Alþýðublaðið - 19.04.1952, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 19.04.1952, Blaðsíða 7
 FÉLAGSLÍF: SMðaferðir á morgun kl. 10 og 13.30. Ferðaskrifstofan. FERBAFELAG ÍSLANDS ráðgerir áð fara skíðaferð yfir Kjöl nk. sunnudag. Lagt af stað ,kl. 9 árd. frá Austurvelli. Ek ið upp í Hvalfjörð, að Fossá, gengið þaðan upp Þránda'->- staðafjall og yfir há-Kjöl að Kárastöðum í Þingvallasveit. Þessi leið er með afbrigðum skemmtileg og ekki erfið. Farmiðar seldir á laugar- dag til kl. 4 í skrifstofu Kr'. Ó. Skagfjörs, Túngötu 5. Skíðafólk! Skíðaferðir um helgina í Jósepsdal, Kol- viðarhól og Hveradali.' Laug ardag ld. 14.00 og kl. 18.00. Sunnudag kl. 9.00, kl. 10.00 og kl. 13.00. Farmiðar seldir á Amímannsstíg 1 sími 4955 og Skátaheimilinu. Fólk sótt í Vesturbæinn laugardag kl. 14.00 og sunnudag kl. 10.00 og kl. 13.00 og tekið á leið úr Afgreiðsla skíðafélaganna Amtmannsstíg 1. ÍR. — Náskeið í frjáisíþróttum Frjálsíbróttadeild ÍR. ætl- ar að stoína til námskeiðs í frjálsíþróttum, æm hefst i næstu viku. Tilhögun nám_ skeiðisins verður þannig, að fyrstu tvær vikurnar verður kerint innanhúss, en síðan aðrar tvær vikur úti. — Þeir sem ætla sér að verða með, mæti til skráningar í ÍR-hús- inu laugardaginn 19. apríl kl. 5—7 og mánudaginn 21 ; apríl kl. 6 — 7. Sími ÍR-húss ins er 4387. — Þjálfari er Guðm. Þórarinsson og hon- um til aðstoðar beztu írjþls- íþróttaménn félagsins. F. í. R. í-ers a< Framhald af 5. síðu. göngu án aðgangseyris og verið leyft að dveljast á skemmtun- um. til klukkan tólf. Athugaði forinaður barnaverndarnefadar ?íðan allt eins og um var beðið. kvaðst ekki hafa neitt við nsitt að . athuga. og hélt á brott við svo búíð. Þannig lauk þá þessari tang- arsókn þessara sameir.uðvi hern áðaraðilja. Er öll þeirra bar- dagaaðferð satt bezt að segja beldur óhugnanleg. Um orsök- ina að þessari ofsókn þeirra á bendur okkur, sem stöndum að félagsheimilinu, er ekki gott aö segja; þar kann margt að hjáip- ast að. Jóhar.nes Sehröder mun til dæmis hafa haft við orð að tælpa, sem hann á, •skýrleik’- tíarn og mjög skemmtileg, væri mjög ergileg og leið vegna þess, að hún íengi ekki leyíi hans tJ að sækja skemmtanir í félagsheimilinu. Og einu sioni var það, er efnt var til kvik- myndasýninga fyrir börn þar, að frá heimili Karls Guðmunds- sonar heyrðist hrópað hátt tíl barnanna, að þeim væri fyrir- boðið að koma náiægt félags- líeimilinu. Er hver og einn að sjálfsögðu sjálfráður um slíkt. en þess skal getið, að ekki var þarna urn neinn póiitískan áróð ui' af hálfu félagsheimilisins að ræða, þar eð kvikmyndirnar. sem sýndar voru, höfðu verið fengnar að láni frá fræðslu- málaskrifstofunni, og voru sýndar undir hennar umsjá. Enda var þarna um hinar skemmtilegustu fræðslukvik- niyndir að ræða. Hvað oddvitafrúna snertir, þá þvkir mér sannarlega fyrir þvi, að hún skuli hafa léð slíkri ofsóknarstarfsemi liðveizlu, því að ég hef alltaf álitið hana beztu konu. Af þehn Karli og Jóhannesi hef ég hms vegar allt af búizt við ýmsu, en það þykir mér, að báðir séu þeir ósmeykir við að hefja grjótkast úr gler- husí, er þeir fara þannig