Tíminn - 22.12.1964, Blaðsíða 7

Tíminn - 22.12.1964, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 32. desember l‘J64 f BfðVI Doktorsritgerð um kljásteinavefstað Um miðjan síðasta mánuð var Elsa E. Guðjónsson, safn- vörður við Þjóðminjasafn ís- lands, viðstödd, er Marta Hoff- mann, safnvörður við Norsk Folkemuseum, varði doktors- ritgerð sína við Oslóarháskóla. Fjallaði ritgerðin um rann- sóknir á sögu og tækni kljá- steinavefstaðarins. Bað ég Elsu að segja frá þessu nýja vís- indariti, því í því koma í fyrsta sinn fyrir sjónir er- lendra vísindamanna margar upplýsingar um vefstaðinn og tækni hans, sem einungis hafa varðveitzt í íslenzkum heim- ildum. Ritgerðin, 425 bls. bók gef- in út af Háskólaforlaginu í Osló, heitir fullu nafni The Warp Weighted Loom. Studies in the History and Techno- logy of an Ancient Implement. Kljásteinavefstaðurinn er æva- gamalt verkfæri. Finnast menj- ar hans í Evrópu og ná- lægari austurlöndum, og má rekja sögu hans um 9000 ár aftur í tímann. Þar til um 1000 árum e. Kr. mun hann hafa verið algengur í notkun, en síðan hverfur hann smám saman fyrir öðrum vefstólum. Lang lengst hefur hann lafað uppi í afskekktum byggðum nyrzt í Evrópu, þ.e. í Noregi og Finnlandi, á Færeyjum og á íslandi. Marta Hoffmann hóf rann- sóknir sínar á því að skoða og lýsa þeim vefstöðum, sem til voru á Norðurlöndum. Hún fann vefstaði frá Hörðalandi og Trumsfylki, Lapplandi og Færeyjum og svo þann eina, sem til er í Þjóðminjasafni íslands. í Hörðalandi, norðan- verðu Trumsfylki og Lapp- landi notaði einstaka fólk vef- staðinn enn, þegar frú Hoff- mann hóf rannsóknir sínar, og var það síðasti lifandi tengi- liðurinn við hina fornu vefn- aðaraðferð og því einkar heppi legt, að hún skyldi ná því að sjá vinnubrögðin. Jafnhliða skoðun vefstað- anna, safnaði frú Hoffmann þeim heimildum, sem til voru skráðar um notkun þeirra. f Noregi fundust engar lýsing- ar á því, að hægt hefði verið að vefa annað en einskeftu í vefstaðnum, en á íslandi fann hún, m.a. með aðstoð þjóð- minjavarðar og safnvarða, lýs- ingar á því, hvernig vefa mátti með þremur sköftum, þ.e. vefa vaðmál. Gildi þeirra lýsinga sannreyndi frú Hoffmann fyrst með því að útvega sér eftirmynd af norskum vefstað árið 1952-3, setja upp í hana vef í þrískeftan vefnað og vefa 20 álna langa vaðmálsvoð. En þegar hún kom til íslands ár- ið 1963, hjálpuðust þær Elsa að því að setja upp vef í ís- lenzkan vefstað í Þjóðminja- safninu og vefa vaðmál. Ein- hverjir lesendur muna kannski eftir viðtali við þær með mynd um af vefstaðnum, sem birt- ist í blaðinu Meðal hinna íslenzku heim- ilda, sem frú Hoffmann vitn- ar til í ritgerð sinni, er grein eftir dr. Matthías Þórðarson, sem birtist árið 1914 í Árbók Fornleifafélagsins. Þar er get- ið allra heimilda, sem kunn- ar voru um íslenzkan vefnað í gamla vefstaðnum. Um það leyti, sem vitneskja um notkun kljásteinavefstað- arins var að hverfa hér á landi, leitaði Jón Ámason á vegum Þjóðminjasafnsins, upplýs- inga um vefnaðaraðferðir og fékk m.a. tvær greinargóðar lýsingar. Önnur, frá 1877, var frá Önnu Thorlacius í Stykkis- hólmi, sem studdist við frá- sögn móður sinnar, er séð hafði ofið í vefstaðnum í bernsku. Hún sendi einnig safninu lítið líkan af vefstað. En nokkru fyrr, líklega um 1870, mun hann hafa fengið lýsingu, sem skráð var eftir frásögn Guðrúnar Bjarnadótt- ur, sem búsett var austur í Lóni, og sjálf hafði ofið í vef- staðnum. Vitnar Marta Hoff- mann oft í Guðrúnu. Naum- ast hefur hana órað fyrir því, að hún ætti eftir að komast í heimsbókmenntirnar fyrir það að lesa fyrir lýsingu á handverki, sem henni hefur að líkum þótt ákaflega hversdags- legt