Alþýðublaðið - 20.08.1955, Side 5

Alþýðublaðið - 20.08.1955, Side 5
ILaugardagur 20. ágúst 1955 ALÞl'ÐUBLADIÐ s Á L í Ð A S T U N NÆSTA verkefni ríkisstjórn ^ arinnar mun verða að finna ’ „reksiursgrundvöir fyrir j karfaveiðarnar. Hún hefur leyst vanda togaraútgerðarinn ] ar með því að flytja inn lúxus- j bíla í þúsundatali og selja við ránverði. Opinberum starfs- mönnum tryggði hún kjara- bætur með því að hækka verð á áfengi, en afkomugrundvöll- ur reknetavejðanna við Faxa- flóa er tóbaksreykingar lands- manna. Sumum dettur í hug, að rekstursgrundvöllur karfa- veiðanna verði sælgætisskait- ur eða benzínhækkun, og þykir ekki vonum fyrr að tii hennar sé gripið miðað v.ð annað. Þannig eru éfndirnar á því ]of- orði sljórnarflokkanna, að nið- urgreiðslum og uppbótum skyldi hætt, enda slíkar neyð- arráðstafanir alls kostar óþarf- ar í sæiuríki gengislækkunar- innar. Og þess ber að minnast, að allar þessar ráðsiafanir eru aðeins tjl bráða'birgða. Dul framtíðarinnar er hrunið mikla, sem stjórnarflokkarnir kalla yfir land og þjóð með ger ræði sínu. Spurningin er hins vegar sú, hvenær til þejrra tíð inda dragi. En vissulega verð- ur ekki hjá öngþveit; komizt nema skipt sé um menn og mál efni í stjórnarráðinu. Kosningar að ári? Flestir ætla, að „lausnin“, sem stjórnarflokkarnir hafi í huga. sé ný gengislækkun. Landsfeðrunum þykir samt ó- fýsllegt að grípa ti] hennar með kosningar framundan. Sjálfstæðisflokkurinn mun því ætla að láta allí reka á reiðan- um í vetur og efna til kosninga næsta sumar. Héraðshátíðirn- ar, sem haldnar eru um hverja helgi, eiga að vera undirbún- ingur þelrra, en jafnframt streyma trúnaðarbréfin út um byggðir landsins. Flokksfor- ingjarnir eru þegar önnum kafnir að skipuleggja framboð in í einstökum kjördæmum, og munu ýmsar breylingar í ráði af hálfu stjórnarflokkanna. Er ekki ósennilegt, að því máli verði helgaður sérstakur þátt- ur hér í blaðinu innan skamms. Langar í tónið Um ’þessar mundir stunda kappar Sjálfstæðisflokksins strangar æfingar með sögulega hnefaleikakeppni fyrir augum. Helgi Guðmundsson lætur sem sé af störfum í haust sem bankastjóri í útvegsbankan- um, og Sjálfslæðisflokkurinri nýtur meirihlutavalds í stofn- uninni. Talið er, að þrír hafi þegar tilkynnt þátttóku í hnefa teikakeppninni um bankastjóra stöðuna, en sjálfsagt mun von á fleirum. Garparnir, sem þeg- ar eru byrjaðir æfingar, heita Björn Ó]afsson, Sveinn Bene- diktsson og Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Hér skal engu spáð um úrslit þessarar fyrir- sjáanlegu og sögulegu viður- eignar, en óhæit mun að full- yrða, að af þeim þremenning- unum langi Þorvald Garðar mest í lónið. Grein Sutzbergers Fyrir skömmu bjrti aTi.er- íska stórblaðið The New York • Times þær upplýsingar, að Bandaríkjamenn hafi í hyggju að reisa meiri háttar flotastöð á íslandi og ætli að verja til þeirrar framkvæmdar meiri fjármunum en runnið hafi til I starfsemi varnarliðsins eftir að það kom hingað 1951. Alþýðu-| blaðjð kom þessum upplýsing- um á framfæri og fór þess á , leit, að ríkisstjórnin gerði grein fyrir málavóxium. Tím- inn hefur orðið við þeim til- mælum og ber utanríkismála ráðherrann