Alþýðublaðið - 24.08.1955, Qupperneq 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MiSvikudagur 24. -ágást 1955
*
5
%
s
s
if
•f
!
s
Útgejandi: Alþýðujlokkurinn.
Ritstjóri: Helgi Sœmundsson.
Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson.
Blaðamenn: Björgvin Guðmundsson og
Loftur Guðmundsson.
Auglýsingastjóri: Emilía' Samúelsdóttir.
Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902.
Auglýsingasími: 4906.
Ajgreiðslusími: 4900.
Alþýðuprentsmiðjan, Hverfisgötu 8—10.
Asþrijtarverð 15,00 á mánuði. í lausasölu ljOO.
Stefnan þar og hér
ÞEGAR sljórnarblöðin
gefast upp við að verja störf
og stefnu núverandi lands-
feðra, grípa þau jafnan tll
þeirrar fullyrðingar, að
þetta sé allt í bezta lagi, því
að stjórnarandsíæðingar
hafi ekki upp á nein úrræði
að bjóða. Og þá skipþr auð-
vitað engu máli, þó að bent
sé á frumvörp og tillögur A1
þýðuflokksins. Sljórnarblöð-
in berja höfðinu við stein-
inn, en þrástagast á því eins
og fábjánar, að þejr, sem
hafi ekkert tll málanna að
leggja, gagnrýni og fordæmi
mæta og vitra menn, sem
beri þunga ábyrgðarinnar.
Þau reyna ekki að ræða á-
greiningsatriðjn málefna-
lega, heldur gera andsiæð-
ingunum upp þær sakir, að
þeir séu ekkert betri en hús-
bændurnir, sem eru slíkt
vanmetafólk, að engum
vörnum verður við komið.
Alþýðuflokkurinn hef.ur
ávallt síðan seínni heims-
styrjöldinni lauk barizt fyr-
ir því, að íslendingar fylgdu
í fjármálum og atvinnumál-
um sömu stefnu og mótuð
hefur verið í nágrannalönd-
unum með ágætum árangri.
Þar hefur tekizt að halda
dýrtíðinni í skefjum og
halda uppj blómlegu at-
hafnaþ'fi, þrátt fyrir marga
°g geigvænlega erfiðleika.
Nágrannaþjóðir okkar hafa
ekki orðið að grípa til þess
ráðs að flytja inn lúxusbíla
til að gera út togara eða önn
ur hafskjp. Launakjör opin-
berra starfsmanna eru þar í
engum tengslum við áfengis
sölu eða áfengisnevzlu. Þar
hefur engum dottið 1 hug að
gera tóbaksreylcingar að
rekstursgrundvelli fyrir síld
veiðar. Og úrræði iafnaðar-
manna á vettvangi lands-
stjórnarinnar hafa reynzt
svo farsæl, að brezkjr íhajds
mann leggja þau enn { dag
mjög til grundvallar af því
að þeim finnst of áhættu-
samt að breyta til. Munur-
inn á stefnunni þar og hér er
svo augljós, að engum
manni fær dulizt. Og halda
menn, að Norðurlandaþjóð-
irnar vildu hverfa frá úr-
ræðum H. C. Hansens, Ger-
hardsens og Erlanders t'il að
uppljfa gengislækkunardýrð
íslenzku afturhaldsflokk-
anna? Samt verður ekki um
það deilt, að íslendingar
stóðu mun betur að vígi eft-
ir styrjöldina heldur en
Norðmenn og Danir En for-
ráðamenn Noregs og Dan-
merkur hafa kunnað að
stjórna. Það hefur íslenzku
valdhöfunum hins vegar
mistekizt. Þess vegna er nú
komið sem komið er. íslend
ingar eru að verða veraldar-
innar vlðundur fvrir óstjórn
og ofstjórn. Og mennirnir,
sem bera ábyrgð á þessari
hryggilegu óheillaþróun,
halda að þeir ejnir kunni að
fara með landsstjórnina!
Verkin hafa dæmt núver-
andi ríkisstjórn og kveðið
upp yfir henni harðan en
verðskuldaðan dóm. Hún
hefur lagt í rústir á sama
tíma og nágrannaþjóðirnar
hafa byggt upp. Efnahgvur
og afkoma Islendingar er á
hverfanda hvelj. Auðæfi
landsins og sjávarins um-
hverfis það étast upp af
hungruðum vörgum sér-
hyggjunnar og gróðafýsnar-
innar. Við gætum lifað góðu
og farsælu lífi, ef landinu
væri stjórnað af skynsemi
og fyrirhyggju, en núver-
andj valdhafar hafa brugð-
izt skyldu sinni og ekki
reynzt vandanum vaxnir.
Þeir eiga sannarlega að fá
lausn í náð.
