Tíminn - 12.07.1964, Page 2

Tíminn - 12.07.1964, Page 2
Laugardagur, 11. júlí. NTB-London, — Sir Williams forsætisráðherra Trinidad og Tabago, lagði til á Samveldis- málaráðstefnunni í London, að Brezka Guiana verði sett undir stjórn Sameinuðu þjóðanna. Brezka stjórnin mun mótfallin hugmyndinni, en Nkrumah, for- seti Ghana, styður hana. NTB-Alsír. — Fimm Alsírbú- ar, sem dæmdir voru til dauða af „Glæpadómstóli Byltingar- innar“, voru teknir og skotnir snemma i morgun. NTB-London. — 7000 brezkir póststarfsmcnn fóru í verkfall í morgun til að mótmæla því, að hið opinbera neitaði að taka tillit til kröfu þeirra um hærri laun. Verkfallið er ólöglegt og andstætt skipun póstmannasam- bandsins. NTB-Georgetown. — Þríf menn voru drepnir og 15 særð- ust lífshættulega í Georgetown í Brezku Guiana í gærkveldi. Hryðjuverkamenn höfðu kastað sprengju inn í kvikmyndahús, sem er í eigu Indíumanna. NTB-París. — De Gaulle for- seti tilkynnti í Æag, að 249 stjórnmálafangar yrðu náðaðir. Þeir hafa allir verið dæmdir fyrir að hafa framið „glæp gegn ríkinu“ og eru flestir fé- lagar í hryðjuverkahrcyfing- unni OAS. Flestir sleppa strax, en aðrir fá mjög styttan fang- elsistíma sinn. NTB-Róm. — Miklar mót- mælaaðgerðir fóru fram, þegar eitt af leikritum Bert Brecht var sýnt í Róm nýlega, og var rotnum eggjum og úldnum fiski kastað í leikarana. Nú hefur komið í ljós, að auglýsinga- stjóri viðkomandi leikhúss stóð að baki þessum aðgerðum, og gerði þær í auglýsingaskyni. NTB-Harstad. — 120 feta langur togari og snurvoðarbát ur var í dag afhentur í Harstad f Noregi. Hann heitir „Arnar“ og tók Arnar Ármannsson, skip- stjóri, Reykjavík, á móti hon- um. NTB-Washington. — 5000 bandarískir prófessorar sendu 1 dag áskorun til Johnsons for- seta um, að vinna að því, að Norður- og Suður-Víetnam yrði gert að hlutlausu svæði. NTB-Caracas. — De Gaulle, forseti Frakklands, hefur tekið á móti boði um að koma í opin- bera heimsókn til Venezuela seinna á þessu ári. NTB-Berlín. — Willy Brandt, borgarstjóri í Vestur-Berlín, var lagður inn á sjúkrahús í Berlín í gær og gekk þar undir minniháttar uppskurð. I-Iann mun verða frá störfum í um tvær vikur. NTB-Bonn. — Vestur-þýzka stjórnin ákvað í gærkveldi, að veita rúmlega 21 milljón ísl. króna til að greiða friðarstarf- semi Sameinuðu þjóðanna á Kýpur. Friðrik Ólafsson skrifar um Skákir frá millisvæðamóti Aðalviðburðurinn í 19. umferð var að sjálfsögðu sigur Larsen yf- [ ir Bronstein, sem þar með tapaði í sinni fyrstu skák í mótinu. Ekki | munu margir hafa átt von á því. i að Bronstein, sem stýrði hvítu [ mönnunum í þessari skák, yrði j neyddur til uppgjafar í aðeins 30 leikjum, en eftir gangi skákarinn ar að dæma virðast þessi úrslit eðlileg. Hin hættulega sókn, sem hófst með 20. leik Bronstein hefði vafalaust orðið mörgum að aldur- tila, en Larsen tefldi vörnina af mikilli nákvæmni og gaf hvergi á sér færi. Þetta harkalega viðnám kom greinilega mjög illa við I**'jn stein og í örvæntingu sinni gekk hann feti of langt og rataði í tapaða stöðu. — Lærdómsrík skák. Hv: Bronstein. Sv: Larsen. Kóngsindversk vörn. 1. d4,Rf6 2. c4,g6 3. Rc3,Bg7 4. e4,Bg7 5. Be2,0-0 6. Bg5,c5 7. d5, e6 8. Rf3 (Líklega er skárra hér 8. Dd2 til að koma í veg fyrir —,h6 hjá svarti) 8. —,h6 9. Bf4 ! (Bronstein hefur beitt þessum leik í svipuðum stöðum með góðum árangri. Áframhaldið 9. Bh4,g5 10. Bg3,exd5 11. cxd5,Rh5 gerir svarti ^ ekki erfitt fyrir.) 