og sjálfsagt. Elsa benti frú Hoffmann á ritgerð, sem prentuð var eftir handriti frá 1760—70 og upp- runnið mun vera frá Viðey. Þar er m.a. lýst vefnaði í gamla vefstaðnum með fjórum sköftum. Eftir að frú Hoff- mann las þá ritgerð, sagðist hún vera viss um, að væri vel Elsa E. Guðjónsson leitað, hlyti að finnast á ís- landi skráðar heimildir um alla skapaða hluti! í eftirmála við doktorsritgerðina drepur frú Hoffmann á þessa ritgerð, sem því miður kom ekki í leit- irnar fyrr en meginmál bók- arinnar var fullprentað. Hefur komið til tals, að þær Elsa vinni síðar í sameiningu úr því efni, sem þar er gefið. j| f doktorsritgerðinni er mik- inn fróðleik að finna, sem orð- ið getur undirstaða enn frekari rannsókna. f söfnum liggja víða órannsakaðar vefnaðar- leifar, sem horfið hafa í skugg- ann fyrir verkefnum, sem frem ur ganga í augun á vísinda- mönnum, en hafa ekki síður menningarsögulegt gildi en verkefnin, sem þegar hafa ver- ið valin. Andmælendur við doktors- vörnina voru dr. Agnes Geijer, textílsagnfræðingur frá Sví- þjóð, og prófessor Hilmar Stig- um, þjóðháttafræðingur frá Noregi. Margir áheyrendur voru að doktorsvörninni og hlaut frú Hoffmann mikið lof fyrir verk sitt. S.TH. Pólýfénkórinn flytur jélmratoriu Bachs K.I-Reykjavík 18. desember. Pólýfónkórinn efnir til hljóm- leika í Kristskirkju í Landakoti 27. og 28. des. og verða þar fluttir tveir fyrstu kaflamir úr jólaoratoriu Bachs. Þetta mun vera í annað skipti, sem oratorian, eða tveir fyrstu kaflar hennar, eru fluttir hér- lendis, en víða erlendis er það fastur siður í jólahaldi að flytja hana um jólaleytið. Þessir tveir fyrstu kaflarnir eru um helming- ur verksins, og hápunktur þess Námsstyrkir í Bandaríkjunum Íslenzk-ameríska félagið hefur nú sem fyrr milligöngu um út- vegun námsstyrkja fyrir íslenzka stúdenta, til náms við bandariska háskóla, á vegum Institute of International Education. Styrk- ina veita ýmsir háskólar i Banda- ríkjunum, og eru þeir mismun- andi. Nema þeir skólagjöldum og /eða húsnæði og fæði o.s.frv. Styrkirnir eru eingöngu ætlaðir námsmönnum, er ekki hafa lok- að því er forráðamenn Pólýfón- kórsins tjáðu fréttamönnum í dag. Hljómsveit skipuð 22 mönnum leikur með, en einsöngvarar verða þau Guðrún Tómasdóttir, Sigurður Björnsson og Halldór Vilhelmsson. Guðrún hefur radd- þjálfað kórinn nú um nokkurt skeið og syngur bæði alt- og sopranhlutverk á hljómleikunum í Kristskirkju. Sigurður Björns- son tenór syngur hlutverk guð- spjallamannsins, og kom hann hingað gagngert til að syngja á þessum tveim hljómleikum, hef- ið háskólaprófi. Þess skal getið, að nemendum, er Ijúka stúdents- prófi á vori komanda og hyggj- ast hefja haskólanám næsta haust, er heimilt að sækja um þessa styrki, en hámarksaldur umsækj- enda er 22 ár. Allar upplýsingar um styrkina verða veittar á skrifstofu fsl.-am- eríska félagsins, Hafnarstræti 19, 2. hæð, á þriðjudögum og fimmtu- dögum kl. 5.30-6.30 e.h. Sími 17266. Umsóknir skulu sendar skrifstofu félagsins sem allra fyrst og eigi síðar en 5 jan- úar 1965. Upplýsinga má einnig leita hjá Ottó Jónssyni mennta- skólakennara, Hvassaleiti 107, sími 38432. ur hann oft áður sungið þetta hlutverk og síðast í Árósum nú fyrir skemmstu. Núna í byrjun janúar syngur hann svo hlutverk guðspjallamannsins í seinni hluta oratoríunnar í Munchen. Halldór Vilhelmsson syngur bassa ein- söngshlutverkið, en hann er einn af elztu og beztu kröftum í Pólý- fónkómum. Hefur m.a. numið hjá Enge Lund. Kórinn er skip- BS.