Alþýðublaðið - 27.06.1952, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 27.06.1952, Blaðsíða 1
Fram og þýzka kiiattipyrnu ilðli keppa I kvöld (Sjá 8. síðu). XXXIII. árgangur. Föstudagur 27. júní 1952. 141. tbl. ÁÐUR EN hinar flokkspólitísku útvarpsumræður unr foi>etakjprið hófust í gærkveldi var frá því skýrt í útvarpinu, að Stefán Jóh. Stefánsson, formaður Alþýðu- flokksins, hefði neitað, að eiga uokkurn þátt í þeim. Var bréf hans til útvarpsráðs, þar að lútandi, lesið upp, og var það svohljóðandi: ,,í bréfi niínu til útvarpsráðs dags..21. þ. m. mótmælti ég'því að flokfcspólitískar umræður færu fram í útvarp-. ínu um forseíákjörið. Ég leyfði mér þá að beina þeirri ósk -til, útyarpSráðs, að í stað þess yrði samtökum stuðn- ingsmanna forsétaefnanna gefinn kostur á því að flytja mál sitt í útvarpinu, og hefðu þá stuðningsmenn hvers forsetaefnis jafnan ræðutíma. Þessum óskum, sem einn- ig hafa komið fram frá landsnefnd stuðningsmanna Ás- geirs' Ásgeirssonar og frjálsum samtökum kjósenda til stiiðnings Gísla Sveinssýni, hefur útvarpsráð eklti viljað sinna, én ' Káldið fast við ákvörðun sína um útvarpsum- ræður af hálfu forystumanna allra stjórnmálaflokkanna. Ég endurtek eindregin mótmæli mín gegn þessum álívörðunum. Þær brjóta allar reglur, sem áður hefur verið talið sjálfsagt að fylgja og hafa í för með sér ber- sýnilegt misrétti gagnvart forsetaefnunuin. Með vísun til framanritaðs og fyrra bréfs míns, lý»i ég hér með yfir, að ég mun hvorki taka þátt í þessum úí- varpsumræðum, né nefna annan til þess. Er þá bezt að samræmi sé í þeim einstaæða leik, sem af forráðamönnum stjórnarflokkanna hefur verið settur á svið í útvarpinu, og þeir einir flyíji þar mál sitt, er telja sæmilegt og við- eigandi að beita ofríki og misrétti í útvarpinu í sambandi við kosningu á forseta íslenzka lýðveldisins“. Vélbáfur sfrandaði í niða þoku við Skaga í gærkvöldi VÉLBÁTURINN SÍGANDI HU 9 strandaði í gærkvöldi á Skallarifi vestur af Skaga. Niðaþoka var á, en lygnt veður. Var ekki búið að finna bátinn, svo að frétzt hefði um ellefu leitið £ nótt, en áhöfn hans þó ekki talin í mjög bráðum háska. Eftir strandið kom skipstjó/ inn á Stíganda skeytum til loft skeytastöðvarinnar á Siglufirði og bað um aðstoð. Þaðan var svo leitað hjálpar Slysavarnafélags íslands, sem bað slysavarnasveit ina á Siglufirði að annast björgunartilraunir. Fékk hún (ísgeir 19r séra Bjarni á Reykjafossi SKEYTI barst frá loft- skeytamanninum á Reykjafossi eíðdegis í gær um prófkosn- ingu, sem þá var ný fram farin þar. Úrslit prófkosningarinnar urðu þau, áð Ásgeir fékk 19 atkvæði, cn séra Bjarni ekki nema 9. vélbát á Skagaströnd til að hefja leit að bátnum, og auk þess leitaði Brúarfoss, sem var nærstaddur, þetta svæði með radar eftir beiðni slysavarnafé lagsins. En þokan torveldaði mjög allar aðgerðir. SÍÐUSTU FRÉTTIR Um miðnætti hafði Brúar- fossi tekizt að finna bátinn með radar, og var leitarbátur- inn frá Skagaströnd, sem heit- ir Ásbjörn, á leið til hans eftir þeirri tilvisun. Samband hafði þá náðst við Stíganda, og leið öllum skipverjum vel. Er bát- urinn óbrotinn, en vélin stöðv- aðist við strandi'ð. Voru skip- verjar að reyna að koma henni i gang, er af þeim fréttist. Búizt var við, að Ásbjöra kæmi á strandstaðinn