9. —,exd5 10. exd5 (Hér kom sterklega til greina 10. cxd5,g5 11. Bcl!) 10. —,He8 11. Rd2 (Til að hindra 11. —,Re4.) 11. —,Rh5 12. Bg3 (12. Be3 er hæpið vegna —,Hxe3 13. fxe3,Dh4f 14. g3,Rxg3 o. s. frv.) 12. —,Bg4 (Samkvæmt mótsblað- inu er 12. —,Rxg3 13. hxg3,Rd7 talið sterkara áframhald. Larsen hefur hins vegar gert sig ánægð an með jafntefli í skákinni — sem ekki er undarlegt, ■ þegar athugað er staða hans í mótinu — og velur því leið, sem leiðir til upp- skipta og einföldunar stöðunnar.) 13. 0-0,Rxg3 14. hxg3,Bxc2 15. Rx e2,Bxb2 (Mótsblaðið telur Larsen taka á sig töluverða áhættu með þessum leik og mælir í staðinn með 15. —,Rd7.) 16. Hbl,Bg7 17. Hxb7 (Þessi hrókur á eftir að gegna mikilvægu hlutverki í þess- ari viðburðaríku skák.) 17. —,Rd7 (Vildi hvítur kcma í veg fyrir inni lokun hróksins (—,Rb6) gæti hann leikið hér 18. Hb3, e’n þá nær svartur yfirburðastöðu með —, Da5. Hann afræður því að tefla öllu liði sínu fram til sóknar kóngs megin) 18. Rf4,Rb6 (Hótar nú við tækifæri —,Dc8.) 19. Hel,Bc3 20. Re4! (Það var annað hvort að hrökkva eða stökkva. Skákin ger ist nú æsispennandi.) 20. —,Bxel 21. Re6! (Bronstein hefur aldrei fengið orð fyrir það að vera „materialistiskur" í skoðunum!) I 21. —,Bxf2t! (Eftir 21. — ,fxe6 ’ 22. Dg4,Bxf2t 23. Kh.l ynni hvítur 1 með beinni kóngssókn. Lesendur ættu að gera sér það til gamans að rekja hinar ýmsu vinninasleið- ir, t. d. eftir 23 -—g5 eða — He7 '' 22. Kxf2 (Ýmsir bafa benn an leik og talið 22 K'’° Larsen ætlaðí að «•••’T* með —,Bd4 og tald; 1 ~r~ boðlega stöðu eftir 23 Rxdti Hax d8. Sé mat hans á stöðunni rétt virðist engin ástæða til að lasta leik Bronstein.) 22. —,fxe6 23. Dg4,Hf8t 24. Kgl,Hf6 25. Dh3? (Þessi leikur lítur í fljótu bragði vel út, en hann leiðir til taps. Rétt var 25. dxe6,Df8 26. e7,Hflt 27. Kh2,Df5 28. DxD,HxD 29. Hx a7!, og svartur verður að tefla mjög gætilega til að lenda ekki í tapaðri stöðu. T. d. 29. — ,Hc8 30. Rxd6,He5 31* Rxc8,Hxc8 32. Ha8,Hxe7 33. Hxc8t,Kf7 34. Hx c5,Ha7 og svartur ætti að halda jafntefli.) 25. —,Df8! 26. Rg5 (í þessari stöðu hefur Bronstein vafa laust reiknað með að geta leikið 26. Rxf6t,Dxf6 27. Dxh6, en sér nú skyndilega, að svartur á hið einfalda og sterka svar —,Dd4t 28. Kh2,Dh8. Hann reynir því að flækja taflið enn meira, en Larsen er vel á verði og leiðir skákina til sigurs án nokkurra erfiðleika.) 