Alþýðublaðið - 27.06.1952, Síða 8

Alþýðublaðið - 27.06.1952, Síða 8
* f" r a ’• mm á hafi ú SKIPIN Dettifdss, Tröllafoss og Jökulfell 'hittust í hafí og létu fara fram prófkosningar um forsetakjörið. Þegar þær höfðii farið'fram, voru atkvæðin talin. Urðú úrSlitín þessi. Dettifoss: Ásgeir: 26, séra Bjarni 7. Gísli 2. Jökulfelí: Ásgeir 12, séra Bjarni 8, Gísli 0. Tröllafoss: Ásgeir 36, séra Bjarni 2, G.ísli 2. Skýldi ekki Jóijann I>. JÖsefsson vilja láta gera af- fvvæði þessara þriggjá' skipshafna ógild, eins og atkvæði Gullfoss-skipsháfnárinnaf. ALÞYaOBLAÐIB ára afmæíi S.f.S. haldið hátíðlegt í Reykjavík í næstu viku.. :'i .FIMMTIU ARA AFMÆLI Sambands - íslenzkra safmvinnu- (’éiaga verður haldið hátíðlegt í Reykjavík I næstu viku. Verða hátíðahöldin I sambandi við aðalfúnd Sambandsins, en að hon- um loknum hefst hér fundur miðstjórnar alþjóðasambands sara vinnumanna, International Cooperative Alliance. Munu koma fcil þessa fundar fuiltrúar frá 18 iöndum, og verða staddir hér á fandi yfir 80 eriendir gestir í sambandi við fundinn. Aðalfundur S.Í.S. hefst næst komandi mánudagsmorgun, og fer hann fram 'í Tjarnarbíói. Mun fundurinn hefjast á því, að minnzt verður stofnenda Sambandsins, og gerir það Karl Kristjánson alþitjgsmaður, og mun sá eini af stofnendunum, sem enn er á lífi, Steingrímur Jónsson, fyrrum sýslumaður, mæta á fundinum. Næst komandi föstudag, þegar aðalfundarstörfurn verð- ur lokið, mun verða haldinn sérstakur hátíðafundur í Tjarn- arbíói til að minnast afmælis- ins, og munui tala þar meðal annarra Hermann Jónasson l.andbúnaðarmálaráðherra, Sir Harry Gill, forseti alþjóðasam bands samvinnumanna, full- trúar frá samvinnusamböndum rnargra landa, Páll Hérmanns- son, fyrrum alþingismaður, Sigurður Kristinsson, formað- ur S.Í.S., og Vilhjálmur Þór, forstjóri S.Í.S. Á föstudags- •kvöld verður haldið afmælis- hóf að Hótel Borg, og talar þar meðal annarra Björn Ól- afsson viðskiptamálaráðherra. Á fimmtudag í næstu viku hefjast í Reykjavík fundir al- þjóðasambands samvinnu- manna. Verða fyrst stjórnar- fundur og fundir í alþjóðasam- tökum samvinnu-olíufélaga og namvinnutryggingafélaga. Á laugardag hefst sjálfur mið- stjórnarfundurinn, og sækja Siann fulltrúar frá eftirtöldum löndum: íslandi, Noregi, Sví- þjóð, Danmörku, Finnlandi, Sovétríkjunum, Búlgaríu, Tékkóslóvakíu, Júgóslavíu, ísrael, Sviss, Austurríki, Þýzka landi, Holiandi, Belgíu, Frakk landi, Bretíandi og Bandaríkj- unum. Fer fundur þessi fram hátíðasal háskólans, og verð- ur allt, sem þar gerist, þýtt jafnóðum á fjögur tungumál, ensku, frönsku, þýzku og rúsnesku, sem eru hin opin- Iberu mál alþjóðasambandsins. Kemur hingað tli lands sjö manna starfslið vegna fund- arins, þar á meðal túlkar. Á laugardag mun borgar- stjóri hafa boð inni fyrir full- trúa á þingi I.C.A., og um Jcvöldið verður hátíðasýning á bLeðurblökunRi“. [ þjóðleikhús- inu fyrir þá, aðalfundarfull- trúa og aðra gesti S.