Alþýðublaðið - 06.08.1955, Page 4

Alþýðublaðið - 06.08.1955, Page 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Laugaráagur 6. ágúst 1855 Útgefandi: Alþýðufloh\urinn. Ritstjórí: Helgi Sœmundsson. Fréttastjórí: Sigváldi Hjálmarsson. Blaðamenn: Björgvin Guðmundsson og Loftur Guðmundsson. Auglýsingastjórí: Emilía Samúelsdóttir. Kitstjórnarsímar: 4901 og 4902. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900., Álþýðuprentsmiðjan, Hverfisgötu 8—10. Ás\riftarverð 15.00 á mánuði. í lausasölu 1,00. S s s I s s s s s s s s s s s s Sœmd í skömminni HER í Reykjavík eru nokkrir áfengissjúklingar, sem setja hvimleiðan svip á bæinn. Þeir eru flestir hæit ir að gegna borgaralegum störfum og eiga sumir ekk- ert iheimili. Að vetrinum eru þessir menn kenndir við Hafnarstræti, en sumar mánuðlna hafa þeir bæki- stöð sína á norðanverðu Arnarhólstúni, sitja þar að drykkju á daginn og sofa undir berum himni margar nætur. Vegfarendum blöskr ar að horfa upp á þessa hryggðarmynd, og land- kynningjn að henni er vissu Jega hæpin, þegar áhorfend- urnir eru útjend.r gestir. Samt vanrækir samfélagið að láta rnálið til sín taka. Deilt er um, hvort samtök bindindjsmanna eigi að koma þessum útilegumönn- um aftur í byggð eða bær og ríki að hlutast til um björgunarstarfið. Og þar við situr. Málið kemst nokkrum sinnum ár hvert á dagskrá blaðanna, og sumir fram- bjóðendur víkja að því fyrir kosnjngar, en síðan ekki söguna meir. Reykjavík heldur áfram að eiga sína útilegumenn í m.ðri borg. Vissulega bæri nauðsyn til þess að koma upp hæþ eða sjúkrahúsi, þar sem þessi olnbogabörn mannfélagsins ættu kost á læknjshjálp og hjúkrun. Þannig væri áreið anlega hægt að siyðja t;l sjálfsbjargar ýmsa þá, sem áfengissýkin hefur heltekið. Skyldan er öllum ljós, en framtakið vantar. Við höf- um skipulagt baráttu gegn sjúkdómum. eins og berþla- veikj og krabbameini og háð hana til mikils árangurs, en. látum hins vegar hjá líða að koma til móts við samborg- ara okkar, sem eru miður sín af áfengisnauln, villtir á alfaravegi og hæljslausir í miðri borg. Þetía er okkur sannarlega lil skammar. En deilurnar um fyrirkomulags atriðin munu hajda áfram lengi enn áður en framtakið kemur til sögunnar. Og hvaða ráðstafanir er að gera á meðan? Lágmarksskyldan er sú, að áfengjssjúklingarnlr hætti að liggja undir hunda og manna fótum. Áfengis- verzlun ríkisins stæði næst að hlaupa hér undir bagga. Útilegumennirn.r í Reykja vík eru viðskjptavinir henn ar. Þeir láía henni í té alla fjármuni, sem þeim áskotn- ast, og rækja þannig mynd- arlega þá skyldu að auka tekjur ríkissjóðs. Þess vegna virðist ekki til mikjls mælzt þó að þess sé farið á jeit, að áfengisverzlunin sjái áfeng- issjúklingunum fyrjr af- drepi, þar sem þeir geti not ið veiganna út af fyrir sig og í sínu bróðurlega en aumkunarverða samfélagi. Þá þyrftu þeir ekki lengur að hima kaldjr og blautir í Hafnarstræii eða á Arnar- hólstúni eða standa af sér veðrin undir húsvegg rjofn- unarinnar, sem þeir lifa fyrir. Ríkissjóður ætti meira að segja að sjá hag sinn f þessu, þar eð sumum vjð- skiptavinunum yrði vafa- laust lengra lífs auðið. ef þeir losnuðu við kuldann og vosbúðina. Og ísjenzka þjóð félagið virðist ekki hafa aðra afstöðu tjl áfengissjúk- linganna en þá, að ríkið græði á þeim pen nga. Aðrar þjóðijr koma up<p hælum og sjúkrahúsum fyr- ir áfengissjúklinga sína eins og aðra þegna, sem haldnir eru mejnum eða smitaðir sjúkdómum. íslendlngar vanrækja þá skyldu og meta deilur um fyrirkomulags- atrið; miklu meira en raun- hæfar ráðstafanir. En gæt- um við ekki unnið okkur það tjl sæmdar í þessari hróplegu skömm að gera að minnsta kosti eins vel við útilegumennina í borginni og dýrin með því að láta þelm í té ejttihvert húsa skjól og fylgjast með því, hvort þeir séu lífs eða liðn- ir? Dýraverndunarfélagið myndi skerast í