Tíminn - 13.09.1964, Side 6

Tíminn - 13.09.1964, Side 6
•XvX'X'X'X'XV".'.'.'.'.'.• - • •.-X'X*X,.v.v*X,X,X*X*X!lv.*.x*X*>X*X*Xx,X‘X*XiiliÚiiÍ!*4ÍfcfcÉÍÉi'X*X*X'X^^ÉX*IýX:'^XAiiilÍÉlX**,*AvX*aíiiiÉÍltX,.ixXj*diilX'XvX*X*Xx.XvX,XvX*X\xXx.x*X-XvXvXvX'X'''*' OG SKRAFAO SKRAFAÐJ Göfug kona Þjóðinni barst óvænt mikil harmafregn síðastl. föstudags- morgun, er blöðin skýrðu frá því, að forsetafrú íslands, Dóra Þórhallsdóttir, væri látin. Hér var ekki aðeins um að ræða tign ustu konu landsins, heldur eina merkustu og mikilhæfustu konu, sem landið hefur átt, — konu, sem hefur notið virðingar og vinsældar enn meira sakir kosta sinna og hæfileika en hinnar tignu stöðu. Minning hennar mun því lengi lifa hjá þjóðinni og hún mun koma mörgum í hug, þegar góðrar konu er getið. Forsetinn og aðrir ástvinir hinnar látnu forsetafrúar mega vera þess full vissir, að öll þjóðin vottar þeim innilegustu ’ samúð. Það má vera þeim nokk ur styrkur, en bezti styrkurinn verða þó hinar fögru minning ar um góða og göfuga konu. Frá Sochi ti! Hveragerðis Sá, sem þeta ritar, hefur ný- lega heimsótt tvo staði, sem báðir eju honum eftirminni- legir á vissan hátt. Annar staðurinn er Sochi, 8«n er baðstaða- og hvíldar- borg, sem Rússar eru að reisa soður við Svartahaf. Rússar vinna nú kappsamlega að því að koma þar upp hvíldar- og hress sf ingarheimilum, ásamt gistihús- £ um fyrir ferðamenn, og ætla bersýnilega að sýna, að þeir standi ekki neinum að baki á þessu sviði. Rússar vilja því gjarnan láta erlenda ferðalanga koma til Sochi, enda tapa þeir ekki á því að sýna það, sem þar er verið að gera. Hinn staðurinn er Hvera- gerði, eða nánar tiltekið elli- og hvíldarheimili, sem er rekið þar af Elli- og hvíldarheimilinu Grund í Reykjavík. Þetta elli- og hvíldarheimili er rekið af svo miklum myndarbrag og snyrtimennsku, að íslendingar geta sýnt það með engu minna stolti en Rússar hressingarhæli sín við Svartahaf, þótt þau séu stærri 1 sniðum. Og svo talar það einnig sínu máli um einkaframtakið, því að opin- berir aðilar hafa hér hvergi nærri komið. Elli- og hvíldar- heimilið Grund er sjálfseign- arstofnun. Það er fróðlegt og ánægju- legt að sjá það, sem útlending- ar gera vel. Þó er langtum ánægjulegra að sjá það, sem íslendingar gera vel eða betur. Gísli Sigíirbjörnsson Það dró ekki heldur úr áhrif- um heimsóknarinnar í Hvera- gerði, að haf? Gísla Sigurbjörns- son fyrir eins konar leiðsögu- mann. Gísli er einn hinna óvenjulegu manna, sem sam- eina frjótt ímyndunarafl og mikla framtaksemi ásamt frá bærri snytrimennsku. Það hefir Hvanngil á Rangárvallaafréti, verið miklu meira en verk fyr ir atorkumann að gera Grund að slíku myndarheimili og það er hér í bæ og autanfjalls. En það hefur ekki nægt Gísla. Hann hefur verið með járn í eldinum á fjöldamörgum öðr- um sviðum og fyrst og fremst hefur hann þó haft áhuga fyrir því að brjóta nýj- um hugmyndum braut og leita nýrra ráða. Undirtektir þær, sem hann hefur fengið á hærri stöðum, hafa oft verið mis- jafnar, svo að ekki sé meira sagt, en Gisli hefur ekki lagt árar í bát fyrir það. Mörgu hef ur hann komið fram eða orðið til þess með frumkvæði sínu, að aðrir gerðu það. Og enn hef ur hann mörg járn í eldinum. Hann hefur nýlega fengið er- lenda vísindamenn til að