Alþýðublaðið - 30.01.1955, Síða 1
HANS HEDTOFT
HANS IíEDTOFT, formaður danska Alþýðuflokksins og
forsætisráðherra Dana, lézt í fyrrjnótt í herbergi sínu í Grand
Hotel í Stokkhólmi. Hann hafði komið daginn áður til borg-
arinnar til að sitja fundi Norðurlandaráðsins og tók þátt í um-
ræðum þann dag við setningu fundarins. Hann virtist þá eltki
kenna sér nejns meins og gekk til náða um miðnætti eftir að
liafa rætt um stund við menntamálaráðherra Dana, Julius
Bomholt. I gærmorgun fannst liann örendur í rúmi sínu og
töldu læknar að banamein hans hefði verið hjartalömun og
að dauða hans hefði borið að fyrir fimm íjl sex klukkustundum.
Með Hans Hedtoft er í val
hniginn einn af fremstu alþjóð
legum foringjum jafnaðar-
manna, forustumsður og
fremsti talsmaður Alþýðu-
flokkanna á Norðurlöndum, af
burða baráttumaður og eínn
mesti íslandsvinur á erlendri
grund.
KLÆÐSKEKASONUK
FRÁ ÁKÓSUM
de'lur í danska Aiþýðuflokkn
um og gekk Hedfoft þá mjög
fram fyrir skjöldu. Þá sótti
hann og alþjóðlega verka-
mannaháskóla og tók þátt í
starfi þeirra. St.auning kom
'snemma auga á hina miklu
hæfileika Hedtofts og það var
hann, sem réði hann, árið
1929, sem starfsmann flokks-
ins.
Framhald á 6. síðu
Minningarorð effir Har-
ald Guðmundsson, for-
mann Alþýðuflokksins.
HANS HEDTOFT er látinn.
Hann var jafnaðarmaður af
li.fi og sál. Hann helgaði jafn-
aðarstefnunni, fólkinu, líflnu,
framtíðinni alla krafta sína,
allt sitt mikla ævistarf. Nú er
hann allur.
Þeir, sem þekktu Hedtoft
bezt, mátu hann mest og unnu
honum heitast. Hann var í
senn frábær foringi og ágætur
samstarfsmaður, djarfur, víð-
sýnn, öruggur og ráðhollur
drengskaparmaður.
Alþýðuflokkurinn og öll ís-
lenzka þjóðin hafa með athvgli
og aðdáun fylgzt með starfi
hans í þágu danskrar alþýðu,
allrar dönsku þjóðarinnarj fyr-
ir Norðurlöndin öll, fyrir al-
þýðu allra landa. Alþýðuflokk
urinn hér samhrygglst af heil-
um huga danska Alþýðuflokkn
um, sem nú hefur orðið á bak
að sjá ástsælum foringja, sín-
um fremsta mann:.
Öll danska þjóðin syrgir
Hans Hedtoft og harmar. frá-
fall hans. En danska þjóðin er
ekki ein um að syrgja Hedtoft.
Hún átti hann ekki ein. Hann
var orðinn sameiginleg eign
hinna norrænu þjóða. Milljón
ir manna um öll Norðurlönd
ræddu um Hedtoft sem „sinn
mann“. Syo er um afburða-
menn. Þeir eru of stórlr, of á-
hrifaríkir. til þess að vera eign
aðeins einnar þjóðar. Hedtoft
var slíkur. Með starfi sínu
gerði hann götuna greiðari fyr
ir alla þá, sem í öðrum löndum
börðust fyrir sömu hugsjónum
og hann.
Danir eru rík þjóð, Dan-
mörk ríkt land. Hedtoft leit
svo á, að mesta auðlegð Dan-
merkur væri fólkið sjálft,
mennirnir og konurnar, sem
landið byggja hverja líðandi
stund. Þessi lífsskoðun var
grundvöllurinn undir öllu hans
ævistarfi.
Hver sá maður, sem skapar
fólkinu 'betri lífskjör. andleg
(Frh. a 6. síðu.)
Hans Hedtoft fæddist í Ár-
ósum 21. apríl árið 1903, klæð '
skerasonur. Þegar hann var 17 i
ára gamall, fór hami að læra
prentmyndagerð. — Hann
gerðist mjög ungur þátt-
takandi í félagsskap ungra
jafnaðarmanna og var yngst-
ur þelrra, sem stofnuðu
Samband ungra jafnaðar-
manna árið 1920. Tveimur ár-
um seinna gerðist hann starfs
maður sambandsins og ferðað-
ist víða um landið sem erind
reki þess.
