Alþýðublaðið - 20.04.1952, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 20.04.1952, Blaðsíða 8
„Opið hús” fyrir 1 slendinga á Jris Kafé", Bogsfai iveien í Os! -------4------- 40 000 kr. hafa safnazt ti! byggingar íslendingahúss í Osió, -----------*---------- NÝLEGA kom sú hugmynd fram meðal Islendinga í Oslo að reyna að há samkomulagi við eitthvert veitingahús í borg- inni um að hafa „opið hús“ fyrir Islendinga, er vpdu koma sam an til skrafs og ráðagerða, og til lestrar biaða og tímarita, bæði erlendra og þó sérstakiega íslenzkra. Hafa þeir nú náð sam- komulagi á þessum grundvelli við „Iris Kafé“, Bogstadveien 20 í Osló. I sjálfu sér er þetta þó aðeins bráðabirgða lausn, en fr'amtíðarhugmyndin er að koma- upp sérstöku ísiendingahúsi í Oslo, og hcfur verið safnað til þess 40 þúsund krónum. Frá þessu er skýrt í bréfi,'* sem blaðinu hefur borizt frá I Bjarna Ásgeirssyni sendiherra í Osló, en þar segir henn að ís- lenzkt námsfólk í Osló og ná- grenni muni nú vera um „i0— 80 fyrir utan íslenzka innflytj- endur. . í bréfi sendiherrans segir enn fremur: •,,Á aiþingishátiðinni 1930 skýrði fulltrúi Osióborgar frá því, að nokkrir norskir íslands- vinir og fslendingar, aðallega í .Osló, hefðu hafizt handa um peningasöfnun til að byggja ,,ís landshús“ í Osló, sem samkomu stað og félagsheimili íslend- inga þar, og hefðu þegar safnazt í þessu skyni um 40 000 krónur. f>á skýrði hann einmg frá því, að Oslóborg hefði samþykkt að gefa til lóðarkaupa undir húsið kr. 10 000. Síðan þetta var, hefur lítið gerzt í málinu annað en það, | að fjármunir þessir hafa velt á sig' nokkurri vaxtaupp'hæð — nema hin lofaða upphæð Osló- borgar, sem ekki hefur enn komið til útborgunar. Það ér sennilega skýring á aðgerðaleysi í þessu máli, að mikið af tímabili því, sem liðið er síðan Ketta gerðst, hefur mót azt af óáran og stórstyrjöld, svo og hinu, að lengi vei hefur lítið á því borið, að íslendingar leit- uðu hingað til náms cð nokkru ráði. Á síðustu árum net'ur orðið á , þessu allmikil breyting að því leyti, að nú virðist íslenzku námsfólki fjölga her með ári hverju. Mun íslenzkt námsfólk í Osló og nágrenni nú vera um 50—60 manns, bæði háskóla- borgarár og aðrir, sem ýmislegt nám stunda, bæði bóklegt og verklegt. Auk þessa hefur inn- flutningur íslendinga hin síðari árin, einkum vegna giftinga norskra karla og íslenzkra kvenna, mjög aukizt, þannig að telja má að hin íslenzka og hálf íslenzka ,,kolonía“ hér í Osló og nágrenni komizt upp í um 100 manns, þegar flest er. Það má Jakob Jónsson. Tyrkja-Gudda frum sýnd í þjéðleikhús- sýnd í þjéllsik- húsinu í kvöid ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýnir í kvöld á tveggja ára afmæli sínu sjónleikinn* Tyrkja-Guddu eftir séra Jakob Jónsson. Leik stjóri er Lárus Pálsson. Musik, sem flutt verður með leiknum er eftir dr. Urbancie, en hann stjórnar einnig hljómsveitinni. Uppselt var á frumsýninguna í gær. Bannað verði sauS- fjárhald í lögsagn- arumdæmi Reykjavíkur Framh. á 7. síðu. Sjónleikurinn „í Bogabúð" frum- sýndur á Akranesi Frá fréttaritára AB AKRANESI í gær. LEIKFÉLAG AKRANESS frumsýndi í gær sjónleikinn ,,í Bogabúð“, eftir St. Jchn Erwine. Ragnar Jóhannesson skólastjóri þýddi leikritið, en leikstjóri er Sveinbjörn Jónsson frá Hvilft, framkvæmdastjóri Bandalags ís lenzkra leikara. Aðsókn var góð, og leikend- um fagnað mjög vel. Að loknum leik var leikstjóri hylltur. Sjónleikur þessi hefur ekki áður verið settur á íslenzkt svið. Hér er um að ræða merkilegt stykki, þrungið af fyndni