Alþýðublaðið - 24.04.1952, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.04.1952, Blaðsíða 4
AB'Alþýðubíaðið 24. apríl 1952. . Faaur er dalur og fyllist skógi. SKÓGRÆKTIN Á ÍSLANDI var á dögum Jónasar Hal.. grímssonar aðeins skálda- draumur. Viðhorfin voru. enn hin sömu um aldamótin, þeg- ar Hannes Hafstein túlkaði í ljóði þá skáldlegu sýn, að sár- in foldar myndu gróa og menningin vaxa í -lundum nýrra skóga. Nú er þetta breytt og skógræktin að minnsta kosti komin á svið merkilegrar áætlunar. Al- mennur áhugi á skógrækt er kominn til sögu.nnar, mætir menn hafa unnið stórfellt brautryðjendastarf á vett- vangi hennar, og nú efast eng- inn um, að hægt sé að láta dalina fyllast skógi, þegar fram líða stundir. Draumsýn skáldsins er orðin að takmarki veruleikans. Forustumenn skógræktar- málanna hafa gert áætlun um ræktun nytjaskóga, sem full- nægi viðarþörf landsmanna eftir hundrað ár; en áætlun þessi er nú til athugunar hjá ríkisstjóminni og mun verða lögð fyrir næsta alþingi. Leiðir hún í ljós, að hér muni unnt að rækte allt að 90% af skóg viði þeim, sem íslendingar þarfnast. Leggu,r skógræktar- félagið til, að hluta af timbur- tollinum verði varið til þess að margfalda afköst plöntu- uppeldisstöðvanna í landinu og síðan til að hefja stórfellda ræktun nytjaskóga með fyrr- nefnt takmark fyrir augum. Auðvitað myndu þessar fram- kvæmdir kosta mikla fjár- muni; en sannarlega þarf þó enginn að láta þá vaxa sér í augumt þar eð fyrirsjáanlega yrði mikill gróði að þessu þjóðarfyrirtæki, miðað við nú- gildandi verðlag á timbri, og er þó sagan ekki þar með öll sögð, því að flest rök benda til þess, að þurrð muni verða á skógviði í nágrannalönd- unura í næstu framtíð og timburverðið þar af leiðandi stórhækka. Timburinnflutn- ingurinn nemur nú um fimm- tíu milljónum króna á ári hverju. Má því öllum liggja í augum uppi, hvílíkt gildi hin stórau.kna skógrækt kemur til með að hafa frá sjónarmiði fjárhags og gjaldeyris, þó að ekki sé minnzt á hinn óbeina hagnað hennar, sem ekki verð- ur síður mikils virði. Skógar- beltin munu gera skilyrði annarrar ræktunar margfalt betri en þau nú eru, breyta örfoka Landi í tún og akra og færa berar lendu.r í tignarleg skrúðklæði. íslenzkir blaðamenn hafa á- kveðið að leggja skógrækt- inni það lið, sem í þeirra valdi stendur. l>eir helguðu henni árlega kvöldvöku sína í út- varpinu annan páskadag, og á fundi sínum um síðustu helgi hlýddu þeir á greinargerð for- ustumanna skógræktarfélags- ins og landbúnaðarráðherra um hina athyglisverðu áætlun varðandi stórfellda aukningu skógræktarinnar á komandi árum. Hún hefur síðan verið rakin ýtarlega í blöðunum, svo að landsmenn eiga þess kost að kynna sér málið. Fyrir blaðamönnunum vakir að kveðja nýmælum skógræktar- innar hljóðs með þjóðinni og láta hana fylgjast með starfi þeirra, sem hafa veg og vanda þessarar þjóðnýtu starfsemi. Þannig hafa þeir Iagt frá sér vopnin og snúið bökum sam- an í baráttunni fyrir einu stærsta og merkilegasta fram- faramáli þjóðarinnar. Almenningur hefur þegar sýnt svo mikinn áhuga á skógræktinni, að ekki þarf að efast um liðveizlu hans. Þjóð- in vill og vonar, að skálda- draumar Jónasar Hallgríms- sonar og Hannesar Hafsteins um fagran dal fylltan skógi. grædd sár foldarinnar og aukna menningu í lundum nýrra skóga verði veruleiki. Nú