leikinn ef áfengissjúklingarnir væru ferfætljngar: En þessi mann anna börn hafa gleymzt að öðru leyíi en því, að aflafé þeirra og sníkjupeningar er vel þegið framlag í ríkis- fjárhirz]una. Er ekki tími til kominn að samfélaglð lítj til áfengissjúklinganna í öðrum hug en þeim að taka við blóðpeningunum úr höndum þeirra og hneykl- ast síðan á hryggðarmynd- innj í Hafnarstræti og á Arnarhólstúni? Auglýsið í Alpýðuhlaðinu Minning frá þjóðhátíð í Vestmannaeyjum - MAÐURINN í BER6IN ÉG hef aðeins Ivisvar sinn- um verið á þjóðhálíð í Vest- mannaeyjum, þó að nafn mitt siæði að minnsta kosti fimm ár á manntali þar og ég hafi oft komið þangað mér til ynd- is og ánægju eftir að forlögin gerðu höfuðborgin að sama- stað mínum. Samt er mér auð- velt að ákveða, hver sé minn- isstæðastur atburðanna frá þessum tveimur þjóðhátíðum. Það er ekki sú ósn, að ég heyrði álengdar fólatakið. þeg- ar engill dauðans gekk milli húsa með bitran Jjáinn reidd- an og sló breiðan skára á grænni grund fagurs mannlífs, heldur veraldarmínúturnar, sem ég lifði, þegar maðurinn var í berginu —- örlagastund bjargsigsins. Kanpinn, sem seíg í bjargið, var Jónas í Skuld. ef ég man rétt. Undirbúningurinn fór framhjá mér. og athygli mín beindist ekki að mannraun- inni fyrr en leikurinn var orð inn að alvöru. Mér virtist mað urinn á valdi biargsins eins og egg, sem tröll kastaði milli handa sér, fugl, er misst gæti flugsins í næstu andrá, eða kertisljós úti í dimmri og ugg- vænlegrj nóttinni. Þetta var ekki leikur heldur alvara. bar- átla upp á líf og dauða, hetiu- dáð karlmennskunnar og fífl- dirfskunnar. Tengsl'n við fjallsbriúnina voru sterkur en mjór strengur, og hverju máíti muna, að hann brvsti? Þrek- virkin. sem ég mundí úr skáld- sögum, voru smáræði í saman- burði við þau undur að horfa upp á biargsigið. siá manninn hafna fótfest.unni til að svífa milli himins og jarðar og leggja fjör sitt og framtíð í lófa sofandi ófreskju, sem kvnni að rjúka upp með andfælum. kreppa hnefann í kramnaflogi re'ðinnar og fara hamförum. Jónas var að mínnm dómi líkt settur og nafni hans í hvalnum $ ÞJÓÐHÁTÍÐ Vestmanna- ^ • eyja er ha/d/n nú um helg-^ • ina og í ti/efm' hennar hefur ^ ^ verið gef/ð út vandað Þjóð-( ( há/íðarb/að Vestmannaeyja, s \en ri/s/jórí þess og ábyrgðar s Smaður er Árni Guðmunds- S Sson. BlaðCð flytur rneðalS S annars greinaf/okk/nn ) S M/nningar úr Herjólfsdal, 'í sem er svör Þórðar Bene-) ^ diktssonar framkvæmda- ■ ^stjóra, Ingu Þórðardó//ur ^ ^ le/'kkonu, Helga Sæmunds- ^ ^sonar ritstjóra og Þorste/'ns( . ^ Einarssonar íþróttafulltrúa^ I ^ vi'ð þe.'rr/ spurningu ri/s/jórS Sans, hvað þe/'m sé minn/'s-S Ss/æðast frá þjóðhátíð í Herj-S Sólfsdal. Svar He/ga er /ýs-S S /'ng á bjargsigi, og fer grein- ) ) in hér á ef/z’r. • S s og harla tvísýnt, að guð almáit ugur skakkaði leikinn, ef mér þá varð til hans hugsað, því að það gleymist stundum þangað , til hættan er annaðhvort liðin hjá eða allt um seinan. En auð vitað gekk bjargsigið eins og í sögu. Jónas í Skuld kunni sitt ^ verk og var vandanum vaxinn. | Mér varð þeíta hins vegar í- , hugunarefni. Hér hafðj ég séð ! lelk, sem gat orðið alvara. Að- dáunin megnaði ekki að bera ógnina og eftirvæntinguna of- urliði. Hvað höfðu margir látið I líflð í því stríði, er hér var sýnt sem leikur mannfjöldanum til ■ dægrastyttingar? Örlög Duf- þaks og félaga hans reyndust áleitin ungum og óhörðnuðum huga mínum. Þeir hlupu fyrir björg á flótia undan grimmd ■ og vopnfimi níð'.ngsins, sem við köllum hefni af því að ó- hæfuverkið er afrek að dómi sagnaritarans. Og hver er mun urinn á þeim flófía og þeirri I sókn, sem íslendingar hafa Iþreytt um aldir f viðureign sinni við bjarg og haf, fjall og vatn, storm og hríð 111 að draga björg í bú, sjá sér og sínum far borða, þrauka af árstíðirnar í þessu fagra en harðbýla landi, þar sem æði