athuga það, hvort ekki sé hægt að breyta lýsi í duft, og virðist það ætla að bera jákvæðan árangur og getur haft mikla þýðingu. Hann lætur elliheim- ilið reka stóra gróðrarstöð 1 Hveragerði til þess að framleiða grænmeti og blóm fyrir það, en gamla fólkið hefur mikla ánægju af blómum. En þetta er jafnframt hin merkilegasta tilraunastöð, þar sem fengizt er við ræktun hinna margvísleg- ustu erlendu nytjajurta og teg- unda. Það, sem hér er nefnt, er þó ekki nema nokkuð af því, sem Gísli er að vinna að og leyfilegt er að segja frá, eins og stendur. En kannske fæst leyfti til að segja frá öðru síð- ar. Förum við á sveitina? Þótt Gísli Sigurbjörnsson hafi áhuga fyrir mörgu, er efl- ing landbúnaðarins honum sennilega efst í huga eins og oft áður. Landbúnaðurinn er undirstöðuatvinnuvegur þjóð- arinnar. segir hann. í enn víð- tækari merkingu en sjávarút- vegurinn. Enginn þjóð getur haldið tilveru sinni án bænda- stéttar. Ekkert viðfangsefni er nú þýðingarmeira en að tryggja hlut sveitanna. Spurningin í dag er nú raunverulega þessi: Björgum við sveitunum eða förum við á sveitina? Það er hvorki meira né minna, sem um er að tefla. Án blómlegs landbúnaðar lifir þjóðin hvorki góðu efnahagslifi eða menning- arlífi í landinu. Það er þetta, sem allir þurfa að skilja. I En hvernig er hægt að bjarga landbúnaðinum? Réttlátt verð- lag og eðlilegur stuðningur við landbúnaðinn eru sjálfsagðir hlutir. En meira þarf að koma til, ef tryggja skal framtíð hans. Þar eru það vísindin og aftur vísindin, sem verða að koma til sögunnar. Það þarf að stórauka vinnuhagræðing- una og það er oft hægt með furðu litlum tilkostnaði. En verkefni vísindanna er miklu margþættara. Það þarf að bæta bústofninn, bæta grasið. jafnvel finna upp alveg nýtt gras. Það verður að læra á jarðveginn og fæða hann á rétt an hátt. Vísindin eiga að geta gert landbúnaðinn að nýjum atvinnuvegi, arðvænlegum og glæsilegum atvinnuvegi, því að skilyrðin vantar ekki, ef þau eru réttilega nýtt. Þessi boðskapur Gísla er að sjálfsögðu ekki ný lexía, en hins vegar skortir mjög á, að hún sé nógu Ijós almennt. Og vissulega má ekki gera lítið úr því, sem rætunarmenn okkar og búvísindamenn hafa áorkað, þrátt fyrir erfiðar aðstæður. En nýr tími krefst alveg nýrra við horfa og nýrra átaka í þessum efnum. Þeir, sem vanrækja að taka vísindin nógu fljótt i þjón- ustu sína, eru dæmdir til að dragast aftur úr. Hvað fá bændur? Það þarf vissulega að hefja hið stórfeldasta átak til að beizla vísindin meira í þágu landbúnaðarins, og vitanlega einnig annarra atvinnuvega á fslandi. En vísindin geta þurft sinn tíma til að ná árangri. Og því aðeins koma þau að gagni fyrir landbúnaðinn, að einhverj ir bændur verði eftir til að not- færa sér árangur þeirra, þegar þar að kemur. Því er ekki að neita, að nú horfir ískyggiléga í þessum efnum. Hagskýrslur sýna, að bændur hafa borið minna .