fyrir því, að fréttin í The New York Times sé til- hæfulaus, ekkert levfi hafi ver ið vei.tt fyrir f]otahöfn og eng- in slík beiðni borizt — frásögn hins ameríska stórblaðs sé al- veg úr lausu lofti gripm. Það er vel farið, að utanrík- ismálaráðherrann skuli hafa tekjð af skarið í þessu efni. ís- lendingar eru farnir að venjasi því, að stórfréttir um málefni þeirra berist fyrst frá útlönd- um og fáist hvofki staðfestar né hraktar hér heima. Mun því mörgum hafa brugðið við grejn Sulzbergers í Tha New York Times, enda heimildin góð. Hins vegar er jafnan ástæða til að iaka frétlum stórblaðanna vai’lega ekki síður en ýmsum fullyrðingum, sem falla í stjórnmáladeilunum hér heima fyrir. Stjórnarvöldunum ber þess vegna skylda til að láta fréttaburð eins og þennan til sín taka. Þá skyldu hafa þau vanrækt allt of oft undanfarin ár og þar með kal]að yfir sig torlryggni. Það er því vel far- ið, að utanríkjsmálaráðherrann skuli hafa rofið þögnina. Kjarvalshúsíð Nú á næstunni eru liðin tíu ár síðan boðað var, að reist yrði Kjarvalshús í Reykjavík — samastaður fyrir listaverk Jóhannesar Svejnssonar Kjar- vals. Fréttin þótti mikil og góð, enda tími til kominn að sýna þessum frumlega og mikilhæfa snillingj verðskuldaða viður- kenningu. En Jandsfeðurnir hafa gleymt að sleypa sín stóru orð í stærra verk. Kiarvalshús ið fyrirfinnst hvergi — það hefur ekki einu sinnj verið byrjað á því. Þetta svlkna lof- orð á tíu ára afmæli eftir fáar vikur. Skyldu stjórnarvöldin nota tækifærið til að endur- taka loforðið eða hefjast handa? Þjóðarbúskapur íslendinga er svo stórkosilegnr, aðKjar- valshúsið ætti ekkl að verða okkur ofraun. Skýringin á svik unum mun heldur ekki getu- leysi fátæktarinnar, heldur sú, að orðin hafj verið mælt í há- tíðarvímu, sem rann af forustu mönnum þjóðarinnar, þegar af mæ]isdagur Kjarvals var lið- inn. En þjóðinni var það áreið- anlega alvara, að staðið yrði við þelta gefna loforð. Og hún ætlaðj að kosta framkvæmd- ina, en ekki sijórnarherrarnir, sem lofuðu fögru og sviku allt. Mifens og Bjarni Ben. Undanfarið hefur dvalizt hér á landi góður gestur og frændi •— Edvard Mitens, menntamála ráðherra Færeyinga. Gerði Frjáls þjóð heimsókn hans að umræðuefni með svofelldum orðum undir fyrirsögninni Menningarlegur menntfviála- ráðherra: „Meifntamálaráð- herra Færeyinga, Edvard Mi- tens, hefur verið hér á ferð. Flutti hann afbragðsgóð erindj í ríkisútvarpið um færeyskan dans og fór með sýnishorn þess arar fornu menningararfleifðar Færeyingat bæði Ijóð og lög. Var það mál manna, sem á hlýddu, að vart hefðu þeir hluslað á menningarlegri menntafrömuð erlendrar bjóð- ar. Hvenær skyldu íslendingar eignasi menntamá]aráðherra af bvílíku tagi?