-Ólafsfirði, 16. desember. Hér hefur verið norðan hríð undanfama daga, og bátar ekki komizt á sjó í tæpa viku. Síðast liðna nótt réru þó flestir bátar, en afli var mjög tregúr eða um 3 tonn hjá þeim sem bezt fisk- uðu. Stærri bátamir létu þetta verða sinn síðasta róður fyrir ára- mót, og eru tveir þeirra þegar farnir inn á Akureyri til að liggja þar um jólin, en minni dekkbátamir ætla að halda út til helgar ef veður leyfir. Mótorbáturinn Sæþór fór í síð- ast liðinni viku austur fyrir land á síldveiðar, en hefur lítið getað hafzt að enn þá vegna brælu. Tals- verðum snjó kingdi hér niður hríðardagana, og er nú Lágheiði algjörlega ófær öllum bílum og ekki hægt að komast un. sveitina nema á beltadráttarvélum, og með hesta og sleða. Vonir standa nú til að eitt- hvað rætist úr læknisleysi því, sem við höfum átt við að búa aður 34 körlum og konum og er Ingólfur Guðbrandsson stjóm- andi kórs og hljómsveitar. Þor- kell Sigurbjörnsson hefur haft með höndum æfingar hjá kórn- um í fjarveru Ingólfs og einnig hefur hann séð um hljómsveit- ina. Formaður Pólýfónkórsins er Rúnar Einarsson. undanfarið, vegna sjúkleika hér- aðslæknisins okkar Halldórs Guðnasonar, en hann hefur legið á sjúkrahúsi í tæpa tvo mánuði. í forföllum hans hefur Valgarð Björnsson héraðslæknir á Hofs- ósi gegnt hér læknisstörfum tvo daga í viku, og hefur oft verið mjög harðsótt fyrir hann að kom- ast á milli vegna ófærðar, en hann hefur látið sér mjög annt um að veita okkur sem bezta þjónustu þrátt fyrir hinar erfiðu aðstæður. Á mánudaginn kom hingað læknakandidat, sem verður héma fram yfir áramótin, eða um mán- aðar tíma, en liver tekur þá við, er enn óráðið. Á mánudaginn hófst hér samnorræna skíðagang- an. Með því að flestir nemend- ur miðskólans og bamaskólans gengu með skólastjóra sínum og kennara í broddi fylkingar. 130 luku göngunni þennan dag. Hríð- arveður var, en færð sæmilega góð. Fréttir frá Úlafsfirði 7 Benedikt Gíslason frá Hofteigi - sjötugur Fyrr og síð þitt framhjáhald, var feðra „Saga“. Vel metinn vinur „Braga“. Hofteigsbóndinn hefir vald, á háttum „Braga“. En ástvinan var ætíð „Saga". Báðum hefur goldið gjald og greindin haga, fært þar margt til fullra laga. Ófama ég óska þér um ævidaga. Að beggja þeirra brautargengi, bæri „Sögu“ og ljóða strengi. Þórarinn frá SteíntúnL ÞEIR KOMAST .... t'ramhald ai ð. síða nokkur kvæði eftir Gunnfríði. Eitt þeirra kallar hún „Fjallið heima“. I því eru þessi erindi: Sem bam ég stóð og starði lengi. á sterkmótaða kletta þína. Það veitti þrek.sem gaf mér lengi og gerði færa vegu mína. Dulin öfl í kraftsins kynngi kmmu þrátt, sem öldur strauma. Var sem guðinn sjálfur Jiyngi og segði mína leyndu drauma. Þeir komast stundum furðu langt, sem ekki gleyma draum- um sínum. Gunnfríði Jónsdóttur mynd- höggvara, óska ég allrar farsæld- ar á ókomnum ámm. Sigríður Thorlacíus. ÚTVARPSSTÖÐ Framhald at 9. síðu. uglega óx og efldist orð Drott- ins“. Einum þeirra safnaða, sem Páll hafði stofnað, skrifar hann:“. . . Koma vor til yðar hefur ekki orðið árangurs- laus“, — þrátt fyrir að hann hafði áður „þolað illt og mætt misþyrmingu". Hinn góða end- anlega árangur þakkar hann því, að hann hafði „djörfung til að tala til yðar fagnaðar- erindi Guðs". Reynsla aldanna hefur stað- fest þá fullyrðingu Páls, að „fagnaðarerindið er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim er trúir“. KRISTNIR Framhald aí ð. siðu. þessa má finna í listum Inka og Azteka, sem tóku enda, þeg- ar stríðsmenn hins gamla heims komu til skjalanna. En saga fomríkjanna, Mexíkó og Perú, er merkilegt rannsóknarefni og verður lengi enn. Fomfræðingar draga ný undur þessarar veraldar fram í dagsljósið á hverju ári. Og enginn veit, hverju þessar þjóð ir hefðu komið til leiðar, ef þær hefðu fengið að lifa í friði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.