Alþýðublaðið - 15.03.1952, Qupperneq 5
Rafmagnsfakmörkun.
Álagstakmörkun dagana 15. marz
10.45—12.15:
22. marz frá kl
Laugardag 15. marz 2. hluti.
Sunnudag 16. marz 3. hluti.
Mánudag 17. marz 4. hluti.
Þriðjudag 18. marz 5. hluti.
Miðvikudag 19. marz 1. hluti.
Fimmtudag 20. marz 2. hluti.
Föstudag 21. marz 3. hluti.
Laugardag 22. marz 4. hluti.
sextugur.
Straumurinn verður rofinn skv. þessu þegar og að svo
miklu ley ti, sem þörf kréfur.
SOGSVIRKJUNIN.
Iðnrekandi ber fram:
Áríðandi spurningar um afstöðu
Sjálfstæðisflokksins til iðnaðarins
-------♦----—
í>úsundir manna bíða eftir því að flokk-
orinn geri hreint fyrir sínum dyrum.
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag
er leiðari Morgunblaðsins
helgaður iðnaðinum. AB hefur
undanfarið sýnt fram á, svo
ekki verðúr véfengt, hvernig í'
haldið hefur leíkið iðnað Iands
jnanna og með því beinlínis
stofnað til stórkostlegs atvinnu
leysis, að því bezt verður séð
til þess eins að leggja iðnaðinn
í rústir og í staðinn hlú að
inokkrum útvöldum heildsöl-
um.
Morgunblaðið segir orðrétt:
„íslendingum hefur undan-
farin ár orðið það æ Ijósara, að
ríka nauðsyn ber til eflingar inn
lends iðnaðar. Atvinnulíf þjóðar
innar er of einhætt og lítið má
út af bera til þess að misæri
til lands eða sjávar valdi ekki
stórfeldum erfiðleikum og
þrengingum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
liaft á þessu glöggan skilning.
Þess vegna hefur hann haft for
Ustu um ýmsar ráðstafanir til
uppbyggingar nýrra iðngreina
og iðnfyrirtækja í landinu" (!!!)
Jú, ekki vantar það, að Sjálf
stæðisflokkurinn hafi haft for-
ustuna í iðnaðarmálunum!
Þessi flokkur einkaframtaksins
befur á einu einasta ári leikið
íðnað landsmanna svo grátt að
mörg ár mun taka að græða þau
sár. Þetta málgagn íhaldsins
leyfir sér nú, ofan á alla skömm
ina, að slá ryki í augu almenn-
- ings, með afstöðu þess til iðn
aðarins í landinu. Þetta gerir
það með því að þylja samþykkt
ir landsfunda Sjálfstæðisflokks
ins í iðnaðarmálum, vitandi það
sem hverjum manni er nú ljóst,
að siglt hefur yerið í þeröfuga
átt. Ef íhaldið hefði haldið
þeirri stefnu, sem það nú segir
að samþykkt hafi verið á lands
f undum þess, væri öðru vísi um
ihorfs í iðnaðinum og atvinnu-
málum þjóðarinnar í heild, en
það er í dag.
Þetta einstaklings hagsmuna
'víxlspor ráðamanna íhaldsins
út frá yfirlýstri stefnu lands-
fundanna, er nú orðið þjóðinni
þess að afdráttarlaus svör þeirra.
liggji fyrir um hvað þeir hyggj
ast fyrir í vandamálum iðnað-
arins í framtíðinni.
Þess vegna er nú spurt:
1. ) Er Sjálfstæðisflokkurinn
einhuga fylgjandi því, að
iðnaðinum verði þegar
tryggt aukið rekstrarfé?
2. ) Er Sjálfstæðisflokkurinn
einhuga fylgjandi því, að
nú þegar verði allur inn-
flutningur á hráefnum til
iðnaðar frjáls?
3. ) Er Sjálfstæðisflokkurinn
einhuga fylgjandi því, að
nú þegar verði hafin end-
urskoðun tollalögjafarinnar
með hagsmuni iðnaðarins
fyrir augum, og að verstu
firrurnar verði lagfærðar
nú þegar með bráðabirgða-
lögum, ef þörf krefur?
