Tíminn - 11.11.1964, Qupperneq 12
12
ÍÞRÓTTIR
TÍiVBNN
MIÐVIKUDAGUR 11. nóvember 1964
KNA TTSP YRNUÞANKAR
ÁRSÞING Knattspyrnusambands fslands er á næsta leiti. Þótt allar
líkur séu fyrir því, að þingið, sem fyrir dyrum stendur verði friðsam-
legra en síðasta ársþing, skeður þó líklega margt og merkilegt — og
ekki ólíklegt, að mörg nauðsynjamál fái viðunandi afgreiðslu. Þetta
er þó kannski aðeins tilgáta og betra að vera ekki of bjartsýnn. í
þess'-u stutta spjalli þykir mér rétt að víkja að þremur málum, sem
ef til vill eiga eftir að verða ofarlega á baugi.
VINNUTAP GREITT.
Það er ek'ki nægt að kalla það
atvmnumennsku, að mönnum sé
greitt vinnutap vegna æfinga og
leikja, en að vissu marki hinn
fyrsti vísir að atvinnumennsku. —
Stjórn KSÍ hefur margsinnis sýnt
vilja sinn til að koma þessu máli
í höfn, en æfcíð hefur strandað á
einum aðila, sem sé ÍSÍ.
Heyrzt hefur, að hinir nýju for-
ystúmenn innan ÍSÍ hafi skilning
á þessu máli og muni ekki standa
í veginum fyrir því, að KSI sé
heimilað að greiða knattspyrnu-
mönnum fyrir vinnutap. Það yrði
því ánægjulegt, ef KSÍ-þingið tæki
þetta mál til meðferðar og gerði
því viðunandi skil. Hin svokallaða
, algera áhugamennska" í knatt-
spyrnu er liðin undir lok í flestum
löndum, ný viðhorf hafa skapazt
á breyttum tímum. Það er ekki
lengur hægt að krefjast þess af
mönnum, að þeir cíði fjárhagslegt
tjón vegna íþróttar sinnar. Vegna
sívaxandi dýrtíðar er mönnum nú
ekki kleift að lifa sómasamlega af
venjulegu dagvinnukaupi. Menn
hafa ekki efni á því að sleppa
aukavinnu — og þá kemur að upp
gjörinu, íþróttir eða aukavinna. —
Og það er ekki hægt að lá mönn-
um fyrir að taka vinnuna fram
yfir.
FJÖLGUN LIÐA f I. DEILD.
Heyrzt hefur, að aðilar utan af
landi hafi fullan hug á því að fá
samþykkt á ársþinginu, að liðum
verði fjölgað í 1. deild. Síðan
deildaskiptingin var tekin upp fyr
ir nokkrum árum hafa alltaf verið
G lið í 1. deild, en engin takmörk-
un um fjölda liða í 2. deild.
Þetta sjónarmið á að mörgu leyti
rétt á sér — það er aðeins spurn-
ing hvort fjölgun sé tímabær á
þessu stigi. Ef liðum yrði fjöigað
yrðu þau 8 í stað 6 áður. íþrótta-
lega séð yrði hér um mjög já-
kvætt skref að ræða, en fjárhags-
lega hliðin yrði óviss. Ferðalög
eru dýr og til gamans má geta þess
hér, að hagnaður hvers 1. deildar
liðs á síðasta íslandsmóti er u. þ.
b. 70 þús. kr. — hefur aldrei verið
meiri áður. Þetta stafar af því, að
1. deildarliðin á síðasta keppnis-
tímabili voru öll á þröngu svæði
— 4 Rvíkurfélög, en utanbæjar-
liðin voru Keflavík og Akranes.
Hefði t. d. Akureyri eða ísafjörð-
ur verið í þessum hóp, hefði hagn
aður hvers liðs minnkað um 20—
30 þús. krónur. Hvort sem þetta
mál verður rætt á þinginu eða
ekki, er fróðlegt að athuga það.
LANDSLIÐSNEFND ER
VANDAMÁL.
Síðasta KSÍ-þing samþykkti að
fjölga í landsliðsnefnd, áður voru
nefndarmenn 3, en eru nú 5. Oft
hefur landsliðsnefnd verið gagn-
rýnd harðlega fyrir verk sín — og
sjaldan hefur gagnrýnin verið
meiri en einmitt á síðasta keppnis-
tímabili. Það er nú orðið álit
flestra, að það hafi verið spoi aft-
ur á bak að fjölga í nefndinni,
ekki vegna þess, að óhæfir menn
hafi valizt í hana, síður en svo,
því hún var skipuð ágætismönn-
um, en það gefur auga leið, að
eftir því sem nefndarmenn eru
fleiri, því fleiri sjónarmið þarf að
samræma. Og þegar málunum er
þannig háttað vilja endarnir ekki
ná saman, valið á landsliðinu óná-
kvæmt og laust í reipunum.
Það væri því ekki úr vegi, að
ársþingið tæki þetta mál aftur fyr-
ir og kæmi því þannig fyrir, að
landsliðsþjálfara væri falið að
velja landslið sjálfur. Ekki þyrfti
að leggja landsliðsnefnd niður —
hún gæti jafnvel áfram verið skip-
uð 5 mönnum eða jafnvel fleiri —
en hefði þá öðru hlutverki að
gegna, verið nokkurs konar ráð-
gefandi nefnd, sem ynni í nánu
sambandi við landsliðsþjálfara.
— alf.
