Alþýðublaðið - 03.04.1952, Side 1

Alþýðublaðið - 03.04.1952, Side 1
 r kSHfao fyviv llllfÍ 11311 almenning á 1 zlBlðl.Q l|íií ösludag ==?==^== (Sjá 8. síðu.) J MÞYðUBiJL XXXIII. árgangur. Fimmtudagur 3. apríl 1952. 78. tbl. WtUSBBmSSBBII'eiSEBSú.Xi wv Fulltrúar á landsþingi slysavarnafélagsins framan við björg- unars.töð Ingólfs í Örfirisev. Þeir eru að skoða gúmmibjörgun- arbát slysavarnafélagsin:— Ljósm.: Stefán Nikulasion. FULLTRUUM A LANDSÞINGI SLYSAVARNAFELAGS. INS voru sýnd í gær tæki, sem sérstaklega eru ætluð til þess að bjarga mönnian, sem fallið hafa fyrir borð. Tæki þessi eru mjög haglega útbúið björgunarvesti og lína, sem flýtur á sjón- um. Eru vestin alveg ný, en línan hefur verið hér til í nokkur ár, þótt ekki hafi hún enn verið sett í skipin. Fulltrúar á slysavarnaþing- ■ inu skoðuðu þessi tæki, er slysavarnadeildin Ingólfur í Eevkjavík bauð þeim að skoða björgunarstöð sína í Örfirisey. Einnig fengu fulltrúarnir a’ð bragða á nærandi súpu, sem geymd er í dósum og ætluð er til þess að hafa í skip- brotsmannaskýlum. Súpu- dósirnar eru tvöfaldar, og á milli laga er efni, sem kveikt er í, og hitnar þá súpan. Á að neyta hennar heitrar. Er hún einkar hentug til hress- ingar skipbrotsmönnum, er ná landi og komast í skýli aðframkomnir af kulda og vosbúð. BJÖRGUNARVESTIÐ Björgunarvestið er mjög fyr- irferðarlítið, þegar það er ekki í notkun. Það er geymt í lítilli tösku, sem hver sjómaður get- ur haft spennta á sig við vinnu sína. Falli hann útbyrðis, þarf hann ekki annað en að opna töskuna og setja vestið upp yfir höfuðið, kippa síðan í band á vestinu, og fyllist það þá lofti. Vestið heldur manninum alveg á floti. Einnig er ljós á vestinu og áföst við það er flauta, sem hann getur blásið í, ef hann þarf að láta vita, hvar hann er í dimmviðri eða náttmyrkri. Falli maður fyrir borð, án þess að vera búinn vestinu, en sé þáð til á skipinu, getur annar skipverji búizt því í skyndi og kastað sér til hins nauðstadda manns. Er þá flotlínan fest við beltið. n o Kefauver íékk langmesí fylgi af ambióðendum demókrafa ROBERT TAF'T sigraði Eisenhower hershöfðingja í fulltrúakjörinu í Wisconsin og Nebraska. Fékk hann kosna 24 kjörmenn repúblíkana af 30 í Wisconsin, en hinir 6 eru stuðningsmenn Warrens. í Nebraska hafði Taft einni'g fengið meira fylgi en Eisenhower, þegar talningu atkvæða bar var langt komið í gær, en hvor- ugur þeirra var þar í kjöri, og urðu kjósendur því að skrifa nöfn beirra á framboðslistann. Hefur aðstaða Tafts í sam- keppninni við Eisenhower styrkzt að miklum mun við þennan sigur hans í Wisconsin oq Nebraska; en hann hefur sótt kosninguria þar af miklu kappi: enda var almennt talið, [ að hann myndi úr leik sem forsetaefni repúblikana, ef hann tapaði fyrir Eisenhower í þessum tveimur ríkjum. Þykir líklegt, að stuðnings- menn Eisenhowers muni nú leggja fast að honum að hverfa heim til að taka persónulega þátt í kosningabaráttunni, þar eð ella séu vaxandi líkur á því að Taft hreppi framboðið. Estes Kefauver fékk lang- mest fylgi af demókrötum í fulltrúakjörinu í Wisconsin og Nebraska. Fékk hann alla 28 kjörmennina kosna í Wisconsin og hafði langmest fylgi fram- bjóðenda flokks síns í Ne- braska, en atkvæðatalningunni bar var enn ekki lokið, þegar síðast fréttist í gærkvöldi. Virðast þannig auknar líkur á því, að Kefauver verði forseta- efni demókrata, og ferðast hann víðs vegar um landið til að afla sér fylgis meðal kjós- enda. Sfjorn Pinays beið ó sigur í atkvæða - greiðslu um fjárlögii Taistöðvar eru í 93 próseni ís- lenzkra skipa S.V.F.