Tíminn - 04.10.1964, Side 2
Laugardagur, 3. október.
NTB-París. — Flakið af
frönsku flugvélinni, sem sakn
ttð var í gær, er nú fundið í
Sierra Nevada-fjöllunum á Suð-
ur-Spáni. Engir.n hefur komizt
lífs af. Farþegar um borð voru
76, en ekki 80 e.íns og sagt var
í gær, þar sem fjögurra manna
fjölskylda, sem ætlaði með
flugvélinni frá xMarseilIe, af-
pantaði far sítt á síðustu
stundu. Meðal farþeganna voru
20 böm, þar af 5 ungbörn.
NTB-Illinois. — Barry Gold-
water, forsetaefn5 republikana,
hélt í dag kosningaræðu í
Preoria í Illinois Réðist hann
harkalega á Johnson fyrir að
hafa ekki tekið nógu hart á
kommúnismanum og gera ekki
nógu mikið fynr NATO. Jafn-
framt sagði Goldwater, að ef
hann yrði forseti, þá yrði hans
f*rsta verk, að sameina allar
frjálsar þjóðir við Vestur-Atl-
antshafið.
NTB-Kuala Lumpur. — For-
sætisráðherra Malaysiu,
Tunku Abdul Rahman, lýsti
því yfir í dag, að á meðan Suk
amo Indónesíuíorseti, réðist
harkalega að Maiaysiu í orði,
þá hafi hann ekki sent færri
en þrjá fulltrúa til Malaysiu
til að semja um frið.
NTB-ElisabethviIJe. —■ 500
fyrrum lögregluhermenn frá
Katanga ganga nú unf vopnaðir
í úthverfunum Lualaba og Kat
anga i Kongo. F-etta eru upp-
reisnarmenn úr Itópi 3.000 lög
regluhermanna, sem nýlega
komu frá Angoía til Kongo í
því skyni að ganga í Kongóska
herinn. Áðurnefndur hópur
heltist úr lestinni þegar verið
var að flytja iiðpinn til Kam-
ina-herstöðvanna. Vfirvöldin í
Kongo reyna cftir beztu getu
að hafa hendur í hári upp-
reisnarmannanna, því óttast er
að þeir stofni til vandræða.
NTB-New York. Bandaríkja-
stjórn hefur nú ákveðið að
fella niður réttarhöldin gegn
sovésku hjónunum Sokolov og
er það gert af öryggisástæð-
um. Sokolv-hjónin hafa verið
ákærð fyrir njósnir í þágu Sov
étríkjanna. Meðal annars hafa
þau Ijóstrað upp um bai)darísk
ar eldflaugastöðvar og kjarn-
orkuvopn. Þau voru handtekin
2. júlí árið 1963. Réttarhöldin
hófust í byrjun þessarar viku.
NTB-Damaskus. — Biskupar
ortodoxku trúarinnar halda
nú með sér fund í Sýrlandi.
Þeir hafa ákveðið. að senda páf
anum skeyti til að mótmæla
þvf, að Vatikan-lundurinn ræoi
yfirlýsingu þess efnis, að Gyð-
ingar séu saklausir af kross-
festingu Jesús. Þetta gera
þeir á þeim forsendum, að
umræður um orð hinnar heil-
ögu ritningar og 2000 ára
gamla trú hafi lamandi áhrif
á einingu krisfinna manna.
Samkvæmt þessu vilja þeir að
vara páfann um að ræða þetta
viðkvæma efni r.ánar.
8
Þáttur kirkjunnar
Hvað virðist yður um Krist
Hvað virðist yður um Krist?
er spurning dagsins. Og ef til
vill mætti segja. að þetta gæti
verið spurning heimsins og til
heimsins í dag.
Menning og hamingja ein-
staklings, þjóða; eða mann-
kyns er meira háð svarinu við
þessari spumingu en ef til vill
nokkru öðm.
Farisear og Saddúkear nú
tímans, Farisear og Saddúke-
ar allra kynslóða hafa 'raun-
verulega aldrei lagt það á sig
að íhuga svarið við þessari
spumingu svo verðugt væri.
En Fariseinn er og verður
tákn hins andlega hroka, þröng
sýni og trúarrembings, en
Saddúkeinn tákn gervi-
mennsku, hégómaskapar og
andlegs kæruleysis, en hinir
síðarnefndu þykjast samt boð-
berar og fulltrúar vísindalegr-
ar menningar og fullkomnunar.
En Kristur fylgir hvorugum.
