Tíminn - 17.01.1965, Blaðsíða 14
14
THVMNN
SUNNUDAGUR 17.
!
SjáHsbjörg opnar vinnastofu
KJ-Reykjavík, 12. jan.
Sjálfsbjörg, Landssamband
lamaðra og fatlaðra hefur ný-
verið sett á stofn saumastofu,
þar sem saumuð eru karlmanna
nœrföt allskonar.
Frá saumastofu Sjálfsbjargar að Marargötu 2
(Tímamynd K.J.J
Samtökin keyptu neðstu hœð
hússins Marargata 2 í þessu
skyni, og nú um þessar mundir
er starfsemin að hefjast. Hreið-
ar Viborg, klæðskeri, veitir
saumastofunni forstöðu, en auk
hans munu vinna þar 12-20
manns. Fer fjöldi starfsfólks-
ins eftir því, hve margt af því
getur unnið allan daginn, en á
saumastofunni cnunu bæði
starfa meðlimir Sjálfsbjargar
O'g aðrir utan samtakanna.
Þarna verða saumuð herra-
nærföt af mörgum gerðum, og
kemur það fyrsta af framleiðsl-
unni væntanlega á markaðinn i
febrar. Nú sem stendur vinna
á saumastofunni, auk Hreiðars,
fjórar stúlkur, en starfsfólk-
inu mun fjölga mjög bráðlega,
og saumastofan þá geta skilað
fullum afköstum.
Samúöarskeyti vegna
fráfalls Thor Thors
ÆSKUL YÐSRAÐ HEFUR OPIÐ
HÚS FYRIR UNGUHGAHA
FB-Reykjavík, 15. jan.
Á sunnudagskvöldið hefst nýr
liður í starfsemi Æskulýðsráðs
Reykjavíkur, sem nú starfar í
glæsilegum húsakynnum að Frí-
kirkjuvegi 11. Verður þá í fyrsta
sinn „opið hús” fyrir æskufólk,
spm vill koma þangað á kvöldn
frá klukkan 8-11.30 og eyða þar
frístundum sínum við ýmiss konar
dægrastyttingu.
Skömmu fyrir áramót 1963 af-
henti Reykjavíkurborg Æskulýðs-
ráði húseignina að Fríkirkjuveg
11, og skyldi þar verða miðstöð
fyrir æskufólk í borginni. Áður
en þessi starfsemi gæti hafizt
þurfti mjög margt að endur-
bæta og lagfæra, og urðu þessar
framkvæmdir tímafrekar, og olli
skortur á iðnaðarmönnum mestu |
þar um.
Húsið hefur nú verið málað að
innan raflagnir yfirfarnar og aðrar
nauðsynlegar endurbætur gerðar.
Á fyrstu hæð hússins eru þrjár
stórar samliggjandi stofur, og verð
ur þar fyrst um sinn opið hús fyrir
æskufólk, sem vill eyða þar kvöld-
unum með kunningjum sínum. |
Tvær stofurnar eru útbúnar sem
setustofur, teppalagðar ogg búnar
nýtízkulegum húsgögnum, sem Vil-
hjálmur Hjálmarsson, arkitekt,
hefur teiknað. Þar er píanó og
útvarp með plötuspilara, svo að
unga fólkið á að geta skemmt sér
við hitt og þetta og notið tónlistar
eftir vild. í þriðja herberginu, sem
er nokkiurs konar leikherbergi,
verða tennisborð og fleira af því
taginu.
Klúbbum, sem starfa á vegum
æskulýðsráðs, verður falið að sjá
ium einstök kvöld, en reynt verður
að koma til móts við óskir og vilja
unga föliksins um viðfangsefni. i
Hliðstætt starf verður í kjallara '
hússins, en verður auglýst síðar-
í kaallaranum er veitingasalur og
Framsóknarkonur
Félag Framsóknarkvenna held- i
ur fund í Tjarnargötu 26, mið- ■
vikudaginn 20. janúar klukkan
8.30. Ræðu flytur formaður Fram
sóknarflokksins, Eysteinn Jóns-
son, ávörp, upplestur og fleira.
Konur úr Félagi Framsóknar-
kvenna í Kópavogi verða gestir
fundarins.
sömuleiðis danssalur með stóru
leiksviði, Starfsemi þessi er ætluð
unglinguim 16 ára og eldri, og
hefst eins og fyrr segir 17. jan.
sunnudaginn, kl. 8 síðdegis.
í september s.l. hófu ýmis félög
og klúbbar æskufólks að leita eftir
húsnæði hjá æskulýðsráði til
félags- og tómstundastarfa. óg'nú
rnunu um 30 aðilar hafa feþgjð
inni með starfserhi sína í húsfnu
að Frí-kirkjuvegi 11. Flestir hafa
fengið húsnæði ákveðna daga viku
lega, en aðrir hálfsmánaðar- eða
mánaðarlega. Æskulýðsráð hefur
ákveðið, að halda þesum þætti
starfseminnar áfram eftir því, sem
húsrúm leyfir, og ástæða þykir til.
