Alþýðublaðið - 21.10.1952, Síða 4

Alþýðublaðið - 21.10.1952, Síða 4
AB-AIþýðubláðið 2i: o&t: 1952. Olöglegir fulltrúar á sambandsjiing Á ÞANN furðulega skolla- leik hefur löngu verið bent hér í blaðinu, að kommúnisl ar hafa gefið upp allt aðra tölu félagsmanna í Dagsbrún við fulltrúakjör til alþýðu- sambandsþings en við stjórn- arkjör í félaginu. Hafa félags menn að jafnaði ekki verið taldir nema um 2600 við stjórnarkjör, en hins vegar um 3300 við fulltrúakjör á sambandsþing! • Til skamms tíma áttuðu menn sig ekki á því, hvernig á þessu stæði; en nú er það að fullu skýrt. í félaginu eru formlega ekki nema um 2600 —2700 manns, en auk þeirra hafa nokkur hundruð manns svokölluð vinnukort, sem veita þeim rétt til vinnu, án þess að þeir njóti nokkurra annarra félagsréttinda, svo sem kosningaréttar eða kjör- gengis_ Virðist svo sem komm únistar haldi þessum mönnum að yfirlögðu ráði utan félags ins af ótta við að missa yöJd in í því, ef þeir yrðu teknir inn; enda er það vitað af úr- slitum við stjórnarkjör í Dags brún um mörg undanfarin ár, að fylgismenn kommúnista í Dagsbrún' eru ekki nema rúm 1300 að tölu. Þess vegna hef ur mörgum hundruðum manna verið haldið utan fé- lagsins, — þeir aðeins verið látnir hafa vinnukort — og formlegri félagatölu verið haldið það niðri, að aldrei yrðu nema um 2600 á kjör- skrá við stjórnarkjör, svo að sigurinn væri kommúnistum nokkurn veginn viss! En þó að kommúnistar hafi þannig neitað mörgum hundr uðum verkamanna um full fé lagsréttindi í Dagsbrún og haldið þeim utan félagsins, hafa þeir hins vegar kosið fyrir þá fulltrúa á alþýðusam bandsþing, til viðbótar við þá fulltrúatölu, sem félagið hef ur átt rétt á, samkvæmt tölu fullgildra félagsmanna; og að sjálfsögðu hafa þeir orðið að vinna það til, að greiða skatt af þessum mönnum til Al- þýðusambandsins eins og af félagsmönnum. Hefur Dags- brún á þennan hátt kosið 33 fulltrúa á alþýðusambands- þing fyrir um 3300 manns, þó að í, félaginu séu formlega ekki nema urn 2600—2700 og það ejgi þar af leiðandi ekki rétt á nema 26—27 fulltrú- um. Hinir hafa beinlínis ver- ið keyptir inn á sambandsþing, kommúnistum til stuðnings; því að það er svo sem ekki, að hinir réttlausu verka- menn, sem haldið er utan Dagsþrúnar, kjósi þessa full- trúa, heldur er það kommún- istameirihlutinn í félaginu, sem kýs þá! Þennan leik vilja kommún istar nú enn einu sinni fá að leika. Þeir létu fyrir nokkru fámennan félagsfund í Dags- brún kjósa 33 kommúnista á alþýðusambandsþing, eins og 3300 manns væru í félaginu, og krefjast nú þess að-þeir fái' þar sæti, svo og í fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Reykja- vík, er skattur hefur verið greiddur af þessari fölsuðu félagsmannatölu Meðal hins lýðræðissinnaða meirihluta, sem kosinn hefur verið á ai þýðusambandsþing, mun hir.s vegar vera fullur hugur á því, að binda nú, í eitt skipti fyrir öll, enda á þann ósóma, að kommúnistar geti þannig keypt Dagsbrún, og þar með sjálfum sér, fulltrúa á sam- bandsþingið, sem félagið á eng an rétt á, samkvæmt félags- mannatölu; og eru því líkur tii að sambandsþingið neiti, er það kemur saman, að taka við fleiri fuilrúum frá Dagsbrún en 26—27. Þetta mál hefur verið rætt nokkuð í blöðum undanfarið, og hefur Þjóðviljinn að sjálf- sögðu belgt sig mjög yfir því, að kommúnistar skuli ekki eins og áður komast upp með slík svik við kosningarnar á sambandsþing. Segir hann, að fyrirhugað sé að „stela 6—8 fulltrúum“ af kommúnistum, þó að sannleikurinn sé sá, að hér er aðeins um það að ræða, að koma nú loksins í veg fyr ir, að kommúnistar geti keypt sér