★ ÁRSÞING HSÍ var haldið
um síðustu helgi og var Ás-
björn Sigurjónsson en^Iurkjör-
inn formaður. Fyrir þinginu lá
vélrituð skýrsla stjórnar og bar
hún vott um mikil störf á síð-
asta starfsári. Vegna þrengsla
í blaðinu verður nánari frásögn
frá þinginu að bíða.
★ RVÍKURMÓTIÐ í körfu-
knattleik hefst um næstu
helgi. Fyrstu leikir verða á
laugardag. Þá léika í meistara-
flokki karla KR og lið stúd-
enta. f 1. .flokki leika sama
kvöld ÍR og KR. — Á sunnu-
dag heldur mótið áfram óg fara
þá þessir leikir fram: 3 fl.
karla ÍR a— KR. 2. fl. karla
Ármann—KR og loks leika í
mfl. karla ÍR og Ármann
Íslandsmeístarar Fram í 2. flokki
Síðasti leikurinn á keppnistímabili knattspyrnumanna okkar var úrslitaleikur i íslandsmóti í 2. aldursflokki
milli i-ram og KR. Fór leikurinn fram á Melavellinum í síðustu viku og lyktaði með sigri Fram 1:0. Eftlr lelk-
inn afhenti Björgvln Schram, form. KSÍ sigujvegurum veglegan bikar og er myndin að ofan frá því. — Á
myndinn! eru: Fremri röð frá vinstri: Anton Bjarnason, Þorbergur Atlason, Sigurður Friðriksson, fyrirliði,
Hinrik Einarsson, Björgvin Schram, form. KSÍ. — Mið röð: Guðmundur Sigurbjörnsson, Árni Marinósson,
Helgi Númason. — Aftasta röð: Hreinn Elliðason, Ólafur Björnsson, Erlendur Magnússon og Ólafur Óiafs-
son. Á myndlna vantar Hallkel Þorkelsson. Þjálfari liðsins var Guðmundur Jónsson.
RITSTJÓRÍ: HALLUR SÍMONARSON
Jan Wichmann, einn snjallasti leikmaður Ajax.
Ajax leikur hér
um næstu helgi
Leikur hér f jóra leiki á vegum Vals
Alf — Reykjavík, 9. nóvember.
Eins og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu, eru vænt-
anlegir hingað til lands dönsku meistaramir i handknatt-
leik, Ajax, í boði Vals. Á fundi með biaðamönnum í dag,
skýrðu forustumenn Handknattleiksdeildar Vals nánar frá
þessari heimsókn.
Ajax hefur alla tíð verið fomstufélag á sviði handknattleiks
íþróttarinnar í Danmörku og hefur oftar en nokkuð ann->ð
félag orðið Danmerkurmeistari, eða 8 sinnum alls. Félagið
varð Danmerkurmeistari 1964 og varð fjórum stigum ofar en
Árhus KFUM, sem varð í öðm sæti.
! Fyrsti leikur Ajax hérlendis verð I
i ur sunnudaginn 15 nóvember kl. I
! 16:00 og ter sá leikur fram í
i íþróttahúsi varnarliðsins á Kefla-
; víkurflugvelli. Það eru íslands-
I meistararnir úr Fram, sem mæta
; Danmerkurmeisturunum í þessum
i fyrsta leik þeirra hérlendis. Fyrir
' Fram verður þetta nokkurs kon-
; ar lokapróíraun undir leik þeÚTa
; í Evrópubikarkeppmnni gegn Sví-
; þjóðarmeisturunum Redbergslid i!
; Gautaborg 8. des nk. Verður
; leikur þessi án efa mjög spennandi
| og tvísýnn.
; Á undan leiknum leika A. og B.
i unglingalandslið er Unglingalands
| liðsnefnd ILS.Í. hefui valið.
Næsti itikur verður svo í íþrótta
j húsinu að Hálo'galandi þriðjudag-
; inn 17. nov. kl. 20.15. Þá mun lið
gestgjafanna VALUR leika geen
Ajax. Verðu> fróðlegt að sjá hvern
ig hinu inga efnilega liði VALS
tekst upp gegn Danmerkurmeistur
unum.
Áður en leikurinn hefst munu
Serizi áskrifendur
að Tímanum —
Hringið í síma
12323
11 I. aldursflokkur frá Val og V’k-
I ing leika.
Þriðji ieikur Ajax verður svo
fimmtudaginn 19. nóv. í íþrotta-
húsinu að Hálogaiandi kl. 20 >5.
Mæta þeir þá íslandsmeisturunum
(utanhúss' F.H. Veiður sá leikur
vafalítið ívisýnn og spennandi F H.
hefur ágætu liði á að skipa og
hafa þeir verið í forystusveit ís-
lenzkra iiandknattleiksliða mörg
! undanfarin ár.
Þetta ieikkvöld hefst með oar-
áttu milli mjög efnilegra liða fra
Val og K.R. í öðrum aldursflokki.
Siðasti leikur Ajax verður laug-
ardaginn 21. nóv. kl 17:00 í íþrótta
húsi Varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Mæta Danir þá úrvali,
sem landsliðsnefnd Handknattleiks
sambands íslands hefur valið.
Þessi leikur verður lokaprófraan
væntanlegs landsliðs gegn Spán-
verjum.
Meistaraflokkur kvenna frá Val
og F.H. ieika forleik þennan dag
og verður án efa skemmtileg og
fjörug bafátta milli þessara kvenna
liða. Valur teflir fram ísiands-
meisturum kvenna hæði utanbúss
og innan. Kvennalið frá F.H. nef-
ur undantarin ár annað hvort naft
íslandsmðistarabÍKa-inn undir
höndum eða verið i mjög náinni
snertingu við hann