Alþýðublaðið - 22.03.1952, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 22.03.1952, Blaðsíða 6
'Framhaídssagan '52- Agatha Christie: Morðgátan á Höfða Frn Dáriðm i>nrhetm*: A ANDFEGUM VETTVANGI Það hefur gerzt stórviðburð- ur hér í borginni, sem fæstir, eða að minnsta kosti ailt of fáir munu hafa veitt verðuga at- hygli, svo að þeir skilji til fulls hvað komið hefur fyrir. Það var framinn hér þjófnaður, — en það er vitanlega enginn at- burður í sjálfu sér; ekki held- ur að það var fullorðin kona, sem stolið var af, því að okkar þjófar eru djarfir og hugrakk- ir, og ekki er það heldur neinn atburður, þótt lögreglunni okk- ar blessaðri tækizt ekki að handsama þjófinn. Mikilvægi atburðarins liggur fyrst og fremst í því, að það er konan, sem tekur rögg á sig .þegar lög- reglan gefst upp, —• og hefur upp á sökudólginum! Með öðrum orðum; — full- orðin kona, meira að segja ekki úr Reykjavík, skákar allri lög- reglu borgarinnar í kænsku og dugnaði; gott, — finnst ykkur það ekki? . . . Á stundum hefur kvenrétt- indakonum verið brugðið um frekju, sökum þess að þær álitu konur körlum jafnfærar til að gegn ýmsum mikilsverðum störfum. En hvað finnst ykkur þetta atvik sanna? Hvað haldið þið að mörg ódáðaverk væru ó- upplýst, ef lögreglan væri að miklu leyti skipuð konum? Ekki eitt einasta! Þessir bless- aðir lögreglumenn hafa verið á þeytingi út um allan heim til að læra einhverjar vísindalegar aðferðir cg ég veit ekki hvað! Þegar allar þessar vísindalegu aðferðir klikka, kemur kona ut an af landi, og hún klikkar ekki! Svona er það. Á öilum svið- um standa konur kárlmörmum framar. Það yrði ekki aðeins á þessu sviði, sem bara ósköp venjuleg kona myndi sanna fljótlega, að hún gæti hæglega unnið það verk, sem hópur þaulæfðra karlmanna hefði gef izt upp við! Svona yrði það á öllum sviðum. Ætli þær yrðu lengi að kippa stjórn landsins í lag, ef þær væru látnar sjálf- ráðar! En þó grunar mig, að upplýsingastörf í svona málum myndu láta þeim einna bezt. Það ættu karlmsnnirnír sjálfir bezt að vita, að þær skulu nokk komast að því, sem þær ætla sér á annað borð að fá vitneskju um. Og þeir vita það og hafa alltaf vitað, — og nú verða þeir að gera svo vel að viðurkenna það. Vér konur heimíum að lög- reglan, að minnsta kosti rann- sóknarlögreglan, verði mest- megnis skipuð konum. Þá skulu karlmennirnir mega vara sig. í andlegum friði. Dáríður Dulheims. inn af henni síðast liðið hau.st. Þau voru þá mikið saman. En svo var eins og það slitnaði upp úr öllu saman um jólaleyt ið. Þau hittust aldrei eftir það, að því er ég bezt veit“. „Þeim hefur tekizt að hálda j þessu, algerlega leyndu“. „Það hafa þau sennilega ' gert vegna gamla mannsins, sir Mathew, geri ég ráð fyrir. Hann var víst ekki með öllum rnjalla, karlinn'". ,,Og þér höfuð engan grun um þetta, frú? Og þó eruð þér nánasti vinur ungfrú Nick“. mælti Poirot. „Nick getur verið dul og þögul, varðandi það, sem hún vill ekki láta mann komast að“, tuldraði Frederica. „Og nú skil ég fyrst, hvers vegna hún hef- ur verið svona utan við sig að undanförnu. Hún lét líka orð falla í gær, sem benda í þá átt, þegar maður athugar það“. „Ungfrú Nick er með af- brigðu.m töfrandi og aðlaðandi. frú“, mælti Poirot. „Það var ekki laust við, að Jim karlinn Lazarus væri á sömu skoðun um skeið“, sagði Challenger sjóliðsforingi og hló heldur hranalega. „ Já, hann Jim . .. . “ Hún yppti öxlum, og mér virtist henni gremjast þetta. Hún sneri sér að Poirot. „Segið mér eitt, herra Poi- rot, var yður það Ijóst .... “ Hún þagnaði