Alþýðublaðið - 26.04.1920, Qupperneq 4
I
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Kðti konongnr.
Eftir Upton Sinclair.
Önnur bók:
Prœiar Kola konungs.
(Frh.).
XXII.
Viðarbútamir voru nú hættir
að detta niður, en kolaryk ð var
svo mikið, að það gerði þá bik-
svarta frá hvirfli til ilja, og ryk-
skýin urðu þéttari og þéttari, svo
þeir áttu erfitt með að rata.
Myrkrinu fylgdi kyrð, sern var
eins og kyrðin í dauðra manna
gröfum, á eftir brakinu og brest-
unum og drununum sem komu
við sprenginguna.
Hallur stóð eitt augnablik sem
steini lostina. Hann sá, að menn
hópuðust út úr námuhúsunum og
úr hverri götu komu konur, gaml-
ar og ungar, sem skildu pottana
eftir yfir eldinum og börnin eftir
í vöggunni. Þær söfnuðust saman
við námuopið, sem líktist mest
rjúkandi eldgýg. Börnin héngu
skælandi í pilsum þeirra og æptu
hástöfum.
Cartwright, námustjórinn, hljóp
til loítræstingahússins. Cotton slóst
í förina og Haliur elti. Loftræst-
ingahúsið var rústir einar. Hin
geisistóra loftdæla lá með brotna
spaða hundrað skref þaðan. Hall-
ur var alt of ókuanur námumál-
efnum, til þess að skilja hve mik-
ilsvert þetta atriði var. En hánn
sá, að eftiriitsmaðurinn og námu-
stjórinn gláptu mállausir hvor á
annan og heyrði hinn fyr nefnda
stynja upp: ,Þetta var það versta
sem fyrir gat komiðl" Cartwright
sagði ekki orð, en þunnar varir
hans voru þrýstar saman og ang-
ist skein úr augum hans.
Þeir þutu báðir, með Hall á
hælum sér, að rjúkandi námuop-
inu. Tvö hundruð konur voru
komnar þar saman og hrópuðu
og spurðu einum rómi. Þær hóp-
uðust utan um eftirlitsmanninn,
námustjórann, og hina verkstjór-
ana — jafnvel utan um Hail —■
og æptu hástöfum á Pólsku, Bæ-
heimsku og Grísku. Þegar Hallur
hristi höfuðið til merkis um að
hann skildi þær ekki, grétu þær
af angist eða hrópuðu upp yfir
sig. Sumar létu ekki af, að stara
niður í rjúkandi námugöngin, aðr-
Nokkrar stúlkur geta fengið vinnu við fiskverk-
un. Yinnan byrjar nú þegar.
H. P. Duus.
Fiskvinna!
Nokkrir dug-legir karlmenn og ÍO stúlkur
gtta fenðið fasta atvinnu við fiskverkun
aö Gröröum.
Ágætt húspláss, er menn geta fengið að vera í yfir árið.
Upplýsingar gefur:
Sigurjón Pétursson
H iiíii arstr æti 1B.
Sími 137.
Ráðningaskrifstofan
óskar eftir:
Kaupakonum á ágæt heimili.
Stúlkum í fiskvinnu og til beitninga.
Ráðskonu.
í sumar verður skrifstofum
okkar lokað kl. 2 e. lí.
á laug'ardögum.
cKatBan & (Blsen, Æ. ÆeneéŒtsson,
«3ofínson & ÆaaBer.
ar héldu höndunum fyrir augun
til að sjá þau ekki, eða féllu á
kné, grátandi og báðu með fórn-
andi höndum.
Alþbl. er blað allrar alþýðu!
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafar Friðriksson.
Prentsmiðjau Gutenberg.