Tíminn - 17.01.1965, Blaðsíða 12
TSMIMM
Johannes XXXIII: Geistliches
Tage huch unÆ andere geistliche
Schriftem. Mit einem Vorwort
von Msgr. Loris Capovilla und
Prof. Giulio Bevilacqua. Oktav,
480 Seiten. Útgefandi: Verlag
Herder, Freiburg-Basel — Wien,
1964. Verð: 26.80 DM.
Bók þessi kom út á ítölsku á
síðasta ári og var gefin út á þýzku
sama ár. Herder forlagið gefur
bókina út, sama forlagið og hef-
ur gefið út bækiir Nonna eða Jóns
Sveinssonar, en hann er einn víð-
frægasti höfundur íslenzkur á
þessari öld.
Þetta er í fyrsta sinn, sem dag-
bók páfa er gefin út. Jóhannes
XXIII var fæddur í þorpinu Sotto
il Monte í Bergamo á Norður-
Ítalíu 1881. Hann var bændaætt-
ar, lagði stund á nám í Bergamo
og Róm og varð doktor 1904 og
sama árið prestur. Hann verður
síðar einkaritari biskupsins í
Bergamo og kenndi kír*kjusögu
við menntastofnanir í biskupsdæm
inu og setti saman rit Um kirkju-
sögu. Hann tók þátt í fyrra stríði
sem hjúkrunarmaður og herprest-
ur.. Gekk í þjónustu Benedikts
XV, 1921 og varð erkibiskup að
nafnbót 1925. Var sendur til
Búlgaríu sem páfalegur erindreki
og gerður fulltrúi páfa í því landi
1931 og síðar í Tyrklandi og Grikk
landi. 1944 var hann útnefndur
sem sendimaður páfa í Frakk-
landi. Pius XII útnefndi hann
kardínála 1953 og skipaði hann
yfirbiskup í Feneyjum. Hann hirti
lítið um stjórnmál en þá sjaldan
hann beitti sér á því sviði skorti
hvorki fimleika í rökræðum né
fyndni. Hann var kjörinn páfi
1958 og álitu margir að nann
myndi fara sér hægt og láta lítið
að sér kveða, en raunin varð’ önn-
ur. Sjaldan hefur dugmeiri páfi
fyllt sæti heilags Péturs. Hann
stórfjölgaði kardínálum og stefna
hans var að gera kirkjuna alþjóð- j
legri en áður. Hann gaf sig meira
að almenningi, heimsótti sjúkra-1
hús og fangelsi og varð hinn
alþýðlegi páfi framar flestum for- •
venim sínum. Merkasta stjórnar-
athöfn hans var kvaðning til j
kirkjuþings, slíkt hafði ekki verið '
haldið í þeirri mynd í tæp hundr
að ár. Á þessu þingi voru óbundn-
ari umræður, en fyrr hafði tíðk-
azt og fulltrúarnir voru hvattir
til þess að finna leiðir til þess að
auka trúna meðal kaþólskra
mann og gera hlut hennar sem
mestan í lífi manna. Einnig var
honum sameining kristinna kirkju
deilda mikið hjartans mál. Hann
átti viðræður við gríska patríark-
ann, erkibiskupinn í Kantaraborg
og fleiri kirkjuhöfðingja. Jóhann-
es XXIII deyr 3. júní 1963.
Dagbækur Jóhannesar XXIII
eru einstakar, hann tekur að rita
dagbók fjórtán ára gamall, í þann
BRÚÐKAUP
„Og það var Brúðkaup."
Þannig byrjar guðspjallið á
þessum degi, og þannig er upp
haf sögunnar um heimilið.
Hvaða heimili. Öll heimili.
Uss nei, ekki nú á dögum a
íslandi áð minnsta kosti. Flest
heimili hér verða til á undan
giftingunni og brúðkaup-
inu. Ættum við kannski held-
ur að segja. „Og það var ball.“
Og svo kemur framhaldið, sem
enginn má vita um nema stelp
urnar í skólanum og konurn-
ar í saumaklúbbnum, þangað
til leiðin liggur á fæðingar-
heimilið og svo — svo kemur
hin sagan — kannski — sag-
an um brúðkaupið.
Og hvað er svo brúðkaup?