að. Áð- ur hef ég getið'um skemmtanir þser í barnaskólahúsinu, sem Karl er við riðinn; fæ ég satt að segja ekki skilið, hve lengi hann hefur staðizt að leita að- stoðar barnaverndarnefndar þeirra vegna, þar eð sýnt er. að hann er mjög kröfuharður um allt, er að barnavernd lýtur, ekki sizt, þegar félagslieimilið á hlut að máli. Eða er kanhski einhver munur á því, hvort börn á tiu ára aldri fá að dvelj- ast á dansleikjum innan um ölv að fólk allt til klukkan tvö á nóttum, eða fjórtán til sextán ' ára ungiingar fá að dveljast við skemmtun, þar sem ekkert vín er um hönd haft,. en verða þó að vera farin heim á miðnætti? Jú, að vísu er þar irykill munur ’ á, og frá sjónarmiði Karls er ] iiar.n sá, að ekkert sé við hið fyrra að athuga, en hið síðara svo ósæmilegt, ao þar verði barnaverndErnefnd að láta til sin taka. Slík eru nu sjónarmið | hans. Hóað oddvitafrúna snert- { ir, þá veit ég til þess, að 'börn hennar ung hafa verið á skemmtunum í barnaskólahús- inu írarn yfir miðnætti, án þess að hún hafi, mér vitanlega, séð ástæðu til að kæra bað fyrir nefndum aðiljum. Viðvíkjandi Jóhar.nesi Schrö- der í Birkihlíð má geta þess, að hann telur sig stöðugt vera að vinna gegn áhrifum kommún- ista, óg sér það á i afstöðu hans til þessa máls. Persónulega mætti ég ef til vill minna hann á, að við höfum verið saman á árshátíðum garðyrkjumannafé- lagsins, og tel ég ekki úr vegi, að hann reyndi að rifja upp fvrir sér sína eigin framkomu þar. áður en hann ger.st siða- meistari minn og annarra. Mun mér áð minnsta kosti óhætt að íuliyrða. að ekki hafi séð bleýtu á neinum vegna þess, að ég hafi ekki vitað hvar ég var staddur. Og að endingu vil ég taka þetta fram: Vita nefndir aðilj- ar. hvao þeir eru í rauninni að gera. er þeir láta pólitískt of- stæki og blindu leiða sig til slíkra ofsókna? Vita þeir, að með því eru þeir að hrekja ung lir.ga hreppsins frá þátttöku í skemmtunum innán hreppsins, skemmtunum, þar sem gætt er í íylist.u reglusemi i hvívetna? j Vita þe>, að óhróðurssögur þeirra um framferði þessara unglinga og allur áróðurs-lyga- þvættíng'uÉinn í því sambandi hlýtur áð verða t;l þess, ef ekki er að gert. að þessir unglingar ieiti annarra skemmtana utan hreppsins, þar sem ekki er um söntu reglusemi að ræða; eða eða jafnvel innan hreppsins, ef svo ber undir? Ég gat áðan tun ur.glingana fjóra sem dæmi. Það dæmi sýnir mætavel hvað þarna hefur gsrzt og myndi gerast, ei heilbrigt skemmtana- ’ líf fengi áð dafna og . þróast í , friði í hréppnum fyrir rögburöi | og. Gróusögum. Eða ef til viil eru það einmitt þessir fjórir unglingar, sem gert hafa þre- mehningunum gramt I geði? Einkennilegt má þá viðhorf j þeirra til æskulýðsmálanna j v?ra. ef þeir géta ekki séð það í : friði, að unglingar leggi af ó- reglu og' ókurteisi, óg taki upp {reglusemi og prúðmentisku á skémmtunum. Að éndingu vildi ég mælast til þess af þremennirigunum og þeirra íylgj urum, að þeir hættu rógburði sínum á hendur æsku- manna i hreppnum, en láti þá heldur hneigð sína bitna á mér persónulega, fyrst þe'r ekki virðast gsta án þess verið, að láta hana bitna á einhverjum. Þórður Þorsteinsson lireppstjóri. Ijsróllamóf sem ÍSÍ FRAMKVÆMDARAÐ ÍSI hefur raðað niður cftirtöidum iandsmótum; Hnefaleikameist- aramót íslands fer fram í kvöld, 18. apríl. Körfukuattleiksmótið fer fram í Reykjavík dagana 21.