Tíminn - 09.07.1964, Síða 7
I
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði
G. Þnrsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Frétta
stjóri: Jónas Kristjánsson Auglýsinga'stj.: Sigurjón Davíðsson
Ritstjórnarskrifstofur i Eddu-húsinu. símar 18300—18305 Skrif
stoíur Bankastr 7 Afgr.sími 12323 Augl. sími 19523 Aðrar
skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald, kr 90,00 á mán. innan-
iands. — í lausasölu kr 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f.
„Viðreisnin“
íhaldsblöðin vilja ógjarnan ræða um „viðreisnina“ svo-
kölluðu um þessar mundir. Þau reyna frekar að tala um
allt annað. Á þessu er eðlileg skýring. Það er ekkert
eftir af því, sem stjórnarblöðin kölluðu „viðreisnar-
stefnu“ á sínum tíma. Skuldasöfnunin við útlönd, sem átti
að hætta, hefur aldrei verið meiri. Uppbótakerfið, sem
átti að hverfa úr sögunni, þenst út með hverjum degi.
Verðgildi gjaldmiðilsins, sem átti að verða stöðugt, hefur
aldrei rýrnað meira. Og samningar við „öfl utan Alþing-
is“, sem ekki áttu að þekkjast lengur, hafa aldrei verið
gerðir víðtækari.
Þannig stendur ekki neitt eftir af því, sem stjórnarblöð-
in lýstu sem meginkjarna „viðreisnarinnar11
Þetta skýrir það, að spádómar Framsóknarmanna um
,,viðreisnina“ hafa ekki rætzt að öllu leyti. Þeir spádómar
voru eðlilega miðaðir við það, að ríkisstjórnin reyndi að
framkvæma „viðreisnina“ eins og henni var lýst, en gæf-
ist ekki upp við það.
Hitt skal svo viðurkennt, að sá meginþáttur ^viðreisn-
arinnar“, sem stjórnarblöðin höfðu hljótt um og reyndu
að fela, stendur í fullum blóma. Hann er sá, að hvernig
sem atvinnuástandi sé háttað, skulu hinir ríku hafa
óbundnar hendur til athafna. Framkvæmdir þeirra skulu
hafa forgangsrétt, jafnt ónauðsynlegar sem nauðsynlegar.
Vegna þessarar stefnu ríkisstjórnarinnar ríkir nú full-
kominn glundroði og óstjórn í efnahagsmálum. Nauðsyn-
legustu atvinnugreinar skortir vinnuafl, gagnlegustu fram
kvæmdir eru stöðvaðar vegna fjárskorts meðan keppzt
er við að hraða því, sem vel má bíða. Þessi óstjórn „við-
reisnarinnar“ hefur aldrei verið taumlausari en nú.
Spítalamálln
Mikla athygli hefur vakið greinargerð frá læknum um
skort á hjúkrunarfólki á spítölum, m. a. vegna dráttar við
byggingu hjúkrunarskólans. Sleifarlagið í spítala-
málunum hefur verið furðulegt. Spítalabyggingar, sem
hefur verið byrjað á, hafa staðið hálfgerðar árum saman.
Fyrir nokkrum árum lögðu Framsóknarmenn til á Al-
þingi, að tekið yrði sérstakt lán til að ljúka öllum við-
byggingum, sem voru hafnar eða ráðgerðar í náinni fram-
tíð við Landsspítalann. Stjórnarliðið felldi þessa tillögu.
Samkvæmt stjórnarstefnunni þar að draga úr opinberum
framkvæmdum, m. a. spítalabyggingunum. Meira og
minna ónauðsynlegar framkvæmdir hinna ríku skyldu
hafa forgangsrétt.
Mílwood
Morgunblaðið finnur, að erfitt er að verja framgöngu
íslenzku ríkisstjórnarinnar 1 Milwood-málinu Það segir,
að Tíminn fari með níð um' brezku þjóðina. Tíminn hefur
í þessu sambandi ekki minnzt einu orði á brezku þjóðina,
svo að þetta er hreinn tilbúningur hjá Mbl. Hins vegar
hefur Tíminn fært rök að því, að brezka ríkisstjórnin
háfi sýnt íslendingum „yfirgang og óvirðingu" í sam-
bandi við þetta mál. Þeim rökum reynir Mbl. ékki að
hnekkja. Enn síður minnist Mbl. á það. að Tíminn hefur
fært fram þær málsbætur fyrir brezku stjórnina, að fram-
koma íslenzku stjórnarinnar hafi verið eins slæleg og
aum og verða má. Frá íslenzku sjónarmiði er það þó
kjarni málsins. Mikil ástæða er til að ætla, að endanleg
afstaða brezku stjórnarinnar hefði orðið önnur og viðun-
anlegri, ef íslenzka ríkisstjórnin hefði ekki lyppazt niður.
1' í M I N N, fimmtudagur 9. júlí 1964. —
Sigursæl baráfta Goldwaters er einkum þökku9 Kítchel
ATHYGLI manna beinist nú
mjög að San Fransisco, þal
sem flokksþing republikana
mun koma saman næstk. mánu
dag. Nefnd, sem semja á stef.au
skrá flokksins, er þegar setzt
þar á rökstóla. Fulltrúar eru
einnig byrjaðir að koma þang-
að. Goldwater mun koma þang
að á morgun og aðrir leiðtog
ar flokksins þá eða á föstu-
daginn.
