Tíminn - 26.11.1964, Page 16

Tíminn - 26.11.1964, Page 16
Fimmtudagur 26. nóvember 1964 241. tbl. 48. árg. JAKOB JAKOBSSON VONDAUFUR - Síldamagnið er aiinna / Faxadóa E.J.-Reykjavík, 25. nóvember. — Minna magn af síld hefur fundizt á Faxaflóasvæðinu nú, en á sama tíma í fyrra og er síld- in yfirleitt mjög dreifft, óróleg og í smáum torfum. Virftist mun minna magn vera hér en fyrír austan — sagði Jakob Jakobsson, fiskifræðingur, í viðtali við Tím- ann í dag. Jakob var ekki mjög bjartsýnn, þegar við, náðum tali af honum í dag , en sagði þó, að of snemmt væri að örvænta, því að desember og janúar væru venjulega beztu veiðimánuðimir. — Hvernig hefur síldarleitin gengið að undanförnu, Jakob? — Pétur Thorsteinsson hefur verið við síldarleit að undanförnu úti í Faxaflóanum og fyrir norð- Ákvörðun tekin um þungavatns- vinnslu að ári? KJ-Reykjavík, 25. nóv. Fyrir nokkrum árum var mjög um það rætt hér á landi að hafin skyldi fram- leiðsla þungs vatns í Hvera- gerði, en sá áhugi, sem þá vaknaði , dvínaði nokkuð vegna minnkandi eftirspurn- ar á / heimsmarkaðinum. Aftur vöknuðu vonir mantia um framleiðslu á þungu vatni hérlendis, þegar Svíar og Kanadamenn fóru að gera tilraunir með notkun þungs vatns í kjarnaofnum. Blaðið hafði tala af próf. Magnúsi Magnússyni í dag, og innti hann frétta af mál- um þessum. Sagði hann að ekkert væri farið að hugsa til hreyfings í þessu sam bandi, þar eð tilraunir Kan- adamanna færu ekki að gefa fullkominn árangur fyrr en í byrjun næsta árs, og fyrst mætti vænta ein- hverra frétta um íslenzka þungavatnsverksmiðju á miðju næsta ári. an Snæfellsnes, og er Jón Einars- son skipstjóri og leiðangursstjóri. Þeir hafa alltaf orðið varir við einhverja síld, en hún er dreifð, torfurnar eru litlar, og auk þess er síldin óróleg og því mjög ó- hentug til veiða. Þess vegna hafa bátarnir veitt lítið sem ekkert, og auk þess hefur verið ógæftasamt að undanförnu — Hvað um síldarmagnið? — Það virðist vera frekar lítið magn af síld á þessum slóðum, og minna en á sama tíma í fyrra. — Hvar heldur síldin sig aðal- lega? — Að undanförnu hefur hún helzt verið um 30—40 mílur út af Öndverðarnesi, en í nótt fann Pétur Thorsteinsson síld um 10 mílur frá nesinu og einnig um 17 mílur. En, eins og áður segir, þá var síldin dreifð og óróleg. — Hverju viltu spá um veiðina í framtíðinni? — Það er alveg ómögiUegt að segja neitt ákveðið um það. En núverandi ástand þarf að breytast mikið, ef einhver veiði á að vera hér fyrir allan flotann. í því sam- bandi má benda á, að það er miklu meiri veiði fyrir austan, en þar eru nú aðeins örfáir bátar við veiðar. En of snemmt er að ör- vænta — þetta getur breytzt á næstunni. Við megum ekki gleyma því, að desember og janú- ar eru venjulega beztu veiðimán- uðirnir hér fyrir sunnan. — Hefur fundizt síld annars staðar en út af Snæfellsnesi? Framhald á 14. síðu. SK YNDIHA PPDRÆT Ti FRAMSÓKNARFLOKKSm Hlnn glæsilegi rauði Óper Rekord, sem er aðalvinnin gurinn í Happdrætti Framsóknarflokksins. Á þorláksmessudag hinn 23. desember n. k. veröur dregið um marga glæsilega vinninga í skyrwMhappdrætti, sem Fram- sóknarflokkurinn efnir til til styrktar starfsemi sinnar. Hafa miðar í þessu happdrætti þeg- ar verið sendir til 1 umboðs- manna um land allt. Kostar hver miði 50 krónur, en verð- mæti vinninganna er 8000 sinn- um meira eða um 400.000,00 kr. Aðalvinningurinn er splunkunýr og glæsilegur Opel Rekord af „L“-gerð, módel 1965, rauður að lit. Verða miðar seldir úr bíln- um næstu fjórar vikur, þar sem hann er til sýnis á lóðinni Austurstræti 1. Aðrir vinningar eru Singer saumavélar, óskadraumur allra húsmæðra, Levin frystikistur, þarfaþing á hverju heimili og Smith Corona rafmagnsritvélar, sem sameina það tvennt, að vera fyrsta flokks skrifstofu- tæki og hentugar til einkaaf- nota á heimilum. Samtals eru þetta tólf vinn ingar, fjórir af hverri gerð. Afgreiðsla