—29. apríl, íslandsglhnan verður háð í Reykjavík 30. maí, óg knafíspyrnumói fslands hefjast sem hér segir: í ineist- arafiokki 10. júní, í 1. fl. um mánaðamótin júní og júlí, i II. fl. í byrjun ágúst og í III. fl. 20. júní. Mót í frjálsum íþróttum verða sem hér segir: Drengja- meistaramót íslands 9. og 10. júlí, meistarmaót ísiands, karla, aðalhluti 23. og 24. ágúst og meistaramót kvenna 25. og 26. ágúst. 4X100 m., 4X500 m.. 4X400 m. hindrunarhlaup og fimmtarþraut 25. og 26. ágúst, tugþraut og 1Ö 000 m. hlaup 6. og 7. september. Hjólreiðamót fslands fer fx-am á Akranesi 29. júní, og sér íþróttabandalag Akraness um xnótið. Landsmót í golfi fer fram á Akureyri 17.—20. júlí. Loks er ákveðið fjörutíu ára afmælismót ÍSÍ í - Reykjavík dagana 2., 22. og 23. júní, og sér afmælisnefnd sambandsins um það. Álagstakmörkmi dagana 19. apríl 10.45—12.15. 26. apríl frá kj. Laugardag 19. apríl 2. hluíi. Sunnudag 20. apríl 3. iiluti. Mánudag 21. apríl 4. hluti. Þriðjudag 22. apríl 5. hluti. Miðvikudag 23. apríl 1. hluti. Fimmtudag 24. apríl 2. ! hluti. Föstudag 25. apríl 3. hluti Laugardag 26. apríl 4. hluti. Framhald af 4. síðu. og afli mjög sæmilegur. Þaðan róa 19 bátar, sem flestir veiða í þorskanet. Algengastur róðra- fjöidi þeirra er frá 10—12 róðr- ar. Heildaraflinn það sem af er mánaðarins er um 960 lestir og heildarróðrafjöldi um 180 róðr- ar. STYKKISHOLiVIUR Þáðan ganga 2 bátar, sem róa með línu og 2 útilegubátar. Gæftir hafa verið nokkuð stirð- ar og afli mjög rýr. Hafa land- róðrabátarnir aflað um 50 lest- ir í 8 róðrum, en aíli útilegu- bátanna er um 70 lestir það sem af er mánaðarins. Mikill hluti aflans er steinbítur. HAFNARFJoRÐUR Þaðan ganga 14 linubátar og 7 bátar, sem vsiða.í þorskanet, en auk bess eru nokkrir úti- legubátar úr ö'ðrum landshlut- um, sem leggja þar upp afla sinn. Afli hefur verið afar rýr á iínu það sem af er mánaðarins, en hins vegar hefur verið all- göður afli í net. Aflinn er hrað- frystur og saltaður, en þó er einnig nökkuð hert. Gæftir hafa gerið góðar og er algeng- astur íóðrafjöldi bátanna 11 róðrar. Beitt hefur verið ein- 'göngu með loðnu, sem veiðst hefur á Keflavíkurhöfn. KEFLAVÍK Frá Keflavík róa 17 bátar með línu og 8 bátar veiða í þorskanet. Gæftir hafa verið þar góðar og er aigengast 11 róðrar það sem af er mánaðar- ins. Heildarróðrafjöldi er 168 : róðrar og nefur afli á línu verið frá 5—8 lestir í róðri. Hæstu léðabátar hafa aflað 70—72 lestir. Aíli hjá netjabátum h-ef- ur yfirleitt verið góður. Mest hefur aflazt 25 lestir í lögn. Afli netjabáta á þessu tnnabili nem- ur frá 100—140 lestir á bát. Vél b lanir hafa engar verið og veið arfæratjón ékki teljandi. Ann- ars hafa togarar verið mjog á- gengir á g'runnmíðum. Beitt hefur verið -eingöngu með i loðnu, sem veiðst hefur í Kefia- 1 víkurhöfn. Síraumurinn verður rofinn skv. þessu þegar og að svo miklu leyti, sem þörf krefur. SOGSVIRKJUNIN. Höíum fengið sendingu af hinu þekktu Bebés andliíspúðri í 3 fallegum sumarlitum: april rosy — May blossom — september gold Verzlun H. TOFT Skölavörðustíg 8. verður í Þjóðleikhúskjallaranum briðjud. 