Alþýðublaðið - 24.01.1952, Page 5

Alþýðublaðið - 24.01.1952, Page 5
Tveir Dagsbrúnarmenn segja álit sitt: Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG N. K. fei-'fram stjórn- arkjör í Dagsbrún. Kosið verður um þrjá lista. A-Iista, sem ; borinn er fram af hinni kommúnistísku stjórn og trúnaðar- 1 mannaráði félagsins, sem farið hefur þar með völd undan- farin ár, B-lista, sem borinn er fram af íháldsmönnum, og C- íista, sem borin er fram af jafnaðarmönnum og ýms.um óháðum ; verkamönnum í Dagsbrún. í tilefni af þessu hefur AB snúið sér til tveggja Dagsbrún- armanna, þeirra Hauks Hólm- steins, sem er í meðstjórnanda sæti á C-listanum, og Alberts Imslands, sem er í trúnaðar- mannaráði á sama lista. og spurt þá um starf fráfarandi stjórnar Dagsbrúnar og að- kafandi verkefni, sem bíða úr- ! lausnar, til að tryggja réttindi \ og kjör verkamanna. „Það er mikið verkefni og Vandasamt, að gæta í hvívetna réttar verkamanna hér í bæ á tímum geigvænlegs atvinnu- leysis og dýrtíðar. Þessum vanda hefur fráfarandi stjórn Dagsbrúnar á engan hátt reynzt vaxin,“ sagði Haukur Hólm- steinn. „Eftirlit starfsmanna Dagsbrúnar með því, að full- gildir meðlimir félagsins sitji fyrir vinnu, hefur verið slæ- legt í meira lagi, og af'leiðingin því orðið sú, að ófélagsbundnir menn og menn úr öðrum starfs greinum hafa oft og tíðum verið í vinnu á stórum vinnu- stöðvum, eins og við höfnina, á sama tíma og félagsmenn í Dagsbrún hafa enga vinnu fengið. Verkstjórar og trúnað- armenn atvinnurekenda hafa, sökum kunningsskapar, stund- um ráðið menn til vinnu, sem skort hefur rétt til hennar; en á sama tíma hafa hafnarverka- menn, sem einvörðungu eiga Hfsafkomu sína undir hafnar- vinnunni og hafa stundað þessa vinnu árum saman, al- gerlega verið afskiptir í þessu efni.“ Enn fremur sagði Haukur Hólmsteinn: „Forgangsréttur fullgildra meðlima Dagsbrúnar til allrar verkamannavinnu er eitt veigamesta ákvæðið í samning- um félagsins við atvinnurek- endur; og langa og harða bar- áttu hefur það kostað. mörg verkalýðsfélög að fá hann við- urkenndan. Forgangsréttar- ákvæðið er vitanlega lang þýðingarmest á tímum at- vinnuleysis; því það eitt getur tryggt að nokkru, að atvinnu- rekendur láti ekki kunnings- skap ráða, hverjr sitji að þeirri vinnu, sem til fellst. Þessa dýrmæta réttar ber stjórn sérhvers verkalýðsfélags vel að gæta. Þessa skyldu hef- Ur fráfarandi stjórn Dagsbrún- ar algerlega vanrækt. Eftirlit starfsmanna og trúnaðarmanna félagsis hefur verið mjög lítið; j og svo algert hefur aðgerðar- i leysi stjcrnar félagsins verið j við að gæta þess, að þetta dýr- ' mæta ákvæði í samningum fé- j lagsins við atvinnurekendur væri haldið, að kvartanir verka manna um að cfélagsbundnir menn væru í vinnu í þeirra flokkum hafa að engu verið hafðar.“ ,,Eg hef sjá’fur,“ segir Haukur, „farið í skrifstofu fé- lags okkar og kært ófélags- bundna menn, sem unnið háfa verkamannavinnu á sama tíma og gamlir félagar mínir hafa gengið vinnulausir. Formaður félagsins varð t. d. einu sinni fyrir svörum. Þó var kærunni að engu sinnt; málinu var eytt og hinn ófélagsbundni maður var láhnn vinna áfram í trássi við samningsbundinn rétt Dagsbrúnar. Þetta er hinn þungi áfellis- [ dómur yfir núverandi stjórn Dagsbrúnar. Hún hefur ekki , gætt réttar okkar verkamann- anna; hún hefur látið