Alþýðublaðið - 19.09.1952, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 19.09.1952, Qupperneq 7
Tveggja ára Framhald af 5. síðu. skylda til, samkvæmt ákvæð- um 47. gr. sambandslaganna. Hvað er fram- undan? Hér hefur verið getið ör- fárra atriða og þá þeirra helztu er varða verkefni stjórnar sambandsins á því kjörtíma- I biii, sem nú er að enda, en eðlilega verður spurt, hvað er framundan? I Ástandið er hvergi nærri glæsilegt. Þótt u,m hásumarið sé, er atvinnuleysi mikið víía • um land og útlitið ægilegt í því efni. Dýrtíðin vex hröðum skrefum, og ekkert er gert af hálfu, stjórnarvalda til þess að koma í veg fyrir það, nema síð ur sé. , Fjárhag þjóðarinnar er stefnt í hreinan voða með innflutn- ingi alls konar glysvarnings, sem þjóðin hefur engin efni á að eignast, og getur vel verið án. | Mismunur kaupgjaldsvísi- tölu og framfærslu- eða dýr- tíðarvísitölu eykst stöðugt, og | verður sennilega orðin 10 st\g í okóber í hau.st, en aukinn mismunur þessarar tvenns kon ar vísitölu minnkar kaupmátt launa að sama skapi. Á formannaráðstefnu, þeirri, er sambandsstjórn hélt í vor síðasta vetrardag, var sam- þykkt ýtarleg' ályktun um at- vinnu-, dýríðar- og kaupgjalds- málin, en í niðurlagi áyktun- arinnar segir svo: „Með tilliti til þess, að ráð- stefnan telur framangreindar ráðstafanir höfuðgrundvöll ör- uggrar atvinnu, og aukna trygg ingu fyrir kaupmætti laun-, anna, en það hvort tveggja er meginstoð u.ndir afkomu og lífs öryggi almennings, þá skorar ráðstefnan á öll félög innan Aþýðusambandsins að leggja fram ötult starf til þess að knýja fram að sem fyllstar úr- bætur fáist í þessum efnum og til þess verði afl samtakanna notað til hins ýtrasta. Felur hún miðsjórn ASÍ að vinna að framgangi þessara mála og hvetur sambandsfélögin til ■ þess að taka til rækiiegrar at- hugunar. hvort ekki beri að segja samningum upp í hau.st til þess að geta, þegar sýnt verð ur yiðhorf alþingis til mála SKIPAUTGCRÐ RIKISINS vestur um tand í hringferð hinn 24. þ. m. Tekið á móti flutningi til áætlunarhafna vestan Þórshafnar árdegis í dag. launfólks í landinu, snúizt við því á þann veg, sem verkalýðs samtökin telja þá nauðsynleg- ast“. Ef segja ætti upp núgildandi kjarasamningum, þyrfti það að vera gert fyrir 1. nóvember n. k. því að öðrum kosti, fram- lengjast þeir til 1. júní á næsta ári. Ætlað er að sambandsþing komi saman um miðjan nóv- ember og væri þá uppsagnar- flestur hálfnaður, því að_ samn ingar yrðu ekki úr gildj fyrr en 1. desember. Að sjálfsögðu verður það höfuðverkefni þingsins að taka afstöðu til þessara mála-, og væri þá óneitanlega mikill styrkur að samningar væru þá lausir, sérstaklega þar sem' al- þingi mun setja á rökstólum um það leyti, en það hefur sýnt sig, að á þeim vettvangi er ein- hvers árangu.rs að vænta, ef sú svipa er á lofti, að samnýigar séu svo til lausir, svo að hægt sé að beita samtökunum, þeg- ar ríkisvaldinu og atvinnu.rek- endum kemur það verst. ýl Um hvað er kosili? Ákveðið er að kosning full- trúa á sambandsþing fari fram í sambandsfélögunum á tíma- bilinu 20. september til 13. október n. k., að báðum dögum meðtöldum. Áður en gengið er til kosn- inga, verða menn að gera ppp við sig, hvort þeir vilja, 1 að unnið verði að málum samtak- anna og hag verkalýðsins á hverjum tíma, eftir því, sem aðstaða er til, og styrkur sam- takanna leyfir hverju, sinni, og unnið að lausn mála á lýðræðis legán hátt, eða hvort samtökin á aftur að nota sem dráttar- vagn fyrir pólitískan • .••f-lokk kommúnista, eins og var, áður en þeim var bjargað frá því hlutskipti haustið 1948. ... Það eru fulltrúar hinná'fýð- ræðislegu afla innan samlak- anna, er átt hafa sæti í sam- bandsstjórn síðustu. fj ögur'lár, og þeir hafa unnið að Íá|sn mála, eftir því sem bezt hej'ur verið fyrir samtökin og þjó.