Alþýðublaðið - 15.10.1952, Page 4
AB-AlJ>ýðulb!aði$
15. okt. 1852.
Áiimur iðnaðarmálaráðherra
IÐNSÝNINGIN, sem nú er
á enda og meira en þriðjungur
þjóðarinnar mun hafa séð, var
virðulegt svar íslenzks iðnað-
ar við því skeytingarleysi, já,
þeim fjandskap, sem núver-
andi ríkisstjórn hefur sýnl
þessum nýja og efnilega at-
vinnuvegi okkar, aílt frá þvi
að hún tók við völdrnn. Iðn-
aðurinn hefur með sýning-
unni látið verk sín tala og
sýnt þjóðinni, hvað hér má
framleiða til þess að tryggja
öllum atvinnu, og hvernig hér
má spara erlendan gjaldeyri,
ef stjórnarvöld landsins hefðu
vit og vilja til þess að veita
hinum innlenda iðnaði við-
unandi starfsskilyrði. En
það vit og þann vilja hefur
núverandi ríkisstjórn þvi
miður ekki haft. .Þvert á
móti hefur hún, til þess að
þóknast heildsölum og öðr-
um bröskurum, fyllt landið af
erlendum iðnaðarvarningi
með þeim afleiðingum, að ís-
lenzkur iðnaður hefur stór-
lega orðið að draga saman
seglin, hundruð, ef ekki þús-
undir íslenzks verkafólks
misst atvinnu og hallinn á
viðskiptunum við útlönd náð
nýju og áður óþekktu há-
marki.
Það leynir sér ekki, að iðn-
sýningin hefur sett ráðherra
ríkisstjórnarinnar í mikinn
vanda. Þeir* vita upp á sig
skömm þeirrar stjórnar-
stefnu, sem þannig hefur bú-
ið að hinum innlenda iðnaði,
en eru þó ekki menn til þess
að játa hana, né heldur til
hins að breyta um stefnu. I
stað þess reyna þeir nú að
gera dyggð úr ósómanum,
með því að láta í það skína,
að í raun og veru hafi sú
xneðferð, sem iðnaðurinn hef-
ur sætt af hálfu ríkisstjórn-
arinnar, verið honum fyrir
beztu! Þannig lét Bjarni
Behediktsson, sem við setn-
ingu iðnsýningarinnar flutti
ávarp fyrir munn hins ffir-
stadda iðnaðarmálaráðherra,
Björns Olafssonar, svo um
mæltn, að á misjöfnu þriíist
börnin bezt; og í viðtali við
Morgunblaðið síðastliðinn
sunnudag komst Björn Ól-
afsson sjálfur svo að orði, að
það myndi eiga eftir að koma
í Ijós, að einmitt það á-
stand, sem ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar, þar á meðai
hinn aukni innflutningur er-
lends iðngþarvarnings, hafi
valdið um stund, muni marka
tímamót fyrir hinn innlenda
iðnað til nýrrar framsóknar!
„Iðnaðurinn þurfti að gera
sér grein fyrir því,“ segir
Björn Ólafsson, „hvar og
hvernig hann stóð, eftir að
hafa lifað í skjóli innflutxi-
ingshafta í mörg ár.
Þannig þykjast ráðherrar
rjkisstjórnarinnar nú hafa
unnið íðnaðinum hið mesta
þarfaverk með því að fylla
innanlandsmarkaðinn með
erlendum iðnaðarvamingi! Já,
það má meira að segja lesa
það milli línanna, aci í raun
og veru ætti íslenzkur iðnað-
ur að vera þeim þakklátur
fyrir það! Sennilega ætlast
Björn Ólafsson líka til þess,
að verkafólkið, sem orðið
hefur atvinnulaust fyrir inn-
flutning erlends vinnuafls í
mynd erlends iðnaðarvarn-
ings, syngi honum lof og
dýrð fyrir slíka blessun!
Auðvitað er svo reynt að
smjaðra fyrir iðnaðinum öðr-
um þræði, að minnsta kosti
fyrir hinni glæsilegu sýningu
hans. Þannig segir Björn
Ólafsson í viðtalinu við Morg
unblaðið, að sá iðnaður, sem
slík afrek hafi að sýna, „eigi
kröfu til þess, að hið opin-
bera, ríkisstjórnin og alþingi,
geri sér grein fyrír, hvaða
ráðstafanir þurfi að gera til
þess að skapa varanleg skil-
yrði fyrir heilbrigðri þróun
Innlends iðnaðar“. Mun iðn-
aðarmálaráðherrann sjálf-
sagt verða minntur á þessi
orð síðar meir, og iðnaður-
inn heimtá þann rétt, sem
hér er þó loksins viðurkennt
að hann eigi. En hvar í ver-
öldinni myndi finnast iðnað-
armálaráðherra, sem yrði að
játa það, eins og Björn Ól-
afsson hefur gert með þess-
xim orðum, að haiýn sé, eftir
þrjú ár í embætti iðnaðarmála
ráðherra, ekki enn farinn að
„gera sér grein fyrir, hvaða
ráðstafanir þurfi að gera til
þess að skapa varanleg skil-
yrði fyrir heilbrigðri þróun
innlends iðnaðar“?!