um eitt leytið. — Auk Brúarfoss var Arnarfell í nánd. Misnofuðu færið til legra árása á f geir Asgeirsson ÞAÐ MÁTTU HEITA AUÐAR GÖTUR í Reykja vík á níunda og tíunda tím anum í gærkveldi meðan forsetaefnin fluttu ávörp sín til þjóðarinnar í ríkis útvarpinu. Er ekki vafa- mál, að sjaidan eða aldrei hafi verið hlustað meira á útvarp hér, svo og sjálf- sagt einnig úti á landi, en á meðan þau ávörp stóðu yfir. Fyrst forsetaefnanna talaði Gísli Sveinsson, þá Ásgeir Ás- geirsson, en síðast séra Bjarni Jónsson. Fluttu þeir allir mál sitt af drengskap og virðuleik. ÓVIRÐULEGT EFTIRSPIL ,Það sama verður hins vegar ekki sagt um þær flokkspóli- tísku umræður, sem hófust í útvarpinu á eftir ávörpum þeirra. Þar mættu þeir Ólafur Thors og Hermann Jónasson með sinn meðráðherrann hvor og helltu sér yfir Alþýðuflokk- inn, sem ekki tók þátt í um- ræðunum, svo og Ásgeir Ás- Framh. á 7. síðu. 100 ára biörgunarstarf. Danir héldu 1 vor upp á J ~ L00 ára afmæli skipu- lagðs björgunarstarfs hjá sér, úr sjávarháska. Á þessum 100 árum hefur 12 400 manns verið bjargað úr greipum Ægis, en 53 björgunarmenn hafa fórnað lífi sínu við það mannúðarstarf. Á myndinn sést danskur björgunarbátur við vesturströnd Jót- \ lands; en þar hafa sjóslysin verið langtíðust og björgunaraf- rekin frækilegust. Fór upp í sveit með bíl og verka menn og sfal 14 olíutunnum MAÐUR NOKKUR brá sér úr Reykjavík austur í Árnes- sýslu í gær með tvo verkamenn og vörubifreið á leigu og stal þar 14 tunnum af olíu. Ætlaði hann að hafa fé upp út olíunni í Eeykjavík, en það mistókst. Hann var tekinn fastur og hefur játað þjófnaðinn. s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s N s s s s Sogsvirkjunin: Asgeir 72, ir. Bjami 29 - Flugfélag ís- lands: Ásgeir 45, Bjarni 19 TÍMINN sagði nýlega ósanna sögu um prófkosningu. sem fram fór meðal starfsmanna við Sogsvirkjunina. Aðeins ein prófkosning hefur farið þar fram og urðu úrslitin þessi: Ásgeir 72, séra Bjarni 29, Gísli 3. En alveg eins og í fyrradag vill AB fræða Tímann, sem hefur álpast út í það að reyna að gera prófkosn- ingar tortryggilegar, um úrslit þeirrar síðustu. Hún fór fram meðal starfsfólks Flugfélags íslands og voru at- kvæðin talin á mánudagskvöld. Úrslit urðu þessi: Ásgeir 45, séra Bjarni 19, Gísli 6. Ef Tíminn eða Morgunblaðið óska eftir frekari tíð- indum af prófkosningum, munu þær verða látnar í té. Maður þessi, Finnbogi Græð- ir Pétursson, um fertugt, hafði verið austur í sveit um tíma í vor og þá tekið eftir tunnun- um, þar sem þær lágu við veg- inn hjá Sogi, Skammt frá Al- viðru í Ölfusi. Förina austur undirbjó hann allrækilega, hafði fengið planka lánaða á Reykjavíkurflugvelíi til að koma tunnunum á bif- reiðina, og verkamennimir og bifreiðarstjórinn héldu, að allt væri með felldu. Þegar til Reykjavíkur kom með tunnuxnar reyndi Finn- bogi að fá BP, — en frá því félagi var olían, — til að taka þær aftur og endurgreiða. Það gekk ekki, þar eð ekki var á hreinu, frá hverjum þær væru. Og nú reyndi Finnbogi að flýja förunauta sína, því að ekkert átti hann til að borga þeim. Bifreiðarstjóranum fannst þetta allt furðu grunsamlegt og fékk liðsinni lögreglunnar til að skerast i leikinn. Tók hún svo Finnboga fastan.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.