“ Ummælin um Mitens eru hverju or&l sannari. Hins veg- ar gætir einhverrar mínnimátt arkenndar í afstöðu Frjálsrar þjóðar. þegar henni verður hugsað til menningarforustu okkar íslendinga. SJíkt nær (Frh. á 7. síðu.) Góðar eiginkonur ALLMIKIÐ hefur nýlega verið skrifað í blöð og tímarjt um það fyrirbrigði, að amer- ískir hermenn í Evrópu vtrðist miklu fremur kjósa sér að kvonfangi Evrópukonur en sín ar ejgin samlöndur; nú ejr svo komið, að á hverjum mánuði kvænast að jafnaði 500 ber- menn Evrópukonum. Enn frem ur virðast þessi hjónabönd endast betur heldur en yflrleitt á sér síað í Bandaríkjunum, þar sem hjónaski]naðir eru mjög tíðir. EIGINMAÐURINN MATREIÐ IR MEÐAN KONAN SEFUR Nýlegg fór blaðakona til Ev- rópu til að grennslast eftir hver orsökin sé ti] þess að þannig er komið í þessum mál um. Hútti hún liðsforingja einn, er ekki vaz myrkur í máli; hafði hjónaband hans og amerískrar konu endað með skilnaði. en nú var hann giftur enskri stúlku, og var mjög hamingjusamur. Hann sagði: „Þegar maður kvænist heima, þ. e. í Bandaríkjunum, ætlast konan ekkj einungis til að eig- inmaðurinn sjái sér farborða það sem efiir er ævinnar, held ur að hann látl sér í té mik]u betra heimili og aðra hluti en vinkonur hennar eiga, jafnvel þótt hann hafi ekki efni á því. Og hvað lætur hún honum svo í té í staðinn? Samkvæmt skýrslum, er birtar voru ný- lega í tímariti, verða 60 prós- ent eiginmanna í Bandaríkjun- um að búa iil morgunverð sinn meðan konan sefur vært. Þó hann útvegi henni alls konar heimilisvélar, verðnr hann oft að hjálpa henni við að ljúka við heimilisstörfin eftir að hann kemur heim að ]oknu sínu dags verki, og fara síðan með henni út á einhverja skemmtun tjl að umbuna henni fyrir að hafa verið innilokuð allan daginn á heimilinu, sem hann vinnur fyrir baki brotnu. Jafnrétti með hjónunum er ekki til að dreifa; konan tekur allt, sem eiginmaðurinn geiur veitt hennl, en finnur lítið til þess að hún hafi jafnframt skyldur að rækja gagnvarl honum. Hér er þetta öðruvísi; konurnar gefa mönnum sínum nokkuð, sem amerískar konur gera ekki: Þær gefa þeim fullvissu um það, að þejr séu húsbændur á sínum heimilum; þær örva. .þannig öryggist Ifinningu þeirra, og beir afla heimjlinu , efnalegra hluta ekki einungis jvegna þess að það sé skylda iþe'rra. heldur af því að þeir ivilia það og hafa ánægju af því.“ Hér mun nú nokkuð djúpt: tekið í árinni varðandi amer- ísku eiginkonurnar. en þó mun be'ta eiga við nokkurn sann- leika að styðjast. FAÐIRINN HÚSBÓNDINN — KONAN FÉLAGI HANS Eiit af því, er vakti athygli fréttaritarans var, að mejri rækt er lögð við fjölskyldulíf- ið í Evrópu en í Ameríku. Oll fjölskyldan fy]gist að — jafn- vel unglingarnir skemmta sér með foreldrum sínum. Faðirinn. er húsbóndi heimjlisins; eigin- konan er félagi hans, oft félagi, er telur það viíurlegast, að láta lítið á sér hera: hennar verka- hringur er heimilisstörfin, að skapa ánægjulegt heim'llisjíf, ala upp börnin og (rvggja ham- ingju bónda síns. Þetta er henn ar köhun og hún er slolt af því. Framhald á 7. síðu. Fréftabréf frá GuSmundi Arnlaugssyni - Skákmóf Norðurlanda í Os Eftir helðina föt frá kr. 1450.00 eftir máli. Fjölbreytt efnisúrval. Brynleifur Jónsson, klæðskeri, Austurstræti 177, II. hæð. Sími 82214. Sunnudagur 14. ágúst. NOREGUR heilsaði okkur með sumri og sól þegar vtlð komum í gær, hitinn er nærri óbærilegur fyrst í stað, en á- nægjuleg eru vjðbrigðin eftir rigninguna hélma. Þetta veður hafa Norðmenn búið við í allt sumar, en aldrei hefur verið heilara en nú. Menn tala um hitabeltisnætur, gróðurinn skrælnar á jörðunnj, mjólkur- leys'. er farið að gera