Alþýðublaðið - 03.08.1955, Page 5

Alþýðublaðið - 03.08.1955, Page 5
fvriðvikudagur ágúst 1955 ALÞYÐUBLAÐIS 3. Tónskáldið Paul Hindemi BYLTINGARMAÐUR í tón- list eða afturhaldsseggur? Allt um. það eitt mesta stórveldi í ióniist í dag; maður, sem hefur haft miki'l áhrif á þróun lón- listarsögunnar. Hann er fæddur i Hanau, ná lægt Frankfurt am Main í Þýzkalandi, fyrlr um sextíu ár um. Hann var verkamannsson ur og hlaut hverfandi litla skólamenntun. Þegar hann las grísku og latínu fullorðinn, var það fyrir sjálfsnám. Sama má segja um kunnáttu hans í írönsku og ensku (sem hann kvað tala með lítils háttar út- lenzkuhreim, eftir margra ára dvöl í Ameríku). Foreldrar hans voru báðir úr verkalýðs- stétt, en þóttu dugleg og verk- lagin. Þessa eiginleika er Hin- demith talinn hafa erft í ríkum mæli og hafi þeir átt mikinn þáít í að móta skaphöfn hans sem listamanns. Uppruni hans sagði fljótt til sín. Allt frá fyrstu tíð var hann lítill unn- andi rómantískrar og borgara- legrar tónlistar að fyrirmynd Wagners, sem reyndj að gera hvert verk sitt að skýrslu um ástand sálar sinnar. Hindemiih fór fra öndverðu aðrar brautir. Kannski hefur það átt einhvern þátt í því, að hann var í fyrstu sjálflærður lónlistarmaður. Hann neydd- ist snemma til að standa á eig- in fótum. Hann dró fram lífið með fiðluteik frá bernsku, m. a. með undirleik við þöglar kvikmyndir. Síðar komst hann í lónlistarskólann í Frankfurt. Óvenjulegir hæfileikar komu fljótt í Ijós. Tvítugur að aldri var hann orðinn konzertmeist- ari í óperuhljómsveitinni í Frankíurt. Og eins og gerist í ævintýrunum kvænlist hann dóttur hljómsveitarsijórans. UPPREISNARMAÐUR Á uppvaxtarárum Hinde- miths bar mest á tónskáldinu Richard Strauss, sem tók að erfðum hugmyndir frá Wagn- er og orti auðug og straum- þung tónaljóð, sem eru aðdá- anlegur spegill wilhelmanska ^ímabilsins. Hindemith varð frá upphafi forustumaður í hópi ungra tónlistarmanna, sem gekk í berhögg við þessa Etefnu. 1918 var veldi Hohen- zollern-ættarinnar í Þýzka- landi úti. Með Weimar-lýðveld inu hófst nýtt skeið bæði stjórnmálalega og menningar- 3ega. Expressionismi og fleiri ftilraunastefnur komust í al- gleyming í listum. Og um líkt 3eyti og frjálslyndir arkitektar ,við Bauhaus skáru upp herör gegn gömlum kreddum um ileti og línur húsa, þá héldu imgir lónllstarmenn yfirlætia- Paul Hindemith. lausa tónlistarhátið í Donau- eschingen, þar sem leikin voru samtíma kammertónverk. Þessi tónlistarhátíð velti þungu hlassi og varð vísir að byltingu í tónlist. 1921 var stofnaður hinn kunni Amar-kvartett óg í hon- um var Hindemith fiðluleikari. Þess; kvartelt lék í Donau- eschingen og flutti ýmis fyrstu verk Hindemiths. En þó var það á óperusviðinu, sem Hin- demith vakti fyrst aihygli (og skelfingu sumra) svo að um munaði. Fritz Busch kom á framfæri tveimur af þremur einþáttungsóperum Hinde- miihs. Önnur þe;rra vakti hneyksli m. a. vegna þess að, Hindemith hæðist þar að Wagner. Annars var það um Hindemith eins og marga æst- ustu avant-garde-ista eftir 1918, að það var tillitsleysi hans við venjur og tízku og ákveðin anti-rómantík, sem vakti mesta athygti fólksins. En í rauninni var hér aðeins um að ræða dulda ðferð ungs tæknimeistara, sem var um- hugað um að leiða tónlist á þær | brautir, er hún var áður en á- hrif jötunsins í Bayreuth fóru , að ríkja. | Árið 1927 varð Hindemith prófessor í tónsmiðum við tón listarháskólann í Berlín. Orðs- tír hans fór vaxandi, bæði sem kennara og tónskálds. En sum- (ar tónsmíðar hans þóttu djarf- ar og voru misskildar. Ain óp- (era hans, „Neus vom Tage“, sem gerist í baðherbergi kven- manns, vakti mikla bneykslun ýmissa siðferðlspostula, meðal lannars hins púritamska Adolfs Hitlers. | Hindemith duldi ekki