Alþýðublaðið - 11.03.1955, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 11.03.1955, Qupperneq 4
ALÞYÐUBLAÐIÐ Föstudagur 11. marz 1955» 3 s s s s s s I s s s s s § s s s s s s s s s I $ V s s t $ s s s s i s s s $ S s s s S b s > s s s s s s s S > s s s s S s s S S s s s S s íanóleikarinn Julius Kaiche Útgefandi: Alþýðuflotyurlnn. Ritstjóri: Helgi Scemundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Blaðamenn: Björgvin Guðmundsson og Loftur Guðmundsson. Auglýsingasljóri: Emma Möller. Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Alþýðuprentsmiðjan, Hverfisgötu 8—10. 'Ásþriftarverð 15,00 á mánuði. I lausasölu IjOO. Þolinmœðin þrotin STJÓRNARBLÖÐIN reyna í gær að efna til æs- inga vegna þess að verka- lýðsfélögin hafa neitað að tilnafna fulltrúa í nefnd til að ,,athuga um hlutfallið milli kaupgjalds og verð- Iags og breytingar á því frá 1952“. Slíkt er þó vonlaust verk, öllum liggur í augum uppi, að verkalýðurinn hef- ur sýnt óvenjulegt langlund argeð, en ríkissljórnin gert sig seka um hneykslanlegan sofanadskap. Og nú vill rík isstjórnin fá að lialla sér út af og halda áfram að sofa, meðan ný athugun fari fram á því, hvers vegna verkfalls aldan rís framundan. Sú at- hugun er óþörf. Alþjóð veit um hvað er deilt og hvers vegna. Ríkisstjórnin hefur haft nægan tíma til að athuga þessi mál eða láta aíhuga þau, en haldið að sér hönd- um. Tillaga Alþýðuflokks- ins um raunhæfar ráðstaf- anir til kjarabóta með minnkaðri dýrt'ið og lækk- uðu verðlagi var lögð fram slrax í þingbyrjun í haust. Ríkisstjórnin Iét sem hún hvorki heyrði hana né sæi. A þingi Alþýðusambands ís lands í nóvember var sam- þykkt með samhljóða at- kvæðum, að félögin byndust samtökum til baráttu fyrir kjarabótum. Ríkisstjórnin lét sem hún vissi ekki af þeirri niðurstöðu. Kjara- málin voru rædd í verka- lýðsfélögunum í desember og janúar, og öllum lá í aug um uppi, að krafan um bætt kjör yrði knúin fram með mætti samtakanna. Ríkis- stjórnin hafðist ekkert -að. Um mánaðamófin janúar og febrúar sögðu svo 24 verka lýðsfélög upp samningum sínum. I>á iét ríkisstjórnin gera athugun í hagstofunni og komast að þeirTÍ niður- stöðu, að hagur almennings oefði aldrei verið betri en nú! Uppsagnarfrestur verka lýðsfélaganna rann út 1. marz, en vinnustöðvun var frestað um sinn til þess að samningaviðræður gætu far ið fram og leiít í Ijós, hvort vilji til samkomulags sé fyr ir hendi. Nú býður svo ríkis sljórnin upp á nýja athugun á afkomu allra alvinnuveg- anna - til að fá nýjan frest! Athugun sú, sem til er mælzt í síðustu frestunar- beiðnj ríkisstjórnarinnar, þyrfti að fara i'ram árlega og leiða í ljós allar breyt- ingar á lífskjörum og kaup- mætti, svo og aukningu eða rýrnun þjóðarteknanna. Slíkar upplýsingar. eru traustur og nauðsynlegur grundvöllur, en hann verð- ur ekki lagður á örskömm- um tíma. þegar verkfall fer í hönd. Ríkisstjórnin getur sjálfri sér um kennt. Hún hefði fengið þessa athugun fram, ef til slíks hefði verið mælzt í haust. En sofanda- skapur hennar undanfarna mánuði veldur því, að þolin mæði verkalýðsins er þrot- in. Hann gefur ekkí ríkis- stjórninni frekari frest en orðið er, enda vissulega ekki hægt til þess að ætlazt aif neinni sanngirni. Vinn- andi fólk í landinu veit ósköp vel, að fullyrðingamar um bætt lífskjör almennings síð an 1952 eru staðlausir staf- ir. Ólafur