Tíminn - 06.11.1964, Blaðsíða 1
SÍMA-
KLEFI
MB—Reykjavík, 5. nóv.
* Þessa dagana er veriS að
setja upp nýjan símaklefa í
miðbænum, á horni Banka-
strætis og Lækjargötu. Klefi
þessi er með nokkuð öðru
sniði en þeir sem hingað til
hafa verið settir upp í Reykja
vík, en af sömu gerð og klefi
sem settur var upp í Hafnar-
firði fyrir nokkru, en var
skemmdur svo mikið, að starf-
ræksla hans var lögð niður.
Er hann úr gleri og stáli, smíð-
aður í Rafha. Mikil brögð hafa
verið að skemmduim á símaklef
um hér, en vænta má, að
skemmdarvargar verði ragari
við eyðileggingarstarfsemi sína,
þegar klefinn er úr gleri í
hjarta bæjarins. Slíka klefa
skortir tilfinnanlega, en rekst
ur fæstra þeirra hefur borgað
sig vegna skemmdarvarga Ekki
mun ákveðið hvort fleiri klef
ar verða settir upp, fyrr en séð
verður hvort óaldarlýðurinn
lætur þennan í friði.
ÞÝZKIRMEC
KJARNORKU
SPRENGJU?
JK—Reykjavík, 5. nóv. Heimildirnar segja, að kjarn-
Meðal blaðamanna í Vestur-Þýzka orkuveldin viti af þessari nýjung,
landi gengur um þessar mundir en viti ekki, hver sé formúlan
orðrómur um, að þýzkur vísinda fyrir henni, en hún sé traustlega
maður hafi fundið formúluna fyrir geymd á vegum ríkisstjórnarinn
nýrri gerð kjarnorkusprengja ar í Bonn. Þetta eru í stuttu máli
sem muni gerbreyta tækni við sameiginleg atriði hinna þriggja
notkun slíkra vopna. Helzta ein- heimilda. Eramhald a 2. síðu.
kenni þessarar sprengju er sagt
vera, að hún taki 10—20 sinnum
minna rúm en jafnsterk sprengja
af venjulegri gerð.
Blaðamaður Tímans var stadd
ur í Þýzkalandi fyrir helgina og
hefur þrjár samhljóða en óskyld-
ar heimildir fyrir þessari frétt,
sem hefur enn ekki birzt í þýzkum
blöðum, svo vitað sé.
Prófessor Martin við eðlisfræði
deild háskólans í Kíel á sam-
kvæmt þessum heimildum»að hafa
fundið upp nýja aðferð við kjarna
klofnun, sem muni gera kleifa
„kiarnorbusprengju i skialatösk-
unni“ þ.e. mjög litlar og handhæg
ar kjamorkusprengjur með ó-
hemju sprengiafli.
Birta ,leynilistann# yfir
handritin sem á að skiia
Aðils—Khöfn, 5. nóv.
Berlingske Aftenavis birti í dag
„leynilega listann“ yfir þau hand
rit, sem danska kennslumálaráðu
neytið telur eðlilegt að afhent
verði til íslands, en þessum lista
hefur verið haldið vandlega leynd
um hingað til. Jafnframt hefur
þingmannanefndin, sem fjalla á
um frumvarpið um afhendinguna,
hafið störf sín og var Paul Nils-
son, stuðningsmaður afhendingar
innar, kjörimi formaður nefndar
innar.
Berlingske Aftenavis birti þessa
frétt sína um leynilega listann á
forsíðu, en hann er síðan birtur
í heild á 12 og 13 síðu Dlaðsins.
Á forsíðu blaðsins er m.a við
tal við harðasta andstæðing af-
hendingarinnar, prófessor Brönd
um-Nilsen, og er hann m. a. spurð
ur að því, hvað hann hafi vitað
um listann áður. Hann svaraði:
— „Ekkert annað en það, að hann
var gerður af tveim embættis-
mönnum að beiðni kennslumála-
ráðherra, sem fól þeim að gera
lista yfir þau handrit sem kalla
mætti „íslenzka menningareign".
Samkvæmt þessu hafa þeir síðan
gert þennan lista.“ Bröndum-Niel
sen kvaðst aldrei hafa séð þennan
lista sjálfur, og sagði, að hann
hafi heldur ekki verið sendur
Árna Magnússonar-nefndinni.
Bröndum-Nielsen sagði einnig,
að mörg þeirra handrita, sem væru
í listanum, væri ekki hægt að
kalla „íslenzka menningareign“,
og lagði áherzlu á, að haun viður
kenndi á engan hátt, að íslending
ar hefðu rétt til nandritanna.
Hann kvað kröfur Islendinga ekki
vera í neinu samræmi við gjafa-
bréf Árna Magnússonar, sem
kvæði á um, að ekki mætti skipta
safninu, og það væri únnig skoð
un vísindamannanna, að ekki bæri
að skipta vísindastarfinu, heldur
Framhald á 2. siðu
Jón H. Magnússon
í dag birtum við viðtal,
sem Jón H. Magnússon hef-
ur átt við Lowell l'homas
um Arabíu-Lawrence. þar
sem hann segir frá kynnum
sínum af „Ljóshærða Bedú-
íanum“ — Siá bls. 8—9.
Thomas
Stungið fyrir Iðngörðum
i gær var stunglð fyrlr Iðngörðum h.f. nýju fjöliðiúveri, sem .eisa á við
Grensásveg. Munu þar mörg iðnfyrirtæki verða til húsa með starfsemi
sína. Viðstaddir athöfnina i gærmorgun voru ýmsir framámenn iðn-
fyrirtækja, iðnaðarmálaráðherra og borgarstjórinn i Reykjavík. Myndin
var tekin við þetta tækifæri. (Timamyna G.E.)