Tíminn - 11.11.1964, Qupperneq 13

Tíminn - 11.11.1964, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 11. nóvember 1964 13 Agúst Björnsson Hinn 13. júlí síðastliðinn and- aðist, að heimili sínu Syðri-Löngu mýri í Blöndudal, Ágúst Björns- son faðir Guðbjargar húsfreyju þar. Ágúst var fæddur 24. ágúst 1886 að Mýrarkoti á Álftanesi, sonur j hjónanna Kristínar Þorvaldsdótt-' ur og Björns Sveinssonar, sem þar bjuggu. Ólst hann upp með for-1 eldrum sínum fram yfir ferming araldur. Réðst hann þá sem smali að Torfalæk í Húnavatnssýslu. Það virðist hafa fallið vel á j með honum og Húnvetningum, j því að með þeim lifði hann og starfaði allt sitt líf upp frá_ því. | Mestan hluta ævi sinnar var Ágúst vlnnumaður. Á þeim tímum var! ekki margra kosta völ fyrir unga j og efnalitla menn. Það þarf heldur. enginn að skammast sín fyrir það; að hafa verið vinumaður, síður en! ’ svo. Allt fram til síðustu áratuga áttu flest efnuðustu og myndar- legustu heimili landsins velgengni! sína og hagsæld að þakka góðu og trúverðugu viiinufólki, fólki, sem vann öll sír. störf af áhuga og umhyggju eins og það væri að vinna fyrir sjálft sig. Margt þetta fólk setti metnað sinn í það að Sigríður Gunnjóna Vigfúsd. - Lambadal F. 16. sept. 1881 — D. 1. nóv 1964. Kveðja frá börnum hennar. Nú er móðir komin kveðjustund þig kallað hefur til sín heimur annar. Þú munt koma á föður okkar fund og framar enginn samvist ykkar bannar. Og systkin okkar er við höfum misst nú einnig fagna kærri móður - sinni, því allir kristnir öðlast sæluvist er endar þeirra stríð í veröldinni. Heilög ritning huggun bezta ljær og harmi vorum sviftir burt án tafar. Ef trúarljósin loga björt og skær þau lýsa veginn hinum megin grafar Við munum öll hve mamma var oss góð og miðlað gat af litlu sem hún átti. Það verður eflaust aldrei sett í ljóð um allt það sem hún okkur fórna mátti. Hún átti kjark og þrek í hverri þraut og það var stundum ekki lítill vandi. Með einyrkjanum gekk hún bratta braut og börnin fjórtán gaf hún föðurlandi. Oft var það að lítinn bita brauðs við bárum fegln upp að svöngum munni. Við vorum ekki fædd til arfs né auðs en oft og bezt það mamma bæta kunni. í muna geymast ævintýrin öll og ótal vísur sem hún las og unni, um dísir, álfa, dverg og hamratröll og dulin öfl sem lifa í náttúrunni. Sumt er gleymt, en þó við munum margt frá móðurhnjám og Ijúfum bernsku árum og ennþá logar kærleiksbálið bjart það beztan ljóma fær í dagsins tárum. Ó, hjartans móðir, þér við þökkum allt og þúsund þúsund, þúsund þúsund sinnum blessuð sértu, og elskuð ætíð skalt og alltaf lifa í barna þinna minnum. (G.G.G.). vinna Öll sín verk sem allra bezt og fannst það sjálfsagt að setja hag húsbændanna jafnvel ofar sínum eigin hag. Og ábyggilega á marg- ur maðurinn . ánægjulegar endur- minningar vinnumanni eða vinnukonu fóreldra sinna sem hann hefur alizt upp með. Ég held að þessu fólki hafi yfirleitt aldrei verið fullþakkað að ég ekki tali um fulllaunað, eða metið. Vélar nútímans eru góðar og nauðsynlegar en þær geta aldrei gegnt því hlutverki til fulls sem vinnufólkið gegndi áður. Ágúst var góður fulltrúi sinnar •stéttar,' sem kannske má nokkuð marka á því hve lengi hann var jafnah á sama stað. Hann var vinnumaður hér á Grund hjá for- eldrum mínum í 14 ár og hefði sennijega orðið lengur ef föður mínum hefði auðnazt lengra líf. Eg á því margar góðar endur minningar frá samvistarárum okk ar þá. Eg var þó aðeins á 9. árinu þegar hann fór héðan. Eitt af því sem mér er mest minnisstætt frá þeim árum er það hve hann var jafnan notalegur og góður við þær fáu skepnur sem hann átti Hann hafði alltaf lausa eina viku úr slætti og heyjaði þá fyrir sig. Hann átti sér dálítinn kofa og hafði þar sínar skepnur út af fyrir sig, nokkrar kindur og einn hest. Eg man að hann hafði lítinn trékassa sem hann stakk ofan í brauðmolum og öðrum mataraf- gangi, sem hann leyfði af mat sín- um, fór svo með þetta í kofann sinn og stakk upp í ærnar á eftir. Þetta var ekki mikill fóðurbætir, en þetta gladdi alla og tengdi sam an þennan litla vinahóp. Þarna átti Ágúst sinn litla heim út af fyr ir sig þar sem meðfædd umhyggja hans fyrir smælingjunum fékk út- rás. Sérstakt yndi hafði Ágúst af góðum hestum enda átti hann jafn an góðan reiðhest. Um það bil sem Ágúst fór frá