Og hvorki Fanseinn né Sadd
úkeinn, hvorki kreddupostul-
inn né efnishyggjumaðurinn
skilur hann. Þeir era með ei-
lífar vangaveltur um guðfræði
og kennisetningar, játningar
og form. En Jesús var á móti
öllu þess háttar. Hann var Jes
ús, sem þýðir frelsari, og eng
inn var frjálsari né djarfari í
kenningum og dagfari heldur
en hann. Hann spurði svo
sannarlega ekki Fariseana að
því hvort hanu mætti nefna
fugla og blóm í kenningum sín
um eða skýringum. Og hann
spurði heldur ekki hina
drembnu og fínu Saddúkea að
því, hvaða fólk hann mætti
umgangast.
Enda voru þeii fljótir að
finna og segja, að hann sam-
neytti tollheimtumönnum og
bæði konum og körlum, og
þeir kölluðu hann meira að
segja átvagl og vínsvelg. Og
þætti hvoragt fallegt um and
lega leiðtoga nú á dögum.
Þetta sýndist þeim um Krist.
En hvað finnst okkur svo
um Krist, þessu kristna og
menntaða fólki nútímamenn-
ingar? Era ekki flestir sem
líta á hann sem einhvers kon
ar stofnanda og stjórnanda
margs konar hátíðlegra helgi
siða og bókstafsþjónustu? Og
þeir, sem þykjast þjóna hon-
um bezt binda sig í fjötra,
byrgja sig í kró einhverra
þröngra kenninga, sem af-
marka þá frá öllum öðram,
og draga þá í dilka einhverra
rangskilinna ritningargreina.
Og allir, sem aðra skoðun hafa
á sömu orðum biblíunnar eiga
svo að vera eilíílega útilokaðir
frá Guði og öllu góðu og
helzt enginn stiður heiiViill
nema helvíti.
Og ekki þýðir r.iikið að benda
þessum blessuðum „fylgjend
um“ á, að þetta muni nú vera
fjærri þeim anda og krafti,
sem yfirleitt einkennir þann
Jesúm, sem guðspjöllin segja
frá Þeir reiða þá til höggs
einhverja ritningagrein og
þar með er málið útrætt frá
þeirra hálfu.
Þetta era hclztu einkenni
þeirra, sem telja sig einir hafa
rétta trú, það er að segja rétt-
an skilning á Jesú Kristi, sögu
hetju guðspjalianna í þeirri
kirkju, sem þó er kennd við
hann. Og nú stendur yfir
kirkjuþing suður í Róm, þar
sem sá andi kemur í ljós, sem
rfkt hefur öldum samán að
enginn má teliast kristinn,
hvað þá heldur í kirkju Krists,
nema hann eða hún hegði sér
nákvæmlega í lielgisiðum, skoð
unum og játningum eftir ein-
hverjum tilbúnum og hefð-
bundnum fyrirmælum frá
kirkjuþingum og klerkum
löngu liðinna alda. Linnulaust
er deilt um alls konar smá-
atriði og hindurvitni, svo *.ð
hægt er að furða sig á, að
þetta skuli vera menn með
viti og hálærðir biskupar í
þokkabót. Líklegt má teljast,
að hvorki Kristur sjálfur né
postular hans yrðu teknir í
sjálfa katólsku Irirkjuna og ef
til vill ekki sumar hinna held
ur, því að auðvitað höfðu
þeir aldrei séð það eða játað
því, sem soðið var saman löngu
eftir þeirra daga af forskrúfuð
um klerkalýð, hvað þá held-
ur fylgt öllum helgivenjum um
signingar, vígslui og helgar tíð
ir, sem þeir höfðu aldrei heyrt
nefndar. Og hvað þá um fólk-
ið, sem Kristur hrósaði sjálfur
fyrir trú, það er að segja rétta
aðstöðu til Guðs, t. d. Sam-
verjann, hundraðshöfðingjann
og kanversku konuna eða hór-
seku konuna, sem allt vora
taldir svörtustu heiðingjar og
villutrúarmenn.