ðar heildina, að þeirra áiiti, Hvernig það hefur tekizi vil ég ekki u.m dæma, til þess er mér málið of skylt. Kommúnistar hafa deilt á okkur vegna alls þess, er gert hefur verið, en látið þar við sitja, því að þeir hafa ekki átt frumkvæði um eitt einasta mál á öllmi kjörtímabilinu, og ekk- ert haft jákvætt til mála að leggja. Eg hef hér skýrt frá því heizta, sem sambandsstjórn hefur að unnið á kjörtímabil- inu. Nú er það félagsmanna allra að dæma, hvort vel eða illa hef ur verið gert, miðað við þær aðstæður, er við er að búa. Ég fyrir mitt leyti þykist þekkja það vel dómgreind veru, legs meirihluta þess mikla fjölda, sem félagsbundinn er innan væbanda Alþýðusam- bandsins, að lýðræðisöflin inn an samtakanna þurfi engu að kvíða þeim dómi, er upp verð- ur kveðinn í kosningunum til sambandsþings í haust. löngvari Framh. af 4. síðu. inni, svo að unnt sé að uppfylla ströngustu kröfur, sem gerðar eru á því sviði, iyrst maður lagði út í þetta á annað borð. Það er að vísu bæð; örðugt nám og kostnaðarsamt, en ég hef ■verið svo heppinn, að margir góðir menn hafa orðið til þess að aðstoða mig með ráðum og dáð, og vil ég' þar einkum nefna 'þá Guðbrand Magnússon for- stjóra, Agnar Kofoed-Hansen, Jóhann Þ. Jósefsson alþm. g Ásbjörn bróður minn, forstjóra Orlofs. Þá hefur og aðaikonsúll íslendinga á Ítalíu, Hálfdán Bjarnason reynzt mér oft góður haukur í-ho.rni.“ Og að námi loknu . . .? „Það er nægur tími til að ráð gera það, þegar þar að kemur. Aðalatriðið er, að hafa þá menntun og kunnáttu, sem er nauðsynlegur framtíðargrund- völlur. Framtíðin verður svo að skera úr um það, hvers maður reynist megnugur. Ef til vill gefst mér tækifæri til að áta til mín heyra hér í haust, áður en ég hverf aftur að ámi. Við sjáum nú hverni^ þetta geng- ur. . . .“ Mjólkurgjafir Framh. af 8. síðu. af þessu máli; því a‘ð oft hefðu konur látð til sín heyra af minna tilefni held- ur en nú, þegar mjólkur- verðið væri orðið það hátt, að spurning væri, hvort al- þýðulieimili gætu veitt börnum sínum þessa lífs- nauðsyn. Frú Gu.ðrún Guðlaugsdóttir ! brá þá við ótt og títt og taldi það slettirekuskap, að |vera að skipta sér af því, hvort ifólk gæti keypt mikla eða litla mjólk, — það yrðu húsmæð- urnar sjálfar að ákveða, og fara þar eftir efnum og ástæðu.m! (Með öðrum orðum: allt í lagi, j þó að efnin séu þannig, að fólk geti alls eng'a mjólk keypt!) Tiilögunni u,m mjólkurgjaf- ir í barnaskólunum var að lok— um vísað til bæjarráðs (vænt- anlega á mjúkan svæfil) eftir tilmælum bæjarstjórnarmeiri- hlu.tans. Bærinn kaupir Framh. af 8. síðu. ogð væri það sanngjarnt verð, — en til hverra nota húsið er ætlað, kom ekki fram. Þórður Björnsson gagnrýndi töluvert fasteignakaup bæjar- ins; minnti meðal annars á | Kvíabryggjukaupin fyrir 202 þúsundir króna, fyrirhuguð kaup á Skeggjastöðum fyrir 2 milljónir króna, og taldi að engum aðila nema Reykjavíkur bæ myndi koma til hu.gar að láta pranga svona á sér. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför JÓNS INDRIÐASONAR. Sigríður Ingimundardóttir. Anna Jónsdóttir. Garðar Jónsson. Pétur Pétursson. Jarðarför móður, tengdamóður, ömmu og langömmu okkar, HÖLLU MATTHÍASDÓTTUR fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, laugardaginn 20. sept. og hefst með bæn frá heimili hennar Krosseyrarveg 11, klukkan 2 síðdegis. Blóm afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á eitthvert líknarfélag. Margrét Björnsdóttir. Gunnar Ásgeirsson. Eiríkur Björnsson. Guðfinna Jónsdóttir. Jón Björnsson. Gíslína Gísladóttir. María Eiríksdóttir. Guðjón Bjarnason. Guðrún Eiríksdóttir. Ólafur Þórðarson. Jarðarför föður míns, SIGURJÓNS EINARSSONAR, Litla-Hólmi, Leiru, fer fram laugardaginn 20. þ. m. og hefst að heimili hans kl. 2 e. h. Jarðsett verður í Keflavík. Bifreið frá Ferðaskrifstofunni kl. 12,30. Fyrir hönd systkinanna. Þorbergur P. Sigurjónsson. Hjartanlega þökkum við alla samúð og hlýhug við and- lát og jarðarför EGGERTS DAVÍÐSSONAR. Einnig þökkum við af alhug læknum og hjúkrunarkonum lyfjadeildar Landsspítalans þá hjúkrun, er honum var veitt og biðjum Guð að blessa það kærleiksríka starf, sem þar er unnið. Rósbjörg Sigurðardóttir og börn. Bifreið Packard bifreið 6 manna til sölu með tækifærisverði. TiÞsýnis fram að helgi. Fasteignamarkaðurinn Njálsgötu 36. varðandi skaðabótakröfu á liendur varnarliðinu. í 12. grein viðbætis við varnarsamninginn milli íslands og Bandaríkjanna sbr. lög nr. 110 frá 19. des- ember 1951, eru ákvæði um skaðabótakröfur vegna verknaða manna í liði Bandaríkjanna á íslandi. Slíkar kröfur, studdar nauðsynlegum gögnum, skulu sendar varnarmálanefnd. V arnarmálanef nd Stjórnarráðinu. Dúkasalan heldur áfram þessa viku. Fjölbreytt úrval af efnum tekið upp í dag, einnig verða seldir bútar. GEFJUN-IDUNN Kirkjustræti. Sími 2838. AB 2

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.