Tíminn - 11.11.1964, Page 16
• •
SOLUVARA UR BRUNARUST
(
i
KJ-Reykjavík 10. nóv.
Unnið er nú af kappi við að
kanna brunatjónið, sem varð, þeg
ar eidur kom upp í Vörugeymslu
SÍS við Reykjavíkurhöfn í fyrri
viku. Allar vörubirgðir voru
tryggðar hjá Samvinnutrygging-
um, og er nú unnið á vegum trygg
inganna við að hreinsa varninginn
og setja hann í nýjar umbúðir.
Tíminn leit inn í Gólfteppa-
hreinsunina við Skúlatorg, þar
sem unnið er að því að hreinsa
varninginn, það af honum sem á
annað borð er nýtilegur. Þvotta-
balar fullir af leirtaui voru á
gólfinu, en 30 stúlkur unnu við
að þvo og hreinsa. Byrjað var
á verkinu á laugardaginn, eftir
að mjög heppileg aðstaða hafði
fengizt í Gólfteppahreinsunni, en
þar er m. a. stór og mikill þurrk
klefi þar sem hægt er að þurrka
mikið magn af vörum í einu. Mest
allt af varningnum verður sem
nýtt á eftir, og hin bezta sölu-
vara eftir því sem séð verður.
T. d. var verið að hreinsa dýr-
indis postulínsstell þegar frétta
maður Tímans leit inn, og voru
þau eftir þvottinn hjá stúlkunum
★
STÚLKURNAR á myndinni voru
önnum kafnar við aS þvo og pakka
bollastellum, sem illa höfSu orSIS
úti í brunanum í Vörugeymslu SÍS
á dögunum. Á MYNDINNI tll hægrl
eru þær aS þvo diska og bolla, en
á myndinn! tjl vinstri eru bollapör-
In tllbúin til pökkunar spegilgljá-
and og fín. (Tímamynd, KJ).
spegilgljáandi og fín. Sömu sögu
var að segja um potta og pönnur
sem ekki virtust vera beint út-
gengilegar eftir brunann. Mikið
magn af leikföngum var og búið
að hreinsa, og þau orðin sem ný
væru úr kassanum.
í vörugeymslunum er unnið að
því að kanna vefnaðarvörulager
inn og virðist nokkuð af honum
heillegt, en mikið er þó skemmt.
Miðvikudagur 11. nóvember 1964
248. tbl- 48. árg.
■
Botnvörpurnar eru létt-
ari, sterkari og fisknari
Kjördæmaþing Suöur-
lands um síöustu helgi
EJ-Reykjavík, 10. nóvember.
Fimmta kjördæmisþing Kjör-
dæmissambands Framsóknarflokks
ins í Suðurlandskjördæmi var hald
i» að Eyrarlandi í Reynishverfi,
Vestur-Skaftafellssýslu, um síð-
ustu helgi, og sátu það 60 full-
trúar, þingmenn kjördæmisins,
miðstjórnarmenn og framkvæmda
stjóri flokksins.
Sigurfinnur Sigurðsson, formað
ur sambandsins, setti þingið og
þingforsetar voru kjörnir Jón
Helgason, Seglbúðum, og Sigurð
ur Tómasson, Barkastöðum. Sig-
urfinnur flutti síðan skýrslu
stjómarinnar, og urðu síðan al-
mennar umræður, sem stóðu til
kvölds.
Um kvöldið var haldinn fjöl
sóttur dansleikur að Eyrarlandi,
þar sem Jón Helgason, formaður
Framsóknarfélags Vestur-Skafta-
fellssýslu, og Páll Lýðsson, formað
ur FUF í Árnessýslu, fluttu ávörp.
Hjálmar Gíslason, leikarl,
skemmti.
Á sunnudaginn störfuðu nefnd
ir fyrir hádegi, og kl. 13.30 hófst
fundur að nýju. Þá skiluðu nefnd
ir álitum sínum, og voru fram
sögumenn Jón Helgason, Helgi
Bergs, Matthías Ingibergsson og
Framhald á 15. síðu
MB-Reykjavík, 10. nóvember.
f sumar hefur nýtt efni verið
notað í botnvörpur margra ís-
lenzkra togara og gefið svo góða
raun að nú munu langflestar út-
gerðir hafa gert ráðstafanir til
að fá það handa skipum sínum.
Þetta er polyethelync-efni frá
Portúgal og er í innkaupi að-
eins sáralítið dýrara cn hampur
og hefur miklu meira núningsþol,
er mikið léttara og einnig fiskn-
ara.
Það er fyrirtækið Marco h. f.,
sem flytur þetta nýja efní inn, en
tiltölulega stutt er síðan farið var
að framleiða það í því formi, sem
notað er í botnvörpur. Garnið er
ekki snúið saman, heldur fléttað
og er því mjög lipurt í allri notk
un og einnig sterkara. Innflutn-
ingur á þessu garni, sem er í
fernskonar sverleika, 4, 4y2, og
5 mm., hófst fyrir hálfu ári eða
í svo og hefur það líkað svo vel hér
að eftirspurn er míklu meiri en
unnt er að anna. Verksmiðjurnar
úti hafa ekki undan að framleiða,
því þetta efni selst mjög vel víðar,
þar sem togaraútgerð er, svo sem
í Bretlandi, Þýzkalandi og víðar.
Efni þetta er-lítið dýrara en
hampur í innkaupum, en hefur
EJ-Reykjavík, 10. nóvember.
Stjórn Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja hefur kosið fimm
manna Kjararáð til tveggja ára
og hefur það þegar óskað eftir
tillögum bandalagsfélaganna um
breytingar á núgildandi kjara-
samningi, en síðasta þing B.S.R.
B. fól stjórninni að hefja slíkan
undirbúning sem fyrst.
Kjararáðið er þannig skipað: —
í Kristján Thorlacius, Guðjón B.
Baldvinsson, Inga Jóhannesdóttir,
Teitur Þorleifsson og Þórir Ein
arsson. Varamenn voru kosnir:
— Anna Loftsdóttir, Björn Bjar
man, Jón Kárason, Páll Hafstað
og Valdimar Ólafsson.
F.U.F. Akureyri
Aðalfundur Félags ungra Fram-
sóknarmanna á Akureyri verður
haldinn í Rotary-salnum að Hótel
KEA fimmtudaginn 12. nóv. og
hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venju
leg aðalfundarstörf. 2. Jakob Frí-
mannsson kaupfélagsstj. ræðir um
bæjarmál o. fl. 3. Önnur mál. Sam
eiginleg kaffidrykkja. Félagar fjöl
mennið. Stjórnin.
marga kosti fram yfir hann í notk
un, til dæmis er núningsþol þess
að minnsta kostí fjórum sinnum
meira en hampsins. Þá er efnið
Framhald á 15. síðu.
Kjararáðið hefur beðið sam-
bandsfélög sín um að senda til-
lögur um breytingar á núgildandi
Framhald á L5. síðu
Aðalfundur Framsókn.
arfél. Reykjavíkur
Þórarinn Einar
AÐALFUNDUR Framsóknarfél.
Reykjavikur verður haldinn
í dag (11. þ. r>v) í Framsókn-
arhúsinu við Fríkírkjuveg og
hefst hann klukkan 20,30 Dag-
skrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Ávörp flytja bingmenn Framsókn-
arflokksins fyrir Reykjavík þeir
Þórarinn Þórarinsson og Einar
Ágústsson. Mætið stundvíslega. —
Stjórnin.
Sigurfinnur SigurSsson, formaður Kjördæmasambandsins, setur þingið. (Timamynd, HE).
BSRB KÝS
KJARARÁÐ