Tíminn - 11.11.1964, Síða 3

Tíminn - 11.11.1964, Síða 3
3 MIÐVnOJDAGUR 11. nóvember 1964 TÍMINN Þessar fögpu yngismeyjar taka þátt í Miss World- fegurðarsamkeppninni í London, og er þar fulltriii fslands Rósa Einarsdóttir, sem sézt sitjandi í sófanum nr. 2 frá hægri. Standandi f. v.: Ann Sydney, Bretlandi, Jeanne Marie Quinn, USA, Lyivdal Gruickshank, Nýja Sjálandi, Yvonne Mort- ensen, Danmörku, og Mary Lousie Farrell, Kanada. Sitiandi f. v.: Renske van der Berg, Hollandi, Norma Chin-Ten-Funrg, Surinam, Julianc Herm, Þýzkalandi, Rósa, íslandi, Vedra Karamitas, S- Afríku, og Maila Maria Ostring, Finnlandi. I brezka sjónvarpinu BBC er vinsæll þáttur, sem kallast „Hjónabandið í dag“. Nýlega komu / þar fram tvö 6 ára hjónaleysi, sem ræddu um fyr irhugað hjónaband sitt. Þau segjast vera trúlofuð, og for- eldrar þeirra hafa leyft „trú- t«flininí>“>. Þau hittust fyrst þegar þau gengu í undirbúningsskóla sam an fyrir einu ári síðan, cn þá lentu þau við sama borð. í sjónvarpsþættinum ræddu þau af mikilli alvöru um trúlofun sína, sögðu hversu mörg börn þau ætluðu að eignast og ræddu um hjónabandið al- mennt. •k Læknar í ríkinu Victoria í Ástralíu hafa náð merkilegum árangri í sambandi við nýja töflu, sem hindrar stúlkur í því að verða of háar. Kallast tafla þessi Stilboestrol og er gerð úr hormónaefni. Ef árang ur á að nást, þarf meðhöndlun stúlknanna að hefjast þegar þær eru 8—10 ára gamlar. Sá sérfræðingur í Melbourne sem fyrstur notaði Stilboestrol aðferðina, tilkynnti nýlega, að honurn hefði tekizt að hindra vöxt 30 stúlkna, sem óttast var að yrðu hærri en 168 em. En hann lagði líka áherzlu á. að hér væri um miög vandmeð- farna aðferð að ræða, og væri því ekki rétt að venjulegir lækn ar hefðu slíka lækningu með höndum. ★ Nokkuð hefur verið vætt um það hér að setja flúor í drykkj arvatn til þes að varna tann- skemmdum. Þetta hefur verið gert víða, m. a. í Canberra, höfuðborg Ástralíu, en bar létu yfirvöldin setja flúor í allt neyzluvatn nýlega. En íbúar Canberra voru ekki allir yfir sig hrifuir af þessu uppátæki yfirvaldanna, og töldu það óhæfu, að yfir- völdin væru þannig að þvinga lyfi sem þessu inn á borgar- búa. Andstæðingar flúorsins létu ekki standa við orðin tóm: — Þeir keyptu sér vélar fyrir 2000 krónur stykkið, sem fjar lægia flúorið úr vatninu' •k Þióðþin-g Fílabeinsstrandar- innar samþykkti nýlega bylting arkennd lög um hjónaband, þar sem fjölkvæni og kvennakaup eru bönnuð. Er þetta algjör- lega andstætt venjum og sið- um Afríkumanna, og róttæk- ustu lögin á þesu sviði, sem hin nýfrjálsu ríki Afríku hafa sam þykkt til þessa. Samkvæmt liinum nýju lög um er giftingaraldurinn fyrir pilta 18 ár en 16 ár fyrir stúlk ur. Einnig eru í lögun im ná- kvæmar reglur um hjónaband, hjónaskilnað, erfðarréttindi og margt fleira. ♦ HL J ÓMPLÖTU-f y rirtækið brezka, Electrical and Musical Industries Ltd. græðir heldur betur um þessar mundir. — Tekjuafgangurinn frá 1. júlí 1963 til 30. iúní 1964 var hvorki méira né minna en 480 milljónir íslenzkra króna! ★ Hin'ir hvítu íbúar Suður- Afríku æfa sig nú af mikilli kostgæfni í vopnaburði til þess að geta skotið s«m flesta blökkumcnn, ef þeim skyldi detta í hug að gera uppreisn gegn hinum hvítu kúgurum. Venja er, að hvítir menn beri ávallt á sér vopn, og nú hafa tízkumenn þar syðra tekið til- lit til þessa í nýjustu kven- tízku sinni. Þeir eru nefnilega farnir að framleiða brjósta- höld með „innbyggðu“ hulstri fyrir skammbyssu, og seljast þeir eins og heitar lummur. Drengirnir fimm á myndinni eru allir bræður og myndin af þ eim er tekin fyrir framan Péturskirkjuna í Róm, en þangað fóru þeir ásamt móður sinni, lengst t. v., og prestinum sínum, Salvatore Buccoleri, til þess að fá áheyrn páfans. Drengirnir voru allir fæddir blindir, en nú nýlega gegnust þeir allir undir uppsburð og árangurinn varð sá, að þeir fengu allir sjón í fyrsta sinn. 3 herb. eldhúr. með öllum þægindum er til sölu nú þegar. Upplýsingar gefur. Magaus Árnason, lögfr.. Búnaðarbankahúsinu. Atvinna j - Matstofa Kona vön störfum á veit- ingastofu óskast, til að veita kaffi og matsölu forstöðu. ( Þarf að vera reglusöm. Tilboð óskast sent af- I greiðslu Tímans, Banka- stræti 7 fyrir 18. þ. m. i Auðkennt: Forstöðukona. IddF ////'/'. m Einangrunargler Framleitt einungis úr úrvals gleri — 5 ára ábyrgð. Pantið tímanlega. Korkiöjan h. f. Skúlagötu 57. Sími 23200 TRULOFUNAR HRINGIR AMTMANNSSTIG 2 I HALLDÖR KRiSTINSSON jguilsmiður. — Sími 16979 BÍLALEIGAN BlLLINN RENT-AN ICECAR. Símj 18833. C'onSut C'ortinei Con," fáfdMa -feppa. 2.Pkv. v BÍLALEIGAN B9LLINN HöFPATÚN 4 Simi 18833 SUÐMUNDAR Bergþárugötu 3 SJmar 19032, 20070 Hefui ávatli ti) sölu allai teg undii bifreiða. Tökuro bifreiðai I umboðssölu Öruggasta bíönustan. GUÐMUNDAR Bergþórugötu 3. Símar 19032, 20010.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.