Tíminn - 11.11.1964, Side 1
Myndin hér að ofan er tekin, þegar verið var að grafa f skrlðunni í gæ r. Byrjað var að moka upp ruðnlngnum með ýtuskóflu, þar sem eng-
inn vissi að drengirnir hefðu lent undir ruSningnum, þegar hrundj úr bakkanum. Þarna eru verkamennirnir farnir að grafa við Ijósin frá
ýtuskóf lunni.
2 DRENGIR GRÓFUST
UNDIR M0LDAR3IISS
Annar lézt samstundis,hinn höfuðkúpubrotinn
KJ-IGÞ—Reykjav. 10. nóv.
í dag varð aftur banaslys
á svæðinu við gatnamót
Miklubrautar og Grensás-
vegar, þar sem götur eru
nú allar uppgrafnar vegna
ýmiskonar framkvæmda. !
þetta sinn grófust tveir
drengir undir moldarbakka
með þeim afleiðingum, að
annar lézt, en hinn liggur
stórslasaður í sjúkrahúsi
Þetta slys varð aðeins
nokkrum tugum metra frá
þeim stað, þar sem barn
drukknaði í skurði um há-
degisbilið í gær Þessir tveir
hörmulegu atburðir. sem
hafa orðið á litlu svæði og
með skömmu millibili,
vekja óhjákvæmilega þá
spurn, hvort öryggisráðstöf
unum sé ekki alvarlega á-
bótavant, þar sem verkleg-
ar framkvæmdir eiga sér
stað hér í bænum. Verður
að krefjast skýringar á því,
hvernig á því getur staðið
að þannig er búið um þessi
framkvæmdasvæði, að þau
eru lífshættuleg.
Enginn vitni urðu að slysinu
í dag, frekar en í gær, þegar
óviti einn var til frásagnar um
drukknaðan leikbróður sinn.
Slysið í dag gerðist, þegar
verkamenn voru í kaffi, eða
milli kl. þrjú og hálf fjögur.
Hagar þannig til á slysstað, að
Miklabrautin hefur verið graf
in niður um eina fjóra metra,
og standa háir moldarbakkar
að henni að norðan og sunnan
í dag var unnið að því að
malbika nyrðri akreinina, en
að henni eru bakkarnir sýnu
Framhald á 15. siðu.
2 DAUÐASLYS
I HAFNARFIRDI
OG SILFURTÚNI
EJ—Reykjavík, 10. nóv.
Tvö banaslys urðu í Hafnar
firði og í Silfurtúni í dag. Á
Arnarhrauni ók bifreið yfir 3ja
ára gamlan dreng, sem var þar
að leika sér á þríhjóli og ná-
lægt biðskýli við Ásgarð á
Hafnarfjarðarvegi>num var ekið
á fullorðna konu, sem lézt af
áverkunum.
Fyrra slysið varð um hádegis
leytið í dag á veginum á Arn
arhrauni. Þriggja ára gamall
drengur var þar að leika sér
á þríhjóli. Að þvi er talið er,
mun hann hafa verið fyrir aft
an bifreið, sem lagt hafði verið
við vegarbrúnina, en síðan
skyndilega hjólað af stað og út
á veginn. í sömu svipan kom
„station-bifreið“ akandi á sömu
vegarbrún og hún ók yfir dreng
inn. Talið er, að hann hafi lát-
izt samstundis.
Hitt dauðaslysið varð síðar í
dag, en lögreglunni í Hafnar-
firði var tilkynnt um það kl.
18,25. Sjúkrabifreið var þegar
send á vettvang, og kom þá í
Framhald á 14 síðu.
var tekin skömmu
áSur en hrundi úr bakkanum sem
ber i ruðninginn milli akbraut-
anna. Tveir drengir sjást standa
uppl á honum. (Tímamynd KJ).