Grund eða laust eftir 1920 kynntist hann Borghildi Oddsdótt- ur sunnlenzkri konu, systur Sigur- jóns bónda á Rútsstöðum og þeirra systkina. Ekki giftust þau enda voru þau sjaldan samtíða, en þau eignuðust 5 börn. Tvö þeirra dóu við fæðingu, tvíburar, og eina dóttur misstu þau í bernsku, Krist- ínu að nafni, en tvær dætur þeirra eru á lífi, Guðbjörg í Syðri-Löngu mýri og Guðmunda Roselía búsett í Reykjavík Ágúst var barngóður maður og kom það að sjálfsögðu í ríkum mæli fram við hans eigin börn, Guðbjörgu eldri dóttur sína tók hann til sín aðeins tveggja ára gamla og gekk henni í föður og móðurstað til fullorðinsára. Eg var þeim samtíða þegar Guðbjörg var orðin 8 ára gömul og mér fannst ánægjulegt að sjá og fylgj ast með hversu innilegt samband- ið var þeirra á milli. Það hallaðist ekki á frá hvorugri hlið og mun svo hafa verið til síðustu stundar hans. Guðbjörg var ábyggilega hans bjartasti geisli í lífinu og sem veitti lífi hans tilgang seinni árin. Hún var líka þess umkomin að geta tekið hann til sín og veitt honum gott heimili, hvíld og umhyggju þegar aldurinn færð ist yfir hann og þreyta frá löng- um og oft erfiðum starfsdegi fór að segja til sín. Það mun hafa verið árið 1946, sem Ágúst fluttist til Guðbjargar og Halldórs Eyþórssonar manns hennar að Syðri-Löngumýri en þá voru þau að byrja búskap þar. Mér er kunnugt um það að honum var ljúft að leggja sitt lið til hjálpar ungu hjónunum og hversu hann gladdist yfir vel- gengni þeirra og öllum framför- unum á heimili þeirra. Þar sá hann á vissan hátt rætast sinn æskudraum um bættan hag og bjartara líf. En nú er þessi gámli, góði vin- KAUPFELAG EYFIRÐINGA AKUREYRJ Seljum. 1 heildsölu,’ verzlunum, gistihúsum, matsöl- um, matarfélögum matar- og kaffibrauð alls konar. Einnig hart brauð. BRAUÐGERÐ KEA. Akurevri — sími 1700. Látið okkur stilla og herða upp nýju bifreiðina. Fylgist vel með bifreiðinni. BÍLASKOÐUN Skúlagötu 32 sími 13-100 RYÐVÖRN Grensásvegi 18 sími 19-9-45 Látið ekki dragast að rvð- verja og hljóðeinangra bíf- reiðina með 5iSP site 1 öetræifiskrststotan I9naðarbankahúsinu IV. hæð. ! Tómas Arnason og Vilhjálmur Arnason. ur okkar og samferðamaður far- inn, lagður upp í ferðina miklu sem við eigum öll fyrir höndum. Hann var kallaður skyndilega til ferðar, eins og kannske oft áður, á miðjum túnaslætti. Ágúst var heilsugóður maður allt til þess að hann fór að kenna hjartabilunar síðustu misserin. Hann var að ganga inn frá kvöld borðinu þegar hann fékk síðasta kastið. Þau studdu hann síðustu skrefin Halldór og Guðbjörg dótt ir hans, hann þurfti ekki til ann- arra að leita. — Og þar með var ferðin hafin. Kannski hafa þeir verið orðnir óþolinmóðir fákarnir hans, Jarpur og Skjóni og farnir að bíta mélin? Eg, veit það ekki en ábyggilega hafa þeir verið til- búnir og fúsir til ferðar um hin ókunnu *lönd með sinn gamla og góða vin. Ágúst var léttur í lund og glað vær að öllum jafnaði bjartsýnn var hann, vinfastur og trygglynd ur. langminnugur á hvort heldur var, gott eða illt. Ég veit að góður hugur frá lang- flestum, sem þekktu hann fylgir honum yfir landamærin, og það tel ég betra og hollara veganesti en digrir sjóðir. Eg flyt hinum látna vini mínum alúðarþökk fyrir löng og góð kynni og fyrir trygga vináttu sem aldrei orást. Þórður Þorsteinsson. BÍLAKJÖR Ford ‘55 sexx eyl. beinskiftur. Verð 35 þús. Ford ‘55 sex cyl. sjálfskiptur. Verð 55 þús. Chevrolet ‘56 til sölu eða í skiptum fyrir minni bíl . Volkswagen ‘63 verð 80 þúsund. Fíat 1800 station ‘60 Fallegur bíll, fæst í skiptum Opel kapitan ‘55 fæst fyrir fasteignabréf. Ford ,57 8 cyl., beinskiptur, hard top. Góðir skilmálar. Skoda station ‘60 verð 55 þúsund, skilnrálar. Chevrolet ’59 verð 70 þúsund. Taunus 17m de luxe ‘62 skuldabréf kemur til greina. Land Rover ‘55 topp bíll. Villys ‘62 lengri gerð, Ekils-hús, fram- drifslokur ofl. Kaiser ‘54 fæst með góðum skilmálum. Þetta er aðeins lítið brot af því sem við liöfum til sölu, þar á meðal mikið af nýjum bflum í skiptum, og fyrír skuldabréfa greiðslur. BÍLAKJÖR Rauðará — Skúlagötu 55 Sími 15 812. ’íIJÓLBARÐA VIÐGERÐIR Opið alla daga (líka laugardaga og sunudaga) J t'rá kl. 7.30 tfl 22. GÚMMÍVINNUSTOFAN h. f. Skipholti 35. Reykjavík. sírni 18955. . \ , L J . 'á A '

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.