Skemmtiferð Heimdallar
MORGUNBLAÐIÐ skýrir
frá því, að pabbabörnin í
Heimdalli séu farjn í
skemmtiferð til Þýzkalands,
en sú starfsemi mun hugsuð
sem jafnvægi við utanstefn-
ur kommúnista! Sannast hér
einu sinni énn, að ejn vit-
leysan býður annarri heim.
Það er vel til fundið, að
Heimdellingar leggi leið
sína tjl Þýzkalands, en hitt
er furðulegt, að þetta skuli
vera fyrsta utanför félagsins
eins og. Morgunblaðið stað-
hæfir. Manni finnst, að þeir,
sem voru pólitískir ungling-
ar í Sjálfstæðisfl.ókknum
fyrir síðari heimsíyrjöldina,
hljóti að hafa heimsótt það
Þýzkaland, sem þá var.
Afmæliskveðja fil Þóris Bergssonar
m ;
I
MAÐUR er nefndur Þor- •
steinn Jónsson. Hann býr að
Bárugötu 6 hér í bæ, kvæntur
frænku sinni, Gróu Árnadótt-
ur. Heimilið er yndislegt og
svo gaman að eyða þar kvöld-
stund, að gesturinn fer að
hlakka til næstu heimsóknar,
þegar ejnni lýkur. Vinsælli
hjón munu vandfundin — geð
þekkari og skemmtilegri. Alúð
3n er svo rík, að manni finnst
þau þakklát, þegar heilsað er
og kvatt, og samt stafar húa
ekki af kuríeisi þoljnmæðinn-
ar og umfburðarlyndisins held-
ur meðfæddri mildi og tillits-
semi, sem vermjr og gleður og
gerir sporln í vesiurbæinn létt
og kær. Þetta eru góðar og
menntaðar manneskjur, sem
verða vinum og samferðamönn
um ógleymanlegar manneskjur,
og reyna þó aldrei að láta mjkið j
á sér bera. Hjónin að Bárugötu
6 vinna traust og hyllj allra,
sem til þeirra þekkja, með töfr
um viðmóts og hjartalags. Og
í gær varð Þorsteinn sjötugur.
Hann á sannarlega skilið
kveðju og árnaðaróskir.
En öðlingurinn Þorsteinn
Jónsson er ejnnig riíhöfundur-
inn Þórir Bergsson. Sú saga er
margfalt stærri en greinargerð
in um störf hans á borgaralega
vísu, þólt farsæl séu og virð-
ingarverð. Ungur kvaddi hann
sér hljóðs á skáldaþingi, en gaf
ekki út bók fyrr en 1039 og
var þá löngu þjóðkunnur fyrir
smásögur sínar í Skírni og
Eimreiðinni. Það var smásagna
safn, og síðan hefur Þórir Bergs
son látið frá sér fara á hálf-
um öðrum áratug fjögur smá-
sagnasöfn, tvær skáldsögur og
eina Ijóðabók. Afköstin eru
ekkert undraeíni, en árangur-
inn sætir miklum tíðindum.
Þórir Bergsson er í tölu beztu
smásagnahöfunda okkar, og er
þá mikið sagt, því að ennþá
ber smásögurnar hæst í íslenzk
um sagnaskáldskap, þó að
skáldsögunum sé meiri gaum-
ur gefinn. Og annaðhvort mun
bókmenntaiðja íslendinga
hefjast hátt í hæð eða tunga
okkar glatast og glevmast ]es-
andi fólki, ef snjöllustu smá-
sögur Þórjs Bergssonar verða
ekki metnar mikils um langa
framtíð.
Þórir Bergsson er mistækur
eins og flestir eða allir rithöf-
undar, sem vinna af kappi, og
oft Ijggur í augum uppi, að
hann hafi orðið fyrir áhrifum
af hinum eða þessum meistur-
um. En beztu smásögur hans
hljóta að teljast persónuleg og
vandgerð listaverk. Maðurinn
er hugkvæmur og kann ágæt-
lega að segja sögu. Viðfangs-
efnið er sjaldnast stórbrotið,
en haglejkurinn og smekkvís-
in einkennir .vinnubrögðin.