Æskulýðsráð hefur ákveðið að
efna til námskeiða í ýmsum grein
um tómstundastarfs, og mun eink-
um reyna að kynna nýjar greinar
og efla þær, sem sérstakrar að-
stöðu þurfa við.svo sem Ijósmynda
iðju o. fl. Eftirtalin námskeið hafa
verið ákveðin, og hefst innritun
í þau um næstu helgi: fyrir 16
ára og eldri: Ljósmyndaiðja, tau-
Framh. á bis 14.
FB—Reykjavík, 15. janúar.
f sambandi við fráfall Thor
Thors, ambassadors, hafa borizt
hingað til lands fjöldi samúðar-
skeyta. Forseta íslands barst sam-
úðarskeyti 12. jan. frá Lyndon B.
Johnson, forseta Bandaríkjanna,
og 13. jan. barst forseta íslands
samúðarskeyti frá George P. Yan-
ier, landstjóra í Kandada.
Þá hefur fjöldi samúðarskeyta
borizt til utanríkisráðherra og ráðu
neytisins. 12. janúar barst samúðar
skeyti frá Dean Rusk, utaríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og síðan
hafa borizt skeyti frá eftirtöldum
aðilum:
Herra U Thant, aðalforstjóra
Sameinuðu þjóðanna, herra Paul
Martin, utanríkisráðherra Kanada,
herra Vasco Leitao da Cunha,
utanríkisráðherra Brasilíu, herra
J. P. Sigvaldasyni ambassador
Kanada, hr. Finn B. Arnesen, að-
alræðismanni íslands í Sao Paulo,
Brasilíu, og hr. Arne S. Arnesen,
s.st., hr. David Wiesley, aðalræðis-
AÐALFUNDUR
Aðalfundur fulltrúaráðs Fram-
sóknarfélaganna í Kópavogi verð
ur haldinn þriðjudaginn 19. þ m.
í Félagsheimili Kópavogs og hefst
kl. 8.30.r Dagskrá: Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Burbank og starfsmönnum A. L.
Burbank & Co. New York, og hr.
Aage Schiöth, fyrrv. lyfsala, Siglu
firði.
Ennfremur frá herra Antonio
Carillo Flores, utanríkisráðherra
Mexikó.
manni íslands í Mexikó, hr. Peter
Aflinn
dágóður
KJ-Reykjavík, 16. janúar.
Vertíð er hafin í Þoriákshöfn,
og hefur einn bátur róið þessa
viku, Hefur afli hjá honum verið
dágóður frá 5—10 tonn í róðri, en
báturinn er með línu. Þrír bátar
til viðbótar rnunu hefja róðra í
næstu viku. Vinnsla er hafin í
frystihúsinu, og hefur bæði verið
unnið við fiskinn, sem á land
berst, og eins hefur verið unnið
við frystingu a síld frá Reykjavík-
urbátum, sem landað hafa í Þor-
lákshöfn. Löndunarbann á báta
frá verkfallsstöðunum tekur ekki
Stjórmn- gildi fyrr en 20. janúar.
BORGARAR
MISINDISMENN
BÓ-Reykjavík, 15. janúar.
Erlend blöð skýra frá manna-
veiðum í London, þar sem lög-
regla og borgarar tóku höndum
saman við að fanga nokkra mis-
indismenn á fyrstu dögum þessa
árs.
BYGGINGAFRAMKVÆMDIR
I KÓPAVOGI ÁRID 1964
EB-Reykjavík, 15. jan.
f skýrslu byggingafulltrúar Kópa
vogs um byggingaframkvæmdir í
Kópavogskaupstað árið 1964 seg-
ir, að það ár hafi verið í bygg
ingu 610 íbúðir (árið á undan
voru þær 381). Á árinu var haf-
in bygging á 131 íbúð (289) og
í byggingu voru því á árinu 741
íbúð (670). Þar af voru fullgerð
ar 148 íbúðir á árinu (60), en
auk þess voru í notkun í árs-
lok 204 (190) íbúðir í 159 '146)
ófullgerðum húsum og fokheldar
218 íbúðir (174) eða samtals 422
íbúðir (364). Tölurnar innan svig
anna eru frá árinu 1963.
í ársbyrjun 1964 voru P opin
berar byggingar í smíðum en
þá var einnig hafin bygging 4
obinberra bygginga, smíðastofu
við Kópavogsskóla, 3. rfanga Kárs
nesskóla, vatnsgeymis, svo og 2.
áfanga vistheimilis við Kópavogs
hælið. Því voru i byggingu 12
opinberar byggingar árið 1964
Fullgerðar voru 5 byggingar, þ.e.
1. áfangi Digranesskóla. smíða-
stofa við Kópavogsskóla. kvndi
stöð, 1. áfangi Dagheimilis t.
áfangi Félagsheimilis og fokheíd
ar og í notkun voru 2 byggingar,
Póst- og símahús og Sparisjóðshús.
