Tíminn - 28.08.1964, Qupperneq 2
FIMMTUDAGUR, 27. ágúst.
NTB-Washington. — Frá því
var skýrt í fréttum í nótt, að
Johnson, Bandaríkjaforseti
hefði falið Thomas Dodd, öld-
ungadeildarþingmanni frá Con-
ecticut að taka við störfum
dómsmálaráðherra í stað Ro-
berts Kennedy, sem ætlar að
hjóða sig fram fyrir New York-
ríki og verður af þeim sökum
að segja af sér dómsmálaráð-
herraembættinu.
NTB-Prag. — Þúsundir
manna fögnuðu Nikita Krúst-
joff, forsætisráðherra Sovétríkj
anna, er hann í dag ók um
götur Prag, en hann er kominn
til Tékkóslóvakíu til að vera
viðstaddur hátíðahöld til minn
ingar um, að 20 ár eru liðin
frá því nazistar voru hraktir
brott úr landinu.
NTB-Leopoldville. — Harðir
bardagar urðu í Albertville í
Kongó í kvöld milli stjórnar-
herja og uppreisnarmanna, er
veita harða mótspyrnu. Yfir-
maður stjórnarherjanna, Mo-
buto, hershöfðingi, sagði í dag,
að flugvélar stjórnarinnar
hefðu gert margar loftárásir á
’Kindu, en stjórnarherirnir
væru þó í sókn.
NTB-Nýju Delhi. — Talscnað
ur indversku stjórnarinnar
sagði í dag, að alls hefðu ver-
ið teknir höndum 10.000 kom-
múnistar síðan flokkurinn hóf
5 daga mótmælaaðgerðir víðs
vegar í Indlandi gegn verðhækk
unum í landinu.
NTB-Djakarta. — Sukarno,
Indónesíuforseti, hefur gert
miklar breytíngar á ráðuneyíi
sínu og m . a. í fyrsta
sinn tekið kommúnista í stjórn
ina. Er það varaformaður kom-
múnistaflokksins, Njoton, sem
gerður hefur verið að ráð-
herra, en alls voru breytingarn-
ar 12 á stjórninni.
NTB-Nicosiu. — Kýpurstjórn
hefur tilkynnt stjórn Tyrk-
lands, að hún leyfi ekki skipti
á 250 hermönnum úr hinu 650
manna liði, sem leyfilegt er
að hafa á eynni, en skipti þessi
áttu að fara fram n. k. mánu-
dag, samkvæmt fyrra samkomu-
lagi.
NTB-París. — Yfirvöld hafa
fyrirskipað, að allir farþegar,
sem koma frá Tokio til Parísar
fái því aðeins landvistarleyfi,
að þeir hafi verið bólusettir
gegn kóleru, en eins og kunn-
ugt er hefur komið upp kóleru-
faraldur í Tokio. Mörg önnur
ríki hafa fyrirskipað svipaðar
varúðarráðstafanir.
NTB-Stokkhólmi. — Tveir
hroðalegir kynferðisglæpir
voru framdir í Stokkhólmi í
nótt. 68 ára gömul kona var
myrt, eftir að hafa verið mis-
þyrmt hroðalega og 83 ára vin-
kona hennar varð einnig fyrir
misþyrmingum, svo að hún ligg
ur nær dauða en lífi á sjúkra-
húsi. Höfðu þær verið einar
heima, er ókunnur maður barði
að dyrum og snýkti mat og
peninga, en réðist síðan á þær.
Annars er konan svo þungt
haidin, að lögreglan hefur ekki
getað yfirheyrt hana gaurn-
gæfilega.
Johnson og Hymphrey kjörnir meb iéfataki
FÚGNUDURINN STÓÐ
YFIR I 25 MfNUTUR!
NTB-Atlantic City, 27. ágúst.
Lyndon B. Johnson, forseti, var
í nótt einróma kjörinn forseta
frambjóðandi demókrata við for
setakosningarnar í haust, á flokks
þinginu í Gonvention Hall, sem
lýkur í nótt. Hubert Humphrey,
öldungaAcildarþingmaður frá
Minnesota, var sömuleiðis kjör
inn varaforsetaefni flokksins með
almennu lófataki. Voru báðir ákaft
hylltir og stóðu fagnaðarlætin yf-
ir í 25 mínútur. Hinn nýkjörni
forsetaframbjóðandi, Johnson, sem
kom óvænt á flokksþingið í nótt,
fyrir atkvæðagreiðsluna, lýsti
því yfir, að hann myndi bera
HÉRAÐSMÓTIÐ Á
SAUÐÁRKRÓKI
SUNNUDAGINN 23. ágúst var
héraðsmót Framsóknarmanna í
Skagafirði haldið á Sauðárkróki.
