Tíminn - 11.11.1964, Page 9

Tíminn - 11.11.1964, Page 9
I taltJ v m(JDAGTTR 11. nóvember 1964 TÍMINN Austurátt: Erich Mende varakanslari (lengsf fil hægrl) rsðir við nokkra blaðamenn. Jónas Kristjánsson, biaðamað- ur Tímans er þriðji frá hægri á myndlnní HORFA í SENN Í AUSTUR OG VESTUR stæðs ríkis, og samkvæmt við tölum mínum við Mende og Willy Brandt eru allir þing- flokkarnir sammála um þá afstöðu. Óbeitin á Ulbright og þjónustu hans við Rússa er sterk. Mende segir: Munurinn á Gomulka og Ulbright ei sá, að Gomulka er í fyrsta lagi Pólverji og i öðru lagi komm únisti, en UlbricIU er í fyrsta lagi kommúnisti. Ákvarðanirn- ar eru ekki teknar í Austur- Berlín heldur i Moskvu Samkomulag og sameining ríkjanna varð sífellt fjarlægari, og báðar ríkisstjórnirnar unnu að þeirri þróun. Vesturstjómin leit stöðugt fram hjá austur- stjórninni til Moskvu sem stjómanda Austur-Þýzkalands og austurstjórnin barðist stöð ugt fyrir alþjóðlegri viðurkenn ingu. Þegar Frjálslyndi flokkurinn komst í stjórn 1961, var hliðr- að til um stefnu í ÞýzKalands málunum, og skriður komst á nýju stefnuna, þegar Adenau er var vikið til hliðar tveimur árum síðar. Mende varakansl- Frá stofnun Sambandslýðveld isins Þýzkalands eftir stríðið hefur stjórn þess stöðugt kraf- izt sameiningar alls Þýzka- lands í orði, en á borði hefur hún unnið dag og nótt að þvi að tengja Vestur-Þýzkaland tryggilega hinum vestræna heimi. Árið 1952 var Stalín reiðu- búinn til að leyfa sameiningu Þýzkalands á svipuðum grund velli og Austurriki var sam- einað, með frjálsum kosning- um í öllu landinu og hlutleysi í alþjóðamálum. Sovétríkin sendu nokkrar yfirlýsingar um þetta vorið 1952, en Vesturveldin vísuðu tillögunum á bug að ráði Adenauers. Því varð saga Þýzkalands önnur en saga hins hlutlausa en frjálsa Austur- ríkis. Síðan fór samkomulagið milli Vestur- og Austur-Þýzkalands hríðversnandi og náði lágmarki begar Berlinarmúrinn var reist ir. Uppreisnin i Austur-Þýzká- 'andi 17 júni 1953 hafði sýnt íbúunum þar, að þeir gátu ekki vænzt hjálpar vestan að Þá flúðu milljónir og aftur milljón ir manna vestur yfir. Múrinn 1961 batt endi á flóttann og þá urðu aftur þáttaskil í sam- bandinu milli iandshlutanna. Vestur-Þýzkalands, sagði í við tali við mig og nokkra er- lenda blaðamenn fyrir nokkr- um dögum, að hann áliti þrjú Erich Mende, varakanslari skref marka þróunina frá upp- reisninni 1953, sem hafði sýnt, að kommúnistastjómin í Aust ur-Þýzkalandi gat lafað fyrir tilstilli rússnesku herjanna í landinu og í trássi við vilja al- mennings. Fyrsta skrefið eftir uppreisnina var, að Rússar við urkenndu austur-þýzku stjórn ina og færðu lögregluvald og landamæravörzlu í hennar hend ur. Annað sikrefið var Berlínar -hótun Krústjoffs árið 1958 og loks hið þriðja múrinn 1961. Allt miðaði þetta að þvi að festa tilveru aðskilds Austur- Þýzkalands. Ulbricht, leiðtogi austur- þýzkra kommúnista, varð smám saman að Quisling í augum vestur-þýzkra stjórnmála- manna, og sérhverri tilraun hans til að festa sig og gervi- ríki sitt í sessi var svarað með hörku vestan að. Fræg er Hall stein-kenningin, en samkvæmt henni slítur Vestur-Þýzkaland stjórnmálasambandi við þau lönd, sem viðurkenna Austur- Þýzkaland. Það er hægt að líta á þessa stefnu sem þrjózku, en í reynd er hún stöðugt hróp gegn skiptingu