Samkvæmt seinustu athugun,
sem ein helzta fréttastofa
Bandaríkjanna hefur látið gera
er Goldwater nú líklegur til að
fá 710 atkvæði í fyrstu atkvæða
greiðslu um forsetaefni á flokks
þinginu eða 55 atkvæðum meira
en hann þarf. Þess er hins veg
ar að gæta, að þessi atkvæði
Jeru ekki örugg, því að ekki er
nema um helmingur umræddra
fulltrúa siðferðilega skuldbund
inn til að fylgja honum. Hinir
geta breytt afstöðu sinni alveg
fram á seinustu stundu. Um at
kvæði þeirra verður barizt af
mikilli hörku að tjaldabaki
næstu daga í San Francisco.
Andstæðingar Goldwaters gera
sér helzt von um, að Eisen-
hower komi þeim til hjálpar
á seinustu stundu, en hann hef-
ur lýst yfir því, að hann muni
ekki gera grein fyrir afstöðu
sinni fyrr en á floksþinginu.
Andstæðingar Goldwaters
byggja þessar vonir m.a. á því,
að Milton Eisenhower, sem
Eisenhower metur mest bræðra
sinna, mun flytja aðalræðuna
til stuðnings ’Scranton á flokks
þinginu. Þá hefur einkasonur
Eisenhowers lýst eindregnu
fylgi sínu við Scranton. Aðal-
ræðumaðurinn til stuðnings
framboði Goldwaters verður
Dirksen öldungadeildarþing-
maður og er það mikilvægur
stuðningur fyrir Goldwater, því
að Dirksen, sem er leiðtogi
republikana í öldungadeildinni,
hefur aldrei verið í meira áliti
en nú sakir framkomu hans í
réttindamálum svertingja.
Annars byggja andstæðingar
Goldwaters nú aðalvon sína á
því, að þeim takist að orða
þannig kaflann í stefnuskránni
Denny Kitchel
um réttindamál svertingja, að
það verði óhægt fyrir Gold-
water að fallast á hann, en
hann greiddi atkvæði gegn rétt-
indalöggjöfinni. Þessi kafli
stefnuskrárinnar verður mesta
átakamálið á flokksþinginu. Ef
Goldwater kemst klakklaust
fram hjá þvi, verður erfitt að
stöðva hann, jafnvel þótt Eisen-
hower snúizt gegn honum á
seinustu stundu.
í ÞEIM átökum, sem eru
framundan í sambandi við
flokksþingið, mun reyna mjög
á þann mann í liði Goldwaters,
sem öllum öðrum fremur hefur
stjórnað baráttu hans fram að
þessu og oft er nefndur „mað-
urinn bak við Goldwater“.
Þessi maður er Dennison
(Denny) Kitchel, 56 ára gamall
lögfræðingur, ættaður frá New
York, en hefur dvalizt i
Arizona þrjátíu seinustu árin.
Hann flutti til Arizona fljótlega
eftir að hafa lokið lagaprófi við
Harwardháskóla. Áður hafði
hann stundað nám við Yale-
háskólann. Hann kynntist Gold-
water fljótlega eftir komuna til
Arizona og hafa þeir verið
nánir vinir stöðugt síðan. Kitc-
hel hefur lengstum verið lög-
fræðingur fyrir námufélög og
unnið sér mikið álit í því starfi.
Nálægt stjórnmálum kom hann
fyrst opinberlega fyrir sjö ár-
um, er hann gerðist formaður
miðnefndar republikana í Ari-
zona fyrir áeggjan Goldwaters.
Hann þótti vinna þar svo gott
starf í kyrrþey að Gold-
water réði hann á sl. hausti til
að stjórna baráttunni fyrir
útnefningu hans sem forseta-
efnis republikana. Kitchel
flutti þá til Washington og hef
ur verið þar síðan. Hann flutti
með sér nokkra samstarfsmenn
frá Arizona, er hafa unnið að
þessum málum með honum.
MARGIR stuðningsmenn Gold-
waters, töldu það mjög misráð-
ið, er hann fól Kitchei þetta
starf. Hann væri algerlega ó-
reyndur í þessum efnum og
ekki nægilega mikill auglýsinga-
maður, Ilann er lágur vexti og
ekki mikiil fyrir man nað sjá,
hæglátur í framgöngu og hlé-
drægur. Hvorki ytra útlit hans
eða framganga mælti með hon
um í þessa stöðu. Goldwater
trúði hins vegar takmarkalaust
á hann og hefur oft sýnt það
í verki með því að fara að ráð
um hans. Stefna Kitchels hefur
verið sú, að Goldwatersmenn
ættu að vinna að því í kyrrþey
að tala við rétta menn eða þá,
sem réðu mestu i hinum ein-
stöku ríkjum, en leggja minna
kapp á auglýsingamennsku
gagnvart almenningi. Það væri
fyrst nauðsynlegt, ef Gold-
water næði útnefningu. Gold-
water ætti ekki heldur að hafa
sig mjög mikið í frammi, heldur
láta trúnaðarmenn sína annast
málin sem mest fyrir sig. Það
er almennt viðurkennt nú að
Kitchel hafi með þessum hætti
unnið mun árangursríkara starf
en’ hinir reyndu aðstoðarmenn
Rockefellers, sem lögðu meira
kapp á auglýsingamennskuna.
Þetta hafi ekki sízt sýnt sig í
Kaliforníu, en þar lagði Kitchel
ekki megináherzlu á, að Gold-
water kæmi mikið fram opinber
lega, heldur ástundaði „rétt
Framhalo 4 13 si3u
Kitchel flytur ræðu með mynd af Goldwater í baksýn.
t