náttúrunnar og miskunnarleysi mannanna hef ur alltaf bnnað á smælingjun- um, er höfðu allt að vinna, en engu að tapa nema lífinu? Jón as í Skuld gat treyst á sterkan en mjóán streng. Hinir urðu flestir að láta sér nægja hend- ur. og fætur í sókn og vörn líís baráttunnar. Sirengurinn gat brostið, og þá var dauðinn vís. Hitt var þó sýnu uggvænlegra að hanga á hendi eða fæti í enn viðsjálla bjargi, þar sem ólgudjúp'ð eða grjólurðin gein fyrir neðan og gleypti hvern þann, sem taksins missti, á samri svipstundu og rennt er niður bita eða sopa. En ekki nóg með það. Avburðurlnn varð mér tákn veraldarinnar og ævinnar. Brúnin var áþekk-' ust fæðingarbeði, bjargsigið minnti á stopulan og ófyrirsjá- anlegan starfsaldurlnn, og til- hugsunin um hrapið, er komið gat til sögunnar fyrr en varði, skaut mér í bringu þeim skelk, sem er vissan um nálægð dauð ans, endalok leiks og alvöru, sóknar og flótta, sigurs og taps, því að e'nbvern tima bro’nar eggið af tilviljun eða að á- kvörðun dulinna máttarvalda, tröllið vaknar, reiðist og krepp ir hnefann í krampaflogi yfir- sk'lvitlegra aflsmuna. Komi ég í Hexjólfsdal og horfi upp í bergið. þá man ég ávallt Jónas í Skuld þjóðhátíð- srdaginn fyrir átján árum. því að svo langt er um liðið — svo lengi hefur maður svifið mllli himins og jarðar í leik alvör- unnar og alvöru leiksins. Línum þessum fylgir kveðja mín til Vestmannaevja og Ve’st mannaevinga og csk um góða þjóðhátíð. Helgi Sæmuntlssoj?. Minningarorð um Koos Vorrink - VerkalVðsforinqi fallinn i valinn KOQS VORRINK, formaður hollenzki álþýðuflokksins, - er- nýlega látinn eftir tveggja ára sjúkdóm. Hann varð 64 ára að aldri og hafði verið formaður flokksins í 21 ár. Hann hafðl um áratuga skeið unnið mikilvægt starf í þágu hollenzku verkalýðshreyfingar innar, sem einn af helztu for- göngumönnum þess endur- skiþulags og útbreiðslustarfs, sem einkenndi a]þýðuflokk!nn hollenzka að lokinni styrjöld. Koos Vorrink var upphaf- lega kennari. Star.f sitt hóf hann innan æskulýðssamtaka alþýðuflokksins á Hollandi og var formaður þeirra um langt skeið. Þar gat hann sér orðslír sem frábær mælskumaður og á- hrifamikill fundamaður. Hann talaði af eldmóði og hreif huga bæði eldri og yngri áheyrenda slnna. Þar komu og snemma í ljós hinir miklu skipulagshæfi- leikar hans. Meðal annars átti hann upphafið að því, að hafizt var handa á vegum flokksins um byggingu félagsheimila í fleslum héruðum Iandsins, leikvalla, íþrótlavalla og num- Koos Vorrink in svæði til útivistar og veitti um langt skeið fors'öðu þeirri starfsemi allri. Þá hafði harin og mikil áhrif á starf og stefnu alþjóðasambands ungra jafn- aðarmanna, en hann var kjör- inn forseti þess um 1930, á sama tíma og Erich Ollenhau- er, núverandi leiðtogi alþýðu- flokksins vesturþýzka, var að- alritari þess, og gegndi Vor- rink því embætti til 1935, fcr H. C. Hansen tók við af hoh- um. Þá þegar var Vorrink orð- inn eipn af .fprustumönnum hollenzka alþýðúflpkksins. — Hann .dvaldist um kvrrt á Höl- Jandi öll styrjaJdarárin og gerðist einn- af hélztu -leiðtog- um andspyrnuhreyfingarinnar, og árið 1943 var hann handtek- inn af Gestapo, sat árlangt í fangelsi í Hollandi, en var síð- an fluttur í fangabúðir í Sachs enhausen, þar sem hanri kynnt ist Halvard Lange, núverandi utanríkismálaráðherra Noregs. Efiir styrjöldina gerðist Vor rink leiðtogi þeirrar hreyfirig- ar innan alþýðuflokksins hol- lenzka, sem vann að því að byggja flokksstarfið á brelðari grundvelli en áður. St.jórnmála starfsemin á Hollandi var stranglega skipt í trúarbragða- legar heildir, og þetta hafði alltaf verið hollenzka alþýðu- flokknum mikil hindrun, varð andi það að ná fótfestu meðal hinna strangtrúuðu, holjenzku verkamanna. Sem leiðiogi and spyrnuhreyfingarinnar hafðt (Frh. á 7. síðu.) ;

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.