Jú, það er athöfn frammi fyr-
ir altari eða presti. Og þar er
flutt ávarp og sungnir sálmar
og sögð bænarorð og
játað heiti. Það er að segja
gefið loforð. Spurt tveggja
spurninga af presti, sem er
þar fulltrúi Guðs. Og þeirri
fyrri er tiltölulega auðvelt að
svara. Hún er um eigif val.
Viltu kvænast þessari konu eða
giftast þessum manni, sem hjá
þér stendur. Og svarið er auð-
vitað já. En hin er dálítið
vandasamari enda stundum
svarað lágt og hikandi.
„Viltu reynast henni góður
eiginmaðiir eða eiginkona með
Guðs hjáip, hverning sem ævi
kjör ykkar verða. Og þarna er
hið eiginlega brúðkaup. „Góð-
ur segirðu. Það er nú ’teygjan
legt orð segja krakkarnir. En
innst inni skilja það nú flestir
Því sannvizkan segir til um
það. hvenær þetta heit er hald
ið og hvenær ekki Og góður
þetta eina orð er nóg. Það er
heitið. Heilagt heit og stund
um erfitt og stundum líka brot
ið og einskisvirt áður en langt
er liðið frá því að það var gef-
ið.
En samt er þetta eina littla
orð homsteinn heimilis þíns,
óskasteinn bama þinna og gim
steinn hamingju þinnar.
Þegar hjón eru að skilja og
þeim 'fjölgar með hverju ári,
sem það gera þá minnasl
þau yfirleitt aldrei á betta heit
Það er líkt og það hafi áldrei
verið gefið. Það er næstum
eins og ekkert sé forðast frem-
ur en að minnast á brúðkaup
ið — brúðkaupsdagurinn á að
vera gleymdur og grafinn. En
annars er oftast minnzt á
margt á stuttri stundu. Ekker:
fólk er eins vægðarlaust,
grimmt og sorgbitið allt senn
eins og hjón sem eru áð skiljá
Loftið inni í stofunni minni
getur orðið hrungið hatri á
skammri stundu, um leið og
það fyllist af reykjarsvælu, því
undantekningarlaust er einni
sígarettu af annari svælt á
meðan talað er. Og þarna ber
allt á góma, nema éitt.
Og þá segi ég stundum líkt
og stórt barn, sem hefur ekki
komizt að m«ð nokkurt orð:
Viljið þið nú ekk; reyna að
gleyma öllu nema einu, aðeins
einu, sem þið lofuðuð hvort
öðru hérna í fyrra eða fyrir
nokkrum árum. Þetta eina —
og ekkert annað var að vera
góð — láta hið | góða ráða i
orðum, athöfnum og hugsun-
um.
Og allt í einu verður hlé a
orðaflaumnum, líkt og bylja-
slot í stórhríð. Og kannski er
hægt að útskýra nánar, hvað
fólst í heitinu um góðleika og
góðvild, bessum hornsteini
heimilisins. Þar eru margir
bliikfletir. Afsakið en ásakið
ekki, sýnið umburðarlyndi í
stað óþolinmæði. Verið sönn,
hreinskilin, einlæg, ástúðleg,
drenglynd og trygg. Biðjið fyr-
irgefningar og fyrirgefið á
hverjum einasta degi. En um-
fram allt: Virðing, traust og
ást hvort til annars. Og sé ást-
in að kólna, 'oá dugir traust
og virðing ásamt vináttu. Þetta
er satt. Auðvitað er þá ekki
sólskin og sunnanvindur. En
maður verður líka að lifa sól
skinslausa daga. Og góðleikinn
umhyggjan og nærgætnin
ásamt þakklæti breytir vatni
hversdagsleikans í vín gleð-
innar, þrátt fyrir allt.
Það er ekki nærri líklegt.
að hægt sé að koma þessu öllu
• að í ^vlií'dofirm ^+iTrHlTm*
þarf okki svo uön-. oið *f
þau hitta í mark til að bræða
frostið, lægja storminn. Ég
sagði orð, en ég átti heldur
að segja: Stundum þarf ekki
svo mikið af anda og krafti
brúðkaupsdagsins, blænum frá
altari kærleikans til þess að
tár komi í augun, drepið sé
á sígarettunni í hvelli, og ein-
hver annarlegur en þó falleg-
ur blíðusvipur færist yfir and-
litið, í
Og þótt ótrúlegt sé þá veit
ég ekki nema um eitt, sem
gerir hjón ósættanleg og hjóna j
band ómögulegt, hættulegt og .
