Alþýðublaðið - 16.03.1952, Side 5
Gylfi 'P. Gíslason:
Sjónarmið afstæðish
innar i vísin
EKKI ALLS FYRIR LÖNGU
Icom út í Bandaríkjunum bók
eftir prófessor Philipp Frank,
eftirmann Einsteins við Prince-
ton-háskólann, en hann er eins
og Einstein Þjóðverji og flýði
.Þýzkaland eins og hann, er
nazisminn ruddi sér þar til
rúms. Bókin er alþýðlegt rit
tim afstæðishugmyndina í nú-
tímavísindum og afleiðingar
hennar, og hefur vakið mikla
athygli.
Hu.gsandi mönnum hefur
lengi verið ljóst, að 20. öldin,
sem verið hefur mesta framfara
skeið í sögu mannkynsins, hef-
ur að mörgu leyti verið hnign-
unarskeið í menningarlegum
og þó einkum siðferðilegum
efnum. Á fyrri helmingi- 20.
aldar hefur átt sér stað meiri
auðsköpun en á nokkru öðru
endurskoða varð heimsmynd-
ina alla. I hinni nýju, heims-
mynd hafa hugtökin ,,rúm“ og
,,tími“ ekki algilda, absólúta
merkingu, heldur aðeins í hlut-
falli við viss hugmyndasam-
bönd eða viðmiðunarkerfi. í
fyrirlestri, sem Níels Bohr
prófessor flutti í háskólanum,
er hann var hér á síðast liðnu
sumri, skýrði hann m. a. frá
því, að niðurstöður átómvís-
indanna væru sams konar. Á
síðustu öld héldu menn, að
atómin væru minnstu efnis-
eindir, sem til væru, en nú hef-
u,r komið í ljós, að þau eru
mjög samsett og að minnstu
eindir þeirra, elektrónurnar,
birtast aðeins undir vissum
skilyrðum sem efniseindir, en
að þær koma undir öðrum
kringumstæðum fram sem raf-
jafnlöngu tímabili, en hann j magnaðar (elektromagnetisk-
hefur jafnframt verið tími ar) bylgjur.
mestu eyðileggingar í sögu
mannsins. Svo að segja á
hverju ári hefu.r mannsandinn
unnið nýja sigra í sókn sinni til
yfirráða yfir hinni dauðu og
lifandi náttúru umhverfis sig.
En jafnframt hefur hatur og
heift náð vaxandi valdi á
mannshuganum; aldrei áður
hafa jafnmargir menn borizt á
banaspjót, frumstæðustu mann-
réttindi eru troðin í svaðið,
hugtökin frelsi, kærleikur og
réttlæti eru hætt að hafa al-
gilda merkingu. Menn hafa tal-
að u.m langvarandi og háska-
lega kreppu í menningar- og
siðferðisefnum, engu síður
hættulega og engu auðveldari
viðfangs en þær heimskreppur
í efnahagsmálum, sem skekið
hafa hagkerfi heimsins svo, að
það hefu,r riðað til falls.
Hvað veldur þessu? Hver er
undirrót þessarar kreppu í
menningu og siðferði? Hvernig
stendur á því, að grundvöllur
siðgæðisins — móralsins —
virðist hafa orðið þeim mun ó-
traustari sem grundvöllur
þekkingarinnar hefur orðið
traustari?
Ýmsir andans menn og
tnenntamenn nútímans hafa
talið, að það hafi haft mjög ó-
heillavæleg áhrif, að afstæðis-
hugmynd vísindanna hafi rutt
sér til rúms á sviði siðfræði og
breytni. En hver er þá kjarn-
Inn í þessum afstæðissjónar-
miðum vísindanna, í hinum
vísindalega relatívisma? Hans
gætir fyrst hjá Kóperníkusi. Á
miðöldum höfðu t. d. hugtökin
5,upp“ og „niður“ ákveðna,
absólúta, merkingu. En þegar
Kóperníkus sýndi fram á, að
jörðin snerist kringuni sóliná,
misstu þessi hugtök fasta, al-
gilda merkingu, þau, urðu af-
stæð, relatíf, þ. e. merking
þeirra varð háð því, hvar mað-
ur var staddur á jörðinni. Éins
fór um hugtakið hreyfingu.
Það missti sína algildu absó-
lútu merkingu. Það varð mein-
íngarlaust að tala um, að hlut-
ur hreyfðist, nema að geta
jafnframt getið þess, í hlutfalli
við hvað hann hreyfðist; Allt
fram á okkar daga hefur þó
verið talið, að hugtökin „tími‘‘
og „rúm“ væru algild, absólút,
eða þangað til Einstein sýndi
fram á það í byrjun aldarinnar,
að svo er ekki. Rannsóknir á
hreyfingu ljóssins sýndu, að
Alls staðar er hið sama uppi
á teningnum. Vísindaleg hug-
tök hafa ekki algilda absólúta
merkingu. Merking þeirra er
afstæð, relatíf, þ. e. staðhæf-
ingar eru réttar eða rangar
miðað við ákveðin tilraunaskil-
yrði eða hugmyndakerfi. Kenn
ingar eða teóríur, sem ekki er
hægt að setja þannig fraih, að
hægt sé að sannreyna þær með
tilraun eða reynslu, eiga ekki
heima innan vísinda.