22. apríl n. k. kl. 8.30 síðd. Venjuleg áðalfundarstörf. Lagabreytingar. , Stjórnin. Framhald af 8. siðu. UMFR háfa í tilefm tíu ára áf mælisins börizt nokkrar góðar gjafir til hinna fyrirhuguðu framkvæmda í Laugardalnún', þar sem félagsheimiii þess og íþróttavelli hefur verið válir n sta.Vur. Frá fréttaritara AB. FÁSKRÚÐSFIRÐI. ÞAÐ MA SEGJA .að veturinn ! í vetur lxafi leikið við taændur ' og búaliö, þó sérstaklega frá áramótum, og' er það mikiil léttir fyrir alla, og þó sérstak- I iega fyrir bændur, sem áttu við j’mjög mikla erfiðleika að stríða síðastliðinn' vetur. Aftur á móti hafa átvinnumálin verið á- hyggjuefni fyrir okkur hér á i Buðum á mörgum sviðum. Það ' má segja að atvinnulaust væri’ ; að nrðstu leyti ýfir des. og jan. Með fébrúar fórú þeir, sem heima vóru, að búa sig undir ’ vertíð og reyna að gera út báta sína, en héðan er nxiög langsótt á vetfárvertíð, minnst 25 klst. í hverja veiðifei’ð, og þá sótt í I svokaliaða Lóiisbugt og vestur undir Hornafjörð, 5 bátar kom- ust í gang til sjóróðra. Stæi’sti báturinn varð þó að hætta út- haldi vegna vélabilana, m.b. „Skruður", og mannskapurinn að leita sér atvinnu á bátum af öðrum fjörðum. Afli á þá báta, sem stundað hsifa veiðar í febr. og rnarz, hefur verið mjög treg- ur, og siðast alls ekki fiskivart, og má segja að þetta géfi ekki mikla atvinnu í aðra hönd, þeg- ar svo er ástatt. Togaririn Austfirðingur hef- ur lagt hér tvisvar upp afla, fyrst 14. mai’z, þá 270 tonn, sem allt var fryst í hraðfrystihxisun- xim, sem eru tvö hér á staðnum, og svo aftur nú '7. apríl losaði harin svipað aflamagn, og vár það mest þorskur. Þetta er svo mikil atvinnubót, að það hafa allir, sem véttlingi geta valdið, komið til að vinna að hagnýt- ■ingu aflans, þar á meðal flestir karlmenn úr Fáskrúðsfjarðar- hreppi. Værum við hér á Búð- um umkomnir því að hafa einir togara, og hann fiskaði til vinnslu fyrir húsin, væri hér næg atvinna fvrir alla, sem hér búa. En þetta, sem nú hefur vei’ið sagt, nægir ekki nema í sprettum. Þess á milli ekkert að gera, eixihæfur atvinnuveg- ur getur alveg svikið, þegar fiskurinn er hættur að koma til okkar og bátarnir, sem við höf- um hér, eru of litlir til að færa s!g til, til amxarra veiða. Undanfarin ár hafa þeir mest stundað dragnótaveiði á sumr- in og haustin. Nú er það útilok- að með friðun landhelgiimar, og þá sýnist vera að lengur sé ekki not fyrir þessa bátastræð hér. Margir héðan sækja atvinnu sína burtu á hverjum vetri, flest ungir menn, sem stuxida bæði sjósókn og landvinou, fara flestir til Vestmannaeyja, og hefur það oft gefizt mjög vel. Vonandi er að vel rætist úr méð það, s&m framundan er, þó útiitið sé þann veg, að állt drukkni í því ’dýrtíðarflóði, sem alltaf fer vexandi. ’Heilsufar er hér ’í héraðinu yfirleitt gott á þessum vetri, sem er nú senn að liða. Þórður Jónssou. AB 7

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.