Alþýðublaðið - 19.04.1952, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 19.04.1952, Blaðsíða 4
AB-AíþýðubíaðKS 19, aprjl 1952 insdæmi í vesfrænum iöndum Fiskistúlkan. Ungar stúlkux í Svíþjóð láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Hér er ein þeirra, Gerd Andersson, 19 ára, sem á heima í skerjagarðinum úti fyrir Stokkhólmi og stundar fiskiveiðar. Hún segist líka ætla að giftast fiskimanni; en ennþá hefur enginn þeirra bitið á hjá henni, þó að hún innbyrði fiskinn, hundruðum saman. Vertíðin suðvestan lands I.—15. apríh Afli misjafn og sums staðar mjög rýr, en gæffir yfirleiff góðar ---------4-------- AFLI VAR MISJAFN í verstöðvum á Suðvesturlandi fyrri part aprílmánaðar, sums staðar mjög rýr, samkvæmt upplýsing um frá Fiskifélagi fslands. En gæftir voru yfirleitt góðar. VÍSIR hefur nú komizt að þeirri gáfulegu niðurstöðu, að Alþýðuflokkurinn sé að berjast gegn samtökum hinna vestrænu þjóða með andstöðu sinni gegn verzlunarokrinu, sem Björn Ólafsson hefur kallað yfir þjóðina! Reynir heildsalablaðið að gefa í skyn, að stefna ríkisstjórnar- innar í verzlunarmálum sé í samræmi við eínahagssam- starf vestrænna þjóða og hljóti að vera sá, sem raun ber vitni. Og þessu til viðbót- ar syngur svo.Vísir einu sinni enn lofsönginn um „frjálsu verzlunina“, sem einkennist af verðhækkun annars vegar og hruni íslenzkrar fram- leiðslu og atvinnuleysi hins vegar! Þessi vörn Vísis íyrir hina svokölluðu „frjálsu verzlun“ Björns Ólafssonar er hlægi- leg fjarstæða. Efnahagssam- starf hinna vestrænu þjóða á ekkert skylt við fjármála- stefnu afturhaldsstjórnarinn- ar hér á landi. Oæmin þessu til sönnunar eru fjöldamörg. AB vill til dæmis benda Vísi á, að Bx-etum dettur ekki í hug að taka upp skefjalausan innflutning á útlendum vör- um og stofna bannig innlend- um iðnaði í hættu. Churchill 6g samherjar hans í brezku stjórninni eru raunar íhalds- menn. En beir láta sér ekki til hugar koma að stuðla að bví, að útlent vinnuafl leysi brezkt af hólmi. Þeir eru bannig frjálslyndir og víðsvn- ir í samanburði vlð ihalds- mennina. sem ráða verzlunar málum fslendiinra undir vfir- stjórn Björns Ólafssonar; en Hermann Jónasson. Eysteinn Jónsson og St.eingrímur Stein þórsson virðast honum ekki síður sammála en Biarxii Benediktsson og Ólafur Thors. Vísir er ef til v.ill á því gáfnastigi, að hann ielji, að Bretar séu andvígir efna- . hagssamvinnu hinna vest- • rænu þjóða; en sú ásökun felst í asnasparki hans til /VI- þýðuflokksins. Og hað er satt að segja ónærgætnislegt að ' ætla Vísi svo heimskan, að honum sé ekki um það kunn- ugt, að engin ríkisstjórn bjóð anna, sem standa að hinr.i vestrænu efnahagssamvinnu, nema sú, sem við fslendingar eigum við að bii.a. hefur af- numið verðlagseftirlitið og ■ gefið bröskurunum friálsar hendur við að :kara eld að gróðaköku sinni á kostnað al mennings. Samstarfsþjóðir okkar á sviði hinnar vest- rænu efnahagssamvinnu leggja megináherzlu á að halda niðri verðlagi á nauð- synjavörum. Hér á landi hef- ur verðlag þeirra hins vegar verið sprengt upp úr öllu valdi. Ög þetta á meginþátt- inn í reginmun dýrtíðarinn- ar og verðbólgunnar hér og í nágrannalöndunum; en hann er alltaf að aukast fyrir at- beina íhaldsstjórnarinnar, sem hefur gert Björn Ólafs- son að einræðisherra verzlun- armálanna. Vísir ræðir í þessu sam- bandi einu sinni enn erfið- leika iðnaðarins. Hann skort- ir hreinskilni til að játa, að þeir stafi af frílista Björns Ólafssonar, en segir hins veg- ar, að iðnaðurinn hafi verið „gripinn þeirri sýki að skara eld að sinni köku og hirða skjótfenginn gróða á sem auð