aðferð), 100 m baksund. Sund, kvennagreinar: 100 m bringusund, 400 m frjáls aðferð, 4x50 m boðsund og 50 m baksund. í boðsund má hvert héraðs- samband aðeins senda eina sveit. Glíma, knattspyrna, handknatt- leikur kvenna, fþróttasýningar, hópsýningar i leikfimi. Úrvals- flokkar kvenna og karla í leik- fimi, þjóðdansar. A. Frjálsar íþróttir: Keppni í frjálsum íþróttum fer fram báða dagana. Verður beitt forkeppni eða undan- keppni og úrslitum eftir því, sem betur hentar keppendum eða fyrirkomulagi dagskrár. Þátttökutilkynningar skulu vera komnar í hendur fram- kvæmdanefndar mótsins í síð- asta lagi níu dögum fyrir mót- ið. Hvert héraðssamband ann- ist þessar tilkynningar, en ann- ars stjómir félaga, sem ekki Börn ero a8 leik nlðrl vlS vatnlS á eru aðilar að héraðssambandi. Öllum þátttökutilkynningum fylgi nöfn fyrirliða keppenda- hópanna. Hver þátttakandi hef ur rétt til keppni í þrem íþróttagreinum og boðhlaupi. Þrjá keppendur má hvert hér- aðssamband senda i hverja grein. Daginn fyrir fyrri keppnis- dag skulu fyrirliðar íþróttahóp anna og stjórnendur keppnis- greina ásamt starfsmönnum íþróttakeppninnar mæta til fundar á mótsstað. Á fundi þessum skulu bomar fram kær ur vegna þátttöku eða áhuga- mannareglna; þá verður og framkvæmt nafnakall og af- hent verða númer keppenda, sem þeir bera á brjósti og baki í keppninni. Að loknum þeim fundi verða engar breytingar leyfðar, nema í boðsveitum. Mjög rík áherzla er lögð á, að keppendur mæti á réttum tíma til keppni og beri númer sitt. Þá verða á þessum fundi af- hentar tímasetningar keppnis- greina, skipað niður í riðla, dregið um brautir, stökk- og kaströð. Nafnakall þátttakenda hverr- ar keppnisgreinar fer fram tfn mínútum fyrir hinn auglýsta tíma. Skulu þá keppendur björtum sumardegl. mæta á stað, sem síðar verður auglýstur, og skulu þeir og starfsmenn ganga fylktu liði þaðan til keppnisstaðar. í öll- um riðlahlaupum flytjast 3 (ef sex brautir) eða 2 (ef 4 braut- ir) fyrstu menn úr hverjum riðli í næsta hlaup á eftir. Ef skipta verður þátttakend- um í 1500 m hlaupi í riðla með allt að 15 manns í riðli, færast 7 þeir fyrstu í næsta hlaup á eftir. Notaðar verða viðbragðs stoðir, en ekki leyft að grafa holur á viðbragðsstað. Sex fyrstu menn hljóta :tig sem hér segir: 1. sex stig, 2. fimm stig, 3. fjögur stig, 4. þrjú stig, 5. tvö stig, og 6. eitt stig. Sami stigafjöldi gildir í boðhlaup- um. Verði einstaklingar eða svett ir jafnar, skiptast stig að jöfnu milli þeirra en aukakeppni fer fram um verðlaun. Fyrstu 6 menn hljóta verðlaun eða við- urkenningarskjal. Verðlaun verða þá veitt sem hér segin 1. Því héraðssambandi, sem flest stig hlýtur í samanlögð- um frjálsíþróttagreinum. 2. Stigahæstu konu í frjáls- um fþróttum. 3. Stigahæsta karli í frjáls- um íþróttum. 4 Fyrir bezta afrek karls í frjálsum íþróttum skv. stiga- töflu. Stökkhæðir í hástökki og stangarstökki verða sem hér segir: 1. Hástökk kvenna: 110 cm, 120 em, 125 om, 130 cm, 135 cm, 137 cm og svo hækkað um 2 cm úr því. 2. Hástökk karla: 150 em 160 cm, 165 em, 170 cm, 175 cm, 177 cm og svo um 2 cm úr því. 3. Stangarstökk: 2,80 m, 2,90 m, 3,00 m, 3,10 m, 3,20 m og svo hækkað um 5 cm úr því. B. Sund: Sömu reglur gilda um sund keppni og frjálsar íþróttir. — Hver þátttakandi hefur rétt til keppni í þrem sundgrein- um og boðsundi. Fimm sérverð laun verða veitt í sundi sem í frjálsum íþróttum. Sundfólk skal bera númer á æfingabún- ingi (skjólbúningi) sínum. — Keppt verður í 25 m laug með ea. 22 gráðu heitu vatni. C. Glíma: Sömu reglur gilda um glímu- keppnina og frjálsíþróttakeppn ina hvað fjölda þátttakenda og stigareikningi viðvíkur. Stiga- hæsti glímumaðurinn hlýtur sérverðlaun og einnig stiga- hæsta héraðssambandið. D. Knattleikir: Landsmótsnefndin vekur at- hygli ungmennafélaga og stjórna héraðssambanda á því, að tilkynningar um þátttöku í keppni í knattspyrnu og hand knattleik þurfa að hafa borizt til skrifstofu IJMFÍ fyrir 1. f l' I' i I) i'il'i) ‘ T (M I N N, fimmtudaglnn 7. maj 1964 —-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.