Tíminn - 06.11.1964, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 6. nóvember 1964
Karl Kristjánsson:
Trausti Árnason
var Þingeyíngur að uppruna, fædd
ur 7. ágúst 1888. Hann ólst upp
á Hólmavaði í Aðaldal. Fór all-
víða, var fiskmatsmaður norðan-
lands lengi, búsettur á Akureyri
og Siglufirðí og um skeið bóndi
á Skaga. Hann var vel gefinn mað-
ur, fríður sýnum, vinsæll, skáld-
mæltur. Hann unni æskustöðvum
sínum heitt og kom þangað oft
til funda. Eitt sinn á seinni árum
orti hann þessa vísu staddur á
Hólmavaði:
Hér við Laxár hörpuslátt
hryggð er létt að gleyma.
Ég hef — finnst mér — aldrei
átt
annarstaðar heima.
Trausti andaðist 5. september
s.l. Ástvinir hans fluttu hann á
æskustöðvarnar til jarðsetningar
að Nesi í Aðaldal. Það var nær-
gætnislegt og fallegt af þeim.
Steingrímur Baldvinssson, skáld í
Nesi heilsaði honum og kvaddi
hann við útförina fyrir hönd æsku
vina og héraðs með þessu
frumorta, fagra kvæði:
Ungur fórstu heiman úr æsku
dalnum, Trausti,
----innsta þráin kvaddi sinn
draum við gatnamót.
Reykdal
Nú vitjar þú hans aftur, eins og
litverpt lauf á hausti
leitar hinstu hvíldar við ættar
meiðsins rót.
Viðkvæmnin og tryggðín í sálu
þinni sungu
söngvana um dalinn, er alltaf
var þér kær.
Á hreinu, fögru máli J)ér liðu
ljóð af tungu
— lind þíns sanna eðlis — svo
björt og kristaltær.
Einkum var þér hjartfólginn
einn bær hjá bláum straumi,
— hin bjarta elfur sveitarinnar
hug þinn til sín dró —
Kallaði í vöku og kom til þín
í draumi
kæra æskuheimilið og fólkið,
sem þar bjó.
Æskuvinir þakka þér minning
morgunbjarta
og milda, eins og vorið, sem
nýjum gróðri ann,
minningarnar kæru um heitt og
göfugt hjarta,
um hugsjónír og fórnarlund og
tryggð við sannleikann.
MINNING
Pétur Jónsson
Hann lézt hinn síðasta dag sept
embermánaðar, 72 ára að aldri,
fæddur 6. apríl 1892.
Hér verður eigi skráð æviminn
ing Péturs Jónssonar frá Nauta-
búi. Þar verða efaláust aðrir til,
sem kunnugri voru störfum hans
og ferli eftir að hann hvarf til
Reykjavíkur á miðjum aldri og
gerðist starfsmaður Tryggingar-
stofnunar ríkisins. En votta vildi
ég honum látnum þakkir fyrir
gömul kynni, þótt með færri orð-
um verði og einkum fátæklegri,
en hæfa mundi minningu þvílíks
öðlingsmanns.
Við vorum saman á Hólum ung
ir menn. Við vorum saman einn
vortíma á Akureyri. Seinna unn-
um við saman, ungir og áhugasam
ir, að ýmsum félagsmálum, sam-
vinnumálum, stjórnmálum. Á vin-
áttu okkar og samstarf allt á þeim
árum bar aldrei skugga. Ég dáðist
að Pétri, leit upp til hans. Ég
var honum lítið yngri að árum,
hann var mér til muna eldri að
öllum þroska.
Pétur Jónsson var míkill atgerv
ismaður, vel gefinn og gerður sem
þau systkini og ættmenn aðrir.
Hár og íturvaxinn, afreksmaður
um afl og fimi, bjartur yfirlitum,
fríður sýnum og sviphreinn, mað
urinn allur drengilegur og alltaf
bjart í kringum hann. Hann var
skarpgreindur, hugsaði mikið og
kafaði stundum djúpt, braut heil-
ann um lífið og tilveruna á tvítugs
aldri. Hann var fátækur framan af
ævi, hafði og fyrir mörgum að sjá.
En hann hefði aldrei getað orðið
þræll — hvorki fátæktar né fé-
hyggju, hvorki örbirgðar né auðs.
Til þess var hanp of sannur höfð-
ingi.
Við fráfall Péturs Jónssonar á
ég einum fornvini færra. Hann er
minnisstæður fyrir marga hlott.
En hugstæðastur verður mér
hann fyrir karlmannlega, æðru-
lausa skapgerð, óbrigðula góðvild
og öðlingslund. Það er gott að
mega minnast hans sem gamals
vinar.
Konu hans og börnum bið ég
allrar blessunar.
Gísli Magnússon.
Til sölu fiskibátur
100 rúml. fiskibátur 3ja ára gamall, með öllum
fullkomnustu siglinga- og fiskileitartækjum, ásamt
síldarnót.
Útborgun og greiðsluskilmálar óvei.ju hagstæðir.
SKIPA- OG
VERÐBRÉFA.
SALAN __ .