Hvílík játning — ofan á
allt það, sem þessi ráðherra
er búinn að vinna iðnaðinum
í landinu til óþurftar!
A sjávarkambinu m
heitir þessi mynd. Hún er á
sýningunni í Listvinasalnum
Úr naustinni, og er höfundur dennar Þorvaldur Skúlason. 23
málarar sýna þar myndir. sem fíestar eru til sölu. Um 300
manns hafa séð sýninguna.
Sæmundur Ólafsson:
HAFNARFJÖKÐUR.
Samsæf
Þeir Hafnfirðingar og aðrir sem taka vilja þátt í sam-
sæti fyrir Jóhann Tómasson og konu hans, laugardag-
inn 18. okt. kl. 20,30 í G.T. húsinu, láti vita um þátt-
töku fyrir föstudagskvöld til Stígs Sælands, sími 9062
eða Kristins Magnússonar, sími 9274.
Undirbáningsnefndm.
— AlþýðublaBið. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Bitstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Auglýsingastjóri: Emma Möller. — Bitstjörn-
arsímar: 4901 og 4902. — Auglýsingasími: 4906. — Afgreíðslusími: 4900. — Alþýðu,-
prentsmiðjan, Hverfisgötu 8—10. Áskriftarverð 15 kr. á mánuði; 1 kr. 1 lausasöiu.
AB4
ÞAÐ VAR á þeim árum, sem
Stefán Jóhann var forsætis-
ráðherra og allar búðir vora
hálftómar, en allir höfðu nóga
vinnu, að krónan okkar var
nokkurs' virði: Þá kynntist ég
verkamannafjölskyldu hér í
baénum. Hjónin voru um fer-
tugt og dæturnar báðar um eða
innan við tvítugt. Þetta er
dugnaðarfólk, sem bjargar sér
eins og bezt gengur.
Stjórn Stefáns Jöhanns var
fjölskyldunni mikill þyrnir í
augum. Dæturnar urðu að
ganga á íslenzkum skóm og
kaupa nylonsokka af sjómönn-
um. Frúin varð að fara í bið-
raðir til þess að geta eignast
postulínshund, marglitt léreft,
til þess að sauma sér úr
svuntu eða morgunkjól. Slíkar
flíkur gat hún að vísu fengið
tilbúnar í búðunum, en þær
voru bæði dýrar og ósmekk-
legar, enda sumar saurnaðar af
eldri dóttur hennar, sem vann
á saumastofu, er framleiddi
kvenfatnað. Yngri dóttirin
vann á prjónastofu, þar sem
kvenpeysur og barnaföt voru
prjónuð. En hið íslenzka
prjónles var bæði dýrt og á-
ferðarljótt að dámi mæðgn-
anna. Þær gátu því vart feng-
ið sómasamlegar flíkur til þess
að skýla sínum fögru, ís-
lenzku líkömum. Ekki tók
betra við, er kaupa skyldí í
matinn. Flest matarkyns, sem
á boðstólum var, var íslenzkt
eða matbúið á íslandi. Frúin
vann í kexverksmiðju fhnm
stundir á dag, og auðvitað var
kexið, sem hún vann við að
framleiða, óæti.
1 Húsbóndinn einn var róleg-
ur í tíðinni. Hann vann viö
húsabyggingar níu stundir á
dag. Fjölskyldan greiddi lága1
húsaleigu í gömlu húsi. Hús-
bóndinn lagði dálitla fjárhæð
inn á sparisjóðsbók á hverjum
mánuði. Dæturnar greiddu fyr-
ir sig og frúin vann að mestu (
fyrir fæði fjölskyldunnar. Fjár
hagsafkoma fjölskyldunnar var I
því ágæt, enda voru saman- í
lagðar mánaðartekjur hennar I
nær fimm þúsund krónur. |
Heilsufarið var ágætt, fjölskyid
an hefði því baðað í rósum, e£ I
„skömmtunarfarganið og vöru- I
skorturinn“ hefði ekki herjað
mannssálirnar eins . herfilega
og raun bar vitni.
En svo hætti Stefán Jóhann
að vera forsætisráðherra, sam-
kvæmt valdboði hjónanna; því
auðvitað kúsu þau íhaldið. Og
Björn Ólafsson birtist í ráð-
herrastólnum i>nkringdui
dýrðarlj óma verzlunarfrels ís -
ins og frjáls innflutnings. —
Húsaleigulögunum var breytí.