undir I höfuð ’eggjast að framfyígja | gei ðum samningum í þessu efni. Enn fremur má geta þess, að starfsemi stjórnarinnar í hús- bygg:ngamá'um félagsins hef- ur engin verið, þrátt fyrir ó- tvíræða nauðsyn á því, að fé- lagið komi upp félagsheimili. Verkamenn una því alls ekki að kvartanir, sem beir bera fram við sína e’gin trún- aðarmenn og eiga við full rök að styðjast, séu að engu hafðar. Við viljum strangt eftirlit með því, að samningar félagsins séu haldnir í einu og öl’u, og við viljum ekki að saga liðins árs enduraki sig, sagan um það, að atvinnurekendum sé liðið í nokkru íilfelli að ráða ófélags- i bundna menn í vinnu og snið- j ganga þar með gerða samninga. 1 Gegn því viljum við, sem j berum C-listann fram, berjast; og það munum við gera, unz sigri er náð.“ Sófaseff Armsféiar - Svefnséfar Tökum einnig til klæðningar allskonar bólstruð húsgögn Vönduð vinna. I. fl. áklæði. Talið við okkur sem fyrst. Húsgagnabólsírun Kr. Tromberg Laugaveg 143. — Sími 5800. Byrjendapámskeið í kvennaleikfimi hefst í ÍR-húsinu við Túngötu fimmtudaginn 24. þ. m. Æfingar tvisvar í viku, mánudögum kl. 7.15, fimmtudögum kl. 7,15. Uppl. gefur kennarinn. Hrefna Ingimarsdóttir, í síma 7240 milli ld. 12 og 1 daglega eða á æfingatímanum í ÍR.húsinu. — Sími 4387. Sextogur: Sjásf ekki á vinnusföðum „Eftirlit stjórnar Dagsbrún- ar með því, að félagsbundnir j verkamenn gangi fyrir um (vinnu, hefur ekkert veríð. Það ' er hreinn og beinn viðburður, að starfsmenn Dagsbrúnar sjá- ist á svo þýðigarmiklum vinnu- | stað sem höfnin er,“ segir Al- bert Imsiand. „Þegar verið er að afgreiða mörg skip við höfnina, er brýn nauðsyn á því, að starfsmenn félagsins hafi nákvæmt eftirlit með því, að einvörðungu fé- lagsmenn séu teknir til vinnu. Dagleg tilsjón af hendi félags- stjórn'arinnar er þess ein um- komin að tryggja það, að forgangsréttur Dagsbrúnar- manna sé í heiðri hafður, og vitanlega er það fyrsta krafa okkar Dagsbrúnarmanna, að stjórn félags okkar og starfs- menn hennar gegni þessum skyldustörfum af alúð. En stjórnin hefur alger’ega brugðizt því. Það er ekki ein- vörðungu, að hún eða starfs- menn hennar sjáist varla á vinnustöðvunum, heldur er talað fýrir daufum eyrum, þeg- ar verkamenn bera frarn kröf- K o n u Lærið að sníða og sauma. Tveggja mánaða námskeið byrjar 1. febrúar. 2 kvöld í viku. Vesturgötu 3. ur sínar um að fá að sitja fyrir ófélagsbundnum mönn- um.“ Enn fremur segir Albert: „Fyrir löngu var það sýni- legt, að nauðsyn bar til þess að ná samningum við atvinnurek- endur um kauptryggingu fyrir hafnarverkamenn; og árið 1944, þegar mjög var hagstætt að ná góðum samningum, náðist samkomulag við atvinnurek- endur um að skipa nefnd til þess að ganga frá þessu máli. Þetta hagsmunamál hafnar- verkamanna lognaðist út af í höndum Dagsbrúnarstjórnar- innar, og síðan hefur hún ekk- ert aðháfzt í því efni; og enn í dag verða verkamenn að sæta hlaupavinnu einvörðungu. Það væri á margan hátt hagfelld- ara fyrir verkamenn að vera á mánaðarkaupi; vinnan væri ör- uggari,' auk ýmissa hlunninda, sem eru samfara fastráðningu iverkamanna til vinnu, svo sem j ve;kindadagar og fleira. Nú i hefur það þráfaldlega komið ^fyrir, að verkamönnum er sagt unp í vinnu hálfa daga eða einn dag á mi’li skipa. Slíkt er atv;nnurekendum nú heimilt, þótt það sé mjög óhagstætt fyrir