Tíminn - 09.07.1964, Side 15
Ifsrétfir
eyinga og Reykvíkinga 21 maður
keppti frá hvorum, og voru leikn
ir tveir hringir, 18 holur alls. —
Vestmannaeyingar sigruðu glæsi-
lega — fengu 3914 stig, en Reyk-
víkingar 23Vi.
Margir einstaklingar komu vel
út úr keppninni, og voru margir
undir 40 höggum pr. hring. Óttar
Yngvason, Reykjavík, fyrrverandi
íslandsmeistari, komst annan hring
inn á 34 höggum.
Kl. 9,30 í fyrramálið hefst hið
árlega golfþing, en klukkan eitt
eftir hádegi hefst öldungakeppni
og bæjarkeppni tnilli Akureyrar,
Vestmannaeyinga og Reykjavíkur.
Þetta er höggakeppni og verður
reiknað út frá sex efstu frá hverj-
um bæ.
Á fimmtudáginn kemur hefst svo
sjálft íslandsmótið.
VARLA SALTAÐ
Framhald af 1. síðu.
Haraldur sagði okkur, að hann
hefði fundið vélina upp fyrir 3—
4 árum. Menn hefðu til að byrja
með verið ragir við að nota hana
á hina meyru Austurlandssíld, en
þetta hefði tekizt vel, eftir því,
sem síldarsaltendur segðu fyrir
austan, og síldin ekki beðið neitt
tjón á því að fara í gegnum
vólarnar.
Flokkunarvélarnar eru tveggja
og þriggja rasta, og afkasta
tveggja rasta vélarnar um 60—70
tunnum á klukkustund, ef um
venjulega blandaða síld er að
ræða, og er gert ráð fyrir, að
tvær tveggja rasta vélar geti
flokkað nægilega mikla síld til
þess að hafa við 50 söltunarstúlk
um. Flokkunarvélar þessar kosta
um 100 þúsund krónur, sam-
kvæmt upplýsingum Haralds.
] árekstrar og útafkeyrslur á þess-
! um 10 km. vegarspotta frá Æsu-
stöðum til Bólstaðarhlíðar, — að
: því er Jón ísberg, sýslumaður á
Blönduósi, sagði blaðinu í dag.
Sagði Jón, að fleiri árekstrar
hefðu orðið í hans umdæmi í júní
og það, sem af er júlí í ár, en
allt síðastliðið ár og flestallir á-
rekstrarnir hefðu átt sér stað á
þessum vegarspotta.
Jón sagði, að þessi vegur hefði
verið lagður árið 1917 og hefði
lítið verið gert við hann síðan,'
þótt honum væri að sjálfsögðu
haldið við eins og öðrum vegum,'
og væri hann nú versti vegarkafl-|
inn á leiðinni norður. Vegurinn;
væri bæði þröngur, beygjur oft
krappar og blindhorn og blind-j
hæðir tíðar. Einnig kvað Jón al-
veg furðulegt, hversu skeytingar-
lausir ökumenn væru um umferð-
armerkin; annaðhvort sæju þeir
ekki hættumerkin, sem mikið
væri af á þessari leið, eða þeir
skeyttu alls ekkert um þau. Sagði
hann, að skeytingarleysið um um-
ferðarmerkin væri orðið svo mik-'
ið, að hann hefði tekið eftir því
eitt sinn, þegar merktar voru tvær
akreinar yfir blindhæð, að bíll,
nokkur ók á öfugri akrein yfir
hæðina.
Verkstjóri sá, sexn hefur eftir-
lit með vegunum og vegafram-
kvæmdum á þessu svæði, fór í dag
í ferð um Æsustaðaskriðurnar í,
því skyni að athuga, hvort ekki
væri hægt að bæta eittþvað úr
hinu hættulega ástandi vegarspott-
ans.
SJÖ BÍLSLYS
Framhald af 1. sí3u.
uðu þegar fluttir á sjúkrahúsið á
Blönduósi, og var líðan þeirra
sæmileg í kvöld.
Þessi árekstur varð á svipuðum
slóðum og áreksturinn í fyrra-
dag, þegar bíll fór út af veginum
og rann 18 metra, áður en hann
steyptist fram yfir sig og fór tvær
veltur, en sem betur fer slasað-
ist enginn hættulega. Síðustu
þrjár vikurnar hafa orðið 6—7
BARNAMORÐINGINN
Framhah- aí 16 siðu
hann vera sonur háttsetts emb
ættismanns og hefði m. a. ver-
ið í herliði í Alsír undir stjórn
Mássu, hershöfðingja, og þatf
hafi hann lært pyndingar, en
slík kunnátta væri eini mögu
leikinn til þess að komast
áfram í þessum heimi.
f bréfunum til lögreglunnar
hæddist morðinginn að getu-
leysi hennar og skýi'ði m. a.
frá því, að hann hefði sent
Scotland Yard bréf og bent því
á að aðstoða veslings Parísar-
lögregluna.