Um þetta eru nútímavísinda-
menn yfirleitt sammála. En
jafnframt hafa ýmsir miklir
hugsuðir bent á, að þessar stað-
reyndir hafi grafið undan sið-
gæðishugmyndum aldarinnar.
Um leið og menn hafi gert sér
ljóst, að vísindahugtök hafi
ekki fasta, algilda merkingu,
þá hafi trú manna á föst, algild
siðgæðishugtök beðið skipbrot;
en hafi maðurinn ekki slík föst,
algild siðgæðishugtök að styðj-
ast við í Breytni sinni, verði
hún að hringlandahætti; hafi
maðurinn ekki fastan siðgæðis-
grundvöll að standa á, nái efa-
sýki og órói tökum á honum,
hann sé þá opinn fyrir hvers
konar kenningum, sem skjóta
einhverju föstu u.ndir fætur I
honum til þess • að . standa á,
þótt þær séu rangar og jafnvel
skaðvænlegar, og þessa and-
legu og siðferðilegu upplausn
hafi einræðisstefnur nútímans
notað sér. Lýðræðisskipulagið
og meirihlutavaldið sé í raun-
inni grundvallað á viðurkenn-
ingu þess, að í þjóðfélagsmál-
um sé ekki til siðferðilega rétt
lausn. En einræðisstefnur boði
trú á eina, sanna og rétta lausn,
þær veiti öryggið og festu.na,
sem siðgæðishugmyndir tuttug-
ustu aldarinnar hafi misst fyrir
áhrif afstæðissjónarmiða vís-
indanna, en sái jafnframt sæði
ofstækis og haturs, sem eitri
menninguna.
í bókinni, sem ég nefndi áð-
an, andmælir Frank prófessor
mjög eindregið þeim skoðun-
um, að afstæðishu.gmyndir vís-
indanna geti átt nokkurn þátt í
hinni andlegu og siðferðilegu
kreppu, ef þær séu rétt skildar.
Afstæðissjónarmiðin hafi gert
vísindunum kleift að skilja og
túlka raunveru.Ieikann betur og
réttar en áður hafi verið unnt.
Á sama hátt verði menn að
gera sér Ijóst, að ekki séu til
algild siðferðileg lögmál, sem
unnt sé að grundvalla á algildar
breytnireglur. Breytni okkar
og skoðanir á siðferðilegum
efnum hljóti að vera háð því,
hvaða verðmæti við metu.m
mest í lífinu og að hvaða mark-
miðum við yiljum keppa. Sú
breytni sé siðferðilega „rétt“,
sem stuðli að því, að þau mark-
mið náist, sem við álítum að
færi okkur mesta hamingju.
En ef við skiptum u,m skoðun
á markmiðinu, verður sú
breytni, sem áður var „rétt“,
„röng“. í því kemur það fram,
að breytnireglurnar eru afstæð-
ar, relatífar.
Að svo miklu leyti, sem sjúk-
dómar nútímamenningar koma
fram í ofstæki, hatri og skorti
á umbu.rðarlyndi, geta afstæðis
hugmyndir vísindanna ekki
verið sýkillinn. Réttur skilning-
ur á þeim ætti þvert á móti að
vinna gegn slíku. Kjarni þeirra
Framhald á 7. síðu.
F.U.J.
F.U.J.
F.IT.J.
Fundur verður haidinn
í Félagi ungra jafnaðarmanna
í Reykjavík mánudaginn 17. þessa mánaðar kl. 8,30 í
Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Öagskrá:
1,. Inntaka nýrra félaga.
2. Verkalýðs- og atvinnumál. Frummælandi: .
Eggert G. Þorsteinsson.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Hruninn í Grindavík
(Frh. af 1-. síðu-I
lestir af fullþurrkuðu fiski-
mjöli í mjölgeymslu, og er það
brunnið og eyðilagt af vatni.
Varð mökkurinn ótrúlega mik
ill, og kvað maður, sem var
við vinnu í verksmiðjunni. Sig
urður Þorleifsson símstöðvar-
stjóri í Grindavík, svo að orði,
er AB átti tal við hann í gær-
kvöldi, að jafnt hefði brunnið
móti vindi, svo bráður var eld-
urinn.