og al vöru, og mun vekja ahygli hér og víðar. Leikfélagið endurtek ur leikinn kl. 4 á morgun. H, Sv. SKÓGRÆKTAR- og menn- ingarfélag Jaðars, sem hefur meðal annars það hlutverk að auka gróðu.r í landnámi templ ara að Jaðri í Heiðmörk, gerir sér Tjóst, hve þýðingarmikið það er að landið sé örugglega varið fyrir ágangi sauðfjár á öllu.m tímum árs. Einmitt nú, þegar hér er sauðlaust land, er ástæða til að vekja athygli á slíkri nauðsyn. Þess vegna sam þykkti félagið á aðalfundi sín- um 20. marz eftirfarandi álvkt un: „Aðalfundur Skógræktar- og menningarfélags Jaðars, haldinn 20. marz 1952, skorar á bæjarstjórn Reykjavíku.r að hlutast til um, að bannað verði í framtíðinni sauðfjárhald í lög sagnarumdæmi Reykjavíkur'1. Veðurútíitið í dag'. Norðaustan gola eða kaldi, úrkomulaust og surns staðar léttskýjað. ALÞY9UBLABIB Eitt dœmi enn ÞAÐ ÆTTI að vera orðið ljóst og viðurkennt, að þær vörur, I sem hér á landi eru framleidd ar jafngóðar og erlendar og ekki eru dýrari, er öldungis misráðið að flytja inn. Það sparar okkur dýrmætan gjald- eyri að svo miklu sem nem- ! ur öflum framleiðsiukosthað inum og meira, ef að ein- | hverju, leyti er framleiit úr hérlendum hráefnum. Iðnað- ur úr erlendum hráefnum á því ekki aðeins rétt á sér, heldur er bráðnauðsynlegur, og ef hann reynist vel, ber að styðja hann með ráðum og dáð. Á ÞETTA hefur þrálaldlega verið bent hér í blaðinu, sak ir þess að um skeið hefur ýms um erlendu.m iðnaðarvörum, sízt betri en innlendum, ver- ið hrúgað hér á markaðinn án allrar skynsamlegrar að- gæzlu. Ýmsir hafa tekið í ,sama streng, og fer ekki hjá því, að almenningi sé farið að ofbjóða þessi skipulags- lausi innflutningur á unnum vörum. En hvernig þykir al- menningi, er fluttar eru inn erlendar vörur, sem eru miklu dýrari sams konar inn lendum vörum? Þess munu þó vera dæmi. Haust í hallargarðinum. nú fer að ííða að íok- :im norsku sýningar- innar, sem opnuð var í Listvinasalnum á skírdag, en þar sýna 10 þekktir norskir málarar 29 málverk. Sýningin er opin í dag frá kl. 1—10. Myndin hér að ofan er eftir Knut Fröysaa og heit- ir ,,Haust í hallargarðinum“. Ford var dæmdur 1 a§ graiða Ferguson H r xi<L Fjögurra ára máSaferkim lokið. HINUM VÍÐFRÆGU málaferlum milli Harry Ferguson og Henry Ford, sem staðið hafa yfir í fjögur ár, er nú lokið, og var Ford dæmdur til að greiða Ferguson 9 250 000 dollara eða tæplega 150 mllljónir króna. Mál þetta reis út af ágreiningt út af framleiðslu og sölu dráttarvéla og notkun Ford-verksmiðj anna á einkaleyfum Fergusons. FYRIR NOKKRU skýrði AB frá rannsókn, er það fékk iðn- aðardeild háskólans til að gera á erlendu og innlendu bóni. Leiddi. rannsóknin í ljós, að innlenda bónið var bæði betra og ódýrara og þó báðar teg- undir góðar. Þetta er eitt dæmi. Og til er annað nýrra: Nú fyrir skemmstu er farið að framleiða hér nýja og handhæga tegu.nd málningar, plastmálningu. Þessi innlenda málning kostar 70—80 krón- ur gallónið, en alveg nýskeð er farið að flytja inn erlenda plastmálningu, sem kostar um 160 krónur gallónið, eða meira en helmingi meira. Önnur ný málning, annarrar gerðar, er einnig flutt inn, og kostar hún einnig miklu, meira en inn- lenda plastmálningin. HVAÐA VIT er nú í þessu? Er svo gífurlegur munur á gæð- um, að þetta sé afsakanlegt? Eða er þetta ef til vill bara eitt dæmi enn um skipulags- lausan innflutning? Almenn- ingur á fyllstu kröfu á, að skýring fáist á þessu fyrir- bæri. Úrslifin í ensku deildarkeppninni ÚRSLITIN í ensku dsildar- keppninni í gær fara hér á