úr býtum seinustu árin én aðrár sféttir, þótt lög áskilji jafnræði. Fæst þetta leið- rétt við verðlagningu land- búnaðarvaranna nú? Hvað fá bændur í sinn hlut af vaxandi þjóðartekjum? Hvernig verður þeim skammtað? Á þessu getur það oltið, hvort margir bænd- ur halda áfram eða gefast upp! Þeir menn stunda vissulega illt verk og óþjóðholt, sem reyna að vekja andúð meðal kaup- staðabúa í garð bænda og kenna afurðaverðinu fyrst og fremst um, hvernig komið er í dýrtíðarmálum. Þar er ver ið að vinna að því, að afleiðing ar rangrar stjórnarstefnu bitni á einni stétt. Sænskur jafnvægis- • r 9C sjoour Undanfarin misseri hefur setið að störfum í Svíþjóð sér- stök nefnd, sém falið var að gera tillögur um ráðstafanir til að treysta jafnvægi í byggð landsins. Þessi nefnd hefur skilað áliti fyrir nokkru og ger ir þar ráð fyrir margháttaðri aðstoð til stuðnings þeim héruð- um. sem fólk hefur fluzt mest úr undanfarin ár. Ríkisstjórnin hefur nú tilkynnt. að hún muni í framhaldi af þessu flvtja frum varp á næsta þingi, þar sem lagt verði til að verja 800 milli- ónum sænskra króna næstu fimm árin til eflinear atvinnu- rekstri í þeim héruðum. sem ENN 00 MALEFNI hafa búið og búa við mestan fólksflótta. Ætlunin er að veita árlega á þessu tímabili 60 millj. sænskra kr., er verði beint framlag til nýrra fyrirtækja, er stofnuð verða í þessum héruð um, en 100 millj. sænkra kr. verði lánaðar fyrirtækjum með hagstæðum kjörum. Árlega verða því 160 millj. kr. til umráða í þessu skyni. Þá verða fleiri ráðstafanir gerðar til stuðnings þeim héruðum, er höllustum fæti standa. Þetta fordæmi Svía mættti vissulega verða til þess, að frumvarp Framsóknarmanna um jafnvægissjóð næði loks samþykki á næsta þingi. Þrjár síefnur í þessum mánuði fara fram þingkosningar í Svíþjóð og Danmörku. í næsta mánuði verða þingkosingar í Bretlandi. í byrjun nóvember verða for- setakosningar í Bandaríkjunum. Það er einkennandi, að 1 öll um þessum löndum er kosið milli tveggja höfuð stefna, íhaldsstefnu, sem Goldwater og hinir íhaldssömu flokkar beita sér fyrir, og mnbótastefnu, sem demókratar í Bandaríkjunum og jafnaðarmenn á Norðurlönd um og í Bretlandi beita sér fyrir. Þetta sýnir, að höfuðstefnur í stjórnmálum heimsins eru nú þrjár eða kommúnisminn, íhaldsstefnan og umbótastefn- an. Af hálfu kommúnista og íhaldsmanna er reynt að gera sem minnst úr hlutverki um- bótastefnunnar. Fylgismenn hennar séu reikulir í stefnu og beri kápuna á báðum öxlum. Reynslan sýnir þó, að þjóðun- um hefur vegnað bezt, þar sem stjórnað hefur verið undir merkjum hennar. Hvað tefur i skatta- málunum? Septembermánuður er nú bráðum hálfnaður, en samt ból ar ekki neitt á aðgerðum til að lina skattheimtu fyrir næstu mánaðamót. Ef engar breytingar verða gerðar fyrir þann tíma, gerizt það enn einu sinni, að fjölmargir launþegar fá nær ekkert útborgað, því að skattheimtan tekur mest af launum þeirra. Margir þeirra eru þegar komnir 1 fyllstu vand ræði vegna skattheimtunnar og hafa treyst á, að eitthvað rætt ist úr um næstu mánaðamót. Fái þeir enga úrbót þá, verða fjárhagserfiðleikar þeirra lítt eða ekki viðráðanlegir, því lánsmöguleikar verða þá þrotn ir hjá mörgum. Fyrir ríkisstjórnina er auð- velt að leysa þennan vanda, ef vilji er fyrir hendi. Hún getur hæglega frestað innheimtu tekjuskattsins. Hún getur veitt sveitarfélögunum vaxtalaus lán svo að þeim verði fært að draga úr innheimtunni. Ríkið á geymt fé í Seðlabankanum, sem vel má nota á þennan hátt. Hér veldur því eklri getu- leysi dræítinum, heldur vilja- skortur. T f M I N (I, sunnudaginn 13. september 1964 6-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.