eru horfur á, að svo verði á skemmri tíma en nokkurn mun hafa órað fyrir. En til þess, að því takmarki verði náð, þurfa íslendingar að snúa bökum saman í baráttunni fyrir skógræktinni og sýna þann stórhug, er hæfir þessu merkilega máli. Drekkið síðdegiskaffið í Tjamarkaffi í dag, Þar er á boðstólum hið vínsæla og ádýra HALLVEIGARSTAÐAKAFFI. Húsið opnað klukkan 2. Nefndin. Hafnarfjörður. Hafnarfjörður. LEIKFÉLAG HVERAGERÐIS SÝNIR 99 A UTLEIÐ U EFTIR SUTTON VANE. í Bæjarbíó föstudaginn 25. apríl klukkan 21. Leikstjóri: Indriði Waage. Aðgöngumiðasala hefst klukkan 1 e. h. Leikfélag Hveragerðis. slrai: 4906. — Afgreiðslusími: 4900. — AlþýSuprentsmiðjan, Hvemsgötu 8—10. AB — AlþýSuWaSiS. Útgefandi: AlþýSuflokkurinn. Ritstjórl: Stefán PJetursson. Auglýsingastjóri: Emma Möller. — Rltstjómarslmar: 4901 og 4302. — Auglýsinga- AB4 araaaur Hátíðahöld ,,Sumargjafar" Útiskemmtanir KI. 12,45: Skrúðganga bama frá Austurbæjarskólanum og Melaskólanum að Austurvelli. Lúðrasveitir Ieika fyrir skrúð gönguuum. Kl. 1,30: Sér Emil Björnsson talar af svölum Alþingishússins. Að Iokinni ræðu ieikur lúðra- sveit. Sölustaðir Sumargiafar eru: í Listamannaskáíanum, Grænuborg, Barónsborg, Drafnarborg, Steinahlíð og Söluturninum á Hlemm- torgi. Blaðið kostar kr. 5.00, en merkin kr. 5.00 og 10.00 Aðgöngumiðar að öllum skemmtunum nema Litla (Yngri n?m. Tónl .skólans). Danssýnng: Nemendur Rig'- Sjónleikur; Álfarnir og ferða i mor Hanson. maáúrinn. Börn úr 12 ára A, í Austurbæjarskólanum. Einsöngur: Ólafur Magnússon frá Mosfelli. Söngur m.eð gúarunclirleik: Stúlkur úr gagnfræðaskól- anum við Hringbraut. Leikþáttur: Tvö börn úr 11 ára D í Austurb.skólanum. Samleikur á tvær fiðlur: Ás- dís ÞorsteinsdóUir og Einar G. Sveinbjörnsson. Samleikur á fifflu og píanó: Einar G. Sveinbjörnsson, fiðla, Sybil Urbancis, píanó. (Yngri nem. Tónl.skólans). Leikþáttur: Kennslustundin. Nem. úr Kvennaskólanum sýna. Kvikinynd. Kl. 2 í Góðtemplara- húsinu: Einleikur á píanó: Jónína H. Gísladóttir og Árni Eymund arson. (Yngri nem. Tónlist arskólans). Kláusi og Stóra Kláusi ( Sjónleikurinn nappið eftir VAt*ðo enl iIim « T í ^ j« ~ T>/ 1 T f .. J « 1 1 41 f verffa seldir í Listamanna skálanum frá kl. 10—12 í dag. Aðgöngumiffar að kvöld- skemmtun ísi. leikara kosta 25.00 kr. Affgöngum. aff dagskemmtun um kosta kr. 5,00 fyrir böm og kr. 10,00 f. íullorffna. Affgöngum. að dansleikjun- kosta 15.00 kr. Óseldir affgöngumiffar að dansskemrntunum verffa seldir í húsunum sjálfum við innganginn. Inniskemmtanir K1 1,45 í Tjarnarbíói: Lúðrasvcitin „Svanur“ leik- ur: Stj. Karl O. Rúnólfsson. Látbragðsleikur: Nemendur úr Leikskóla Ævars Kvaran. Gamanvísur. Pál J. Árdal, leikstjóri Klemens Jónsson, leikari. KI. 4 í Góðtemplara- húsinu: Þrír smáleikir: a) Kennslustundin: Þýtt hefur Hannes J. Magnús- son. b Sitt sýnist hverjum. c. Gleraugun hennar ömmu. Gamanvísur. Söngur meff gitarundirleik: Samleikur á selló og píanó. Ungtemplarar í Reykjavík sjá um. skemmtunina. — Ágóð inn rennur til Sumargjafar. Kl. 3 í Iðnó: Einleikur á píanó: Soffía Lúð víksdóttir. (Yngri nem. Tón lisíarskólans) iamleikur á tvær fiðlur: Mar ! Leikrit; Sæbjört. Nemendur grét Ólafsdóttir og Sigrún Andrésdóttir. (Yngri nem. Tónlistarskólans). Söngur: Telpur úr gagnfræða skólanum við Lindarfötu. Jón ísleifsson stjórnar. Kvikmynd: Viggó Nathanaels son sýnir. Kl. 2 í Sjálfstæðishúsnm Kórsöngur: Átta til níu ára drengir úr Melaskólanum. Stjórnandi Guðrún Páls- dóttir.' Einleikur á pianó: Hlíf Sam úelsdöttir. Leikþáttur: Börn úr 8 ára;H Melaskólanum. Látbragðsleikur: Nemendur ■ úr Leikskóla Ævars Kvaran. Samleikur á fiðlu og píanó: Sigrún Andrésdóttir, fiðla, Syb. Urbancic, píanó (Yngri nem. Tónlistarskólans. Upplestur: Þorst. Vilhjálms- , son, 10 ára, úr Melaskólan- um. Slaghljómsveit: Börn úr Mela skólanum, stjórnandi Guð- • rún Pálsdóttir. Danssýning: Nemendur Rig- mor Hanson. Einleikur á píanó: Þorkell Sigurbjörnsson. (Yngri nem. Tónlistarskólans). íslenzkar li^kvikmyndir: Vig fús Siguygeirsson sýnir. KI. 2,30 í Austurbæjar- bíói: Leikið fjórhent á píanó: Ema og Auður Ragnarsdætur. 12 ára B Melaskólanum Samleikur á fiðlu og píanó: Ásdís Þorsteinsdóttir, fiðla, og Emelía Lorange, píanó. (Yngri nem. Tónl.skólans). Danssýning: Nemendur Rig- mor Hanson. Smá Ieikrit: Stjóinandi frú Svava Fells. Kl. 3 í Hafnarbíói: Nemendur úr uppeldisskóla Sumargj. og Starfsstúlkna- fél. „Fóstra“ sjá um skemmt unina. Kynnir. Samsöngur barna. Sjö kafandi andarungar. Hringdansar (4-5 ára börn). Sögð saga af kettinum Brandi. Söngur barna. Hringdans. (3 ára börn). Brúffuleikur. Fjöldasöngur. Skemmtunin er einkum fyr ir börn á aldrinum 3ja til sjö ára. Kl. 3 og kl. 5 í Nýja Bíói: Kvikmyndasýningar: Að- göngumiðar seldír frá kl. 11 f. h. Venjulegt verð. Kl. 3 í Tjarnarbíói: Kvikmyndasýning: Að- göngumiðar seldir frá kl. 11 f. h. Venjulegi verð. Kl. 3 í Gamla Bíói: Ernleikur á píanó: Jóhanna Jóhannsdóttir. (Yngri nem. Tónlistarskólans). Samieikúr á fiðlu og piano: Rut Ingólfsdóttir, 6 ára, og Þorgerður Ingólfsd., 8 ára. Leikþáttur: í kennslustof- unni. Börn úr 1 ára B Aust urbæjarbarnaskólanum. Samleikur á fiölu og píanó: Margrét Ólafsdóttir, fiðla, og Kristín Ólafsóttir, píanó. Leikþáttur: Flakkarinn og lög reglustjórinn. Börn úr 12 ára B. Austurb.skólanum. Samleikur á fifflu og píanó: Katrín S. Árnadóttir, fiðla og Árni Björnss. leikur und ir. (Yngri nem. Töni.skólans). Látbragffsleikur: Börn úr 12 ára B Austurb.skólanum. Spánskur dans og pólskur marsúkki: Telpur úr 12 ára B Austurbæjarskólanum. Kvikmynd: Teiknimynd. KI. 3 í Stjömubíói: íþróttakvikmynd á vegum Frjálsíþróttasamb. íslands: Frá Ólympíuleikunum í Berlín 1936. Frá Ólympíuleikunum í London 1948. Keppni Norðurlandanna við Bandaríkin í Osló 1949. Landskeppni íslendinga og Dana 1950. Landskeppni íslendinga, Dana og Norðmanna 1951 Brynjólfur Ingólfsson og Jó- hann Benliard skýra mynd irnar. Kviítmyndasýningar KI. 5 í Gamla Bíói: KI. 9 í Stjömubíói: KI. 9 í Austurbæjarbíói: Kl. 9 í Hafnarbíói: /* Aðgöngumiðar seldir frá kl. 1 e. h. Venjulegt verð. Leiksýningar KI. 2 í GÚStemplara- húsinu: Happið; Sjónleikur eftir Pál J. Árdal. Leikstjóri Kle- mens Jónsson. Kl. 2 í Þjóðleikhúsinu: Litli Kláus og Stóri Kláus, eftir H. C. Andersen. Kl. 8,30 í Sjálfstæðis- húsinu: Kvöldskemmtun; Félag ísl. leikara. Kynnir Haraldur Á. Sigurðsson. Dans til kl. 1. (Félag ísl. leikara gefur Sumargjöf þessa skemmt- un). Dansskemmtanir verffa i þessum húsum: f'it1. Breiðfirðingabúð Alþýðuhúsinu Röðli (S.G.T. sér um skemmtun- ina). DANSSKEMMTANERNAR hefjast allar kl. 9,30 og standa til kl. 1.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.