slíka fulltrúatölu á sam- bandsþing umfram þá, sem þeir eiga með réttu. Komm únistum er auðvitað innan handar að tryggja Dagsbrún 33 löglega fulltrúa á alþýðu- sambandsþingi, — að vísu ekki þessu, heldur því næsta; en þá verða þeir fyrst að taka inn í félagið þau hundruð verkamenn, sem nú er haldið utan þess og neitað um önnur félagsréttinol en þau ein, sem vinnukort veitir. Hitt á þeim ekki lengur að haldast uppi, að útiloka þessa menn frá fé- lagsréttindum í Dagsbrún, en heimta hins vegar fulltrúa fyr ir þá á alþýðusambandsþingi; því að þar með væri engu lýðræði fullnægt, heldur kommúnistum aðeins hjálpað til þess að beita brögðum og ofríki í verkalýðssamtökun- um, sér og flokki sínum til framdráttar. eiga únistar að hegða sér gagnvart Banda- Frá sjómannadagskabarettinum. Torrelis- danshóp urinn, sem sýnir evonefndan flugdans á sjómannadags- kabarettinum, vekur mikla athygli áhorfenda. 22 sýningar haía verið haldnar og tvær verða í kvöld. Aðsókn er geysimikil fjölda íeigu- bifreiða í kaupsföðum! ------4------ Frumvarp til laga þar að lútandi er flutt á . alþingi af sex þingmönnum. ny vern Ég hef opnað útibú frá verzluninni Hafnarstræti 7 á Laugaveg 38 Péfur Péfursson Hafnarstræti 7 — Sími 1219. Laugavegi 38. — Sími 4523. AB — Alþýðublaðið. Cftgefandi: Alþýðuflokkurinn. Eitstjórl: Stefán Pjeturssoa. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Auglýslngastjóri: Emma Möller. — Eltstjóm- arsímar: 4901 og 4902. — Augiýsingasími: 4906. — Afgreiðslusími: 4900. — Alþýðu- prentsmiðjan, Hverfisgötu 8—10. Áskriftarverð 15 kr. á mánuði; 1 kr. i Xausasðiu. SEX ÞINGMENN, þeir Gunnar Thoroddsen, Jóhann Haf- stein, Gylfi Þ. Gíslason, Jónas Rafnar, Emil Jónsson, flytja á alþingi frumvarp tií laga um leigubifreiðar í kaupstöðum, þar sem svo er fyrírmæít, að allar leigubifreiðar i kaupstöðum, hvort sem það eru fóíks-, vöru- eða sendibifreiðar, skuli hafa afgreiðslu á bifreiðastöð, sem fengið hefur viðurkenningu bæj- arstjórnar; og að bæjarstjórnir skuli að fengnu samþykki dóms málaráðuneytisins, hafa heimild til að takmarka fjölda leigu bifreiða. Strætisvagnar og sérleyfisbifreiðar eiga ekki að falla undir þessi ákvæði. í |;reh|argerð fyrilr jþessú frumvarpi, sem einnig var flutt á síðasta þingi, að tilmæ'íum stjórna Bifreiðastjórafélagsins Hreyfils og Vörubílstjórafélags ins Þróttar í Reykjavík, er vitn að í eftjrfarandi umsögn þeirra Bergstejns Guðiónssonar og Friðleifs 1. Friðrikssonar, for- manna þessara félaga, úm þetta mál; „Við undirritaðir höfum at- hugað, hvort nauðsyn bæri til þess að skipuleggja- akstur leigu bifreiða hér í bæ og annars staðar að því er snertir leigu- bifreiðar til fólksflutninga, sem taka allt að 8 farlþega, svo og vörubifreiðar, sem leigðar eru almenningi og hafa afgreiðslu á bifreiðastöð, aðaliega með það fyrS’ augum, hvort nauð- synlegt væri að setja löggjöf um takmörkun þeirra. Við afhugun höfum við sann færzt um það, að atvinnumögu leiikar fyrir lejgubifreiðar eru mjög takmarkaöir eins og nú er, miðað við þann fjölda bif- reiða, sem notaðar eru í þessu efnj nú. Leigubifreiðar til fóiksflutn- in,ga, sem taka allt að 8 far- þega, eru nú um 450 hér í Reykjavík og um 250 vörubif- reiðar, og virðist það vera mun fleiri bifreiðar en nokkur þörf er fyrir. Er því fyrirsjáanlegt, að brýn nauðsyn er til bess að takmarka fjölda leigubifréiða, eigi að vera nokkur möguleiki til þess að þeir menn, sem stunda akstur leigubifreiða sem aðalatvfnnu, geti h'aft það . sér og sínum til lífsfrarnfæris, enda mun nú svo komið, að í flest- um menningarlöndum, er tala slíkra flutningatækja