Í.S. Á sunnudag verður farið í ferð til Selfoss og á Þingvöll, og á mánudag hefur ríkisstjórnin boð inni fyrir hina erlendu fultrúa, Jafnframt halda fund- ir miðstjórnarinnar áfram báða þessa daga. Þriðjudaginn 8. júlí verður farið að Gull- fossi og Geysi, og miðviku- daginn 9, til Akureyrar. Margt fleira mun Samband íslenzkra samvinnufélaga gera til að minnast 50 ára afmælis- ins, og kemur meðal annars út myndarlegt afmælishefti af Samvinnunni. Skityrðl fyrir síld svipuð á úthafinu og undan farin ár RANNSÓKNARSKIPIN „María Júlía“, „G. O. Sars“ og „Dana“ hafa verið að rann- sóknum í úthafinu fyrir aust- an og norðaustan ísland nú undanfarið. Hafa skipin gert hvort tveggja^ að framkvæma sjórannsóknir og Ieita síldar eftir því, sem ástæður hafa verið til. Að lóljfinni rannsókmjrrför - inni mættust skipin á Seyðis- firði í gær. Ámi Friðriksson, sem fór til Seyðisfjarðar til móts við skipin, hefur sent Fiskifélaginu eftirfarandi grein argerð um niðurstöður rann- sóknanna. Ástand sjávarins norðan og austan íslands er svipað og verið hefur undanfarin ár. Of- an á hlutfallslega köldum sjó er 50—75 m þykkt lag af hlýri sjó, þar sem síldar varð vart. Síldarinnar varð vart á svæðinu 63° n. br. til 70°30’ n. br. og 5° v. 1. til 11°30’ v. 1. Næst landinu var síldin um 55 sjóm. austur af Seyðisfirði. VeðriS í dag: cs NorSan gola eða kaldi, úr- komulaust, víða léttskýjað. ÍJtvarpsráð ÞAS ER ömurleg mynd, sem þjóðin hefur fengið af út- varpsráði síðustu dagana. Þarna eiga sæti fimm menn, kjörnir af alþingi til þess ekki hvað sízt, að vaka yfir hlut- leysi og velsæmi í útvarþinu. En undanfarna daga hafa fjórir af þessum mönnum reynzt eins og vax í höndun- um á tveimur valdamiklum og yfirgangssömum flokks- foringjum, þéim Hermanni Jónassyni og Ólafi Thors, sem heimtuðu að fá að misnota útvarpið til framdráttar for- setaefni sínu á kostnað hinna forsetaefnanna beggja. Að- eins einn útvarpsráðsmaður talaði máli hlutleysisins og velsæmisins í þessu tilfelli, — en árangufslaust. EN ÞAÐ er ekki aðeins, að meirihluti útvarpsráðs hafi 'látið þá Ólaf og Hermann brúka sig til að brjóta gegn hlutleysi og velsæmi í útvarp- inu með því að samþykkja flokkspólitískar umræður þar um forsetakjörið,'sem útilok- uðu stuðningsmenn eins for- setaefnisins og gerðu stuðn- ingsmönnum annars ómögu- legt að taka þátt í þeim; held- ur hefur þessi meirihluti dag- lega verið að breyta gerðum samþykktum sínum, eftir nýj- um og nýjum kröfum þeirra Ólafs og Hermanns. Á miðviku dag var þeim leyft, þvert of- an í áður gerðar samþykktir, að láta eins marga flokksmenn sína tala í ræðutíma sínum og þeir vildu; og í gær var fallizt á það, að flokksumræð- urnar færu fram strax í gær- kveldi, á eftir ávörpum for- setaefnanna þó að áður væri samþykkt, að þær færu ekki fram fyrr en í kvöld! ÞAÐ ER ískyggilegt, að meiri hluti útvarpsráðs skuli láta hafa sig þannig að viljalausu verkfæri í höndum ófyrirleit- inna valdamanna stjórnar- flokkanna; því þó að alls stað- ar sé nauðsyn þess að opin- berir embættismenn séu á verði gagnvart slíku ofríki, þá er þess óvíða eins mikil nauðsyn og einmitt við ríkis- útvarpið. ur norðurí Þýzfca knafffspyrnuliðið komii ----------------». Flestir vanir malarvöiium. Kvað einn fararstjóranna þetta lið vera mjög svipað að styrkleika liði því, er hér kom 1950. Sjö leikmanna munu vera úr 1. deildar liðum (Trier og Engers) og eru hálf- gerðir atvinnumenn, en hinir eru allir úr 2. deild nema 2 menn frá Betzdorf, sem eru í áhugarnannadeild. Lið Þjóðverjanna verður þannig skipað í kvöld: mark- maður: Wankum (E), bakverð- ir: Theis (E), Lichtel (A), fram verðir: Deeg (Tr), Muller (Tr), Trapp (H), framherjar: Föhr McGuigan kardináli. Söfnuðirnir eiga að hafa sam- vinnu um menningarmá! ---------♦-------- — segir McGuigan kardínáli, sem nú er hér í heimsókn hjá kaþólska söfnuðinum ----------------------♦--------r ,,I»AR SEM KAÞÓLSKIR OG LÚTHERSKIR SOFNUÐIR starfa í sama laudi. tel ég ekki aðeins aeskilegt, heldur og næsta mikilsvert, að þeir hafi samvinnu um maunúðar og menn. ingarmál. Sem borgarar í cinu og sama þjóðfélagi, ber þeiir. að sjálfsögðu að vinna sameiginlega að velferð þcss“, sagðl Mc Guigan, kandináli í viðtali, ’er fréttasmaður átti við hann fyrír skemmstu í biskupssetrinu að Landakoti, -------i---------------* James Charles McGuigan, kardínáli í Toronto í Kanada, er hér staddur sem. staðgöngu- maður Píusar páfa XII. í tilefni af 400 ára minningarhátíð Jóns biskups Arasonar. Kardínálinn, sem var valinn heiðursdoktor £ guðfrseði við Catholic Univer- sity of America í Washington. árið. 1939, tók prestsvígslu áriö 1918; var kennari um skeið viS St. Dunstan háskólann, gegndi síðan ýmsum þýðingarmikluni. embættum fyrir kaþólsku kirkj una um skeið, var settur yfir erkibiskupsdæmið í Toronto ár- ið 1935, vei tt nafnbót róm- versks greifa 1943 og gerður kardínáli árið 1946, og er Santa Maria del Popolo í Rómaborg titularkirkja hans. Kardírtálinn lætur hiö bezta yfir þeirri stuttu viðkynningu, sem hann hefur haft af landi og þjóð. Áður hefur hann komið' hingað í svip, kom við á Kefla - víkurflugvelli á leið sinni frá Róxn til Kanada árið 1950, Hann telur sig hafa orðið þesa ásky'jáa, að kaþólska kirkjara hér njóti vinsemdar og virðing- ar meðal almennings, og kveðst fara héðan með góðar endurf- minningar, heim í erkibiskups- dæmi sitt í Toronto. „Þar eru: 40% íbúa meðlimir kaþólskvx safnaðanna, og innan safnað- anna eru franskættaðir mer.n £ meirihluta. í Kaada heldur ka- þólska kirkjan að minnsta kosti vel í horfinu, hvað meðlimatöln, snertir, og í Bandaríkjunum fer játendum hennar tiltöluega fjölgandi," segir k.ardínálinn. „Og heima í Toronto er sam- komulag gott með hinum óliku, kirkjudeildum og samvinna. með þeim um ýmis mál, seru þjóðfélaginu mega verða tii gagns og heilía.“ BJÖRN PÁLSSON, flug- maður, flaug enn einu sinni eftir slösuðum manni í fyrra- dag. í þetta skipti hafði maður fallið af hestbaki og höfuð- kúpubrotnað norður í Víðidal. Læknirinn á Hvammstanga kom á slysstaðinn og kvað ó- fært og lífshættulegt að flytja manninn í bíl, þótt ekki væri nema á flugvöllinn á Akri. Var því hringt til Björns og flaug hann þegar norður og lenti á túninu. ÞYZKI KNATTSPYRNUFLOKKURINN, sem Fram he£- ur boðið hingað kom í gær eftir átta daga ferð frá Koblenz um Hamborg og Kaupmannahöfn. í flokknum eru 20 manns, 15 leikmenn, 1 þjálfari og 4 fararsfjórar. (Tr), Jáhn (N), Scháffer (E), Ischdonath (B), Mertens (H), Skamstafanir sbr. blaðið í gær. Lið Fram verður skipað þess um mönnum: markmaður: Magnús Jónsson, bakverðir: Karl Guðm. og Guðm. Guðm., framverðir: Sæm. Gíslason (fyrirliði), Haukur Bj., Steinar Þorst., framherjar: Óskar Sig- urbj., Guðm. Jónsson, Lárus Hallbj., Gunnar Guðmannsson, Ólafur Hannesson. Af þessum eru þrír fengnir að láni hjá KR. Hvort lið hefur 3 vara- menn. ..... >b*mk

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.