skyndilega, skjálfti fór um hana og hún varð náföl í andliti. Hún starði felmtruð á borðið. I „Það gengur eitthvað að yð- ur, frú“. Ég leiddi hana að stól og studdi hana á meðan hún settist. „Nei, það gengur ekk- ert að mér‘‘, mælti hún og hristi höfuðið. Síðan laut hún áfram í sæt- inu og fól andlitið í höndum sér. Við störðum á hana, undr- andi og óttaslegnir. Þannig sat hún drykklanga stund. „Hvað ég get hagað mér kjánalega. Vertu ekki svona Auglýsið í AB hræddur, Georg minn. Jæja, nú skulum við fara að tala um morðið. Eitthvað, sem dreifir huganum. Mér leikur forvitni á að vita, hvort Poirot hefur orðið nokkurs vísari“, mælti hún og rétti úr sér í sætinu. „Um .það get ég ekki sagt að svo stöddu, frú“, svaraði Poi- rot. „En þér hafið þó hugsað yð- ur tilgátur í því sambandi?“ „Ef til vill. En nægar sann- anir eru þó ekki fyrir hendi, enn sem komið er“. „Einmitt það“. Og rödd henn ar titraði. Allt í einu reis hún á fætur. „Ég hef fengið svo sáran höf uð verk, að ég held réttast, að ég fari og leggist fyrir. Ef til vill verður mér leyft að hitta Nick að máli á morgun“. Að svo mæltu gekk hún út úr herberginu. Challengen sjó liðsforingi starði undrandi á eftir hermi. „Það er aldrei hægt að gera sér grein fyrir, hvað þetta kven fólk hefur í huga. Það má vel veraj að Nick sé einlæg vin- kona hennar, en ég leyfi mér að efast um, að hún sé Nick einlæg. En, — eins -og ég segi, það er ekki nokkur leið að át.ta sig á þessu kveníólki. Það seg- ir sífellt: elskan mín, elskan mín, elskan mín, hvert við anu að, enda þótt það meini í raun réttri allt annað. Eruð þér á leið út. herra Poirot?“ Poirot hafði nefnilega risið á fætur og tekið hatt sinn. „Já, ég ætla að skreppa út í borgina, rétt sem snöggvast“. „Ég hef ekkert fyrir stafni þessa stundina‘‘, mælti Chall- enger sjóliðsforingi enn. „Er yðu.r á móti skapi, að ég verði yður samferða?“ „Síður en svo. Mér er bað sonn ánægja“. Við gengum út úr herberg- inu. Poirot sneri inn aftur, bað okkur að bíða sín og kom að vörmu spori með göngustaf: sinn, sem hann hafði gleýmt inni. Challenger varð starsýnt 'á stafinn, enda var handfang- ið gu.lli skreytt og stafurinn hinn fegursti gripur. Poirot hélt fyrst inn í blóma verzlun. „Ég ætla að senda ungfrú Nick blóm“, mælti hann við okkur. Það sýndi sig, að Poirot var vandlátur viðskiptavinur. Að lokum fékk hann þó það, sem honum líkaði. Gullna blómakörfu, sem hann lét fylla með bleikum liljukonvöllum og skreyta með ljósbláum silki borða. Blómasölustúlkan færði hon um nafnspjald og hann reit á það með skrau.tlegri stafagerð. „Kærar kveðjur frá Hercule Poirot'1. „Ég sendi henni bíómvönd í morgun“, sagði Challenger sjóliðsforingi. „Éf til vill ætti ég að senda henni dálítði af ávöxtum“. „Þýðingarlaust“, tautaði Poirot. „Hvað segið þér?“ „Ég sagði, að það væri til- gangslaust. Henni er ekki leyft að taka á móti neinum send- ingum, sem hafa eitthvað mat arkyns inni að halda“. „Hver skipar svo fyrir?“ „Það er ég, sem skipa svo fyr ir. Þetta er ófrávíkjanleg regla. Ég hef rætt málið við ungfrú Nick sjálfa; hún skilur hvað ég á við, og mun haga sér samkvæmt því“ svaraði Poirot ákveðinn. „Hamingjan góða“, - varð Challenger sjóliðsforingja að ! orði. I Eitt andartak starði hann á Poirot, og það var bæði undr- un og hræðsla í augnatilliti hans. „Það er þá svona“, m'ælti hann. „Þér óttist þá að enn SEXTÁNDI KAFLI. Rætt við herra Whitfielcl. Ekkert nýtt kom í ljós við réttarhöldin. Þar voru aðeins bornar Upp þær spurningar, f GAMAN OG Myrulasaga barnanna: Bangsi og álfabjalhni Eftir langa stund leit gamla konan við og sá strákana, en hún sagði ekki orð. „Segðu okkur, hvernig á þessu stend- ur?