En það voru fleiri en morð
inginn sjálfur, sem þótti lög-
Innilega þökkum við öllum vinum og vandamönn-
um, er glöddu okkur með gjöfum, heimsóknum og
heillaóskum á sextugsafmælinu.
Karl Jónsson, Gýgjarhólskoti.
Lýður Sæmundsson, Gýgjarhóli.
Mínar beztu þakkir sendi ég öllum þeim sem veitt
hafa mér aðstoð í veikindum mínum.
Helgi Guðmundsson, Vesturgötu 17, Akranesi.
Innllegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vlnarhug við andlát og
jarðarför
Guttorms Pálssonar,
fyrrverandi skógarvarðar, Hallormsstað.
Aðstandendur.
Mlnningarathöfn um móður okkar
Þórunni Jórtsdóttur
frá Ey, fyrrverandi Ijósmóður,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. júlí kl. 10,30. Athöfn-
innl verður útvarpað. Jarðsett verður laugardaginn 11. þ. m. frá
Akureyjarkirkju, Vestur-Landeyjum.
Börnin.
Jarðarföi elginmanns míns,
Karls Hjálmarssonar.
kaupfélagsstjóra frá Hvammstanga,
fer fram frá Sauðaneskirkju laugardaginn 11. júlí kl. -2 e. h.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórdís Ingimarsdóttir.
r f M I N N, flmmtuófs’gur 9. júlí 1964. —
reglan sein í vöfum. Faðir
drengsins, Yves Taron, deildi
hart á vinnubrögð hennar og
tók að síðustu það ráð að hefja
leit upp á eigin spýtur með
einkaleynilögreglumenn sér til
aðstoðar.
' Eftir að morðinginn var
handtekinn, sagði hann að-
eins þetta: Ég vildi óska, að
ég hefði sjálfur fundið morð-
ingjann. Ég er viss um, að
ég hefði drepið hann á staðn-
um. — Segja má að það
hafi raunverulega verið rit-
handasérfræðingur, sem kom
lögreglunni að síðustu á spor-
ið. Hann benti á, að í bréfun-
um væri sérstök áherzla allt
af á stafnum L. Myndi sér ekki
koma á óvart, að fyrsti stafur
inn í fornafni og e. t. v. eftir
nafni bréfritara og þá væntan
lega morðingjans, væri L.
Nú er komið á daginn, að
sérfræðingurinn hafði rétt fyr
ir sér.
Eins og áður segir, er morð-
inginn ekki heill á geðsmunum
og hefur m. a. einu sinni ver
ið á geðveikrahæli. Því má
bæta við, að kona hans er nú
sem stendur einnig undir hand
leiðslu geðlækna. •
Þótt lögreglan hafi rennt
grun í, að morðinginn væri geð
sjúklingur, sannfærðist hún
ekki endanlega fyrr en hún
fann á heimili morðingjans
stóra myndamöppu, þar sem
allar úrklippur með frásögnum
dagblaða um morðið voru ræki
lega límdar inn, með rauðu
striki í kring.
i RÁjVS M AGERÐ! N
ÍGRETTISGÖTU 54
IS í IVE I-l 9 I O 8
r
Mátvsrk
VaíRsHfamyndir
LjósaiyRdir
litaðar, af flestom
kaopstöðum landsins
RibHnmvndir
Hinar vinsæiu, iöngu
gangsmvndir
— kúp* gler
flestar staarðir.
BV
Bökunarkeppni
FB-Reykjavík, 8. júlí.
Nú er að hefjast bökunarkepipni
hér á landi í fyrsta sinin. Tíu
beztu uppskriftirnar, sem berast í
keppninnli hljótV viðurkennimgu,
og verða veitt jáfnmörg verð-
laun. Fyrstu verðlaun er ferð til
Bandaríkjarma, en níu aukaverð-
laun eru hrærivélar.
Fyrirtækið O. Johnson og Kaab-
er h.f. stendur fyrir keppninni, en
það fékk fyrir skömmu fyrirspurn
frá Pillsbury hveitifyrirtækinu í
Bandiaríkjunum um, hvort ekki
mætti koma af stað bökunar-
keppni á íslandi en Pillsbury efnir
árlega til slíkrar keppni í heima-
landi sínu.
Þátttökuskilyrði eru í stuttu
máli þessi: f keppninni mega taka
þátt allir, sem eru 19 ára og eldri,
þó eki starfslið Kaaber eða skyldu
lið þess, starfandi húsmæðrakenn-
arar, bakarar eða brytar. Upp-
skriftirnar á að senda til P.O.
Box 1436 í Reykjavík, og skulu
hafa verið póstlagðar eigi síðar en
lö. ágúst, og komin á ákvörðunar-
staðinn 15. ágúst. Uppskriftina
á að skrifa á sérstakt blað, þar sem
tilgreind eru öll efni þess, sem bak
að verður, bökunartími hitastig og
nafn framleiðslunnar. Síðan á að
festa hana á eyðublað, sem birzt
hefur í blaðinu. Allar 10 verð-
launaupspkriftimar verða í
keppnislok eign Pillsbury Com-
pany. Uppskriftirnar verða að
að innihalda að minasta kosti
hálfan bolla af hveiti (ekki
'kökuhveiti eða kökudufti), en
mega ekki innihalda áfenga drykki
og verða að innihalda einungis
hluti sem fáanlegir eru í venju-
legum nýlenduvöruverzlunum, en
þar að auki verður að vera hægt
að fuligera þær á einum degi.