Björnsson reikn- ar út þær tölur, sem ríkis- stjórnin fær honum á blaði, en þær eru harla umdeilan- leg heimild. Dýrlíðarstefna ríkisstjórnarinnar hefur leitt til þess, að kaupmáttur launanna fer siminnkandi. En þjóðartekjurnar hafa vaxið. Misskipting þeirra var þó sannarlega nóg fyrir. Og verkalýðurinn heimtar skilyrðislaust stærri skipti- hlut sér til handa. Ríkisstjórnin hefur sofið y.fir sig og ekki - fylgzt með- því, sem var að gerast. Nú rýkur hún upþ með andfæl- um og biður um frest á frest ofan — ekki 'til að leysa vandann, heldur til að halda áfram .að sofa. En verkalýð urinn er orðinn þreyttur á þessum hundakúnstum rík- isstjórnarinnar. Hann hefur sýnt ábyrgðartilfinningu og tillitssemi, en án árangurs. Það er sök ríkisstjórnarinn- ar •— og nú er hennar að taka. afleiðingunum. Gerist áskrifendur blaðsins. Talið við afgreiðsluna. — Sími 4900 Alþýðublaðið JULIUS KATCHEN, hinn kunni píanóleikari, er væntan legur hingað til ]ads innan skamms til að haida hljóm- leika, en þeir verða tvímæla- laust mikill Lstaviðburður. Al- þýðublaðið vill í tilefni þessa fræða lesendur sína utn Kat- chen og list hans og vekja þannig athygli á þessum góða gesti. Kalchen er maður. sem vert er að gefa gaum. Laiktækni hans er því sem næst fullkom- in, og túlkun hans á sónötum Beethovens og seinustu Mikro- kosmoslögunum eflir Bartok lýsa skilningsþroska, sem vissu lega er aðdáunarverður hjá píanóleikara á hans aldri. Hæg gengu plölurnar, sem. spilaðar eru af honum og eru þegar komnar á markaðinn, færa manni heim sanninn um það, að hann er einn hinna snjöll- ustu tæknisnillinga, sem nú halda hljómleika. AF RÚSSNESKUM ÆTTUM. Hann fæddist í Long Braneh í New Jersey árið 1926. Móð- urforeldrar hans voru kennar- ar í tónlistarskólanum í Moskvu og Varsjá. áður en þau fluttust L1 Bandaríkjanna árið 1900. Amma hans kenndi píanóleik. en afi hans hljómfræði, fiðlu- leik og fleira. Móðir Katchens var konsertpíanóleikari, en fað ir hans hafði, áður en hann gifti sig, lært hjá tengdaföð- ur sínum, sem síðar varð. og gat að nokkru leyti Iiostað há- skólanám sitt fyr.r það, sem hann vann sér inn með fiðlu- leik. Seinna varð faðir Kat- chens mikilsmetinn lögfræð- ingur og er nú þjóðfrægur maður fyrir lögfræðistörf sín í Bandaríkjunum. Þegar Kat- chen var barn að aldri, hafði hann svo mikinn áhuga fyrir tónLst, að han taldi það beztu afmælisgjöfina, sem hann fékk á fimm ára afmæli sínu, að amma hans gaf honum fyrstu kennslustundina [ píanóleik. Næstu tíu árin lærði hann svo hjá ömmu sinni og öðrum skyldmennum sínum píanóleik og annað, sem við kemur lón- listarnámi, og segja. má, að hann hafi fengið rússneskt tón listarskólauppeldi í heimahús- um. Brátt byrjaði hann að semja tónverk, skr'faði fyrstu fúguna þegar hann var 7 ára, en hætti tónsmíðunum von bráðar, vegna þess að honum fánnst hæfileikar sínir liggja á öðr.u sviði. Ahugi hans fyrir píanóleik yfirgnæfði allt ann- að. Hann sat khikkustundum saman við píanó.