Ræður fluttu alþingismennirnir
Ólafur Jóhannesson og Einar Ág-
ústsson. Hinn ágæti Smára-kvart-
ett söng og við hljóðfærið var Jak-
ob Tryggvason. Á sjötta hundrað
manns sótti mótið, og auk þess
urðu margir frá að hverfa vegna
rúmleysis. Mikill áhugi ríkti á
fundinum, sem var hinn ánægju-
legasti að öllu leyti.
Þurrkar í
Hornafirði
EJ-Hornafirði, 27. sept.
Hér hafa verið miklir þurrkar
að undanförnu, og margir bænd
ur hafa þurrkað allan seinni slátt
í stað þess að hirða hann í vot
hey. Heyskap er að ljúka og er
sums staðar alveg lokið. Hann
hefur gengið vel hér.
Það lítur misjafnlega út með
kartöfluuppskeru í Hornafirði,
hjá sumum verður hún mjög lé-
leg. Grasið hefur víða fallið í
frostum og skorpnað í þurrkum,
og má búast við, að vexti sé lokið.
Þetta er þriðja árið í röð, sem
verður að teljast lélegt kartöflu-
ár.
ÚTIBÚ Á LAUGUM
ÞJ-Húsavík, 27. ágúst.
Kaupfélag Þingeyinga hefur
opnað verzlunarútibú við Hóla-
braut í Reykjadal.Útibúinu er eink
um ætlað að verða til þæginda
og þjónustu fyrir Reykdælí, svo
og ferðamenn.
Ferðamannastraumurinn er
geysimikill um Reykjadal í Þing-
eyjasýslu á sumrin. Fjölfarnasta
leiðin milli Norðurlands og Austur
lands, frá Húsavík og Akureyri,
liggur um Reykjadal.
Minnzt fallinna
Norðmanna
Hinn 22. ágúst s.l. lagði forseti
borgarstjórnar Oslóborgar blóm-
sveig við minnisvarða í Fossvogs-
kirkjugarði um Norðmenn, sem
féllu í stríðinu. Viðstaddir voru
meðal annarra sendifulltrúi Nor-
egs og borgarsjórinn í Reykjavík.
glæsilegan sigur úr býtum í kosn
ingunum 3. nóvember.
Um val sitt á Hubert Humphrey
sagði hann: Ég valdi hann ekki til
að skapa jafnvægi innan flokks
ins. Humphrey er einfaldlega bezt
fallni maður til þessarar stöðu í
Bandaríkjunum.
Eitt skyggði þó á fagnaðarlætin.
Fulltrúar Alabama og Missíssippi
sátu hljóðir hjá og Alabamafull
trúarnir höfðu fyrir atkvæða-
greiðsluna stungið upp á Carl
Sanders sem varaforsetaefni, en
hann dró sig strax til baka.
Barry Goldwater, forsetafram-
bjóðandi republikana sagði í dag
um val Humphreys, að það sýndi,
að Johnson hygðist ekki halda
uppi íhaldsstefnu, ef hann ynni
kosningarnar, því að Humphrey
væri frjálslyndasti maður öld-
ungadeildarinnar. Hann vill stöð-
ugt meiri ríkisafskipti og undir-
strikar kjör hans muninn, sem
er á republíkanaflokknum og
demókrötum, sagði Goldwater.
Pólitískir fréttaritarar segja, að
val Humphreys hafi verið mjög
klókt. Reynsla hans í utanríkis-
málum komi sér vel fyrir demó-
krata og frjálslyndi hans höfði til
fólks í Norðurríkjunum.
f dag kom Jackeline Kennedy,
ekkja Kennedys, fyrrverandi for I viðstödd minningarathöfn um
seta, til Atlantic City til að vera I mann sinn.
Á myndinni sést Nguyen Khanh, hershöfðingi í S.Vietnam olnboga sig
í gegnum hóp stúdenta, daginn sem hann var sviptur forsetastöðunni. —
Stúdentarnir héldu mótmælafund fyrir utan skrifstofur hans og er hann
að reyna að komast að hátaiarabifreið, þar sem hann flutti ræðu og skor-
aði á stúdentana að sýna stillingu.
NTB-Saigon, 27. ágúst.
Herráðið í S-Vietnam fól í
&ag þrem herforingjum, þar á
meðal fyrrverandi forseta lands-
ins, Khanh, að taka við völdum í
TF-Flateyri, 24. ágúst.
f sumar var stofnað Héraðssam-
band vestfirzkra leikfélaga, og
voru stofnendur sex leikfélög í
ísafjarðarsýslum og á ísafirði, en
sambandssvæðið nær yfir fsa-
fjarðarsýslur og Barðastrandar-
sýslu.