4. ) Er Sjálfstæðisflokkurinn
einhuga fylgjandi því, að
nú þegar verði skattalögin
tekin til ítarlegrar endur-
skoðunar og það tryggt, að
heilbrigð fyrirtæki geti þró-
ast og dafnað á eðlilegan
hátt í landinu?
Þess er að vænta, að Morg-
unblaðið svari þessum spurn-
ingum undirhyggjulaust fyrir
hönd ráðamanna flokksins.
Iðnrckandi.
. SIGURÐUR JÓHANNESSON,
fulltrúi hjá Tryggingstofnun
ríkisins, Drápuhlíð 39, 'er sext-
ugur í dag.
Sigurður Jóhannesson er son-
ur hins landskunna klerks og
fræðimanns, Jóhannesar L. L.
Jóhannessonar, og konu hans,
Steinunnar Jakobsdóttur,
prests Guðmundssonar, sem
einnig var landskunnnr maður
á sinni tíð. Séra.. Jóhannes
Lynge gerðist ungur aðstoðar-
prestur séra Jakobs að Kvenna
brekku í Dölum, geikk að eiga
dóttur prestsins og tók við bú-
inu og brauðinu.
Sigurður fæddist að Kvenna-
brekku og ólst þar upp. Vann
hann foreldrum sínum lengi
framan af, aðallega-við búskap-
inn, en gegndi jafnframt ýms-
unv öðrum störfum.- Hapn naut
kennslu föður síns heima, en
séra Jóhannes var afburða
kennari.
Árið 1918 hleypti Sigurður
heimdraganum og fluttist til
Reykjavíkur. Skömmu seinna
gerðist hann innheimtumaður
hjá Rafveitu Reykjavíkur og
gegndi því starfi til ársins 1928,
er hann réðist sem afgreiðslu-
maður og auglýsingastjóri hjá
Alþýðublaðinu. Því starfi
gegndi hann af mikilli alúð og
’skyldurækni til ársins 1941, er
hann réðist til Tryggingastofn-
unar ríkisins; og þar hefur
hann starfað síðan.
Sigurgur Jóhannesson er
þéttur maður á velli og þéttur
í lu.nd. Hann er prýðilega gef-
inn, léítur í skapi, kíminn og
Sigurður Jóhannesson.
þó gjörhugull. Hann má ekkert
aumt sjá og er réttlætistilfinn-
ing hans mjög rík. Hann gekk
snemma í . Alþýðuflokkinn og
hefur ávallt síðan starfað vel
og dyggilega fyrir hann og oft
gegnt þar trúnaðarstörfum.
Nýtur hann mikilla vinsælda
meðal flokkssystkina sinna og
starfsbræðra; enda er hann vel
máli farinn og tillögugóðu.r.
Sigurður er kvæntur Ágúst-
ínu Eiríksdóttur, hinni ágæt-
ustu konu, og eiga þau tvö
börn, Flosa Hrafn, sem nú
stundar veðurfræðinám í Nor-
egi, og Önnu Steinunni, sem
stundar skrifstofustörf hér í
bænu.m. Við, vinir og félagar
Sigurðar Jóhannessonar, ósk-
um honum allra heilla á sext-
ugsafmælinu og vonum, að við
megum sem lengst njóta hans.
Vinur.
Sextugur í dag:
Sigurður Jónsson ölgerðarmaður
Skemmtifundur Ár-
manns i
GLÍMUFÉLAGIÐ ÁRMANN
hélt skemmtifund s. 1. miðviku
dagskvöld. Sýndar voru skíða-
kvikmyndir, sérstakléga full-
komnar kennslumyndir. Þrjár
.ungar stúlkur úr félaginu fóru
með leikþátt, Stefán Kristjáns-
son flutti frásögn frá Ólympíu-
leikjunum, en hann var einn af
íslenzku keppendunum. Gestir
félagsins á fundinum voru ís-
firsku keppendurnir á hnefa-
leikamóti Ármanns. Að lokum
ærið dýrt og tími kominn til var dansað.