óþolandi. Það er auðvitað ást |
til þriðja aðila og hatur og |
óbeit sem af því getur leitt..
segið þið.
Nei, ónei, það er nú ekki
svo merkilegt. Ég veit um
nokkur sæmileg hjónabönd og
ágæt heimili börnum sínum og
gestum, þar sem ástin, hulin,
dulin og heit syndir í tárum
og á sín stolnu augnablik. En
þetta eina, sem getur verið og
er bölvaldur allra heimila það B j
er áfengisnautn brennivíns-
drykkja. En um slíkt þýðir
ekki að tala gegn_ töfrum tízk
unnar á nútíma Islandi. Jafn
vel læknar skrifa um skaðsem:
mjólkur og smjörs og illar af j
leiðingar af því að éta kartöfl- i
ur eða kjötflís af feitum sauð j
En hve mörgum sinnum brenni j
vín er skaðlegra bæði hjarta fl j
og lifur. heimili og hamingju
en allar kartöflur og öll mjólk
það er látið ósagt og talið
hlægilegt og bamalegt að j
minnast á slíkt, enda hafi sjálí j
ur frelsarinn breytt vatni j
vín, það sanni einmitt guð. ■
spjall dagsins.
Já, Kristur var frjáls og j
frjálslyndur, , mannlegastur
allra bæði í gleði og sorg. En
hann var samt barn síns lands,
síns tíma og sinna þjóðar sem
þá átti ekkert áfengisböl að
minnsta kosti "var það ekki
meðal fátækrar og allslausrar
alþýðu.
En legði Kristur blessun sína
yfir alla bá bölvun, sem áfeng
ið flytur hjörtum og heimil !
'im op - Hae ->e
Pt-sn
SUNNUDAGUR 17. Janfiar 1965
Jóhannes páfi
mund sem hann fer í mennta-
skóla og hún nær spannar alla
prestskapar og biskups tíð hans,
allt til þess að hann er orðinn
páfi, æðsti maður kirkjunnar og
einn voldugasti maður veraldar.
Bókin lýsir baráttu manns sem
hefur vígt sig þjónustu við mann-
kynið undir merkjum kirkjunnar.
Einkenni bókarinnar er auðmýkt-
in gagnvart guðdómnum og and-
leg heilindi og trúarþrek. Þegar
hann er kjörinn • páfi, skrifar
hann: „Þar eð herrann hefur val-
ið mig, svo veslan sem ég er til
þeirrar vandasömu og erfiðu þjón
ustu, hlýt ég að slíta öll þau bönd,
sem tengja mig við fjölskyldu,
jarðleg heimkynni og þjóð-
erni. . .“
Auk bókarinnar eru þarna birt
hirðisbréf páfa, sem ollu miklum
áhrifum þá birt voru. Þessi dag-
bók er andleg þróunarsaga hins
heilaga föður, og birtir oss sér-
stæðan persónuleika og göfugan
og hámenntaðan mann. Sú stofn-
un, sem hann réð er sú lífseig-
asta allra jarðlegra stofnana, ald-
ur hennar má telja um hálft ann-
að árþúsund, og styrkur hennar
er einmitt fólginn í þjónustu
slíkra manna sem Jóhannesar
XXIII. í þjónustu kirkj-
unnar hafa verið og eru
margir gáfuðustu og mennt-
uðustu menn hverrar kyn-
slóðar og kirkjan þekkir mann
inn, hún er sálnahirðir þjóðanna
og hugsar í öldum en ekki í ár-
um. Þeir góðu prelátar átta sig
á eilífðinni.
Þessi bók er smekklega út gef-
in og fylgir með mynd af höf-
FTambaia á bls. 13.
Útvegum með stuttum fyrirvara hin
heimsþekktu ALLEN PRÓFÖNAR- OG
STILLITÆKI fyrir bifreiðaverkstœði.
KOMIÐ.H Rl NGIÐ EÐA SKRIFIÐ
EFTIR FREKARI UPPLÝSINGUM
0 /
X SS CJiK-i F Brautarholti 20 Sími 15159