Tíminn - 16.12.1964, Blaðsíða 1
ÞINGFRETTIR
SKATTAR OG
HÆKKAD UM 3367,
HAFA
Hér fer á eftir nefndarálit
nefndarhluta Framsóknarmanna í
fjárveitinganefnd, 1. minnihluta,
þeirra Hallttórs E. Sigurðssonar,
Halldórs Ásgrímssonar og Ing-
vars Gíslasonar. Halldór E. Sig-
Sigurðsson hafði framsögu
fyrir nefndarálitinu og breytinga-
tillögum á mánudaginn eins og
áður hefur verið skýrt frá.
Svo sem verið hefur á undan-
fömum þingum, gerir meiri hlud
fjárveitinganefndar grein fyrir
þeim tillögum, sem fluttar eru í
umboði nefndarinnar í heild. Að-
ild okkar fulltrúa Framsóknar-
flokksins í nefndinni að þeim er
með þeim hætti, að við höfum
óbundnar hendur um fylgi við
þær í heild og hverja einstaka
þeirra og einnig rétt til að flytja
við þær og fjárlagafrv. brtt. og
fylgja brtt., sem fram kunna að
koma. Við munum þó ljá þeim
flestum lið, þar sem þær eru fyrst
og fremst til leiðréttinga á röng-
um áætlunum og því til bóta, þó
að víða hefði þurft að ganga
lengra í þá átt að leiðrétta en
gert var.
Of skammur tími
Það hefur áður verið vakin at-
hygli á því, að tími sá, sem AI-
þngi hefur til fjárlagaaf-
greiðslunnar, er of skammur.
Þetta er mjög greinilegt nú, þar
sem 2. umræða fjárlagafrv. fer
fram 14. des., og þá bíður af-
greiðslu við 3. umræðu endurskoð
un á tekjuáætlun og stórir út-
gjaldaliðir, eins og hluti af niður-
greiðslu framlag til nýrra skóla-
bygginga og fleiri fjárfrekir mála-
flokkar.
Hér verður að ráða bót á. Al-
þingi verður að gefa sér eðlilega
langan tíma til fjárlagaafgreiðsl-
unnar og vanda hana að jafnaði
sem bezt. Hér skal tekið fram,
að störfum fjárveitinganefndar er
ekki um að kenna, hvað fjárlaga
frv. er seint á ferð, heldur af-
greiðslu hjá ríkisstjórninni á
hinum stærri málum, er á hennar
valdi er að leysa.
Margfölduð eyðsta
í nefndaráliti okkar um fjár-
lagafrv. undanfarin ár höfum við
leitt rök að því, hvað verðbólgu-
stefna núverandi valdhafa hefur
gagnsýrt allt þjóðlífið og eyðslan
og útþenslan er alls ráðandi í rík-
isrekstrinum. Þetta hefur þó aldi
ei komið jafn greinilega fram sem
nú, og skulu hér sýnd örfá dæmi
því til sönnunar.
Samkvæmt ríkisreikningi 1958
voru útgjöld samkv. 10. gr., þ.e.
til ríkisstjómar, ráðuneytanna og
utanríkisþjónustunnar, alls 27
millj. kr., en samkv. fjárlagafrv.
1965 74 millj. kr., hækkun um 47
millj. kr. eða um 174%
Kostnaður við innheimtu skatta
og tolla var árið 1958 23 millj. kr.,
en er áætlaður árið 1956 61 millj.
kr. og verður samkv. fyrri reynslu
til muna hærri, hækkar um 40
millj. kr. eða 165%.
Skatt- og tollheimta ti) rík-
Nefndarálit fulltrúa Framsóktiarflokksins í fjárveitinga-
nefnd um fiárlagafrumvarpið fyrir 1965
issjóðs var árið 1958 687 millj. kr.,
en verður árið 1965 um 3000 millj.
kr., þegar skattar samkv. vegaáætl
un eru teknir með og þær hækkan
ir, sem eftir eiga að verða á tekju
áætlun fjárlaga frv. Hækkun er
um 2300 millj. kr. eða 336%.