í DAG er Sigurður Jónsson,
ölgerðarmaður, Laugavegi 141,
sextugur.
Tíminn líður, það má nú
segja, því að það er svo sem
ekki langt síðan, að ungur pilt-
ur, ættaður ofan af Akranesi,
hélt innreið sína í höfuðborg-
ina, og þó eru það orðin næst-
um 40 ár. — Hafði hann þá um
alllangt skeið u.nnið alla al-
genga vinnu, og þar á meðal
sundað sjómennsku um tíma.
— En skömmu eftir að hann
kom til borgarinnar, réðist
hann í þjónustu Tómasar Tóm-
assonar, forstjóra, er þá var ný-
byrjaður á ölgerð sinni í litl-
ism húsakynnum og í litlum
mæli, — enda þá við ýmsa
byrj unarörðugleika að etja —
því öll byrjun er erfið, — og
hefur reynslan á því sviði, eins
og flestum öðrum, orðið bezti
skólinn, ásamt góðum starfs-
mönnum, — en fyrirtækið hef-
u,r varið, varan orðið fjöl-
breyttari, og starfið blessazt og
blómgast.
Síðan hefur Sigurður ekki
haft vistaskipti, og sýnir það
húsbóiidahöllustu hans, skyldu
rækni og trúmennsku í störf-
um. og er vjsuléga gott að hafa
slík hjú í sinni þjónústu.
Sigurður hefur ávallt verið
fjörmaður, og röskur að hverju,
sem hann gengur, hvort sem
það er vmna eða leikur. Hann
lagði ungur stund á skák, og
varð þar oftar en einu sinni
sigu.rsæll; hann hlaut tvisvar
titilinn „skákmeistari íslands".
Sigurður hefur gaman af að
„taka slag“, og spilar ágætlega.
Þá hafa árnar og lækirnir ekki
síður heillað hug hans, og er
Hvífkál
feuðkél
Gulræfur
VERZLlíN
.J
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
■ s
s
s
s
MMt 42®6 S
s
s
Sniðkennsla, dag- og ■
kvöldtímar. *
Einnig saumnámskeíð. ■
Bergljót Ólafsdóttir.
Sími 80730.
BWBOBIIDtJni
Bankabygg
Verzlun Theodor Siemsen.:
Simi 4205.:
PEDöX fótabaðsaltj
Pedox fótabað eySir '•
skjótlega þreytu, sárind- ;
um og óþægindum í fót- ■
unum. Gott er að láta j
dálítið af Pedox í hár- :
þvottavatnið. Eftir fárra *
daga notkun kemur ár-:
angurinn í Ijós. :
Fæst í næsíu búS.
CHEMIA H.F. :
■■■■■BÍBiBBIB
■■■■•■■■■■■
■■■•■■■■■*■■■■■■■
Til sölu:
Sigurður Jónsson.
laxveiði ein af hans beztu
skemmtunum; enda er hann
allsljmgur veiðimaður.
En Sigurður á enn þá fleiri
hugðarefni; honum þykir gam-
an að lesa góðar bækur, og þar
sem minnið er gott, hefur hann
þeirra full not.- Sigurður ■» er
trúhneigður og þykir vænt um
kifkju sína og vill henni vel,
enda all kirkjurækinn, einkum
hiú síðari ár. Sigurður er góð-
um gáfum gæddur, — glaður og
réifur í vinahóp, — og fjölhæf-
uf, eins og þegar sést á þessu
stútta og ófullkomna yfirliti, —
enda af góðu bergi brotinn, —
það er mér kunnugt um, þó að
ég hirði ekki að rekja ættir hans
— það er heldur ekki nauðsyn-
legt, einkum þar sem hér er
ekki um eftirmæli að ræða,
heldur aðeins stutta afmælis-
kveðju við merk tímamót í lífi
hans. —
Sigurður er vinmargur og á
Framhald á 7. síðu.
RauSmaganet
og teinar.
SPÍTALASTÍG 1 A.
áp:
■■■■■■■■■«■•■■»■■•■■■»«■♦
[■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■•■*B|s'liaiM*1Mi
Sild & Fsskui