happdrættisins er í Tjarnargötu 26, sími 15564. Þeir, sem áhuga hafa fyrir að eignast miða í þessu glæsilega happdrætti, geta skrifað eða símað til skrifstofunnar eða snúið sér til næsta umboðs- manns. Þeir, sem fengið hafa miða senda heim, eru beðnir að gera skil til skrifstofunnar við fyrstu hentugleika. Takmarkið er að selja alla útgefna miða og er heitið á flokksmenn að stuðla að því með ráðum og dáð að svo megi verða. Á þriðia hundraðfá rafmagnið í árslok EJ-Reykjavík, 25. nóv. Samkvæmt upplýsingum Raf- magnsveita ríkisins hefur verið unnið við lagningu veitna til 450 notenda í sveitum landsins, en af þeim hafði verið byrjað á lagn- ingu 168 á árinu 1963. f sumar hefur aðallega verið unnið við lagningu staura, en dráttur orðið á tengingunni. Þó má búast við, NYTT AÐFLUGSLJOSAKERFI REYNT A ÞINGEYRARVELLI Reykjanes- kjördæmi Áskrifendasöfnun TÍMANS í Reykjaneskjördæmi er í full- am gangi. Álftanes, Mosfells- •iveit, Kjalarnes og Kjós hafa skilað 100% árangri. Seinna verður tilkynnt um áskrifenda- söfnunina í þeim þrettán deild- um, sem eftir eru að skila úr slitum. SE-Þingeyri, 23. nóv. . Sett hqfur verið upp nýtt að- flugsljósakerfi við flugbrautina hér í tilraunaskyni. Er þetta bandarískt kerfi og er mjög hand hægt í notkun og ódýrt, og myndi henta mjög vel við smærri flug- velli hérlendis, ef það reynist eins vel og vonir standa til. Alls eru það 16 ljós, sem sett hafa verið við brautina hérna, en hún er 600 metra löng, eða af þeirri lengd, sem talin er nauð- synleg fyrir sjúkraflug. Tækin eru frá fyrirtækinu Manairco i Mansfield í Bandaríkjunum og eru einkum míðuð við notkun á litl- um einkaflugvöllum. Flugmála- stjórnin fékk ljósaútbúnað til að setja upp við einn flugvöll og var ákveðið að reyna hann hérna. Hér vantaði raflínu til flugvall- arins, og varð þá að ráði að við reyndum að notast við Heath- straumbreyti, sem breytir 12 volta spennu í 110 volta riðstraum, og gafst það ágætlega. Þetta þýðír það, að hægt er að nota þetta að- flugsljósakerfi alls staðar þar, sem unnt er að koma bíl, dráttarvél eða einfaldlega venjulegum raf- geymi. í hverju ijósi er 10 watta pera, svo að ekki er aflþörfin mik- il. Áætlaður tieildarkostnaður við kerfi þetta var 30 þúsund krónur FramhaJd á 14. úðu að lokið verði við lagningu til 224 notenda um áramótin. Blaðið hafði í dag samband við Rafmagnsveitur ríkisins og fékk þær upplýsingar. að aðallega hefði verið unnið við lagningu staura í sumar. Alls hefði verið unnið við lagningu rafmagns til 450 not- enda, en þeir skiptast þannig milli sveita landsins: — Rangárvalla- sýsla 43, Árnessýsla 41, Borgar- fjarðarsýsla 12, Dalasýsla 68, Vest firðir 7, Húnavatnssýslur 22, Skagafjarðarsýsla 102, Eyjafjarð- arsýsla 23, Þingeyjarsýslur 73, Múlasýslur 15 og A-Skaft. 44 Baldur Helgason hjá Rafmagns- veitu ríkisins skýrði frá því, að reiknað væri með því, að lokið ýrði að fullu lagningu rafmagns til 224 notenda af þessum 450 nú um áramótin, og einnig yrði þá búið að reisa staura til allra hinna notendanna, að örfáum bæjum undanskyldum. TiLRAUNABORUNAÐHEFJ- ASTÁ SEL TJARNARNESI MB-Reykjavík, 25. nóvember. Innan skamms hefst borun eftir heitu vatni á Seltjarnar- nesi, að því er ísleifur Jónsson verkfræðingur hjá Jarðborun- um ríkisins, sagði blaðinu dag. Þarna verður um algera tilraunaborun að ræða, og ver? ur borað hundrað metra niður. en það er sú dýpt, sem boru'ð er, þegar borað er á svæði, sem árangur er algerlega óviss á. Seltirningar hafa eðlilega áhuga á að fá hitaveitu eins og nágrannar þeirra Reykvíkingai og hafa farið fram á það, að gerð verði tilraún í þeirra eigin landi, svo að þeir þurfi ekki að gjalda öðrum fyrir hitagjaf- ann, né leiða hann langar leið- ir að. ísleifur kvað ekki ákveð ið upp á dag. hvenær borunin hefst, en vænta megi að bað verði í næsta mánuði.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.