Afleiðingin af þessari skatta-
stefnu ríkisstjórnarinnar er sú, að
skattgreiðendur flytja nú að veru-
legu leyti kvittanir fyrir opinber-
um gjöldum heim til sín í stað
launanna við hverja útborg-
un launa.
Presfsembættiö í Kmh.
Þessi örfáu dæmi verða látin
nægja að sinni til þess að sýna,
hvert Viðreisn hefur leitt. Við vilj
um aðeins undirstrika það, að
sparnaður er fjarri staðreyndum í
framkvæmd stjórnarstefnunnar
þrátt fyrir fyrirheit og tal um
hagsýslu, sem kostar nokkra fjár-
muni en kemur ekki í ijós í öðru.
Nýtt dæmi ijm útþensluna i, rík-
isrékstrinum; er kostnaður," sem
nemur hálfri millj. kr., við ný-
stofnað prestsembætti úti í Kaup-
mannahöfn, sem var ekki vitað
um sem væntanlega framkvæmd
eða talið með brýnustu verkefn-
um þjóðarinnar að stofna til, svo
sem þó hefur verið gert
Eins og fyrri fjárlög núverandi
ríkisstjórnar munu fjárlögin fyrir
árið 1965 ekki sýna rétta mynd
af fjárþörf hinna ýmsu stofnana.
Má þar til nefna Skipaútgerð rík-
isins, sem vanta mun einhverjar
milljónir í rekstur sinn. Er hér að
vísu ekki neitt nýtt á ferðum, þar
sem þessi saga hefur endurtekið
sig öll valdaár núverandi ríkis-
stjórnar, svo sem ríkisreikningar
jmna.
Ekki getur farið hjá því, að
úætlanir. sem eru langt frá veru-
leikanum, hljóta að hafa lamandi
áhrif á reksturinn. þó að greitt
sé að lokum.
Hitt er þó öllu alvarlegra, að
skipastóll útgerðarinnar eldist og
skipin verða þar af leiðandi að
fara í dýrar flokkunarviðgerðir,
og eru þar að auki ekki að kröfu
tímans, og virðist, okkur óumflýj-
anlegt að taka það mál til athug-
unar, áður en það er um seinan.
Við minnum einnig á, að Þjóð-
leikhúsið hefur í smíðum hús og
er búið að verja verulegri fjár-
hæð til þeirrar byggingar. en
vegna fjárskorts er byggingin háif
gerð, ónothæf og öllum til leið-
inda. Fjármagnið ávaxtar sig ekki.
og rekstur Þjóðleikhússins verð-
ur bæði erfiðari og dýrari vegna
þessa framkvæmdaleysis, en þó
mun hér um tiltölulega litla fjár-
hæð að ræða
Svipaða sögu er að segja trá
Vífilsstaðahæli. Tiltölulega litla
fjárhæð þarf til að gera óumflýj
anlegar endurbætur á hælinu en
hún murt okki fást "ð Uessu sinm
TÓMAS KARLSSON RITAR
Halldór E Sigurðsscm
þó að fjárlögin verði hátt á
fjórða milljarð.
Menntamál
Um fátt er meira rætt og rit-
að manna á meðal og í blöðum
en nauðsyn almennrar menntun-
ar og að taka beri tækni og vís-
indi í þjónustu atvinnuveganna.
Meira þarf til en umtalið eitt, til
þess að svo verði gert, og ekki
virðist þetta fjárlagafrv. ríkis-
stjórnarinnar bera það með sér,
að hún sé boöberi þessarar
stefnu. Að vísu liggur ekki fyrir
enn þá, hvernig tekið verður á
skólabyggingunum við fjárlagaaf-
greiðslu með fjárveitingu til nýrra
skóla, en ljóst er þó, að þær töl-
ur, sem eru i fjárlagafrv.. munu
þar lítt duga.