verkamenn. Þetta mundi hins vegar ekki geta skeð, ef um kauptryggingu væri að ræða. Hér er vanrækslu Dagsbrún- arstjórnarinnar um að kenna, að kauptrygging skuli enn ekki vera gildandi við höfnina; því að hægur var nærri fyrir stjórn félagsins að koma þessu jí gegn 1944. I Skipulagslega séð er Dags- brún ekki sterk, og störf | stjórnar félagsins fyrir hags- munamálum verkamanna hafa verið í molum. Framhald á 7. síðu. SVEINN_ EINARSSON. sjó- maður í Ólafsvík, varð sex- tugur 10. janúar s. 1. Sveinn Einarsson er fæddur í Ólafsvík 10. janúar 1892, son- ur hjónanna Einars Guomunds sonar og Sæunnar Jónatans- dótturj sem lengi bjuggu í Ól- afsvík. Ungur að a’dri hóf Sveinn sjómennsku ög hefur stúndað sjóinn jafnan síðan, nema síðasta ár, er hann hóf vinnu í landi. 1913 missti hann föður sinn og bróður í sjóslysi, er bátur frá Ólafsvík fórst með níu manna áhöfn. Tók hann þá við búsforráðum hjá móð- ur sinni unz hann kvæntist nokkrum árum síðar, en móðir hans dvaldi á heimili háns til daúðadags. Sveinn gekk snemma í stúku og vann mikið að félagsmálum! enda var öflugt félagslíf í Ól- afsvík í ungdæmi hans. Hann var einn traustasti brautryðj- andi verka1 ýðshrey fi ngari nnar ar og Alþýðuflokksins hér í Ólafsvík. Hann var meðal stofnenda Verkalýðsfélags Ól- afsvíkur og í stjórn þess, en það félag var jafnframt pönt- unarfélag, og einn af stofnend- um Verka’ýðs- og jafnaðar- manriafélags Ólafsvíkur og síð- ar Verkalýðsfé’iagsins „Jökuls“, sem nú er öflugt félag, Hann átti sæti í stjórn beggja þess- a.ra félaga, og tók mikinn og góðan þátt í kjarasamningum fyrir verkalýðinn hér og gerir enn, auk margra trúnaðarstarfa fyrir verkalýðshrevfinguna og Alþýðuflokkinn. Hann átti sæti í hreppsnefnd um skeið og sat mörg ár í hafnarnefnd, og hefur mikinn áhuga fyrir fram gangi hafnarmálsins, sem hef- ur verið og er eitt hið stærsta áhuga- o'g hagsmunamál byggð arlagsins. , Sve;nn gengur að hverju starfi með harðfylgi og dugn- aði, hvort heldur það er á sjó eða á landi eða í félagsmálum, og er áhuga hans viðbrugðið. Hann er mikill og skeleggur baráttumaður fyrir hverju því | máli, sem hann tekur sér fyrir j hendur að sækja og er verka- lýðshreyfingunni mikill fengur að slíkum manni, ekki sízt á meðan hún var í uppvexti og marga byrjunarerfiðleika þurfti að yfirstíga. Hann var því snemma í fylkingarbrjósti og vék hvergi um fet, þótt erfiðleikar steðjuðu að. Sveinn var kvæntur Þór- heiði Einarsdóttur Þorkelsson. ar rithöfundar, hinni mætustu konu. Þau eignuðust 11 börn, sem öll voru hin mannvænleg ustu, en misstu tvo uppkomna sjmi sína í sjóslysi hér í Ólafs- vík árið 1947. Hinir mörgu vinir Sveins og samstarfsmenn óska honum allra heilla á þessu merkisaf- mæli hans og þakka honum brautryðjendastarfjð og' ske- legga baráttu fyrir máiefnum verkalýðsins og Alþýðuflokks- ins. Ottó Arnason. SKiPAllTGeRÐ RIKISINS Hekla vestur >um land í hringferð hinn 28. þ. m. Tekið á móti flutningi til áætlunarhafna vestan Þórshafnar síðdegis í dag og á föstudaginn. Farseðl- ar seldir árdegis á mánudag- inn. austur til Eskifjarðar hinn 29. þ. m. Tekið á móti flutningi til áætlunarhafna á morgun. Far- seðlar seldir á mánudag. r „Armann' til Vestmannaeyja í kvöld. Vörumóttaka í dag. , ....................... AB $

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.