Sigurður kvað eldsins fyrst
hafa orðið vart um fimmleytið
í milliþili, bak við miðstöðvar-
ketil, sem notaður er til að hita
upp svartolíu, en ólíklegt þó,
að kviknað hefði í frá katl-
inum. Varð húsið og þakið þar
á svipstundu alelda. Fór Sig-
urður þá, ásamt öðrum manni,
Litli Kláus
Framh='ri af 4
geti sagt sæmilega rökrétta huga
un á látiausan, emxaiaan -og
smekklegan hátt. Þarna er um
svo veigamikið atriði að ræðá,
varðandi lífæð íslenzkrar tungu',
ljóðagerðina, að ekki rná kasta
þar til höndunum. Og þjóðleik
húsinu ber skylda til að sjá um,
að slíkt komi ekki fyrir. Hefuk
það aldrei verið nauðsýnlegra
en nú að eyru barnana séu þjáli
uð til að kynnast fegurð tung-
unnar í bundnu máli, þegar. að
þeim er sott úr ollúm áttum
með danslagatextum og álíká
samsetningi. Og ekki 'myhdi
neinum koma til hugar'að þjálfa
og glæða tónlistarsmekk barna
með því að leika falskt fyrir
þau, en það er hliðstætt dæmi.
Að öðru levti er fl.est. gott um
leikrit þetta og. Isiksýningu aö
ségja; Boðskapur sjónlei.ksins er
að velta lýsistunnum er stóðu fall®Sur> ^ins og halti Hans flyi
ur hann; kugarmn og þrælménn.
ið liggur á sínu eigin bragði,
þar 120 í hlaða úti undir verk
smiðjuvegg, og koma þeim frá
eldinum, því að gera mátti ráð
fyrir, að sprenging yrði af, ef
kviknaði í innibyrgðu lýsinu.
Vildi þá svo illa til, að tunna
valt ofan á manninn,
honum var, og lærbraut hann.
Heitir sá maður Guðmundur
Tómasson.
Skammt frá verksmiðjunni
stóð lýsisgeymir, er tók 19
smálestir, og er talið líklegt,
að lýsið í honum hafi eyðilagzt
af hita, þótt ekki kæmist eldur
í það. Er mikið tjón orðið af
eldsvoða þessum, auk þess sem
átta manns missa atvinnu
sína, en útgerðarmenn í Grinda
vík verða nu að flytja fiskbein
og lifur til vinnslu utan þorps
ins.
litla Kláusi fyrirgeíast bréllurn
ar og hið góða hrósar sigri að
leikslokum. Varla getur liðið á
löngu áður en við eignumst
góð. og skemmtileg barnaleikrit
er með eftir íslenzka höfunda, „og þá ei'
nóg“, svo að notuð séu orð litla
Kláusar. Ekki mun þjóðleikhús
ið skorta þakkláta og áhuga-
sama sýningargesti; það sást á
frumsýningunni. Börnin lifðu
sig af huga og sál inn í gang
leiksins; athygli þeirra og viö-
brögð er það ánægjulegasta fyr
irbæri, sem ég hef enn séð í
þjóðleikhúsinu.
L. Guðmumlsson.
„Lokað" - vegna
Bakkabræðra
Frá Sleindóri.
ný-
UB
þár
Reykjavík - Keflavík - Sandgerði
Fjórar ferðir daglega
Frá Reykjavík: Kl. 9% árd.
— Kl. 1.15 sd.
> — Kl. 5 sd.
— Kl. 9.15 sd.
Frá Keflavík:
KI.
Kl.
11 árd.
3 sd.
Kl. 7 sd.
KI. 11.15 sd.
OSKAR GISLASON er
kominn heim úr ierðalagi
Vesturland. Sýndi hann
kvikmynd sína, „Reykjavíkur-
ævintýri Bakkabræðra" á mörg
Lim stöðum og við góða aðsókh
Það gerðist í einu þorpi, er
Öskar hafði auglýst sýningu á
meðan hann beið eítir ferð, að
verzlun ein setti út í gluggami
svolátandi. auglýsingu: „Lokað
í dag vegúa Bakkabræðra!“
í dag sýnir Óskar kvikmyncl-
ina í Stjörnubíó kl. 3 og 5
vegna áskorana, og verður þaö
sennilega síðasta tækifærið um
skéið til þéss að sjá hana.
Sérstakur bíll verður í förum milli Keflavíkur og Sandgerðis og eru ferðir
hans í beinu sambandi við aílar ferðirnar milli Reykjavíkur og Keflavíkur.
Bifrelðastöð Sleindórs
Sérleyfissími 1585.
„Þessvegna skiljum
við” eftir Kamban
, • - ' 1
sýnt í næstu viku
,.ÞESS VEGNA SKILJUM
VIÐ" eitt af leikrilum Guö-
mundar Kamban, verður næsía
viðfangsefni þjóðleikhússins, og
verður frumsýning í næstú viku.
Leikrit þetta er í þremur þátt
um og hefur Karl ísfeld þýtt
það, en leikstjóri verður Harald
,ur Björnsson.
AB 5