veldastan hátt“. En dettur Vísi i hug, að íslendingar trúi því, að þetta sé sannleikur málsins? Iðnaðurinn hefur átt í vök að verjast um áraskeið og mátti sannarlega ekki við áfalli, hvað þá því rothöggi, sem afturhaldið í landinu hef ur greitt honum. Heildsala- blaðinu tekst áreiðanlega ekki að telja neinum manni trú um, að lagt hafi veriö tii atlögu gegn iðnaðinum af því að hann hafi safnað ofsa- gróða. Ef vakað hefði fyrir ríkisstjórninni að skerða illa fenginn ofsagróða, myndi hún hafa snúið geiri sínum að húsbændum Vísis. heildsölunum og verzlunar- okrurunum, en reynt að hlúa að íslenzkum iðnaði. En nú er hlúð að heildsölunura og öðrum bröskurum á kostnað iðnaðarins. Annars er athyglisvert fyr- ir íslenzka iðnaðarmenn að kynna sér dóm þann, sem heildsalablaðið kveour upp yfir þeim í forustugrein sinni í gær. Þjóðin mun vissulega ekki taka mark á þeim sleggjudómi. En hann sýnir hins vegar og sannar, hver er vinátta íhaldsins í garð iðnað arins, þegar á reyni; og gæð- ingar þess sjá sér gróðaleik á borði. Þá er ekki hikað við að fórna stærsta atvinnuvegi landsins og kalla böl atvinnu- leysisins yfir þúsundir karla og kvenna. Hér skal greint frá afla- brögðum og gæfturn í verstöðv- unum á tímabilinu frá 1.—15. apríl: ÓLAFSVÍK Gæftir voru fremur stirðar og mjög rýr afli. 6 bátar reru með línu og varð heildarafli þeirra 29 Vz smálest og heildar- róðrafjöldi 21. AKRANES Á tímabilinu 29. marz — 14. apríl fóru 15 lóðabátar og einn netjabátur fjá Akranesi 126 sjóferðir og öfluðu 688 smálest- ir af slægðum fiski með haus. EYRARBAKKI Fimm bátar stunduðu veiðar frá Eyrarbakki í íyrri hluta aprílmánaðar. Gæftir voru gcð ar, en afli rýr. Flestir voru farnir 10 - róðrar, en heildar- róðrafjöldk var 4o róðrar og heildaraflamagn 130 smálestir af slægðum fiski með haus. STOKKSEYRI Þaðan gegnu fimm netjabát- ar. Gæftir voru sæmilegar, en afli fremur tregur, 5—6 lesbr í róðri. Flest voru farnic 12 róðrar. Heildaraflinn nam 262 lestum (slægður með hausl, en heildarróðrafjöldi var 58 róðr- ar. VESTMANNAEYJAR Gæftir hafa verið fremur stirðar það sem af er mánuðm- um, en afli góður. Aðallega er veitt í þorskanet, en þó eru nokkrir bátar, sem veiða í botn vörpu. Af netjabátum hefur Emma II fengið mestan afla í róðri um 35 lestir. Flestir bát- anna hafa farið 11—12 sjóferð- ir og aflað frá 150—180 iesbr. Veiðar með lóð hafa ekki ver ið stundaðar það sém af er mánuðinum. ÞORLÁKSHÖFN Þaðan róa 6 þilfarsbátar með net. Gæftir voru góðar og afli fremur góður. Flestir voru farn ir 12 róðrar, en heiiclarróðra- fjöldi var 61. Mestan afla í róðri hafði Viktoría ?.7 175 kg. af slægðum fiski og hausuðum. Heildarafli þessara 6 báta var 579 lestir. SANDGERÐI Þaðan rær 21 bátur með línu og hafa gæftir verið ágætar, en afli misjafn. Beitt hefur ein- göngu verið með lóðum. Flestir hafa verið farnir 9 róðrar, en almennt 8 róðrar. Fiskurinn er aðallega hraðfrystur, en þó hef ur verið saltað mestmegnis af 3 bátum. Mestan afla höfðu í róðri: 1/4 Muninn II. 12 000 kg. 2/4 Sami 10 310 kg. 2/4 Frosti 9880 kg. 3/4 Mummi 9490 kg. 3/4 Víðir 13 660 kg. 8/4 Víkingúr 9700 kg. — Heildarróðrafjöldi var 169 róðrar og heildarafli 935- 155 lestir allt miðað við slægð- an fisk með haus. GRUNDARFJÖRÐUR Þaðan róa 4 bátar með lír.u. Gæftir hafa verið íremur stirö- ar og afli afar rýc-. Er aflirm það sem af er mánaðarins frá 8—24 lestir á bát, þar af um helmingur keila. Flest hafa verið farnir 6 róðrar, en fæst 4. Heildarróðra- fjöldi er 20 róðrar og er heild- arafli í þeim um 60 lestir. Til beitu hefur verið notuð bæði síld og loðna og með svipuðum