26. —,Hflf 27. Kh2,Hf5 28. Rxe6, Hh5 (Þar með er leikurinn úti.) 29. Dxh5,gxh5 30. Rxf8,Hxf8. Hvít ur gafst upp. — Við rétta tafl mennsku hefði skák þessi átt að enda í jafntefli, en Bronstein spennti bogann of hátt og tapaði. Hinn lipri og áreynslulausi stíll Stein er í rauninni alveg einstak úh-í' sinni röð og eiginlega ekki hægt að líkja honum við stíl ann- 'arra skákmanna. Honum lætur greinilega 'bezt að tefla sókn, en sjaldan verður honum á að brjóta allar brýr að baki sér, eins og oft hendir þá Tal og Bronstein. Skák hans við Ivkov er gott sýnishorn af skákstíl hans og skýrir hún sig að mestu leyti sjálf. Hv: Stcin. Sv: Ivkov. Spánski leikurinn. 1. e4, e5 2. Rf3,Rc6 3. Bb5,a6 4. Ba4,Rf6 5. 0-0,Be7 6 Hel,b5 7. B b3,d6 8. c3,0-0 9. h3,Ra5 10. Bc2, c5 11. d4,Dc7 12. Rbd2,Rc6 13. d5,Rd8 14. a4,Hb8 15. c4,Bd7 (Ivkov telur sig fullfæran um að standa af sér aðgerðir hvíts á drottningarvængnum Hinn mögu- leikinn var að loka drottningar- vængnurn með 15. —,b4 og ein- skorða þannig viðureignina við kóngsvænginn.) 16. axb5,axb5 17. cxb5,Bxb5 18. Ba4 (Með þessum uppskiptum nær Stein tetur tök- um á hvítu reitunum.) 18. —,Ha8 19. He3,Rb7 20. Hea3 (Hvítur hef- ur unnið sigur í 1. lotu og svart- ur neyðist til að snúast til varn- ar.) 20. —,Bxa4 21. Hxa4,Hxa4 22. Dxa4,Hc8 23. b3,Rd8 (Þessi riddari er aðal-vandamál svarts, því að hvergi er til hentugur reit ur honum til handa.) 24. Bb2,h6 25. Bc3,Db7 26. Rel (Aðalyfirburð ir hvíts eru fólgnir í hinu ótak- markaða hreyfifrelsi manna hans. Svörtu mennirnir hafa hins vegar lítið sem ekkert svigrúm.) 26, —, Iíb8 27. Rc2,Rd7 28. Re3,Rb6? 29. De8:-,B,f8 30. Rf5.Dd7 31. Rxd6, Dxe8 32. Rxe8.Hb7 33. Bxe5,f6 34. p-<t.3 'b’artur lék nokkra leiki í .cjðan upp. — f a M-nfovft vann Bronstein Por ^'emmtilegri skák, sem £er béi a eftir: Hvítt: PORATH. Svart: BRONSTEIN. Indverskt tafl. 1. d4, Rf6. 2. c4, e6. 3. Rf3, Bb4ý 4. Bd2, ,a5. (Þessi léikur er ekki beint viður- kenndur af „teóríunni“, en engu að síður í miklu uppáhaldi hjá Bronstein). 5. Rc3, o-o. 6. e3, b6. (Baráttan um miðborðsreitina cr eitt af aðaleinkennum þessarar uppbyggingar og báðir beina nu skeytum sínum að e4-reitnum). 7. Bd3, Bb7. 8. o-o, d6. 9. Dc2, Rbd7. (Lítill akkur er 1 9. —, Bxf3, sem mundi veikja hvíta kóngsvænginn óverulega, en hins vegar eftirláta hvíti sterkt miðborð). 10. a3, Bxc3. 11. Bxc3, He8. (Til að geta svarað 12. e4 með —, e5). 12. Rg5, — (Hvítur teflir upp á einföldun stöðunnar, enda ánægður með jafntefli. Bronstein getur lítið við þessu gert, en notar tímann til að ná fótfestu á hvítu reitunum). 12. —, h6. 13. Re4, Rxe4. 14. Bxe4, Bxe4. 15. Dxe4, a4. (Fyrsti liður áætlunarinnar. Svart ur neglir niður b-3-reitinn til að hvítur geti ekki síðar meir komiö peðsvaldi á c4-peðið). 16. Hadl, — (Leiktap, eins og fljótlega kemur í Ijós). 16. —, Í5. 17. Dc6, Ha7! (Undirbúningur að því að koma hvítu drottningunni af höndum sér). 18. Bb4, Dc8. 19. Hcl, — (Sbr. aths. við 16. leik). 19. —, Rf6. 20. c5? — (Hvítur vill skiljanlega opna tafl- ið og mynda sér gagnfæri, en hann gætir þess ekki, að með þessum leik gengur hann einung- is til móts við áform svarts. Betra hefði verið 20. Ðf3 með það fyrir augum að leika síðar tneir d4-d5). 20. —, bxc5. 21. dxc5, d5. (B-línan hefur nú opnast svarti í hag og er það fyrst og fremst að þakka 15. leik hans, sem gert hefur hvíta b-peðið bakstætt). 