'SKIPA-
LEIGA
VESTURGÖTU 5
Vesturgötu 5 — sími 13339.
Talið við okkur um kaup og sölu fiskiskipa.
TIL SÖLU
Til sölu er 4ra herbergja íbúð
í Álftamýri, félagsmenn hafa
forkaupsrétt lögum sam-
kæmt.
Byggingarsamvinnufélag
Reykjavíkur.
Látið okkur stilla bifreið-
ina fyrir veturinn.
BÍLASKOÐUN
Skúlagötu 32. • Sími 13 100
RYÐVÖRN
Grensásveg 18 sími 19945
Nú er rétti tíminn
að ryðverja bifreiðina
fyrir veturinn með
Tectyl
Hl
LOGTAK
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undan-
gengnum úrskurði verða lögtökin látin fram fara
án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð
ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þess
arar auglýsingar, fyrir eftirtöldum giöldum:
Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miða-
gjaldi, gjöldum af innlendum tollvörutegundum,
matvælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs
fatlaðra, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, bifreiða-
skatti, skoðunargjaldi af bifreiðum cg tryggingaið
gjaldi ökumanna bifreiða fyrir árið 1964, sölu-
skatti 3. ársfjórðungs 1964 og hækkunum á sölu-
skatti eldri tímabila, útflutnings- og aflatrygging-
arsjóðsgjaldi, svo og tryggingaiðgjöldum af skips-
höfnum ásamt skráningargjöidum.
Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 4. nóv. 1964
Kr. Kristjánsson.
EIGNASALAN
Ingólfsstrætj 9.
Til sölu
Nýleg 6 herb.
íbúð á 1. hæð við Hvassa-
leiti ásamt einu herb. í
kjallara.
Vönduð 140 ferm.
6 herb. íbúð við Sóiheima,
teppi fylgja, hagstæð lán.
4ra herb.
íbúð á 1. hæð í Skjólunum,
sér hiti, bílskúr fylgir.
110 ferm 4ra herb.
íbúð við Kleppsveg, teppi
fylgja.
Glæsileg
ný 3ja herbergja endaíbúð
í fjölbýlishúsi við Fellsmúla
harðviðarinnréttingar,
mosaik á baði og eldhúsi,
teppi fylgja, tvöfalt gler.
3ja herb.
íbúð á 1. hæð í miðbænum.
Vönduð 3ja herb.
íbúð á III. hæð við Hjarð
arhaga.
Lítið niðurgrafin 3ja herb.
kjallaraíbúð við Njörvasund
sér inng. nýlegar ínnrétting
ar.
2ja herb.
efri hæð í Norðurmýri.
2ja herb.
íbúð i háhýsi við Ljósheima
selst tilb. undir tréverk,
hagstætt lán áhvílandi.
Ennfremur einbýlishús og íbúð
ir í 8míðum í miklu úrvali.
ö‘,fhurðir *.
EIGNASAIAN
HHKJAVIK
jJóróur (§. cllalldórÁ6on
l6eqlltur fa*Mgna*aU
fngöltsstræt) 8.
Símai 19540 og 1919É
eftii kL 1. Sími 36191.
Járnsmíðavélar
útvegum vér frá Spáni með stuttum fyrirvara-
RENNIBEKKIR — BORVÉLAR — PRESSUR,
FRÆSIVÉLAR — HEFLAR o. fl.
Verðin ótrúlega hagkvæm.
Mynda- og verðlistar fyrirliggjandi
FJALAR H.F.
Skólavörðustíg 3, símar 17975 og 17976.
Starf
Ijósameistara
við Þjóðleikhúsið er laust
frá 1. janúar 1965. Laun
samkvæmt launakerfi op-
inberra starfsmanna-
Umsóknir sendist þjóðleik-
hússtjóra fyrir 1. desember
1964.
TIL SÖLU
Sjálfvirkt olíukyndingar-
tæki WINKLER, miðstöðv
arketill 6 ferm., 2 heita-
vatnsdunkar og kolakynnt-
ur þvottapottur er til sölu
að Nesvegi 51 — sími
1-49-73.
FASTEIGNAVAL
Skólavörðustíg 3. II hæB.
Sími 22911 og 19255
TIL SÖLU itt A.:
134 ferm.
nýtískuleg hæð við Bugðu-
læk. fbúðin er 2 stofur, 3
svefnherb. húsbóndaherb.,
baðherh., og eldhús. Allt
teppalagt. Laust fljótlega.
5 herb
íbúð ásamt 1 herb., i kjall-
ara í sambýlishúsi við Skip-
holt.
4ra herb.
110 fenm. íbúð á 3ja hæð
við Kleppsveg.
4ra herb.
110 ferm. íbúð við Öldugötu
4ra herb.
100 ferm íbúð við Grettis-
götu.
4ra herb.
góð efri hæð 110 ferm.
ásamt bílskÁ- við Kvisthaga
4ra herb.
íbúðarhæð í sambýlishúsi
við Háaleitisbraut,
3ja herb.
íbúð ásamt sér þvottahúsi
við Kleppsveg.
3ja herb.
íbúð ásamt 1 herb. í risi í
nýlegu húsi við Langholts-
veg.