andúð sína gegn nazismanum. Efl.r að nazisfar • komust til valda, neituðu þeir að fluttur væri við Ríkisóperuna , Matthías málari“, enda voru þeir aldre; glöggir á listrænt gildi verka. Hinn frægi hljómsveitarstjóri Wllhelm Furlwángler stóð að flutningi sinfóníu Hindemiihs, sem byggð er á óperunni. Og nú flæddu yfir Hindemith van virðlngarorð. Tónlist hans var lýst í bann og Goebbels réðst á hann persónulega af miklu of- forsi. Hindemith várð þó aldr- ei fyrir beinum líkamlegum of- sóknum. og honum var leyft að halda áfram kennslu. En árið 1939 bauðst honum prófessors- staða vlð Yale-háskóla og kost- ur á að flytjast til Bandaríkj- anna og gerast ríkisborgari þar. I Bandaríkjunum dvaldi hann til ársins 1951, en þá fluiti hann til Sviss og gerðlst prófessor í Zúrich. AFTURHALDSSEGGUR? Hindemith er kennari í ,,komposition“, tónr.míð, og í mlklu afhaldi nemenda sinna. Hann á það til að láta þá æfa vikum saman t. d. flautuleik, og næsta mánuð seiur hann fiðlu í hönd þeirra. Sjálfur lét hann sér ekki nægja fiðlu (sem hann skipti s;'ðar i v.olu). Sagt er hann geti sjálfur leikið á hvert einasta hljóðfæri hljóm- | sveilar. Hann ællast ekki tll af nemendum sínum að þei.p fái , meistaravald á þessum hljóð- færum. Markmið hans er, að t nemendurnir kynnist einkenn j um og takmörkunum hvers hlióðfærls og séu færir um tæknilega að leysa þau vanda- , mál. sem rísá, þegar samin er tónlist fyrir einleikshljóðfæri eða kammertónlist. Maður er nefndur Arnold Schönberg, frægt tónskáld j og róttækl mjög. Tækni hans ( eða aðferð vlð tónsmið, „lóna- j raðir“, hefur vakið deilur og, a hygli og telja surnir hann á villigötum, en aðrir þann mann, er fundið hafi nýjar og réttar leiðlr. Hinir síðarnefndu eru ekki að skapi Pouls Hinde- mith. Fyrir Hindemith er sam ræmi eða „harmonia“ í tónllst sem speglun af samræmi alls, sem er, svo að hann telur slík lög af mönnum gerð bæði of- ! dirfskufull og einskis verð. En eigi að síður er það svo, að av- ant-gardlstar í tónlist á megin- landlnu í dag fylgja að mestu leyti kenningum Schön'bergs. I Bandaríkjunum ber einnig meira á fylgismönnum Schön- bergs en áhrifum Hindemilhs. Fyrlr þessar sakir hættir ýms- um til að líta á Hindemith sem afturhaldssegg nú. Gagnvart mörgum skipar hann svipaðan s'ess og Brahms á nítjándu öld. En þeir, sem skyggnast dýpra. telja Hindemith gert rangt til mað að kalla hann afturhalds- segg. Tll þess hafi hann haft of mikil áhrif í tónlistarsögunni og til þess sé hann of mikið tónskáld að ta'ka vlð slíkum stimplum. Verk hans eru þegar sígild. Fimmtugyr: Sigurður Tr. Guðjónsso v í DAG, 3. ágúst, er Sigurð- ur Tr. Guðjónsson múrara- meistari á ísafirði íimmtugur. Sigurðuj- er sonur hjónanna Guðmundínu Jónsdóttur og, Guðjóns Sigurðssonar frá Gelradal.- Sigurður er fæddur að Svarfhóli í Geiradal, en fluttist þaðan barn að aldri með foreldrum sínum til ísa- fjarðar og hefur verið búsettur þar óslitið síðan. Árið 1930 tók Sigurður svelnspróf í múrara- iðn, og hefur stundað þá vinnu síðan. Hann er mikilvirkur byggingamaður og frábærlega vandvirkur og reglusamur í starfi. Sigurður var ekk; gamall, þegar ihann byrjaði fyrst að fást við að teikna og mála. Ekk ert er í rauninni algengara en börn hneigist til rð teikna j mynd á blað. En Slgurður var í sérflokki hvað þetta snerti. ef svo mælti að .orði komast. Blý- anturinn og litskúfurinn léku strax í hönd hans. Sú mynd, sem hann sá í huganum hverju sinni, kom ljóslifand: fram á pappírinn. Og ekki hafði Sig- urður iðkað þessa lisi lengi. þegar fólk sagð', er það sá myndir hans: — En hvað þetta er fallegt. Þessi setning lýsir vel mynd um Sigurðar. Þær eru falleg- ar. Sigurður hefur mest yndi af að mála landið í sumar- skrúða. Það er mjóg bjart yfir myndunum hans. Blátt og gult og grænt eru þeir I tir. sem ráða mestu á myndflelinum. Ljósið í þessum myndum er ekki einasta ,,litur“, heldur lif andi Ijós. Já, þeita eru bjartar myndir, og það er gott að horfa á þær í skammdeginu. Flestum frístundum sínum eyðir Sigurður við teikniborð- ið eða málaragrindina. Sigurð- ur hefur ekki lært að teikna eða mála hjá öðrum en sjálf- um sér, nema hvað hann var um sinn í sænskum bréfa'j’-.