22. Bc3, Da6. 23. DxD, HxD. 24. Bxf6 (?). (Hvítur tekur þann kostinn að losa sig við riddarann og freista gæfunnar í hróksendatafli. Bezti möguleikinn var sennilega fólginn í því.að halda eftir biskupnum og nota hann til að varna svörtu hró>* unum aðgang á b-línunni (Bc3-b4 ■ 24. —, gxf6. 25. Hfdl, HebR 26. Hc2, Hb5. 27. Hd4, c6. 23. Kfl, Haa5. 29. Kel, e5. 30. Hh4, Kg7. 31. Kd2, e4. 32. Hf4, h5! (Peðsfórn, sem gerir það að verí- um, að hvíti hrókurinn verður hálfgerður statisti á kóngsvængn- um. Minna púður. var í 32. —, Kg6 vegna 33. g4!). 33. Hxf5, Kg6. 34. Hf4, f5. (Peðið á c5 hleypur ekki brott!) 35. h3, — (Meiri vörn kynni að felast í 35 f3. Bezta áframhald svarts er þ) sennilega, — Hb3-d3ý ásamt — H-b5-b3 o. s. frv.). 2 T f M I f í ú ER MANN- FAGNADUR SAKNÆMUR? IGÞ—Reykjavík, 11. júlí. Undanfarið hafa blöð gert mikið veður út af því að saman skyldu fara hér í Tímanum, myndir frá garðveizlu að Hallormsstað í lok aðalfundar Samvinnutrygginga, og undirstrikun á þingsályktun góð- templara. Öll blöðin hafa árum saman birt myndir eins og þessar af ýmsum mannfagnaði, og hefur ekki þótt neinum tíðindum sæta. Jafnframt hafa blöðin birt ýmis- legt um bindindisstarfssemi, sem heldur hefur ekki sætt neinum tíðindum. Sum þessara blaða hafa gert mikið úr því, hvað þau væru frjálslynd og leyfðu mörgum and- stæðum ■ að koma fram á síðum sínum. Vissulega er gott að blöð útiloki ekki sjónarmiðin, en er ekki nokkuð langt gengið fyrir gamalgróin brennivínsblöð eins og Vísi og Morgunblaðið að ætla sér að gera stutta garðveizlu að Hall- ormsstað að saknæmum mannfagn aði. Laugairdaginn 11. júlí. Gott veður var á síldarmiðunum s.I. sólarhring og nokkur veiði á Tangaflaki, í Héraðsflóa og Norð- fjarðardýpi og Seyðisfjarðardýpi. Samtals fengu 49 skip 25.800 mál og tunnur: Sigfús Bergman GK, 900, Helga RE 800, Snæfell EA 1000, Jörund- ur III RE 300, Björn Jónsson RE 800, Kambaröst SU 300, Skagaröst KE 500, Hafrún NK 500, Eldey KE 500, Freyfaxi KE 500, Skarðsvík SH 400, Seley SU 350, Heiðrún ÍS 500, Gissur hvíti SF 850, Guð- björg GK 1100, Otur SH 200, Hof- fell SU 200, Grundfirðingur II SH 400, Arnarnes GK 400, Höfrungur II AK 400, Sigurður AK 400, Héð- inn ÞH 500, Ólafur Magnúss. EA 950, Þorleifur Rögnvaldsson OF 250. Guðbjörg OF 400, Björgvin EA 1100, Áskell ÞH 350, Bergur VE 250 Jón á Stapa SH 500, Sól- rún ÍS 750, Huginn II VE 900, Tjaldur SH 250, Keilir HU 300, Björg SU 200, Vonin KE 500, Run- ólfur SH 200, Jón Kjartansson SU 1350, Helga Björg HU 550, Hafþór RE 300, Gunnar SU 200, Stapafell SH .200, Gullver NS 500, Valafell SH 200, Andvari KE 700, Guðrún GK 400, Vattarnes SU 700, Gull- berg NS 900, Reynir AK 250, Engey RE 800. 35. —, Hxc5. 36. Hxc5, Hxc5. 37. g4, fxg4. 38. hxg4, h4! (Lykilleikurinn. H-peðið gerir út um taflið). 39. Hf8, Kg7. 40. Hf4, Hb5. 41. Kc3, Kg6. (Hvítur gafst upp, því að hann fær ekki stöðvað h-peðið. Ef t. d. 42. Hf8, þá —, Hb7 og síðan —, Hh7). N, sunnudagur 12. júli 1964.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.