“ sagði Bangsi óþolinmóður og gleymdi að heilsa. „Hvaðan kemur þessi reykur?“ Kerling in þagði enn um stund. Síðan sagði hún: „Það var sú tíð“, tautaði hún dularfu.il á svip, „að reykir og eldar komu víða upp í landinu okkar. Hver veit nema þeir tímar séu að koma aftur“. „Getur þá kviknað í okkur?“ spu.rði Gutti lafhrædd ur. En kerlingin svaraði ekki, heldur staulaðist áleiðis að vagni sínum. Þegar þau komu að vagnin- um, sneri hún sér aftur að drengjunum og sagði: „Undar- leg fyrirbæri eru að gerast langt niðri í jörðinni og ein- hver verður að grafast fyrir um, hver þau eru. Það er hættu legt verk. Ég er orðin of göm- u,l til að taka það að mér, og ég get ekki verið án Tatta. Munduð þið hinir vilja vita, hvað þið getið?“ „Já, já,“ hróp- aði Bangsi ákafur og hafði nú gleymt allri hræðslu. „Við Gutti skulum gera það. Hvert eigum við að íara og hvað eig- um við að gera?‘‘ En kerling- in brosti að ákafanu.m í Bangsa. Síðan staulaðist kerlingin upp í vagninn sinn og bað Bangsa að koma upp á pallinn. Hún var nokkra stund eitt- hvað að bauka inni hjá sér, en kom svo fram í dyrnar aft- ur, hallaði sér yfir neðri hurð- ina og fékk Bangsa skínandi bjöllu.. „Ég sýni þér mikið traust“, hvíslaði hún. „Ég hef engu.rn lánað þesa bjöllu fyrr. Þetta er álfabjálla. Þú átt að fara þangað, sem reykurinn er þykkastur og hringja þar. Segðu mér svo, hvað gerist.“ Gutti stóð álengdar og horfði á. Hann var orðinn talsvert skelkaður, þegar Bangsi kom til hans. Gerðist læknir. Logreglan í Ohio í Bandaríkj unum leitaði fyrir nokkru að sjúkling, sem sloppið hafði af geðveikrahæli í Virginíufylki. Eftir langa leit fannst sjúkling- urinn. Hafði hann. þá fengið stöðu sem aðstoðarlæknir við geðveikraspítala í Ohio, og þótti afburða snjall og líklegur til frama þar á spítalanum. Það kom því flatt upp á starfsfólk spítalans þegar lögreglan flutti hann burtu og sendi hann til Virginíu þar sem hann var aft- ur innritaður sem sjúklingur. Trúði ekki spáðómum. „Hefur þú ekki trú á spádórn um?“ spurði grannkona Jóns í Görðum er þau sátu eitt sinn á taii yfir kaffibolla. Jón: „Fari allar spákonur norður og niður. Það er nú síð- ur en svo. Ég trúi engum spá- dómum síðan því var spáð fyrir dóttur minni að hún myndi aldr ei eignazt barn. Stelpukjánirtn treysti þessu og skákaði í því skiólinu. Nú situr hún uppi með tvö börn.“ Pabbi ex* verri en cg. Bjössi er að leika sér úti á götu og situr í göturæsinu þeg- ar vel búin kona gengur fram- hjá. „Ósköp er að sjá þig, drengur minn,“ segir konan, „þú mátt ekki óhreinka þig svona mikið. Hvað heldurðu annars að hann pabbi þinn segi?“ „Pabbi getur nú ekki sagt mikið, því hann er enn verri en ég.“ „Hvað er að heyra til þín, drengur minn, heldurðu að þú megir tala svona um föður þinn, aldrei sezt hann í götursæsið.“ „Nei,“ segir strákur hróðug- ur, „en hann fer stundum niður í reykháfa, því hana er nefni- lega sótari.“ Ótrúlegt en sact. í Þýzkalandi hafa verið gerð' ar tilraunir með að lita trjávið. Litúnum er sprauíað í viðiim nærri rótunum meðan tréð er ungt og breiðist liturinn um bol trésins. komið og seljið meiki Hvítabandsins á morgum Sölulaun. Afhent á Vesturgötu 10 og: Laugarvegi 61 (skriftofu) öími 1609, og fleiri stöðum eftir upplýsingum þar. Rafbúnaður í bíia Rafvélaverkstæði og verzlun Halldórs Óláfssonar. Rauðarárstíg 20. Sími 4775.' AB6

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.