Fjölskyldan varð aö flytja úr
hinu ódýra húsnæði og leita
að öðru. Eftir langt vafstur
fékk hún loks annað húsnæði,
sem kostaði helming af mán-
aðarlaunum húsbóndans, með
þeim afleiðingum, að sparl-
sjóðsbókin hætti að fá sirm
mánaðarlega skammt. Búðirnar
fylltust af erlendum kven-
fatnaði og nú var nóg á boð-
stólum af ósaumuðu svuntu-
og kjólaefni. Það kom sér vel
fyrir frúna og eldri systurina,
því að hætt var starfrækslu
saumastofunnar og eldri syst-
irin ásamt tuttugu öðrum
stúlkum varð atvinnulaus. Hún
hafði því nægan tíma til að
sauma á sig spjarirnar; en sá
hængur var á, að peningana
vantaði til þess að kaupa hin
óunnu efni fyrir. Frúin hafði
nú einnig nógan tíma aflögu
til heimilisstarfa. Hún missti
vinnuna í kexverksmiðjunni
vegna þess, að erlent kex var
flutt ínn og stallsystur frúar-
innar keypiu það í stórum
stíl, þótt það væri hehningi
dýrara en það íslenzka. Smekk
legt og „ódýrt“ erlent prjón-
les kom á markaðinn, svo að
yngri systirin missti vinnuna í
prjónastofunni. Nokkru síðar
missti húsbóndinn atvinnuna
við húsbyggingarnar vegna
þess að flestar byggingar
stöðvuðust af fjárskorti, sem
stafaði af gengislækkuninni.
Á nokkrum mánuðum missti
fjölskyldan allar tekjur sínar
og varð að lifa á innstæðunni
í sparisjóðsbók liúsbóndans. En
hún var nú orðin lítils virði.
Þessi innstæða, sem á stjórnar-
árum Stefáns Jóhanns fyllti
húsbóndann öryggistilfinningu,
hafði brugðist vegna gengis-
lækkunarinnar og hækkaðrar
Framhald á 7. síðu. !
á fösfudagskvöfd
i þjoðleskhusmu
„REKKJAN“, sjónleikur eft-
ir hoHenzka skáldið Jan de
Hartog, verður frumsýntlur í
þjóðleikhúsinu næstkomandi
föstudag-. Sjónleikur þessí hef-
ur veríð sýndur í Lundúnuzn,
og; verffur sýndur á öllum .Norff
urlöndum í vetur. I New York
hefur hann verið sýndur hátt á
þriðja ár samfleytt, og fyrir
skömmu er Iokið við aS: gera
kvikmynd eftir handritinu, og
Iejka þau Lilli Palmer og Eex
Harriso'n aðalhíutverkin.
það var á órum síðustu heims
styrjaldar, sem de Hartog
samdi þennan sjónleik. Hann
hafði samið skáldsögu, sem,
nazistunum þýzku geðjaðist
ekkj að, og til þess að sleppa
við handtöku og fangabúðadvöl
og hver veit hvað, leyndist
hann í greiðasölu skammt frá
höfninni í Rotterdam og dulbjó
sig sem aldurhnigna, gigtveika
konu. Úm langt skeið hélt hann
kyrru fjrrir í litlu herbergi, lét
færa sér þangað allar máltíðjr,
skrlfaði, — og beið þess, að
hann kæmist úr landi. Þegar
honum tókst að flýja til .Eng-
lands, faldi hann handrjtið að
sjónleiiknum inni í skáp, undjr
lokum og rúmfatnaði.
EIRÍKUR ÞORSTEINSSON,
hinn nýkjörni þingmaður Vest-
j ur-ísfirðinga, hélt jómfrúræðu
sína í neðri deild aliþingjs í
gær og fylgdi úr hlaði frum-
varpj til laga um jöfnun raf-
j orkuverðs, það er að hinar
i stærri rafveitur kaupstaðanna
greiði í verðjöfnunarsjóð til
dieselrafstöðvanna í kauptún-
um og þeim stöðum öðrum, sem
■ hafa raforku frá dieselstöðvum
en ekki fallvötnum.
If fjéðabók eftir
„ANGANÞEYE“ heitir safn
fjörutíu kvæða, frumsamímaa.
og þýddra, sem Þóroddur Guð
mundsson frá Sandi hefur. ge£
iS út. Bókin er prentuð í
Prentsmiðju Odds Bjömsson-
ar á Akureyri.
Stærð bókarinnár er 108.
blaðsíður og frágangur allur
hinn vandaðasti. Bókarinnar,
sem er önnur ljóðabók Þórodds
frá Sandi, mun verða nánar
getið hér í blaðinu síðar.
Höfum enn fyrirliggjandi
með gamla lága verðimi:
án pífu, settið kr. 108,70
með pífu, settið kr. 123,50
Náítkjólar kr. 135,00
Undirkjólar, stakir kr. 75,OÖ ;
Hvítir nylon undirkjólar
kr. 142,00.
II. Toft9
Skólavörðpstíg 8.