Hvað virðist yður svo um
Krist? Er hann sá, setn kirkj
an boðar á þennan þröngsýna
hátt með öllum sínum ströngu
fyrirmælum, eða er hann Jes
ús-frelsari frá öllum þessum
boðum og bönnum til mann-
legrar afstöðu eíns einasta boð
orðs, sem auðvitað er erfitt,
en geymir þó citl, hinn sanna
anda Krists. Elska Guð af
öllu hjarta og aðra menn eins
og sjálfan þig, og svo getur
þú verið kristinn, jafnvel þótt
þú værir Búddatrúarmaður,
Shintóisti eða Múhamedstrúar
í háttum og helgivenjum. „Til
frelsis frelsaði Kristur oss“,
sagði umdeildur foringi og
fylgjandi Krists á fyrstu öld
og hann sagði líka: „Lífið er
mér Kristur, og þar er hitt
í mark“. Og í frægasta ljóði
heimsins er þessi hending:
„Þótt ég hefði svo takmarka-
lausa trú að fær? mætti fjöll
úr stað, en hefði ekki kærleika,
þá væri ég ekki neitt“, ekki
kristinn, ekki neitt. En finnst
ykkur það vera fyrst og
fremst kærleikur og mannleg
samúð, sem birtist í öllum deil
um og orðahnippinguen, bók-
stafsdýrkun og ritningafjötr-
um kirkjuþinga og funda?
Tilgangurinn er góður og
markmiðið, ef til vill eining
og friður, að minnsta kosti
held ég að Jóhannes 23. páfi
hafi viljað vel. En svo hylst
markmið og tilgangur í mold
viðri orðaþvælunr.ar og myrkri
staðnaðra kenr.uiga um Krist.
Og meira að segja hér úti á
íslandi er þessi óheilla aftur-
göngustefna farin að skjóta
upp kollinum. Og þar gátuð
þið tekið eftir orðum spekinga
og menningarieiðtoga í blöð-
utn um daginr, viðvíkjandi
stjórnarfundi Lúlherska heims
sambandsins héi. Auðvitað er
gagnrýni á íslenzku kirkjuna
réttmæt. Og kirkjan þarf að
taka breytingum og framför-
um í anda hins frelsandi mátt
ar frá orðum og lífi Jesú Krists.
En hitt er jafn fráleitt, að
það verði með þ vi að bindg sig
fastar og aftur á klafa löngu
úreltra játninga að orðalagi og
jafnvel hugsun, og taka upp
keningar og viðhcrf Lúthers
og þýzkrar ortodoksiu frá 16.
öld og fara að syngja og iðka
Þorlkástíðir og Guðbrandsbæn
ir -í Skálholti og Hólum. Eða
þá hitt, sem annar benti á, að
íslenzkir prestar ættu fyrst og
fremst að hætia að tala um
vorblóm og lóusöng og snúa
sér að orðalagi biblíunnar og
Vídalíns. Hinn umdeildi Krist-
ur innleiddi siálfur talið um
jarðargróður, /blóm og fugla,
og hann leyfði sér líka að tala
um kindur, fiska og atvinnulíf,
Fyrir þetta var hann misskil
inn og hataður, en hann hnik
aði ekki um fet aftur á bak
frá sínu orðalagi.
„Hvað virðist yður um
Krist?“ Er hann ekki fyrst og
fremst andi lífs og vaxtar,
andi frelsis, sanr.Ieika og frið
ar f sálum og samfélagi manna.
Var það ekki það, sem hann
meinti með orðunum: „Minn
frið gef ég yður Verið í mér
þá verð ég í yður “
Árelíus Níelsson.
Trúlofunarhrmgaf
afgretddlr samdægurt
SENDUM UM ALLT LAND
HALLD0R
SkólavSrCustlg t
Maður óskast
Mann vantar til bústarfa að ríkisbúinu Bessastöð-
um. Aðalstarf hænsnahirðing- — Upplýsingar í
TIL SÖLD:
Volkswagen ‘63 verð kr. 85
þús.
Volkswagen ‘60 verð kr 60
þús.
Volkswagen ,59 verð k/ 50
þúa
Fíat 1100 -60 verð kr. 75 þús.
Renault R 8 ‘63 verð kr.
120 þús
Saab ‘63 verð kr. i40 þús
Ford '57 fæst fyrir skuldabréf.
Merzersmith þríhjól 2ja tnanna
Prins ‘62 verð kr 95 þús
Chevrolet ‘60 verð kr. 140 oús.
Fjöldlnn allur af eldri biium,
Rauðará — Skúlagatv 55
Síml 15 8 12.
síma 11088.
Auglýsið í Tímanum
HARMONIKA
Mjög vönduð harmonika.
4 kóra, til sölu. — Sann-
gjarnt verð- Upplýsingar í
síma 1-44-92.
LÍFLÖMB
TIL SÖLU
Nokkur grá og flekkótt
lömb af hreinræktuðum
stofnum til sölu í d?.g cg
næstu daga. Upplýsingar í
síma 51286.
T [ M i N N, sunnudagur 4. október 1964.