vart við sig. En alm'enningur hefur kunnað að færa sér sólskinið í nyt, göturnar eru fullar af létt klæddu, brúnu fólki. Norðmenn hafa sama sið og við, þeir nota stúdenlagarða sína sem sumarhólel, þejr eru að vísu stærri og rúma talsvert fleirii gesti en garðarnir okkar í Reykjavík. Studer.tbyen í Os- ló er heil röð af húsalengjum, hér er sægur af gestum og þjóð ernin eru mörg, það er eins og maður sé kominn í alþjóða- borg, þar sem allt iðar af lífi, jafnt að nóttu sem degi. Meðal þeirra fyrstu, sem við mæltum hér, var íslenzka sund fólkið. Það var að keppa hér á Norðurlandamóiil eins og við — móti, sem jafnframt var vígslu hátíð nýrrar úlilaugar — Frognerbadet — glæsileg laug í fögru umhverfi. Þetta er fyrsta Norðurlanda- mólið í skák, sem fram fer í Noregi eftir heimsstyrjöldina. Síðast var Norðurlandamót haldið hér 1939, en það hefur horfCð alveg í skugga siyrjald- arinnar. Þar urðu Svíarnir góð kunnu Lundin og Stáhlberg efstir og áttu að þreyta einvígi um bikar þann, er Hákon Nor- egskonungur gaf til fyrst.u verðlauna. En þejr sigldu báðir till Argenlínu um haustið, á ólympíuleika skákarinnar í Buenos Aires, og meðan það mót stóð sem hæst hófst slyrj- öldin og þannig atvikaðist það, að Stáhlberg kom ekki aftur úr leiðangrinum fyrr en að styrj- öldinni lokinni. Að því er ég bezt veit eru þeir ekki farnir að tefla um bikarinn enn, ham ingjan má vita, hvar hann er niður kominn. Nú eru liðin sextán ár síðan þeita gerðist. Aftur er haldið Norðurlandamót i Osló, enn hefur Hákon konungur gefið bikar Norðurlandameistaran- um til handa, enda þótt hann dveljist á spítala sjúkur mað- ur. Nú eru þeir dagar liðnir að Lundin og Stáhlberg berjist um kóngsibikar, nýir menn eru teknir við — hver veit .sema Friðrik Ólafsson og Bent Lar- sen eigi eftjr að kljást um hann nú — að minnsla kosti hefur Bent lýst því yfir í viðtali við danska blaðamenn, að sér finn ist skákmeistaratitiU Norður- landa hafa verið geymdnr íull lengi í frystihúsinu í Reykja- vík! 6. NORÐURLANDA- SKÁKMÓTIÐ. Þetta er 6. Norðurlandamót- ið í röðinni frá slyrjaldarlok- um. Hið fyrsta fór fram í Kaup mannahöfn 1946. Þar varð Finninn Osmo Kaila meistari, en Baldur Möller var 2.—3. á- samt Svía. íslendingar áttu fyrsta mann í 'báðum deildum meistaraflokks. Þessi árangur var langt framar ö]lum vonúm. Næst var keppt í Helsingfors 1947. Þar vann Finninn Böök, en okkar mönnum gekk ekki. vel. Þriðja mótið fór svo fram í Örebro 1948. Þar átlu íslend- ingar.aðeins einn þátttakanda, en það nægði. Baldur Möller |varð eftur, og þar með höfðu íslendingar eignast sinn fyrsta Norðurlandameislara. | Fjórða mótið var haldið í Reykjavík 1950. Baldur Möller j varð Norðurlandameistari í annað sinn, en íslendjngar ^unnu í öllum flokkum. I Fimmta sinn var keppt í Es- bjerg 1953. Baldur gat ekki mætt til að verja litilinn, en nýr maður var kominn í skarð (ið: Frjðrik Ólafsson, sem vann glæsilega. | íslendlngar hafa þannig hald ið þessari æðstu nafnbót Skák j sambands Norðurlanda óslitið síðan 1948, svo að ekki er furða. þó að Bent Larsen vilji breyt- ,ingu þar á! (Frh. á 7. síðu.) J 1

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.