Alþýðublaðið - 04.01.1953, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 04.01.1953, Qupperneq 4
<i % V, ^ Útgefandi: Aíþýðuflokkurinn. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: s ' ^Hannibal Valdimarsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. ^ \ Blaðamenn: Loftur Guðmundsson og Páli Beck. Auglýsinga - S ^stjóri: Emma Moller. Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902. Aug-^ S lýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Alþýðuprentsmiðjan, ^ ^Hveríisgötu 8. Áskriftarverð 15 kr. á mán. í lausasölu 1 kr.s C S 1 ÆSKAN 0G LANDIÐ Útgefandi: SUJ. Ritstjóri: Eggert G. Þorsteinsson Þrír forusfumenn unara Innlendur her með erlendu setuliði manni í ÁRAMÓTAGREINUM ráðherranna kom ýmislegt fram að þessu sinní, sem at- hygli hlýtur að vekja. Þeir höfðu heldur óhugnanlegan boðskap að flytja innan um mikla mælgi. Og má þjóðin engan veginn láta boðskap þeirra kafna í orðaflóðinu. í fjarveru Ólafs Thors kom það í hlut Bjarna Bene- diktssonar sem varaformanns Sjálfstæðisflokksms að skrifa áramótahugleiðinguna í þetta sinn. Einn kafli hennar fjall- ar um varnir íslands. Og er það einmitt sá kaílinn, sem hér verður gerður að umtals- efni. Bjarni Benediktsson segir, að það sé einhver hinn arg- asti rógur, sem nokkurn tíma hafi verið sagður um íslenzku þjóðina, þegar því sé haldið fram, að menningu þjóðar- innar og jafnvel tilveru hennar sé stofnað í hættu „með dvöl nokkurs erlends varnarliðs hér um sinn“. Það er rétt, að þennan háska er hægt að mikla fyrir sér óþarflega mikið. En jafn- víst er hitt, að. svo fámenn þjóð sem við eruro, verður að gæta allrar varúðar í slíku tvíbýli, og þess verður að krefjast, að samneyti hers og þjóðar sé eins lítið og mögu- legt er: Hernum markaður eins þröngur bás og lög og samningar ýtrast leyfa. — Fer þvt- fjarri, að utanríkis- ráðherra hafi sýnt bá djörf- ung og þann skörungsskap í framkvæmd þessa máls, sem þjóðin heimtar af honum. Og er hér þá einungis átt við þann hluta bjóðarinnar, sem öfgalaust lítur á þetta ■ mál frá heilbrigðu menningarsjón armiði íslendinga siálfra. Og fari svo, að þola verði erlent varnarlið í landinu um langan tíma, segjum áratugi, sem alls ekki er óhugsandi — og ofan á það bætist bað ó]án, að úflendingasleikjur fari með utanríkismál vor, þá er menningu íslendinga og jafn- vel tilveru vorri sem þjóðar ægilegur háski búínn. Þetta er vissulega enginn rógur. Það er raunssei og ekk ert annað. Og þeirri raunsæi er meginþorri íslenzku þjóð- arinnar gæddur, sem batur fer. Þessi ægilegi háski er auð- sær hverjum hugsandi manni. Þess vegna heftir sú hug- mynd skotið uno koilínum, að e. t. v. væri réttara að inn- léiða hér herskvldu og koma sér upp innlendum her. Hef- ur þá vakað fyrir þeim mönn um, að þar með hyrfi erlent setulið úr landi. Þetta er skýrt sjónarmið út af fyrir sig, og virðist svart- asta afturhaldið í landinu einkanlega vera hrifið af þessari lausn málsins. En mikill meirihluti þjóö- arinnar mun áreiöanlega rísa gegn þeirri tilhugsun, að ís- lenzkur æskulýður verði al- inn upp til manndrápa og gerður að fallbyssufæði. í á- tökum stórvelda. íhaldinu mun því aldrei takast að koma þessari hug- sjón sinni í framkvæmd. En nú er utanríkisráðherra íslands, Bjarni Benediktssor., j í áramótaboðskap sínum með breytingartillögu í þessu her- væðingarmáli. Hann segir að þeirri skoðun sé að vaxa fylgi, að okkur sæmi ekki að treysta „eingöngu“ ■ á aðra um varnir landsins. Hans hugmynd er bví greinilega sú, að erlent setu- lið sé og verði áfram í land- inu, og svo komum við Iíka unp innlendu