Þórir Bergsson er könnuður
sálarlífsins, en hann gerir
stundum smátt stórt með. því
að bregða upp óvæntríi mynd
eða rekja dulda þræði, sem
mejnlegir atburðir hafa spunn
ið á rokk örlaganna. Hann er
enginn áróðursmaður í skiln-
ingi byltingarseggja óg stjóm-
málaflokka-,. en tekur málstað
'lítilmagnans með því að túlka
baráttu háns og örvæntingu
pg setur harmleikjnn á svið
hversdagslífsins, svo að hann
reynist öllum auðskilinn og
minnisstæður. Þóri • Bérgssyni.
verður hugsað til ranglætisins
og vonbrigðanna, en túlkar
Þórir Bergsson.
einnig sanna og lífræna feg-
urð, þegar hann gleðst og
hrífst. Hann meitlar ekki harð-
an málm,. en dregur myndir
sínar fáum og fínum dráttum
og vekur lesandanum ljúfsára
kennd hryggðar eða fagnaðar,
þegar gáta kvíða eða tilhlökk-
unar er ráðin. List hans er var-
færjn og krefst næmrar skynj-
unar, en hún er mannleg og
raunsöm og þjónar göfugum
tilgangi. Aðferð Þóris Bergs-
1 sonar er svo vandasöm, i a5
mikla íþrótt þarf til að leýsa
þrauiina vel af hendi. Flestúm
Veitist sýnu auðveldara að
gera stórt smát en smátt stórt.
En sögur eins og Sjgga-Gunna,
Brosið, Stökkið, Slys í Giíja-
reitum, Bréf úr myrkri, Sam-
vizkusemi og Fjallganga bera
því órækt vitni, að Þórir Bergs
son sér og heyrjr sitihvað, sem
enginn tekur eftir nema hug-
kvæmt og næmgeðja ská!d og
túlkandi frumstæðra en djúp-
lægra tilfinninga, er aðeins
verða opinberaðar í nautn
mikillar snilidar. Og þó er ó-
taljn sú smásaga hans, sem
frægust verður. Hún heitir
FJugur og 'ber svipmót heims-
listar.
Þórir Bergsson er skyldastur
í Einari H. Kvaran af verka-
! mönnunum í vínsarði sagna-
skáldskaparins á íslandi. Rejt-
ur hans er ekki stór, en rækt-
aður af samvizkusemi kunn-
á'tunnar og kunnáltu sam-
vizkuseminnar. Og ávextir
hans eru 'boðlegir hverjum
þeim, sem gerir strangar kröf-
ur í sjðmennilegri hófsemi.
Helgi Sæmundssom
Margt efnilegra dœgurlágá
söngvara í Austurbœjarhíói
KYNNINGARHLJÓMLEIK-
AR Ráðningarskrifstofu
skemmtikrafía í Austurbæjar-
bíói síðastliðinn föstudag, þar
sem ellefu nýjr dægurlaga-
söngvarar komu fram, heppn-
aðist einstaklega vel. Flestum
söngvaraefnanna tókst mjög
vel upp, voru öruggir, höfðu
þokkalega sviðframkomu og
sungu „óvenju laglega af algjör
um nýliðum að vera.
Má reikna með að nokkrir
beirra, er þarna sungu opinber
lega í fyrsta sinn, eigj eftir að
verða vinsælir skemmtikraftar
og ber þá fyrst að telja hinar
ungu síúlkur Önnu ívarsdóttur
og Sigrúnu Bjarnadóttur. Eru
þær 12 og 13 ára, en söngur
þeirra var engu óáheyrilegri
heldur en t. d. hjá hinum lands
frægu Öskubuskum. Var þess-
um ungu söngkonum óspart
klappað lof í lófa. Þá má og
nefna Magnús Helgason, Helgu
Ólafsdóttur, Valgerðj B. Guð-
mundsdóttur og Hafdísi Ólafs-
dóttur, sem öll gerðu hlutverki.
sínu hln beztu skil. Aðrir, er
þarna sungu, voru ekki eins
öruggir, en eflaust mun meiri
reynsla skera úr hvort þeir eigi
efiir að verða þeir dægurlaga-
söngvararnir, er e.ga eftir að
láta til sín heyra á dansleikj-
um næstu mánuðina eða jafn-
vel árin.
BQjómsveit Ronnje Kean og
söngkonan Marion Davis, sem
nú skemmta í RSðli. ]éku cg
sungu nokkur lög á hljómleik-
um þessum vlð hinar ágætustu
viðtökur, einkum vakti einleik
ur trommuleikara hljómsveitar
innar mikla hrifningu.
Hljómsve'.t Árna íslejfsson-
ar annaðist undirleik fyrir alla
dægurlagasöngvarana og gerði
því hin beziu skil. Kynnir á
hljómleikunum var Svavar
Gests og hélt hann uppi léttri
og skemmtllegri stemningu
hljómleikana út.
S. L. '
ÁLLT Á SAMA STAÐ
Munið eftir hinum endingargóðu
6VOLT
12 VOLT
(ROMPTON
R A F GEYMTJM r
H.F. Egill Vilhjálmsson,
Laugavegi 118. — Sími 8-18-12.
»■■■■■■■«■■■■■■■■■■RB■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«»■■■•■■■■■«»*»■■■■•■|