Við munum með tillögum okk-
ar reyna nokkuð á vilja þing-
manna um stuðning við þessi mál,
sem við teljum þjóðinni nauðsyn
að tileinka sér svo sem aðrar
menningar- og framfarasinnað-
ar þjóðir. Þá munum við einnig
í tillögugerð okkar leggja til, að
aukin verði fjárveiting til ým-
issa framfaramála þjóðarinnar,
svo sem samgangna, raforkumála,
hafna- og iafnvægismála. Munum
við nú gera grein fyrir tillögum
þeim, er við flytjum á sérstöku
þingskjali. En við viljum taka það
fram fyirst, að þar sem meiri hluii
fjárveitinganefndar gerir ekki cil-
lögur um breytingar á tekjuáætl
uninni og afgreiðslu fjárlagafrv.
með tekjuhalla til 3. umræðu,
munum við ekki heldur gera til-
lögur til breytinga á tekjuáætl-
uninni við 2. umræðu heldur
geyma það til 3. umræðu, enda
ljóst þá, hvaða afgreiðslu tillögur
okkar fá hjá alþingismönnum
Við 13. grein fjárlagafrv. flytj-
um við tvær breytingartillögur
Sú fyrri er. að framlag til vega-
nála hækki um 60 millj kr
Þegar frv. um vegamál var a
sínum tíma flutt af nokkrum þing-
mönnum Framsóknarflokksins,
var gert ráð fyrir því, að viðhald
þjóðvega, stjórn þeirra og áhalda-
kaup o.fl. yrði áfram á fjárlögum
og fjárveiting þeirra ákveðin þar
án tillits til tekna vegasjóðsins,
en verkefni hans yrði nýbygging
vega og brúa, Stefna sú, sem tek-
in var við afgreiðslu vegalaganna,
mun koma framkvæmd í vega-,
brúa- og gatnagerð ; verulegan
vanda fyrr eða síðar, bar sem við-
hald þjóðvega kaliar á aukið fé
og annar kostnaður, svo sem
mannahald, húsagerðir og áhalda-
kaup, fer vaxandi, og ef eitthvað
á að gera í því að gera vegi ur
varanlegu efni, kostar það einnig
stórar fjárhaéðir. Allt þetta ásamt
vaxandi dýrtíð mun gera það að
verkum, að með óbreyttu ríkis-
sjóðsframlagi verður lítið eftir til
framkvæmda i landsbrautum ig
þjóðbrautum. Þess vegna verður
nú þegar í upphafi að gera sér
grein fyrir, að hverju stefnir, og
koma í veg fyrir alvarlega kyrr-
stöðul Við viijum líka iíí’éð 'þéss-
ari tillögu okkar undirstriká. að
allir sérskattar af bifreiðum, ivo
sem leyfisgjöldin, eiga að ganga
til vegamála, enda er hlutur dk-
issjóðs í tekjum af umferðinni orð
inn það mikill, að ofrausn er að
bæta leyfisgjöldum við. Þar sem
tekjur hans af henni voru 557 2
millj. kr. árið 1963 og verða mun
meiri 1965, verður að telja stilit
í hóf, þó að 320 millj. kr. gangi
ti1 vegagerðar af 700—750 millj.
kr. tekjum, eins og þær koma tíl
að verða 1965 samkvæmt tekjum
árið 1963.
Þá leggjum við til, að hækkað
verði framiag til hafnargerða, þ.e.
til þeirra hafna. sem eiga inni
hjá ríkissjóði vegna framkvæmda
fyrri ára. Framlagið hækki um 10
millj. kr. og verði skipt eftir sömu
reglu og verið hefur. Ljóst er. að
verði hafnarframkvæmdir svipað-
ar á næsta ári og þær voru vfir-!
standandi ár, munu skuldir ríkis-
sjóðs við hafnirnar vaxa aftur frá
því, sem þær verða nú i árslok.
Þetta verður að koma í veg fyrir.
Stúdentaheimili
Við gerum tillögu um. að mætt
verði ósk stúdenta um fjárveit-
ingu til endurbóta á stúdentagörð
unum og til að koma sér jpp
nýju félagsheimiii. Hér er um litJ-
ar fjárhæðir að ræða. um 3 millt
kr. Þetta er mál, sem Alþingi tier
að sinna og það án tafar
Við flytjum einnig tillögu um
að tvöfalda framlag til íþrótta-
sjóðs. Þörf hefði verið að hata
þessa fjárhæð nokkru hærri. an
fara verður í áföngum að bví
marki. sem að er stefnt. þ.e. að
gera sjóðinn hæfan tii að sinna
hlutverki sínu.