takmörk uð með löggjöf. í þessu sambandi má einnig FRUMVARP til laga um benda á það, að rneð því að stofnlánadeild landbúnaðarins binda við þessi störf fleirj kom til fyrstu umræðu í neðri menn en nauðsyn kxefur á deild í gær og var vísað til 2. hverjum tíma fer geysilega mik ið vinnu afl til ónýtis, auk þess sem við þessa flutninga eru bundnar miklu fleiri bjfreiðar en þörf er á, en það leiðir að sjáifsögðu af sér aukinn jnn- flutning á alls konar rekstrar- vörum til bifreiða. Loks má benda á það, að fjöidi manna hefur lagt mikið fé í það að kaupa sér dýrar biíreiðar í þeirrí von, að akst- ur vöru- og fólksflutningabif- reiða sé mjög arðvænleg at- vinnugrein, en margir þessara manna hafa síðan komizt í mikl ar fjárkröggur vegna þessa, en af því hefur oft og einatt leitt alls konar spillingu, sem hægt værj að komast hjá með því að takmarka tölu bifreiðanna við flutntngiaþörfina og tryggja þannig að fullu hagnýtingu vinnuafls og tækja í þessum starfsgreinum. í sambandi við setnjngu lög- gjafar um þessi mál, teijum við brýna nauðsyn bera til þess, að fyrrgreindar bifreiðar til al- menningsnota hafi fasta aí- greiðslu á bifreiðstöð. Með tílvísun til framanritaðs erum við undirritaðir því sam mála um, að nauð \n beri íd þess að sett verði iöggjöf um heimild til takmörkunar á fjölda leigubifreiða til vöru- og mannflutnnga í kaupstöðum landsins og að það gæti orðið á alþingi því sem nú situr“. Kennslubók í dónaskap. „IL MES.SAGERQiY hið héims þekkta Rómaborgarblað, seg- ir að ítalskir kommúnistar hafi nýlega fengið ströng fyr irmæli um það, hvernig þeir eigi að hegða sér við Baiida- ríkjamenn, sem verði á vegi þeirra. ‘ Þessi fyrirmæli eru eins)>nar „kennslubók í dóna skap“ segir „II Messagero“# Hér eru helztu fyrirmælin: FLOKKSKONUR eða stúlkur eiga helzt að láta svo sem þær heyri ekki, ef Banda- ríkjamaður ávarpar þær. Á ' dansleikjum mega kyen- kcmmúnistar : ..aldrei lofa Bandaríkjamanni dansi; .þær eiga að segja að þær séu þeg- ar uppteknar. Flokksmenn af hinu kyninu eiga að vera reiðubúnir að vera þeim hjálplegir í þessu". í STRÆTISVAGNI eða spor- vagni eiga kommúnistar, er þeir verða Bandaríkjamanns varir í námunda vig sig, „taf arlaust að snúa við honum baki án þess að líta einu sinni á hann eða sýna honum nokkra kurteisi“. Sé Banda- ríkjamaðurinn í fylgd með konu sinni eða einhverri stúlku í strætisvagni eða spor vagni, má kommúnisti „aldrei bjóða þeirri konu eða stúlku sæti sitt“_ í VERZLUNUM eiga flokksfé- lagar ævinlega að láta Banda- ríkjamann bíða og afgreiða þá síðast allra — „eða ,það sem er enn betra, afgreiða þá yfir leitt ekki, heldur segja, að þær vörur, sem um er beðið, fáist ekki“. Á GÖTU eiga kommúnistar „aldrei að svara fyrirspurn Bandaríkjamanns né vísa hon um til vegar; í stað bess eiga þeir strax að snúa við honum baki og sýna honum á þann hátt andúð sína“. Á íþrótta- völlum eiga kommúnistar „r.IJtaf að taka undir með þeim, sem leika á móti Banda ríkjamönnum“. AÐ ENDINGU eru kommúnist ar áminntir um það í þess- um fallegu fyrirmælum, að láta Bandaríkjamenn hel/.t aldrei merkja, að hin óvin- samlega framkoma við þá sé skipulögð! „Sýnið þeiyi and- úð ykkar“, segír í þessari kommúnistísku siðabók, „en gerið það þannig, að fram- koma ykkar virðist vera, ó- undirbúin og sjálfkrafa“! Stofnlánadeild land- búnaðarins rædd á ingi í gær. BALLETTINN Ólafur Ljlju- rós og óperan Miðillinn hafa nú verið sýnd þrisvar sinnum í Iðnó við ágæta aðsókn. Verður fjórða sýningin annað kvöld. umræðu og landbúnaðarnefnd- ar. ■ /. : AB 4

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.