Í. vill fá tal- stöðvar í öll. TALSTÖÐVAU eru í öllum íslenzkum skipum, sem eru yfir 10 smálfestir, að því er póst- og símaniálastjóri upp lýsti á landsþingi slysavarna félagsins, eða m. ö. o. í 93% alls íslenzka flotans, Mun það vera meira en dæmi eru til í öðrum löndum. En um þetta mál sam- þykkti landsþingið svo lát- andi tillögu: „Þingið álítur að lögbjóða þurfi talstöðvar eða radio- neyðartaltæki í hvert íljót- andi íslenzkt far og felur stjórn félagsins að viivna að því máli“. RÍKISSTJÓRN Antoine Pi- nays á Frakklandi beið í gær niikinn ósigur í sambandi við atkvæðagreiðslu um fjárlaga- frumvarp hennar. Var þar um að ræða lieimild stjórninni til handa um að afla tekna, en þingið felldi að ræða hana. Atkvæðagreiðslan fór á þá lund, að 432 þingmenn greiddu atkvæði gegn því að ræða heimild þessa; en aðeins 187 | þingmenn með því. Þeir, sem greiddu stjórninni atkvæði, voru þingmenn íhaldsfloklc- anna og róttækra. Maður í björgunarbúningi með vestið. — (Ljósm.: Stefán Nikulásson. FLOTLÍNAN Flotlínan er grönn en sterk og flýtur qfan á sjónum. Henni á að skjóta út til manns, sem falJið hefur í sjóinn, og má hafa ljósaútbúnað á enda hennar. Ef ekki er mjög dimmt, sér hann línuna á sjónum og getur grip- ið í ■ hana, enda yrði henni skotið eins nærri honum og unnt væri. KAFFIBOÐ HJÁ „INGÓLFI" Fulltrúunum var einnig sýnd hin nýja tegund gúmmíbáta, línubyssur o. fl. Síðan bauð slysavarnadeildin Ingólfur full- trúunum ■ til kaffidrykkju í Tjarnarcafé, og voru þar flutt mörg ávörp. Eldborg byrjar afíur Akraness og Borgarnessferðir um miðjan apríi --------9------- Ekkert skip fengið enn í stað Laxfoss. --------9------- ELDBORGIN mun hefja ferðir á ný milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness um miðjan þennan mánuð, en hún er i nú stödd í Frakklandi, en fer þaðan til Danmerkur og tekur þar vörur hingað. Enn hefur Skallagrímur h.f. ekkert skip getað fengið keypt, senr hentar á þessa leið, en eftirgrennslanir í því efni halda áfram. Vélskipið Andry, sem haldið hefur uppi ferðum til Akraness og Borgarness í febrúar og marz, er enn 1 ferðum, en leigusamn- ingurinn um skipið var útrunn inn 1. apríl, og er ekki vitað hvort hægt verður að fá^það til þess að halda ferðum áfram þar til Eldborg kemur heim, en hún er væntanleg um páskana. Samkvæmt upplýsingum, sem AB fékk í gær hjá Friðrik Þor- valdssyifi, hefur Skallagrímur nú keypt Laxfossflakið af trygg ingarfélaginu, en horfur um björgun munu ekki miklar. Rann sóknir hafa þó verið gerðar á flakinu og áætlanir um kostnað við björgun, en engin ákvörðun hefur verið tekin enn, hvort reynt verður að bjarga flakinu með vorinu. Leiðarmerki komin á stræiisvagnana LEIÐARMERKI eru komin á alla strætisvagnana, og gefast þau vel; enda eru mikil þæg- indi að því fyrir farþega, að þurfa aðeins að lít,a á leiðar- merkin í hliðarrúðum vagn- anna, til þess að þekkja sinn hlaupa fram fyrir þá til þess vagn, í stað þess að þurfa að að lesa á þá. Enn fremu.r er komið til landsins efni í skilti, sem sett verður upp í aðalstöðvum strætisvagnanna í miðbænum* en á það verður skráð leiðar- númer vagnanna, svo og bu’rt- farartími þeirra. Einnig munui síðar meir verða sett upp leið- arnúmer á hina ýmsu viðkomu- staði vagnanna úti um bæinn. Fékk ekki meðráð- herra í stjórn sína MAÐUR SÁ, sem beyinn í Túnis fól stjórnarmyndun á dögunum, hefur nú gefizt upp við að mynda sitjórn, er fulltrú- ar stjórnmálaflokka landsins eigi sæti í. Beyinn fól í gær sama manni að mynda stjórn, sem í eiga sæti embættismenn, er standi utan við stjórnmálaflokkana; en tvisýnt þykir, að hann fái ráðherra í slíka stjórn.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.