'*;t»Hiinaireamhönri
Við flytjum nokkrar brtt. við
16. gr. fjárlagafrumvarpsins. Hin
fyrsta er að hækka lítið eitt fram
lag til Búnaðarféiagsins vegna auk
ins rekstrarkostnaðar samkv.
rekstraráætlun stofnunarinnar.
Þá leggjum við tii að hækka
framlagið til að styðja ræktunar-
sambönd við kaup á jarðræktar-
vélum, og mun sú fjárveiting
verða tii að bæta úr brýnustu
nauðsyn, þ.e. að greiða áfallnar
kröfur þar að lútandi.
Einnig gerum við tillögu um að
hækka fjárveitingu til fiskileitar,
síldarrannsókna og leititilrauna
um 4 millj. kr. Er þar tekið und-
ir beiðni, er forráðamenn leitar-
innar hafa borið fram.
Við höfum gert að tillögu okk-
ar tillögu raforkumálastjóra um
fjárveitingu tii jarðhitasjóðs. Með
ai dýrmætari náttúruauðæfa okk-
ar lands er jarðhitinn. Mikil
rannsóknar og könnunarstörf
eru þar ounnin Tillaga okkar
stefnir að því að hraða þeim verk-
um, þótt of lítið sér bar að gert.
Raforkumál
Við höfum flutt þingsályktunar-
tillögu um að hraða raforkufram-
kvæmdum í landinu. Fjárveiting
tii raforkusjóðs hefur staðið
óbreytt síðan 1959, en þá var hún
lækkuð. Við ieggjum til að tvö-
falda upphæðina nú, því að ekki
mun af veita, til þess að því
marki verði náð, að lokið verði
raflýsingu á alla bæi, er rafmagn
fá frá samveitunni, 1968, eins og
tillaga okkar gerir ráð fyrir.
Þá höfum við tekið upp tillög-
ur þær, sem deildarstjórar og for-
stöðumenn Atvinnudeildar háskól
ans og rannsóknaráð ríkisins
gerðu til breytinga á fjárlagafrv.
Hér er um litla fjárhæð að ræða,
aðeins 3—4 miilj. kr. En mikiu
gætu þessar krónur skilað þjóð-
inni aftur, þar sem bær eiga m.a.
að ganga t.ii hagnýtra jarðfræði-
rannsókna, sjálfstæðra bygginga-
rannsókna og til að koma á fót
vísi að tækni- og vísindalegri upp-
lýsingaþjónustu. í þessum störfum
eigum við, sem víðast hvar ann-
ars staðar, á að skrna áhugasöm-
um og efnilegum mönnum, sem
við eigum að styðja í ''ví að verða
með þekkingu sinni og manndómi
þjóðinni að sem mestu liði.
Þá gerum við og tillögu um, að
liður sá. sem um var samið s.l.
sumar í sambandi við verðlagsmál
bænda, hækki úr 5 millj. kr. í 15
millj. kr í Ijós hefur komið við
athugun. að erfitt mun reynast
að skipta bessan tjárhæð vegna
þess, hvað fjárhæðin er lág, en
þörfin brýn Ekkert brýtur baö i
bága við samkomulagið frá þvi í
sumar, þó að Alþingi ákveði að
leggja þessu máli lið
Jafnvægismálin
Þar leggjum við til að hækka
tramiagið til atvinnubótasjóðs i
25 millj kr Eins og nú ei ?r
sjóðurinn fjárvana, en hins vegar
mikið til hans leitað um aðstoð.
Framsóknarmenn hafa lagt
fram á Albingi frv um jafnvægis-
sjóð Þeim stóði nru : frv ætlað-
ar nokkuð ríflegai ækjui Meöan
það frv. verðuv ekki að lögum,