varnarliði til aðstoðar og viðbótar. — Hugs ið ykkur, góðir Islendingar — alveg sérstaklega íslenzk- ar mæður! að synir íslands verði í framtíðinni látnir gegna herskyldu — látnir læra til manndrápa og múg- morða, eins og þeir ganga nú að námi í fögrum fræðum — til hess svo að námi Ioknu að lúta erlendri herstjórn og hverfa eins og dropi í móðu erlendra milljónaherja heims veldanna. Jafnframt þessu eigum við sVo að búa við erlent herlið í landinu um ófyrirsjáanlega framtíð. Hvernig lýst íslendingum á þennan framtíðarboðskap ráðherrans? Og hvernig lýst beim hluta þióðarinnar, sem kennir sig við sjálfstæði, og meinar eitthvað með því, á þes'a sjálfstæðisdraumsýn Bíarna Benediktssonar utan- ríkisráðherra? Vér vitum vel, að íslenzka þióðin fordæmir allar fyrir- ætlanir valdhafa sinna um að vonna íslenzk ungmenni og ,.mennta“ bau til manndrápa. P° ð verður ekki þessi kyn- slóð. sem samþykkir her- skvldu á íslandi, því mega í- haldisöflin í landinu trúa. Og bað mun SÍálfstæðisforuct.an sannfærast um af undirtekt- um bióðarinnar við bennan óöiicmanleea áramótaboðskap. Þet.ta er versta leiðin til u-a-riar landi off bióð. verður jólatrésfagnaður fyrir börn í félagsheimili Al- þýðuflokksins Kársnesbraut 21, sunnud. 4. jan. kl. 3—6. Aðgangseyrir 5 krónur. Jólasveinn heimsækir. Skemmtinefndin. Jón Hjálmarsson, Þállaskil í baráifu- sögu íslenzkra verkaiýössamtaká VIÐ STÖNDUM á. tímamót- um. Ár kveður, ár heilsar og þáttaskil hafa orðið í baráttu- sögu íslenzkra verkalýðssam- taka. í fyrsta sinn hafa verka- lýðssamtökin nú knúið fram með samtakamætti sínum kjara bætur í formi verðlækkunar á nauðsynjum og aukins kaup- máttar vinnulaunanna á þann hátt. Með djörfung og festu fylgdu alþýðusamxökin kröf- unni um lækkaða dýrtíð fram unz fyrsta áfanganum var náð. Það er út af fyrir sig merkilegur árangur, að nú fékkzt það viðurkennt, að sér- réttindastéttirnar skuli ekki hafa sjálfdæmi um að eyði- Ieggja umsamdar kjarabætur alþýðunnar með síaukinni dýr tíð á nauðþurftum almennings. Hitt er þó merkilegra, að fyrir forgöngu ve-rkalýðssamtakanna er kaupphlaupið á milli kaup- gjalds og verðlags nú stöðvað, en sú stefna upp tekin, að auka kaupmá-tt launanna með lækk aðri dýrtíð og skapa þannig al- þýðunni kjarabætur, en at- vinnuvegum þjóðarinnar rekstx aröryggi. Hitt er svo annað mál, að þetta er aðeins fyrsta krefið að því takmarki að skapa fullkomið afkomuöryggi fyrir alþýðu þessa lands. Samtök ungra jafnaðar- manna hafa nú um aldarfjórð ungsskeið starfað skipulega við hlið verkalýðssamtakar.oa og Alþýðuflokksins. Þetta tíma bil hafa þau jafnan lagt fram krafta sína til þess að styrkja alþýðusamtökin í baráttunni fyrir bættum kjörum, og til að vinna jafnaðarstefnunni braut argeng-i. Á þessu tímabili hef- ur ýmist verið sótt eða varist og mörgum góðum sigri náð. Allt eru það þó aðeins áfangar á leiðinni, og mjög skórtir á að takmarki jafnaðarstefnunn- ar sé náð. Það er nú .verkefni jafnað- armanna að varða veginn á nýju ári; undirbúa og skipu- leggja baráttuna fyrir nýjum sigrum jafnaðarstefnunnar og réttarbótum alþýðu til handa. Að undanförnu hafa alþýðu- samtökin verið í varnaraðstöðu fyrir sívaxandi ágengni sér- réttindastétta þj óðfélagsins, sem í skjóli núverandi ríkis- stjórnar hafa mjög aukið gróða sinn á kostnað hins vinnandi manns. í nauðvörn ge.gn ýess- ari áeegni hófu alþýðusamíök in baráttu sína þann 1. desem- ber s. 1. og unnu mierkilegan sigur með nýgerðum samning- um. Samband ungra jafnaðar- manna óskar íslenzkum. verka lýð til hamingju með þennan siarur. Sú stefna, sem hinir nýju samningar