árangri. SANDUR Þaðan róa nú 2 dekkbátar, hafa gæftir verið stopular og lítið róið af þeim ástæðum. Afli hefur verið mjög tregur lVz-—3 lestir í róðri. Hafa þess- ir 2 bátar farið 8 róðra samtals og aflað um 8 lestir. GRINDAVÍK Þar hafa gæftir verið góðar Framh. á 7. síðu. SAMKVÆMT FRÉTT í „Ber- lingske Aftenavis" er kabare.lt- söngkonan Lulu Ziegler vænt- anieg til Reykjavíkur í sumar; kveðst hún ætla til Spánar fyrst, bæði sér til hvíldar og vegna þess, að hún telji heppilegustu flugleiðina frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur liggja um Mad- rid! „Jú; þeir í Reykjavík ætla að efna til revýusýninga í sumar, og er ég ráðin þangað með það fyrir augum, að revýan verði sarnin með tilliti til þess, að ég hafi með höndum aoalhlutverk- ið. Ég hef aldrei komið til ís- lands og bíð þessa tækifæris með ákafri eftirvæntingu og til- hlökkun,“ hefur blaðið eftir Lulu Ziegler; en hún er í fremstu röð þeirra kabarett- skemmtikrafta, sem Danir eiga nú. Árneshreppi Frá fréttaritara AB á Djúpavík ÞAÐ MÁ SEGJA, að þessi vetur, sem nú er senn á enda, ha-fi verið harður fyrir bændur í Árnesshrc^pi, þó að snjór hafi ekki verið mjög mikill, hefur snjólag verið vont og' engin nýt- ing af iörð fyrir skepnur; hey eru víða orðin lítil, en vonir standa til að þau dugi, ef ekkí vorra seint. Lítil sem engin sjósókn er í byggðarlaginu, og veldur það mestu, um, að ekkert frystihús er á staðnum. Tilraunir, sem hafa verið gerðar með útgerð stærri báta héðan, sýna aftur það, að Reykjarfjörður er mjög vel settur sem útgerðarstaður, og er ólíku saman að jafna að stunda sjó héðan eða frá Steín- grímsfirði; enda verða bátar þaðan að sækja nær allan afla sinn hingað norður, og verður keyrslumunur vart undir 5 klst. á hvern róður, og þaðan af meira. Upp úr síðustu mánaðarmót- um gerði hér afíaka norðaust an veður með hríð, sem stóð nær óslitið í viku, norðan átt er hér enn þá, en minnkandi. S. P. Sumaráailun Guli- faxa aS hefjasl SUMARÁÆTLUN „GULL- FAXA“ hefst á þriðjudaginn. verður henni hagað á sama hátt og í fyrra, þannig, að flogið verður beint til Kaupmanna- hafnar hvern laugardag og aftur til Reykjavíkur á sunnudögum. Á þriðjudögum flýgur „Gull- faxi“ til og frá London sam- dægurs, og hefjast þær ferðir 22. apríl. Oslóarferðir verða hins vegar hafnar 30. maí, og verður þá flogið fram og aftur samdægurs annan hvern föstu- dag. Eftirspurn um ferðir með „Gullfaxa í sumar er þegar orðin mikil, og eru sumar ferðir nú fullskipaðar. Þá befur flug- vélin einnig verði leigð til nokk- urra hópferða, sem farnar verða á sumri komanda. Sé gerður samanburður á far- gjöldum, eins og þau verða í sumar á erlendum flugleiðum, þá kostar sætiskílómetinn kr. 1,20 á meginlandi Evrópu, kr. 1,30 milli Bandaríkjanna og Ev- rópu á hinum venjulegu flug- leiðum, kr. 0,80—0,84 á ferða- mannaflugleiðum milli Banda- ríkjanna og Evrópu og kr. 0,78 —0,84 á flugleiðum Flugfélags íslands. Aðvörun. Að gefnu tilefni viljum vér upplýsa að Vörubíla- stoðin Þróttur hefur ekki verið beðin um bíla í vinnu til varnarliðsins og alveg óvíst um hvort það verður gert. Menn eru því varaðir við að kaupa vöru_ bíla í þeim tilgangi að ganga í Þrótt, þar sem at- vinnuleysi er mjög mikið hjá meðlimum félagsins. Vörubílsíjórafélagið Þrótfur. AB — Albý3ubla5i5. Otgefandi: AlþýSuflokkurinn. Rítstjóri: Stefán Pjetursson. Auglýsingastjóri: Emma Möller. — Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902. — Auglýsinga- sími: 4906. — AfgreiSslusími: 4900. — Alþýðupre.ntsmiðjan, Hverfisgötu 8—10. AB 4

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.