Hinn 16. ágúst verður tilkynnt
hverjir 10 þátttakendurnir eru,
sem keppa eiga til úrslita í Rvík
eg verða fargjöld þeirra, sem ekki
eru búsettir í’ Reykjavík, greidd.
Tveir húsmæðrakennarar munu
dæma um gildar umsóknir og
munu aðailega taka til greina al-
tnenn gæði, og hve fljótt og auð-
velt er að baka kökurnar og einn-
ig nýbreytni og óvenjuleg ein-
kenni. Þrír kunnir borgarar
STYÐJA BRETAR?
Framnaio at 16 síðu.
allra ákvarðana í sambandi við
gæzlustörf S.þ. Hins vegar leggi
Bandaríkin mikla áherzlu á hlut
Allsherjarþingsins í þessu sam-
bandi og þá sérstaklega varðandi
ákvarðanir um dreifingu kostnað
ar við gæzlustörf.
bragði síðan framleiðsluna og
dæmi um útlitið.
Aðalvinningurinn er flugferð til
New York og ferð þaðan til Miami
Beach, þar sem sigurvegarinn
verður heiðursgestur á bökunar-
keppni Pillsbury, sem fer fram 13.
til 15. september. Allt ferðalagið
verður viðkomandi að kostnaðar-
lausu, auk þess sem hann fær
nokkra vasapeninga.
Frekari upplýsingar um þessa
keppni er hægt að fá hjá O. John-
son & Kaaber í Reykjavík.
BRÆLA
Framhald aí 16. síðu.
þó nokkur norsk líka. Auk þess
er þar eitt af þremur finnskum
skipuim, sem stunda síldveiðar hér
við land. Bræðslan gengur vel, og
smávegis þróarrými er komið.
f Neskaupstað lágu inni 50—70
skip I dag. Þar var norð-austan
hvassviðri og hefur verið kait und
anfarna daga. Bræðslan gengur
vel. Á Eskifirði er allt við sama
í síldarbræðslunni. Þar er haldið
áfram að umstafla síldarmjölinu,
en ekki orðið fullljóst, hve mikið
tjón hefur orðið, er hitnaði í mjöl
inu, eins og blaðið sagði frá í
dag. Tuttugu bátar biðu á Eski-
firði í dag, og bræðslan er búin
að taka á móti 44 þús. málum. Síld
arbræðslan á Reyðarfirði hefur
tekið á móti 56 þús. málucn og eru
þar allar þrær fuilar. Á Fáskrúðs-
firði er nokkurt þróarrými, en
þar er búið að taka á móti 35 þús.
málum.
Á Stöðvarfirði er ekki bræðsla.
Þar he>" enn ekki verið byrjað
að salta og heldur ekki frysta
síld, þar eð verið var að skipta
um frystitæki í frys’tihúsinu. — Á
Breiðdalsvík er búið .að taka á
móti rúmum 10 þúsund málum.
A Djúpavogi er ekki byrjað að
salta enn.
FYRST 5,8 MILLJ.
Frambairi at 16. siðu.
notkun ávísana því haldið áfram
af fullum krafti.
Þess skal getið, að á síðasta
Alþingi fékk Seðlabankinn nýja
lagaheimild til innheimtuaðgerða
í sambandi við innstæðulausar á-
vísanir. Hefur viðskiptamálaráð-
herra nú gefið út sérstaka gjald-
skrá skv. heimildinni, sem leiðir
til þess, að bankinn hækkar all-
verulega það gjald, sem útgefend-
um slíkra ávísana ber að gréiða.
Gjaldskráin birtist í næsta Lög-
birtingablaði.
Þess skal að lokum getið, að
umræddum gjöldum, seni útgef-
endur ávísana greiða, verður, að
frádregnum kostnaði varið til
menningar eða mannúðarmála.
(Frá Seðlabankanum).
FRAMLEIÐENDUR
MuniS hín vinsælu
ÁPRENTUÐU
LÍMBÖND
Allir litir.
Allar oreiddir.
Einnig
Aluminíum-loil
o. m fl.
til umbúða
Kaupmenn — Kaupfélög
Getum nú afgreitt til viðskiptavina vorra
sfálfiimandi merkimiSa — átsfansaöa —
til merkingar á hvers konar framleiðsluvörum,
vörumerki, firmamerki, verðmerkingar o. s. frv.
— Fjölbreytni í litum og lögun miðanna nær
ótæmandi.
Hringið, skrifití, vér munum senda sýnishorn.
Karl M. Karlsson & Co.
Karl Jónasson — Karl M. Karlsson
Melgerði 29, Kópavogi — Síml 41772.
..j.Mw-aai-áWiafctiami
15