Þýzkalands, sem erlendir stjórnmálamenn verða að taka eftir og hafa gert. Hall stein-keningin hefur borið ár- angur, einkum eftir að Berlín armúrinn opnaði augu manna um allan heim fyrir hinum óeðlilegu aðstæðum í Þýzka- landi. Það varð smám saman að trúarsetningu stjórnmál- anna í Bonn að reyna at öll- um mætti að hindra viðurkenn ingu austurhlutans sem sjálf- ari tók sjálfur að sér Sam- þýzka ráðuneytið. Menn voru orðnir óþægilega varir við gjána milli landshlutanna tveggja. Valdapólitíkin vék um set. Þá hófst hin ævintýralega jafnvægislistarganga stjórnar innar í Bonn. Hafnir voru samningar í leyni við austpr- þýzka embættismenn um gagn kvæma tilhliðranir en þess jafnframt vandlega gætt, að í samningunum leyndist hvergi viðurkenning á austur-þýzku stjórninni, hvorki „de jure“ né „de facto“. Mende varakanslari er mjög ánægður með fyrstu lotu hinnar nýju stefnu tilhliðrana. Samið hefur verið um, að veitt verði leyfi til um tveggja millj ón heimsókna milli landshluta á þessu ári, verzlunin milli austur- og vesturhlutans nem- ur samtals nærri 20 milljörðum ísl. króna í ár, miklar sam- göngur eru á sviði íþrótta og menntamála og hundruð póli tískra fanga i Austur-Þýzka- landi hafa verið keyptir laus- ir. Daglega hittast vestur- og austur-þýzkir embættismenn við samningaborðið. Mende segir, að þetta sé þróun til sameiningar Þýzka lands, en það sé langur og erf iður vegur með tíðum áning- um. Gagnrýnendur segja, að til hliðranirnar leiði óhjákvæmi- lega til viðurkenningar á aust- ur-þýzku stjórninni, og margir Vestur-Þjóðverjar óska nú orð ið jafnvel eftir slíkri viður- kenningu, en Mende vísaði báð- um þessum sl'oðunum á bug. Mende játaði í viðtalinu, að í sameiningarviðleitninni væri verið að berjast við tímann. Fjölskyldu- og ættatengsl milli fólks í báðum hlutunum dofna æ meðan tíminn liður. Því sagði Mende, að leyfin, sem veitt hafa verið Vestur-Þjóð- verjum til að heimsækja ætt ingja sína eystra, og bau, sem veita öldruðum Austur-Þjóð- verjum leyfi til að skreppa vest ur yfir, væru ómetanlegur styrkur í baráttunni við tim- ann. Við verðum að notfæra okkur þessi leyfi, sagði Mende, ferðast austur yfir og sýna, að við í ríka hlutanum höfum ekki gleymt frændunum í fátæka hlutanum. Við viljum örva verzlunina milli austur- og vesturhlutans eins og unnt er, því verzlanasamböndin leiða af sér mannleg sambönd Við keyptum fangana lausa í haust og við erum reiðubúnir til að kaupa fleiri. En alla þessa við leitni okkar reynir stjórnir í Austur-Berlín að nota sér til framdráttar til þess að reyna að afla sér viðurkenningar. Þeir hafa gefið eftir í von um, að þetta leiddi smám saman til viðurkenningar, en þai er- um við á verði, sagði Mende. Eftir því sem Willy Brandt, borgarstjóri Berlínar, sagði mér, er næsta skrefið i sam- þýzkum málurum að reyn? að koma á símasambandi milli borgarhluta í Berlín. Þannig hefur margt breytzt í stefnu vestur-þýzku stjórnar innar síðustu mánuðina en þessar breytingar hafa einnig skapað miklar þverstæður, sem verða erfiðar viðureignar í framtíðinni. Frá því segir nánar í næstu og síðustu grein. Smfónmhliáin- sveit Pittshorgar Með komu Sinfóníuhl.iómsveit ar Pittsborgar, hefir iangþráð ur draumur orðið að verrdeika, eða sá að fá hingað stóra hljómsveit með tlO manns Þótt stærðin segi ekki