Alls voru í byggingu 22 iðnað-
ar- og verzlunarhús í ársbyrjun, :
en hafin var bygging á 14 iðnaðar j
og verzlunarhúsum á árinu.
GÓÐ SÍLDVEIÐ!
j Teletype 11 cic K.G.
Ágæt síldveiði var í nótt fyrir
j sunnan á svipuðum slóðum og
áður, og mun Reykjaborg hafa
fengið mestan afla, um 2000 tunn
ur. Síldin er léleg, - skipstjór-
arnir kölluðu hana rusl.
Loftskeytastöðinni i Vestmanna
eyjum var kunnugí um afla eff-
talinna báta: — Bergur 1700, Ak-
urey 1400, Erlingur itl 400 Odd
geir ÞH 200 — hann reif not
ina, Ingvar Guðjónsson 800, Helgi
Flóventsson 1150. Ólafur Frið-
bertsson 200-300 —- reif nótina,
Guðmundur Péturssori 800 Nátt
fari 1000. Þórður Jónasson 1800
Huginn II 1700. Reykjaborg 2000
og ísleifur III 1200 Nokkrir bát-
ar aðrir munu hafa fengið ein
hvern afla.
Skömmu eftir nýár skoraði yfir
maður Scotland Yard á almenn
ing í London að aðstoða lögregl
una við að handsama nokkra saka
menn, sem léku lausum hala og
hvatti til að þeir yrðu yfirbugað-
ir með öllum tiltækum ráðum. A1
menningur tók áskoruninni, og
hafa margir glæpamenn þegar ver
ið teknir, en suma hefur burft
að flytja á sjúkrahús eftir viður
eign við borgara og lögreglu.
Sögulegasti bardaginn átti sér
stað aðfaranótt 7. þessa mánaðar,
en þá var John Campell Marson,
22 ára gamall strokufangi, hand
tekin í vesturhluta borgarinnar.
Leikurinn hófst í úthverfi. þar
sem lögregluþjónar sáu til ferða
Marsons á stolnum bíl. Eltu beir
hann á 150 km. hraða um borgina
fram með Thames, en í Kensington
varð flóttamaðurinn að hægia ferð
ina, því bílar sem höfðu rekizt á,
lokuðu veginum að mestu. Marson
reyndi að smeygja sér fram hjá
þeim, en borgari nokkur heyrði
hljóðin í sírenum lögreglunnar og
bakkaði bíl sínum á fullri ferð
framan á bíl flóttamannsins. Bíl
arnir festust saman, Marson hljön
út með skammbyssu á lofti og
geystist niður hliðargötu, þar
sem hann leitaði skjóls í kjallara
tröppum. Lögreglan fylgdl hon
um eftir og sá fyrsti, sem nálgaö
ist fékk skot í handlegginn. Þá
komu lögregluþjónar með hunda
og siguðu á Marson. en fremsti
hundurinn féll þegar fyrir skoti
Samtímis opnuðust > íargir glugg
ar í húsinu fyrir ofan Marson og
íbúarnir létu ýmsu lauslegu rigna
yfir hann. Marson skaut þá upp
með húsveggnum, íbúarnir drógu
sig í hlé á meðan, en byrjuðu
strax að kasta, þegar Marsou
sneri sér að lögreglunni. Annar
lögregluþjónn varð fyrir skoti, en
viðureigninni lauk með því. að
tveir lögregluþjónar geystust nið
ur í tröppurnar og höfðu mann
inn undir. Voru þá þrír særðir og
hundiur lá í valnum.
ÁRSRIT
Ársrit Sögufélags ísfirðinga
kom út skömmu fyrir jólin eins
og oftast áður. Helzta efni ár-
gangsins, sem er hið 9. í röð-
inni er:
I Landnám milli Barðs og Stiga.
eftir Ólaf Þ. Kristjánsson skóla-
stjóra. Búendur og bátaformenn
í Súðavíkurhreppi um aldamótin
1900, eftir Kristján Jónsson frá
Garðsstöðum. Jón Guðmundsson
bóndi og kaupmaður í Eyrardal.
ieftir Kristján Jónsson frá Garðs-
stöðum. Erlendur Ólafsson sýslu-
maður í ísafjarðarsýslu frá 1742
-1772, eftir Jóhann Gunnar Ólafs-
son bæjarfógeta. Úr gömlum sendi
bréfum, sem sami maður hefur
valið og búið til prentunar. Vest-
firzkar ættir, eftir Valdimar B.
Valdimarsson. Húsbúnaður of» hús
gögn. eftir Jóhann Gunnar Ólafs-
son bæjarfógeta. Gunnar Hall-
dórsson bóndi og alþingismaður
í Skálavík, eftir Kristján Jónsson
frá Garðsstöðum. Frá Byggðasafni
Vestfjarða, eftir Jóh. Gunnar Ól-
afsson. Lestina reka svo ævi-
minningar Hallbjörns E. Odds-
sonar og eru þar sögulok. Marg-
ar vísur ög sitthvað fleira er að
finna í ritinu.
B. Sk.