VARÐ UNGUR
STARFSMAÐUK FLOKKSINS
Formaður sambandsins var
hann árin 1927—1929. Á þess-
um árum geisuðu innbyrðis
Yopnahlé við sljórnina á For-
mósu kemur ekki til mála
-- segir málgagn kommúnistastjórnar.
AÐALMÁLGAGN kommúnistastjórnarinnar í Kína hefur
í grein um FormósumáliS látið í ljós, að það komi ekki til mála
að kommúnistastjórnin semji um vopnahlé við Formósustjórn.
Og ef Bandaríkin ætli að
hindra það með vopnavaldi, að
kommún'Istar taki Formósu,
muni tekið á móti af því afh,
sem Kína hafi yfir að ráða.
Eisenhower forseti undirrit-
aði í gær heimildarlög um, að
hann megi eftir ástæðum beita
hervald'i til að verja Formósu.
Fiskimannaeyjar og nokkrar
aðrar eyjar, komi til árásar af
hálfu kommúnistastjórnarinn-
ar í Peking'.
Mannfjöldinn á bryggjunni.
Nokkrir skipsbrotsmenn við borðstokk Ægis.
Þúsundir voru á bryggpnni,
er Ægir kosn með skiphrols-
mennina tii Rvíkur í §ær
ÞÚSUNDIR manna voru saman komnar niður við höfa
í Reykjavík í gær, er Ægir kom með skipbrotsmennina af fog-
aranum Agli rauða. Var Faxagarður þéttskipaður fólki, svo aS
bifreiðin, er kom til að sæltja skipbrotsmennina komst varla að.
Klukkan var um hálfþrjú. er'
Ægir lagðist að Faxagarðl, og
voru skipbrotsmennirnir strax
fluttir þaðan td húsakynna
Slysavarnafélags íslands, sem
bauð þeim til kaff.drvkkju þar
ásamt nokkrum gesium.
ÁVARPSORÐ FLUTT
Meðan setið var að borðum
voru flutt nokkur ávörp. Þess-
ir töluff:: Guðbjartur Ólafs-
son, forseti Slysavarnafélags
íslands, frú Guðrún Jónasson,
formaður kvennadeildar slysa
varnafélagsins, frú Bodil Beg
trup, sendiherra Dana, Petar
V'golund, verkstjóri hjá SlipD
félaginu, en hann er færeysk
ur, Eysteinn Jónsson fjármála
ráðherra og þingmaður Sunn
mýlinga og Henry Hálfdanar-
son, skrifstöfustjóri slysa-
varnafélagsins, sem m. a. flutti
kveðjur Bæjarútgerðarinnar á
Norðfrði og frá ætfcingjum og
vinum eystra.
SJÓPRÓF Á MÁNUDAGINN
Sjópróf út af skipstapanum
fara fram á morgun, og fyrr en
þá er ekki að vænta frí-fagna
um tddrög hans.
Lík færeyska sjó-
mannsins fundið!
VÉLBÁTUR frá Bolunga
vík fann í gær lík á reki út
af Isafjafðardjúpi. Var tal-
ið, að það væri af færeyska
sjómanninum Sofus Skora-
dal, sem drukknaði, meðan
verið var að bjarga mönn-
unum af Agli rauða.
Sfefánsmófið fer fram
í Hveradölum í dag.
! STEFÁNSMÓTÍÐ, sem er
fyrsta skíðamót vetrarins, fer
fram í Hveradölum í dag kþ
10 f. h. Margjr af beztu skíða
mönnum Reykjavíkur eru með
al keppenda,, t. d. 3 núverandi
íslandsmeistarar í Alpagrein-
um.
Sfór steinn henfisf
undan bílhjóii í
rúðu á öðrum bíi.
ÓVENJULEGT atvik kom
fyrir í matartímanum í
gær, um kl. 12.40, er stórefl
is steinn heníist undan
hjóli vörubifreiðar hátt í
Ioft og skall á gluggakarmi
á fó’Iksbifreið. Munaði
minnstu að aivarlegt slys
yrði.
Fólksbifreiðin mætti vöru
bifreiðinni á Suðurlands-
braut og lenti ytri brún aft
urhjólsins á steininum, sem
mölváði rúðuna í fólksbif-
reiðinni, en mundi hafa far
ið inn í hana, ef hann hefði
komið örlítið neðar. En í
sætinu hjá bifreiðarstjóran-
um sat maður, og hefði
hann þá orðið fyrir steinin-
um.