allt um gæðin, var þessi fjolmenna sveit í hópi þeirra hljómsveíta sem telja má mjög góðar Stjórnandinn Steinberger er einbeittur og viljafastur og virðist hann nafa tileinkað sér vinnubrögð sem nálgast vinnu vísindi. Hann néfir föst tök á tónsprotanum, og hefii í hendi sér alla þræði. sem gera „precision’- og „dynamik1' að hinni eðlilegu uppistöðu, sem einkennir leik hljómsveitar- innar. Á efnisskránni voru þrjú verk, og átti fiðluleikarinn Charles Treger, þar stóran hlut. með einleik sínum í fiðlukonsert eftir ameríska höf undinn Walter Piston. Verkið er áheyrilegt,, ng aðgengilegt og túlkaði Treger það með skiln- ingi og yfirburðum, hins trausta og vandaða listamanns Tónn hans er breiður, og tæknin er byggð á traustum grundvelli. Túlkun hans og samlei'kur þess arar stóru hljómsveitar, var bæði ánægjuleg og lærdómsrík Hámark þessara tónleika var flutningur 3ju sinfóníu Beeth- ovens, sem var framsett af hár nákvæmu samspili. og beim karlmannlega prótti, sein ein kennir hin stuttu en meitluðu temu verksins. T. d. var hrað inn í scherzo-kaflanum og yfir gangurinn í lokakaflann eftir-' minnilegur. Stjórnanda og hljómsveit var i afar vel tekið, og var aukalag . þeirra forleikur eftir R Wagn- er, líkast kröftugum hvirfilbyl, , og komu þar allir beztu kostir hinnar fjölmennu hljórnsveitar vel i ljós. Siníóníutónleikar Aðrir tónleikar - Sinfóníu- hljómsveitarinnar, fóru fram þ. 22. okt. s. 1 undir stjórn Páls P. Pálssonar og cellóein- leik lék þýzka ústakonan Anja Thauer. Þessi unga stúlka sem er einungis 19 ára að aldn. býr yfir þeim neista. sem örugg- lega á eftir að skipa henní á bekk með beztu cellóleikuium Anja Thauer sem lék fantasíu fyrir celló og hljómsveit eftir Francaix er búin mörgum kostum, sem prýða mega góð- an cellóleikara Óvenjuleg heiðríkja birta og mýkt ein- kenna tón hennar, og boga-ör- yggi hennar er mikið Heildar yfirsýn hennar og skilningur á viðfangsefninu er ótrúlega sjálf stæður. Samleikur einleikara og hljómsveitar var vfirleitt jafn og góður. Tvö fyrstu verk efnisskrár- innar voru forleikur eftir Hand el í hljómsveitarútfærslu Eigar og sinfónía í d moll eftir Haydn. Heldur eru þetta dauf og aðgerðalítil verk, þótt góðir höfundar standi að þeim Sin- tónían er óvenju líflítil o^ var flutningur hennar all sundur- laus Verk Leifs Þórarinssor.ar, sem hann nefnir Epitaph setti sinn svip á þessa tónleika. Verk ið er hugsað sem þáttuv í sin- fóníu og var nann nú fluttur hér í fyrsta sinn. Það er viss 1 spenna og eitthvað ferskt og hressandi í þessu verki. Höf- undur kann vel til verka og er sjálfum sér sam'kvæmui í þessum stutta þætti. Leikur hljómsveitarinnar var ágætur og gaf all góða hugmynd um verkið. Myndasýning Mussorgskys, er nú orðin góðkunningi kons- ertgesta, þótt nú kæmu mynd irnar í hljómsveitarútfærslu Maurice Ravel. Efni þeirra sem er hrein „Program-musik1, hef ir ýmis skilyrði til að njóta sín í þessu formi, og hvílir þai all verulegur þáttur á herðum blás aranna. Þó er reyndin sú að píanóið verður sú undirstaða sem þetta verk miðast við. Stjórn Páls P. Pálssonar á þessum tónleíkum og þó sér í lagi á lokaverkinu var örugg og sýndi hánn glögglega stjórn anda-hæfileika og það að hon um er fullkomlega treystandi fyrir fleiri verkefnum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.