Alþýðublaðið - 20.09.1952, Page 1
YÐUBLAÐI
[osningarnar fi! alftýðusam-
bandsþings hefjasf í dag
Sjá á 8. síðu.
J
XXXIII. árgangur. Laugardagur 20. sepíember 1952. 209. tbl.
ri m
Friðrik, Jörgen Munk-Plum og Lgve.
Spennandi íþróttaviðburður:
Danski mefhafinn í kringfu-
/
í
í DAG HEFST á íþróttarvellinum í Reykjavík síðastn
frjálsíþróttamót ársíns, hið svokallaða Septembermót, Keppt
verður í sjö greinum, en mesta athygii mun vekja keppnin í
kringlukasti, þar sem við eigast danski ynethafinn, Jörgen Munk-
Plum (49.98), Friðrik Guðmundsson og Þorsteinn Löve (49.28
og 48,29.
" ' * Hefur Munk-Plum sýnt
þessum íþróttamönnum okkar
mikinn |!heiður með því, að
leggja á sig þetta langa ferða-
lag til þess að þreyta keppni
við þá. Er ekki ósennilegt, að
endurgjaldið verði nýtt danskt
met, því hann er mjög áhuga-
samur fyrir þessari skemmti-
Framh. á 8. síðu.
Fiima voru greiddar
að íullu í fyrradag
FINNAR hafa nú lokið stríðs
skaðabótagreiðslum sínum til
Rússlands, og voru tvö skip,
sem þeir sendu síðast til Rúss-
lands, í fyrradag.
í friðarsamningunum við
Rússland 1944 var Finnum gert
að greiða 300 milljónir dollara
í stríðsskaðabætur og hafa þeir
orðið að greiða þá upphæð á
vélum, skipum og hverskonar
vörum, reiknuðum á fyrirstríðs
vrerði. Hefur greiðsla stríðs-
skaðabótanna orðið Finnum
miklu þungbærari en upphæðin
í friðarsamning'inum segði til.
Veðrið í dag:
Vestan gola í nótt en vestau
kaldi á morgum.
Þremur mönnum af trillubátnum
r
, en einn,
íri, íórst
í GÆR skeði sá hörmulegi atburður á ytri höfn-
inni í Reykjavik, að togarinn Röðull sigldi á trillubát
og hvolfdi honum. Á bátnum voru fjórir menn og
björguðust þrír þeirra upp í togarann, en einn þeirra,
Kristján Þorgrímsson, framkvæmdastjóri Austurbæj-
arbíós, var örendur er hann náðist.
Áhöfn bátsins, s'gu sigldur var í kaf var: Kristján Þor-
grímsson framkvæmdastjóri, Ragnar Þorgrímsson, eftirlitsmað
Xir Strætisvagna Reykjavíkur, toróðir Kristjáns, Ari, sonur Krist
jáns og Guðbjartur Fransson vagnstjóri hjá Strætisv'ögnum
Reykjavdkur. Bátinn átti Ari Fransson, hróðir Guðbjarts.
Amen'sk skíðaflug-
vél æflar að reyna
björgun Brefanna á
Slysið vildi til um klukkan
hálf þrjú í gær í góðu og björtu
veðri. Trillubáturinn lá við
festar við norðvesturenda Eng-
eyjar og voru hinir fjórir menn
þar að draga ýsu og lúðu. Fóru
þeir héðan úr Reykjavík um
klukkan tíu í gærmorgun og
höfðu verið á sjónum í fjóra
tíma, er slj'sið vildi til.
Strax og skipverjar á Röðli
höfðu bjargað mönnunum,
sendi skipstjórinn, Ragnar
Guðmundsson skeyti um slysið
til útgerðarmannsins, Lofts
Bjarnasonar í Hafnarfirði, og
símaði hann til viðkomandi að-
ila í Reykjavík, að hafa lækni
og sjúkrabíl viðbúinn strax og
Röðull legðist að bryggju.
FRÁSÖGN RAGNARS
ÞORGRÍMSSONAR
AB átti í gær tal við Ragnar
Þorgrímsson, og sagðist honum
svo frá: Við lágum fyrir stjóra
við Engey, eða réttara sagt í
álnum við norðvesturhorn eyj-
arinnar. Vélin var elvki í gangi.
Mörg skip höfðu farið fram hjá
okkur um daginn og langt frá
okkur. Höfðum \'ið verið um
fjóra tíma úti. Skemmst frá
sagt, uggðum við ekki að okkur,
fyrr en við sáum togarann
stefna á okkur á míkilli ferð.
