Tíminn - 20.12.1964, Page 1
tveir bátar upp í Hafnar- eins langt og hún flaut á stór- grjóti. Mest brögð voru að þessu
I|{{{P|WH
SJÓRBARBÁTA OG GRJÓTÁ LAND
MB-Reykjavík, 18. desember.
í roki og á háflóði í morgun
slitnuðu tveir bátar upp í Hafnar-
fjarðarhöfn og rak annan þeirra
hátt á land. Einnig barst talsvert
rusl og grjót á land á Skúlagötu
og Kirkjusand í Reykjavík og
varð um tíma að aka með gætni
eftir Skúlagötunni.
Hámarki sínu náði veður og flóð
á sjöunda tímanum í morgun. Þá
fjarðarhöfn. Annar báturinn var
Reynir II frá Neskaupstað, sem
lá bundinn utan á öðrum bát við
uppfyllinguna. Rak hann að bryggj
unni og rakst á hana og munu
bæði bátur og bryggja hafa
skemmzt eitthvað. Báturinn Sæ-
rún frá Siglufirði, sem er 50 lesta
bátur, lá bundinn utan á Apríl við
hafskipabryggjuna. Særún slitnaði
frá togaranum og rak upp á land,
straumsflóðinu og upp undir grjot
kantinn neðan við Apótekið. Sjá
Tímamynd GE hér að neðan. Sæ-
rún mun lítið eða ekkert hafa
skemmzt og mun reynt að ná
henni út í kvöld. — Báðir bátarn-
ir voru mannlausir.
Lögreglumenn, sem óku eftir
Skúlagötu í Reykjavík um þetta
leyti, sáu að sjór gekk yfir götuna
hafði borið með sér talsvert af
á svæðinu milli Völundar og Slát-
urfélagsins. Var það mikið af
grjóti á götunni, að aka varð með
gætni, en grjótið var þó fremur
smágert. Einnig voru niðurföll
orðin stífluð. Einnig barst eitthvað
af grjóti á land inn við Kirkju-
sand í veðrinu og tók GE Tíma-
myndina hér að ofan af hnullung-
unum þar. Starfsmenn Áhaldahúss
borgarinnar unnu við að hreinsa
niðurföllin og göturnar í morgun.
Þingmenn stjórnarliðsins felldu tillögur um aukið eftirlit með söluskattsinnheimtu og
LÖGDU BLESSUN SÍNA
YFIR SÖLUSKATTSSVEK
TK-Reykyjavík, 19. des.
Frumvanpið um söluskatts-!
hækkunina var afgreitt frá efri
deild til neðri deildar, og var i
tekið til 1. umræðu í neðri deild!
i dag. Við 3. umræðu í efri deild
freistuðu Framsóknarmenn að,
koma fram beim breytingum á i
frumvarpinu, að eftirlit með I
söluskattsinnheimtu yrði hert, og
að bæjar- o>g sveitarfélög fengju
hluta af söluskattshækkunmni.
Báðar þessar tillögur voru felldar.
Fulltrúar Fraansóknarflokksins
1 fjárhagsnefnd, Helgi Bergs og
Karl Kristjánsson, fluttu tillögu
um það, við 3. umræðu, að Jöfn-
unarsjóður bæjar- og sveitarfé-
laga fengi 12% af heildarinn-
heimtu söluskatts í stað 8%. Þessi
tillaga var felld.
Einnig lögðu þeir til, að svo-
hljóðandi ákvæði yrðu tekin í
frumvarpið:
„Umfram þau framtöl til sölu-
skatts, sem skattayfirvöldum þyk-
ir ástæða til að rannsaka, skal
fara fram ýtarleg rannsókn á
framtölum 5% allra söluskatts-
skyldra aðila. Skulu þau framtöl
valin með útdrætti úr öllum sölu-
skattsframtölum landsins af Hag-
stofu íslands skv. reglum, sem
hún setur. Framtöl þau, sem tek-
in eru til rannsóknar. skal athuga
vandlega, rannsaka bókhald að-
ila og leita upplýsinga Um hvað-
eina, sem máli skiptir.
Einnig þessi tillaga var felld.
— Vitað er um gífurleg svik í
sambandi við skil á söluskatti.
Slík svik, sem öllum virðast aug-
ljós, eru mönnum látin haldast
uppi átölulaust. Söluskattur er
ætíð gallað skattform, en sé ekki
Framhgld á 11. síðu.
Loksins
til sak-
sóknara!
KJ—Reykjavík 19. des.
Á mánudaginn sendi ölafur
Þorláksson rannsóknardóonari í
Keflavíkurflugvallarmálinu, nið
urstöður dómsrannsóknariimar
til saksóknara ríkisins, og hafði
rannsóknin í málinu þá staðið
yfir í rétta ellefu mánuði.