Markmið héraðssambandsins er,
að efla samvinnu leikfélaga á hér-
aðssvæðinu og styrkja samvinnu
þeirra við Bandalag íslenzkra
leikfélaga, en framkvæmdastjóri
bandalagsins var mættur á undir-
búningsfundi að stofnun héraðs-
sambandsins.
í stjórn sambandsins eiga sæti
séra Stefán Eggertsson frá Leik-
Danskur málari sýnir
í Mokkakaffi við Skólavörðustíg
er nú haldin sýning á tólf olíu-
málverkum eftir danskan listmál-
ara, Elvin Erud. Málverkin verða
til sýnis 4. september. Þau eru
öll til sölu.
Erud er tæplega fimmtugur að
aldri. Hann nam við lista háskól-
anna í Khöfn og hefur sýnt verk
sín í Charlottenborg og Den Frie,
unnið að skreytingum opinberra
bygginga í Khöfn og kennt list-
málun og keramik.
landinu og var fyrra herráð síðan
leyst upp. Skömmu áður kom til
blóðugra átaka fyrir framan aðal-
stöðvar herráðsins og létust a. m.
k. 6 manns og yfir 30 særðust.
félagi Þingeyrar, formaður, Lauf-
ey Maríasdóttir frá Leikfélagi
ísafjarðar, gjaldkeri og Bjarni
Magnússon frá Leikfélagi Bol-
ungarvíkur, ritari. Fundinn sátu
2 fulltrúar frá hverju félagi og
kusu þeir stjórn sambandsins.
Ákveðið er að strandferðaskip-
ið Esja verði tekið til flokkunar-
viðgerðar eftir 8. sept. n. k. og
mun viðgerðin sennilega taka 1
til 1% mánuð. Á meðan mun
Hekla fara áætlunarferðir Esju,
en þannig er háttað, að Hekla
áttí upphaflega að vera í flokk
unarviðgerð á þessum tíma, en
viðgerð hennar var frestað til
næsta árs til þess að hin dýra
flokkun beggja skipanna kæmi
ekki á sama árið.
f sambandi við þessa ráðstöfun
fær Hekla nokkra lausa daga um
fyrstu helgina í september og
er nú ráðgert að nota þá á þann
hátt að gefa fólki kost á 3 þægi-
legum ferðum með skipínu til
Vestmannaeyja og þar með til
Surtseyjar, en veruleg eftirspurn
hefir að undanförnu verið eftir
skipsfari á þessar slóðir.
Verður öllum ferðunum hagað
Skriðdrekum og fallhlífarher-
mönnum var beitt til þess að
hrekja um 3000 manns brott frá
aðalstöðvunum, en fólkið var vopn
að bareflum, hnífum, flöskum og
öxum.
Áttust þarna við kaþólskir menn
og Búddatrúarmenn. Kaþólikkarn
ír kröfðust þess, að herráðið yrði
áfram við völd undir forsæti
Khanh, hershöfðingja, sem fór
frá völdum að kröfu Buddatrúar-
manna.
Auk Khanhs eru í hinu nýja
herráði, Duomgidan Minh, fyrr-
verandi forseti og fyrrverandi
varnarmálaráðherra, Tran Thien
Khiem.
Strax eftir kjörið komu hers-
höfðíngjarnir saman til fundar
til að semja áskorun til fólksins
um að sýna stillingu og koma á
friði og ró í landinu.
þannig að skipið verði við Surs
ey i ljósaskiptunum að kvöldínu,
þannig að eyjan sjáist öll, ef
skyggni er til þess, og einnig sjá
ist hið glóandi hraunflóð.
Héraðsmót að Bif-
röst í Borgarfirði
Framsóknarmenn í Mýrasýslu
halda héraðsmót að Bifröst í Borg-
arfirði sunnudaginn 30. ágúst og
hefst það kl. 9. 30 s.d.
Ræður og ávörp flytja alþingis
mennimir Helgi Bergs og Halldór
E. Sigurðsson.
Erlingur Vigfússon, óperusöngv
ari, syngur og Jón Gunnlaugsson,
gamanleikari skemmtir.
Dúmbósextettinn og Steini leika
<>g syngja fyrir dansi.
STOFNAÐ VESTFIRZKT
SAMBAND LEIKFÉLAGA
HEKLA í SURTSEYJARFERÐIR
9.
T ÍM 1 N N, föstudaginn 28. ágúst 1964