Tókum við þá að hrópa og kalla
og veifa árum og öðru til þess
að vekja athygli á okkur. Skip.
ið breytti ekki um stefnu, og
var það komið svo nærri, að við
sáum ekki nokkra undankomu-
von. Augnabliki áður en stefni
togarans snerti bátinn vörpuð-
um við okkur fyrir borð, —
allir út af sömu hlið bátsins.
Framh. á 8. síðu.
AMERISK SKIÐAFLUG-
SVEIT kom til Thule á norð-
vesturströnd Grænlands í gær,
og ætlar hún að gera tilraun
þaðan til þess að bjarga brezku
leiðangursmönnunum, sem
urðu að nauðlenda á Grænlands
jökli og taWir eru í hætiu
staddir.
Gérð hins mikla flugvallar í
Thule. um 1590 km vegarlengd
frá norðurheimskauti, er nú
lokið, og hafa þrýstiloftsflug-
vélar þegar lent þar. Orustu-
flugvélar eiga einnig að geta
athafnað sig á vellinum.
Allt efni til hans, 12 000 smá-
lestir, var flutt frá Bandaríkj-
unum í flugvélum, sem urðu
að fara samtals 2000 ferðir til
þess að flytja það þangað.
Byrnes lýsir sluðn-
ingi við Eisenhower
JAMES BYRNES, sem var
eftir stríðið um skeið utanríkis
málaráðherra Trumans og er
nú einn af íhaldssömustu for-
ustumönnum demókrata í Suð-
uuríkjunum, hefur lýst yfir því,
að hann muni styðja Eisenhov/
er til forsetakjörs.
Hersýning é Keflavíkurflugve!
I GÆR bauð Brownfield hershöfðingi, yfirmaður V'arnarliðs
ins á Keflavíkurflugvelli, ráðherrum, nokkrum öðrum emhætt
mönnum svo og fréttamönnum útvarps og blaða að vera við-
staddir hersýningu þar syðra. Tilgangur sýningarinnar var sá,
að kynna bæði íslendingum og hinum ýmsu deildum herliðs-
ins þá möguleika, sem skapaðir hafa verið gegn hugsanlegri
árás.
Viðstaddir sýninguna voru
m. a. þeir Bjarni Benediktsson,
utanríkismálaráðherra, og Ey-
steinn Jónsson, íjármá]a.ráö-
herra, svo og fulltrúar sendi-
ráða Breta og Frakka.
Sýndar voru ýmsar gerðir
hernaðartækia, sem notuð em
í nútímahernaði, þar á meðal
skriðdrekar. Lögð var áherzla
á samvinnu milli ilota og flug-
hers, sem hefur bækistöðvrar
hér á landi, en vegna þess,
hversu lágskýjað var, gátu
flugvélar ekki tekið þátt í sýn-
ingúnni
Tvísýn aukakosning í Yesfur-
Isafjarðarsýslu á morgun
--------»---------
TVÍSÝN KOSNING til alþingis fer fram í Vestur-ísafjarð
arsýslu á morgun, en Vestur-ísfirðingar kjósa sér þingmann í
stað Ásgeirs Ásgeirssonar forseta. Allir stjórnmálaflokkarnii'
hafa mann í kjöri, en af þeim eru ekki nema tveir taldir hafa
möguleika tii þessa að ná kosningu: Sturla Jónsson, frambjóð-
andi Alþýðufiokksins, og Eiríkur Þorsteinsson, frambjóðandi
Framsóknarflokksins.
Frambjóðendur hinna flokk-*-
anna eru: Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, og Gunnar M. Magn-
úss, fyrir kommúnista.
Framboðsfundum lauk fyrir
miðja þessa viku, og er það
flestra manná mál vestra, að
Sturla Jónsson hafi á þeim
lundum þorið mjög af um allan
málflutning.
Úrslitanna í aukakosningunni
er beðið um land allt með mik-
illi eftirvæntingu; en atkvæða-
talning fer ekki fram fyrr eli á
mánudag.
ÚRSLITIN 1949.
Við síðustu reglulegar al-
þingiskosningar í Vestur-ísa-
fjarðarsýslu, 29. október 1949,
Framh. á 3. síðu.
Rolf Gerhardsen
rifstjóri frá Koregi í
kynnisiðr hé;
ROLF GERKARDSEN,
fréttaritstjóri Arbeíderblaðsins
í Oslo og kona hans voru meðal
farþega hingað í síöostu fei'3
Gullfaxa. Eru þau hér í kynnis
ferð og munu dveljasí í rúma
viku.
Rolf Gerhardsen er bróðir
Einars Gerhardsen fyrrverandi
forsætisráðherra Norðmanna,
og er ætlun hans að skrifa fyr
ir Arbeiderblaðið ýmislegt úr
íslandsförinni.