óla. Hann hefur ekkert gert lil þess að auglýsa myndir sínar, aldr- ei haldlð sýningar á þeim, en hins vegar meinar hann eng- um að sjá myndirnar, sem þess æskja. Sigurður kann ekki að selja myndir, en hann gelur átt til að segja við góðkunn- ingja slnn, sem kernur til að líia á nýja mynd: — Þú mátt eiga myndina, fyrst þú hefur gaman af henni. Allt frá árinu 1927, að Har- aldur Björnsson leikari setti á svið leikritið Kinnarhvolssyst- ur fyrir Leikfélag ísafjarðar, og til þessa dags, heíur Sigurð- ur málað leiktjöld fvrir félag- ið. Ber hann hag og gengi fé- lagslns mjög fyrir brjósli og er einn traustasti meðlimur þess. Já, Sigurður Guðjónsson er einn af þeim mönnum, sem um árabil hefur sett svip sinn á ísafjörð. bæði sem iðnaðarmað ur og listamaður. Og Sigurð- ur er mjög dagfarsgóður mað- ur. Það er bjart yfi honum eins og myndunum hans. Og í.dag munu hinir fjölmörgu vinir hans senda honum hlýjar kveðjur og árnaðaróskir um langan og bjartan vinnudag. Z. Z. Samtal við Svein Bergsveinsson - Rólegt i Austur-Berlín 1» DR. SVEINN BERGSVEINS SON er fyrir skömmu kominn frá Austur-Berlín, en þar hef- ur hann dvalizt um rúmlega tveggja ára skeið, sem kennari í íslenzku og norrænu við Hum boldtsháskólann. Þar sem fátt íslendlnga hefur dvalizt á þeim slóðum að undanförnu, hefur Alþýðublaðið hitt dr. Svein að máli og innt hann frétta. ] En það kemur á daginn, að dr. Sveinn Bergsveinsson telur þaðan ekki margt í íréttum að segja. „Það, sem fyrst og fremst elnkennir hversdags- legt líf manna þarna, er ein- mitt það, hve rólegt það er, að svo miklu leyti, sem maður kann um það að dæma. Maður 1 verður hvergi var við sukk eða ‘svall, hávaða eða gauragang. Borgarbúar hittast að vísu á kaffihúsum, ræða um daglnn og Veginn og sijórnarfarið, sumir eru óánægðir, aðrir ánægðir, eins og gerist og gengur, og fólk virðist ósmeykl við að láta í ljós meinlngu síua. Lífskjör virðast yfirleitt sæmileg, þó gildir þarna enn skömmtun á Dr. Sveinn Bergsveinsson ýmsum nauðsynjum, og sumt er svo naumt skammtað, að fleslir verða að kaupa til við- bótar án skömmtunarseðla, en þá er verðið á slíkum nauðsynj um nokkuð hátt, miðað við kaup manna. Mörg leikhús eru starfandi í Austur-Berlín, og svo fjölsótt, að illt er að verða sér úti um aðgöngumiða. Flut-t eru klass- ísk leikrit, bæði vesturevróp- ískra skálda og rússneskra, einkum leikrit . Shakespeares, og núlifandi höfunda, vest- rænna og austrænna. Hljóm- leikar eru og fjölsottir. Hins vegar er ekki mikið um glaum- kenndar skemmíanir. Rúss- neska setuliðið verður maður svo að segja hvergi var við, —• sér aðeins einstaka sinnum bregða fyrir liðforingjum, sem eiga verzlunarerindi um borg- ina. Persónulegt eftirlit af hálfu hernámsyfirvalda eða annarra valdhafa hef ég ekki orðið var við. Ég mun vera elni íslending- urinn, búsettur í Austur-Ber- lín, og fátt hef ég séð þar Norð urlandabúa. Um starf mitt við Jháskólarm er það að segja, að ég hef þar nemendur í íslenzk um fræðum, flestir þeirra eru menn, sem leggja æila stund á málvísindi, auk þess hef ég kennt nökkrum dönsku, en ís- lenzkunemendurnir hafa verið fáir. Við háskóla þennan hafa löngum starfað kennarar í nor rænum fræðum, og margir þeirra verið kunnir menn á (Frh. á 7. síðu.) J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.