eftir. Vegna rúmleysis verður hér að’ eins getið úrslitanna milli þeirra liða, sem talin eru upp á getraunaseðlinum: Anston V— West Bromw Blackpool — Manch. U Derby — Newcastle Huddersfield — Carlton Liverpool — Tottenham Manohester G. — Bolton Portsmouh J Preston Sunderl. — Middlesbro Wolverhampt. — Fu.lham Barnsley —- Doncaster Convertry — Sheffild W. 0:2 Q. P. R. —■ Leicester 1:0 enn leit í gær í GÆR var enn ekki hægc áð koma við leit úr flugvélum að norskuí selveiðiskipunum. Veður var óhagstætt á Græn- landshafi og vestur við'Græn- land, bæði lágskýjað og stórm- ur. Fóru þvi engar flugvélar til leitar frá Reykjavík, en strax og veðurskilyrði batna verður leitinni haldið áfram. Skákmótið: Friðrik og Lárus hæslir og jafnir. ÚRSLIT landsliðskeppninnar í skák urffu þau, aff Friffrlk Ól- afsson og Lárus Jolmsen urðu hæstir og jafnir að vinningum. Hlutu þeir 6 54 vinning hvor og | verða að heyja einvígi um ís- j landsmeistaratitilinn. Næstur Friðriki og Lárusi varð Árni Snævarr með 6 vinn- inga, en Eggert Gilfer, Guðjón j M. Sigurðsson og Sigurgeir Gísla son hlutu 6 Vz vinning hver og Baldur Möller 5 vinninga. Skipa ' þsssir sjö landsliðið, og að auki annað hvort Jón eða Steingrím ,ur. Steingrímur hefur nú 4M; vinning og á biðskák við Jón. Jón hefur hins vegar 4 vinninga og á biðskák við Steingrím. Vinni Steingrímur Jón eða nái jafntefli kemst hann því í lands 1 liðið, en Jón verður að vinna Steingrím til að hreppa áttunda sætið þar. MÁLVERKASÝNINGU Sverr is Haraldssonar í Listamannskál anum lýkur í ’kvöld. í dag er hún opin frá kl. 1—11, og eru þá síðustu forvöð að skoða hana. Um 700 manns hafa ltomið á sýninguna og 31 mynd selzt. Harry Esrguson er íri að upp runa og fann hann upp stór- merkilegt kerfi til að tengja. landbúnaðarverkfæri aftan £ .dráttarvél og endurbætti iitla gerð dráttarvéla til stórra muha. Árið 1939 fór hann vest- ur um haf og gerði samkomulag vlð Henry Ford eldri um fram- leiðslu á Ferguson-dráttarvél- inni í stórum stíl. Annaðist fyr- irtæki Fergusons uppfinningar og endurbætur á vélunum. svo og sölu þeirra, en verksmiðjur Fords framleiðsluna. Var Fergu son -eftir þetta oft kallaður „eini meðeigandi Fords“ í verksmiðj um hans. Við andlát Henry Ford slitn- aði- upp úr samstarfi þessu, cn Fordverksmiðjurnar héldu þó áfram að framleiða dráttarvélar samkvæmt einkaleyfum og upp finningum Fergusons, og tóku: _nú að selja dráttarvélarnar líka. Varð þetta til þess að fyr- irtækl Fergusons var nær þurrk að út á svipsundu. Fergusorr reisti að vísu á skömmum tíma stóra verksmiðju til að fram- leiða dráttarvélar sínar í De- troit, en auk þess höfðaði hann mál gegn Ford og krafðist skaða bóta. Hefur mál þetta verið geysi umfangsmikið, málaferlini staðið í fjögur ár, yfir milljón, skjöl verið rannsökuð og um hundrað vitni kölluð. Niðurstað an varð sú, sem áður getur, að Ferguson voru dæmdar tæplega 150 000 000 í skaðabætur. Var aðalsökin sú, að Fordverksmiðj urnar hefðu stæit Ferguson dráttarvélina og framleitt hana í stórum stíl. í dag eru í notkun um allan heim 650 000 dráttarvélar með Ferguson nafninu pg nær 500- 000 aðrar, sem íramleiddar hafa verið af sömu gerð. Eftir styrjöldina hafa Ferguson drátt arvélar einnig verið framleidd- ar af Standard Motor Co. Ltd. í Coventry í Englandi, og þafa þaðan komið 250 000 vélar. Hér á íslandi munu vera í notkun 364 Ferguson dráttar- vélar og von er á 200 til við- bótar á þessu ári. 2:0 2:2 1:1 0:3 1:2 3:1 2:2 l.T

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.