ð og reyndi að líkja efiir hljómsveitarhljóð færum og laða fram alls konar blæbrigði- í leik sínum. Núna hefur hann mestah áhuga fyrir að kryfja til mergjar tónverk eins og Diabelli-lirDrigðin og seinustu sónötur Beethovens, þar sem túlkun hins djúphugs- aða efnis skiol’/' meira máli en myndun sjálfra iónanna. Þegar Katchen kom til Par- ísar vaknaði hjá honum áhugi fyrir málaralist, og segir hann. að málverk eftir Monets hafi orðið sér lykill að skilningi sínum á verkum Debussys og Ravels. ÖRVANDI LYF. Katchen segist ekki hafa vitað hvað var að vera tuga- óstyrkur, þegar harrn var barn. Þegar hann var 6 ára, réðst hann í það, án þess að móð.'r Julius Katchen. hans vissi, að spila smálög, sem hann kunni utan að. á hijóm- leikum, þar sem 300 skólabörn hlýddu á. Þegar hann var 11 ára heyrði Eugene Ormandy hann leika, og varð svo brifinn, að hann bauð honum að ieika með Philadelphiu hljómsveitinni. Eftir það bárusl iionum ólal t'Iboð um að leika á hljómleik um víðs vegar um Bandaríkin, en faðir hans tók í taumana og sagði, að haldbezt væri fyr- ir hann að fara í skóla, til þess að fá alhliða menntun og þrosk ast með jafnöldrum sínum. enda bótt fé og frami byðust á hljóníeikaferðum. Katchen ungj fór að vilja föður síns, þótt hann sæi efiir þessum tækifærum til að spila fy-rir stóra áhevrenda.hópa. en það verkað'. alltaf á hann e'ns og örvandi Ij'f. HRÍFANDI LIST. Dvölin í Haverford College varð honum samt td mikiilar ánægju. Þar komst hann fyrst í kynni við drengi á sínu reki, áður hafði hann alllaf haft einkakennara heima hjá sér. Þarna tók hann háskólapróf í hei.mspeki og enskri bók- menntasögu, skrifaði mvkið snerti varla planóið, en skemmli sér við að tala á málfundum, setja leikrit á svið og leika í. sjónleikjum. Þegar Katchen lauk prófi í skólanum, var hann efstur í sínum bekk, og var einn af f'imm Bandf) fikj apnltum, sem fengu námsstyrk frá frönsku stjórninni fyrir afburða náms- afrek. Styrkinn þaði hann og hugðist nota hann til að stunda tónlistarnám í stað heimspeki. Katchen var ekki búinn að vera nema nokkrar vikur í París; þegar hann fór að snila bair með hljómsveitum. Aiiið 1951 hélt hann hijómleika í Thealre des Champs Elysée. Eftir þá hljómieika skrifaði hið fræga tónskáld Henri Seugueí: um leik hans á Diabeili-tilbrigð unum. ..Þetta var sá fegursii, mest hrífandi og áhrifaríkasti tónlistarviðburður, sem við höfum verið viðstödd í langan tíma.“ DÝRMÆTT PLÖTUSAFN. Katchen er nú í París. bar á hann safn málvérka, en sakn ar h'.ns stóra safns af ítölskum óperuplötum. sem hann þorir ekki að flytja með sér. ef það kynni að skemmast : flutning unum frá Bandaríkjunum, , en safn þe/'itai er falið eítt hið stærsta sinnar tegundar. Katchen lauk nýlega við að spila inn á plötur Diversíons on Theme for Pianoforte and Orchestra for the left hand, eftir Benjamin Britten. ,.fjári erfltt en ákaflega skemmtilegt verk,“ segir hann sjálfur, EG ÞAKKA HJARTANLEGA alla vináttu og vel- vild. sem mér var auðsýnd á sextugsamæli mínu, 5. þ.m. AXEL THORSTEINSSON. G0TT er að tyggja góðan harðfisk og geta róað taugarnar: Harðfiskurinn fæst í næstu mat- vörubúð. Harðfisksaian Körfuknattleiksmóf Íslands hefst föstudaginn 18. marz í Iþróttahúsi IBR. ~Þátttökutilkynningar skulu hafa borizt skrifstofu í B R, Hólatorgi 2, fyrir 13. marz. — Keppt verður í eftírtöld- um flokkum: Mfl., 2. fl„ 3, fl, karla. Þátttökugjald kr. 25,00 fyrir Mfl. og kr. 20,00 fyrir hvorn hinna flokk. anna. íþróttabandalag Reykjavíkur. Verklegar framkvæmdir h.f. Smiðjustíg 4 Sími: 80161 Önnumst alls konar verkfræðileg störf, svo sem ttikningar af járnbentri steinsteypu og hitalögnum, mælingar og áætlanir.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.