marka, skal borin fram til nýrra sigra. Hun mun snúa vörn alþýðunnar upp í markvissa sókn á kom- andi ári. Á 14. bingi Samband un.gra iafnaðarmanna var m. a. sam- þvkkt að leggja beri á það höf uðáherzJu, að atvinnuvegirnir séu reknir með hag albjóðar fyrir augum. Ungir jafnaðar- menn líta svo á, aS brýnasta verkefni, sem bíði hins nýja árs, sé að berjast til brautar fvrir bví stefnumáli allra j/fn aðarmanna, að alþýðan nái verulega auknum áhrifum á stiórn og rekstur atvinnutæki- anna, en fjárgróðasjónarmið sérréttindamanna, sem til þessa hafa algerlega setið í fyrir- rúmi, verði látin víkja. Samband ungra jafnaðar- manna þakkar ágæt störf á Þðnu ári og óskar ungum iafn- aðarmönnum og allri alhýðu frleðilee-s nýárs. JÓN IIJÁLMARSSON. Benedikf Gröndal, Ekkerf nauðsynlegra en áhugl, fjör og sfórhug æskunnar ÁRIÐ 1952 mun fyrir margra hluta sakir verða talið eftir- minnilegt í sögu Alþý'ðuflokks ins. Getur hver maður, sem lætur hugann reika yfir stjórn málaviðhurði ársins, til dæmis frá forsetakosningum fram að lokum verkfallsins mikla, sann færzt, um, að svo hljóti að verða. - Þó er það staðreynd, að al- þýðuflokksfólki mun um þessi áramót verða hugsað öllu meira til ársins, sem nú er hafið, en hins, sem er liðið. Mikil verk- efni bíða flokksins, og takizt giftusamlega um . lausn þeirrá næstu sex mánuði, getur árið 1953 orðið enn sógulegra eu 1952, — ár með sama ljóma yfir sér og 1933 eða 1946 í flokkssögunni, ár mikils kosn- ingasigurs. Höfuðverkefni flokksins á komandi ári verður að auka og efla stórlega flokksstarfið, enda er það meginskilyrði fyrir vexti flokksins og framgangi mólefna hans. Ræðumenn flokksins verða að sækja heim. hverja byggð í landinu og boða jafnaðarstefnuna á lifandi og sannfærandi hátt, Rit flokksins verða að breiðast út stórum meira en áður og komast á flest eða öll heimili í landinu. Annað meginverkefni Al- þýðuflokksins er að treysta til muna tengsl flokksins við verka lýðshreyfinguna. Það er fyrst og fremst hlutverk jafnaðar- manna að sannfæra hinar vimi andi stéttir bessa lands um'hið sanna eðli kommúnismans og útrýma meinsemd Moskvuliðs ins úr rd«i7m verkalýðsfélag- anna. Albvðuflokkurinn var í eina tíð os á að verða aftur hið eina o» sterka' pólitíska vopn verkalvðsins, en án slíká vonns getur hann ekki verið. Takizt flnkknum að ná góð- um, áranffri á bessum tveim sviðum. mun aðstaða hans til að vinna að framgangi dægur mála sinna iafnt sem jafnaðar stefnunnar í heild stórum batn.a. Þá rum aukast vonin um. að baráttan fyrir fullri aí- m'nnu. moíri áransur en. hinffað +il ncr fnstar verði fvlgt eftir krafnnnm um aukinn Vaunmát.t. lannanna. Þá mun fólaffflpfft Xr-imffi verða eflt og hvers knnar- umibótum trvggt nfluffr-a hr'antnro.engi en nokkrp =inní fvrr. hr, mun verða stig- íð stnnt. ffVvnf Í áttina tii auk- íns frelsiio. ípfn.réttis og bræðra i^.crc. í Kpocn iQ'ndi. X heir-ri cóVn, sem Albýðu,- .fl.okkiirinn harf að hefia og mnn he«a á komandi ári, er honum nVVort nauðsynlegra en áhuffi. fjn- nn otórhuffur æsk- unnar. FinWurinn hefur á unda.nfff,',,”m árum, sérstak- ipcrq í síf>.iiic4u kocningum, teflt fram imoum mönnum. og muh ffera bo* ’ enn ríkari mæli. Han.n hnfin' notið stuðnings finlda. mwu manna og kvenna { flnVW+c-^m,. 0fJ hann heit- ir enn á W+tq fóik að leggjái siff nú aH+ fnm, hjóða nýjum félöffum +:f-tarfs og setja sviþ sinn á há hpróttu, sem fram- undan er. Æskan u Aihýðuf]okkinn og þess vpffna fnonar flokkurinn nýju ári með hiartsýni og gleði híns sanna barátl uhugs. Benedikt Gröndal. Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.