Svo sem margoft hefur verið
sagt frá, þá var þessu marg
umtalaða fjársvikamáli þannig
varið, að dollarar áttu að hafa
verið sviknir út úr vamarliðinu
með því að falsa nöfn manna á
ávísanir. Áttu hér hlut að
máli bæði íslenzkir og banda
rískir menn. í beinu sambandi
við þetta mál urðu uppvís póst-
ávísanasvik í pósthúsinu á
Keflavíkurflugvelli, og annaðist
Ólafur Þorláksson einnig rann-
sókn þess máls. Hefur það leg
ið hjá saksóknara nú um nokk
urn tíma, þar eð málin voru
talin það tengd, að fjalla þyrfti
um þau bæði í einu.
Ólafur Þorláksson sagði Tím
anum í dag, að þótt hann hefði
nú sent þessi málsskjöl til sak
sóknara væri ekki þar með sagt
að rannsókn málsins væri lokið.
Valdimar Stefánsson saksókn
ari ríkisins tjáði Tímanum að
þetta væri umfangsmikið mál,
og mikið lesefni. Væri því ekki
að vænta aðgerða í því af hálfu
saksóknara fyrr en að nokkr
um tíma liðnum. Þá gætu einn
ig verið um ýmis atriði að ræða
sem rannsaka þyrfti nánar.
Einn aðal málsaðilinn í þessu
máli, mikill umsvifa og athafna
maður á Suðurnesjum, lagði í
sumar fram kröfur á hendur
þriggja dagblaða vegna æru-
meiðandi skrifa um sig í sam
bandi við málið. Námu kröfur
þessar um tveim milljónum
króna.
Svo sem nærri má geta hefur
þessi ellefu mánaða rannsókn
leitt ýmislegt í Ijós, um sam-
skipti íslendinga við varnarlðið.
Sunnudagsblað Tímans fylg
ir ekki með blaðinu að þessu
sinni, en verður í þess stað
borið út með Tímanum á
aðfangadag. í því blaði birt
ist meðal annars nýtt ljóð
eftir Guðmund Böðvarsson.
viðtal við Jóhann Hannesson
prófessor og niðurlag ferða
sögu Jóns Helgasonar frá
Auiturlöndum.
Leitað eftir samkomulagi um
byggingu ulúminíumverksmiðju
IGÞ-Reykjavík, 19. des.
Fyrir skömmu fór fimm menn
utan til viðræðufundar í Ziirich í
Sviss um hugsanlega byggingu al-
uminiumverksmiðju hér á Iandi.
Þeir sem fóru héðan eru dr. Jó-
hannes Nordal, seðlabankastjóri,
en hann er formaður Stóriðjunefnd
ar, Eiríkur Briem, rafmagnsveitu-
stjóri og Steingrímur Hermanns-
son, framkvæmdastióri Rannsókn
arráðs ríkisins. Þeim til aðstoðar
voru Hjörtur Torfason, lögfræðing
im og dr. Gunnar Sigurðsson, verk
fræðingur.
Tíminn hafði tal af Steingrími
Hermannssyni í dag og spurði
hann um þessar viðræður. Stein-
grímur sagði, að málið væri allt
á byrjunarstigi, og hefðu viðræð-
urnar mótast af því. Á fundinum
hefðu verið kannaðir ýmsir þýð-
ingarmiklir þættir og hefðu ís-
lendingar átt góðum skilningi að
mæta um ýms meginatriði málsins.
I Steingrímur sagði að það væri
langt í land með nokkra samnings
gerð í málinu, og þyrfti marga
fundi áður en málið kæmist á
það stig, og einnig þyrfti mikla
söfnun upplýsinga.
Af hálfu Swiss Aluminium
Ltd. tóku tveir aðalforstjórar fyrir
tækisins, Mr Meyer og Dr. Mull
er, þátt i viðræðufundunum, en
með þeim voru ýmsir starfsmenn
fyrirtækisins. Loks sendi Alþjóða
bankinn. en til hans hefur verið
leit að um lán til Búrfellsvirkjun
ar, þriggja manna sendinefnd til
þessa fundar undir forustu Mr.
Fontein, aðstoðarframkvæmda-
! stjórá í Evrópudeild bankans.
Eins og fyrr segir var í þessuim
viðræðum reynt að kanna, hvort
finna mætti viðunandi samkomu-
lagsgrundvöll uim byggingu al-
uminiumverksmiðju hér á landi,
er hinir þrír aðilar viðræðnanna
teldu viðunandi. Verður skýrsla
um það, sem fram kom i viðræð-
unum, lögð fyrir ríkisstjórnina til
athugunar innan skamms. Fundur
inn stóð dagana 14. — 17. des.