Alþýðublaðið - 16.09.1955, Qupperneq 3
Föstudagur 16. sept. 1955
ALÞYÐUBLAÐKJ
3-
Gólfteppi
ull, falleg, margar stærðir.
Cacesgólfteppi
falleg og ódýr.
Okkar vinsælu
HOLLENZKU
GANGADREGLAR
í 70—90—100—120—140 cm. breidd,
margir mjög smekklegir litir, þekktir um land allt
fyrir sérstaklega góða endingu og mjög fallega á-
ferð.
Höfum einnig fengið ágætt úrval af cocos-gólf-
mottum 1 mörgum stærðum, einlitar og mislitar.
Vandaðar vörur.
Geysir h.f.
Teppa- og dregladeildin
Vesturgötu 1.
Ur
um
A N N E S A H O B NIN U <^3K500000000O
| Vettvangur dagsin*
i Harðorð gagnrýni á borgarlækni og embætti hans
— Einkennileg yfirlýsing — Bann við saltfisks-
sölu — Harðfiskur og lax innan um slor — Prent-
pappír utan um brauðvörur — Pessu ófremdar-
ástandi verður ekki unað lengur
FREYJA skrifar mér eftirfar-
andi bréf: „Fyrir nokkru veikt
ist f jöldi manna af eitraðri ^
kæfu. Fulltrúar í matvælaeftir- i
litinu birtu dularfulla yfirlýs- J
ingu af þessu tilefni, þar sem,
sagt var, að við rannsókn hefði |
komið í ljós, að starfsstúlkur,
hefðu borið eitrunina í matinn.!
Hvers konar eitrun? Og á hvern
hátt báru starfsstúlkurnar eitr-
unina í kæfuna?
ENN FREMUR: í yfirlýsing-
unni var gerð tilraun til þess
að þvo borgarlækni hvítan af
_ sök í þessu máli. Hvers vegna?
Mér vitanlega dettur engum í
hug, að ásaka borgarlækni eða
matvælaeftirlitið um það þó að
það komi fyrir, að eitruð mat-
væli séu seld í búðunum. Það
kemur því ekki neitt málinu
við hvort borgarlæknir hafi
verið í sumarfríi eða ekki.
HINS VEGAR er sannarlega
hægt að gagnrýna embættis-
færslu borgarlæknis, ef til vitl
ekki hann sjálfan, en ef ekki
hann, þá þær reglur, sem hon-
um er gert að starfa eftir. Al-
menningur á aðgang að borgar-
lækni — og þess vegna hlýtur
gagnrýnin að stefna gegn hon-
um.
ÖLL VERZLTJN með matvæli
er í megnasta ólagi, og í raun
og veru ekki samboðin siðuðu
þjóðfélagi. Borgarlæknir virðist
una þessu fyrirkomulagi, því að
ef svo væri ekki, þá myndi ein-
mitt hann, sem ber ábyrgð á
staríinu, vinna ötullega að því
að skapa nýjar reglur, en al-
menningur verður að minnsta
kosti ekki var við þá baráttu
hans. Enda þegir hann og við
réttmætum aðfinnslum.
ALLT í EINU átti almenning
ur kost á að kaupa fyrsta flokks
saltfisk í ágætum sellófanum-
búðum. Þessi ágæti matur
fékkst í nokkrum verzlunum.
Snögglega var bannað að selja
hann í kjötbúðum eða öðrum
búðum, nema fiskbúðum, en
fisksalarnir neituðu að selja
hann. Að þessu var mjög fund-
ið. En boi'garlæknir, sem fram-
kvæmt mun hafa bannið, þagði
við. Gaf ekki nein askýringu.
SLORUGUR FISKUR er seld
ur í fiskbúðunum, víða liggur
hann á gólfi, jafnframt er selt
tros, skata, frosinn fiskur, allar
tegundir fiskjar, blautar og
þurrar — og sannarlega mismun
andi útlítandi. Á sama borðinu
er seldur óinnpakkaður harð-
fiskur, tilbúinn til þess að láta
á matborðið. Á sama borði er
seldur reyktur lax, einnig til-
búinn að láta á borðið.
VENJLEGUM matvörubúðum
er bannað að selja flatkökur, þó
áð þær séu í góðum umbúðum
og hendur verzlunarmannsins
þurfi ekki að snerta þær. Þá er
brauðbúðum bannað að selja
blöð og er kannski ekkert við
það að athuga, en þeim er ekki
bannað að nota gömul dagblöð
til þess að láta utan um brauðin.
MENN SJÁ hvílíK hringavit-
leysa þetta er. Það er til skamm
ar, að banna að selja innpakk-
aðan fyrsta flokks saltfisk í
venjulegum matvörubúðum, en
leyfa þeim að selja ósundurskor
inn saltfisk. Það er til skammar
að selja óinnpakkaðan harðfisk
og reyktan lax í fiskbúðum.
þetta er allt til skammar og
ekki siðuðum mönnum samboð-
ið. En svona er matvöruverziun-
in hér. Borgarlæknir ber á-
byrgðina eða embætti hans.
Það er orðið „sumarleyfisemb-
ætti“, samanber yfirlýsingu full
trúa þess. Við eigum aðgang að
borgarlæknisembættinu. Þess
vegna dynur gagnrýnin á því.“
ÞETTA ER allhörð gagnrýni.
Vitanlega er matvöruverzlun
með skríisbrag. Það hef ég hvað
eftir annað sagt hér í pistlun-
um. Svo virðist, sem reglur um
hana þurfi gagngerðrar endur-
skoðunar við. Því ætti' borgar-
læknir að beita sér fyrir.
Hannes á horninu.
iHum
í DAG er föstudagurinn 16.
sepíember 1955.
F L U G F E K Ð I K
Loftleiðir.
Edda, nxillilandaflugvél Loft-
leiða h.f., er væntanleg kl. 18.45
í kvöld frá Hamborg — Kaup-
mannahöfn •— Gautaborg. Flug-
vélin fer til New York kl. 20.30.
Flúgfélag íslands h.f.
Millilandaflug: Gullfaxi fór
til Osló og Stokkhólms í morg-
un. Flugvélin er væntanleg aft<
ur til Reykjavíkur kl. 17.00 á
morgun. Sólfaxi fer til Glasgow
og Kaupmannahafnar kl. 08.30
í fyrramálið.
Innanlandsflug í dag er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar (3
ferðir), Egilsstaða, Fagurhóls-
mýrar, Flateyrar, Hólmavíkur,
ísafjarðar, Kirkjubæjarklaust-
urs, Patreksfjarðar, Vestmanna-
éyja (2 ferðir) og Þingeyrar.
Á morgun er ráðgert að fljúga
til Akureyrar (3 ferðir), Blöndu
óss, Egilsstáða, ísafjarðar, Sauð-
árkróks, Siglufjarðar, Skóga-
sands, Vestmannaeyja (2 ferð-
ir), og Þórshafnar.
IIlutaveRa
Kvennadeildar Slysavarnafé-
lags íslands í Reykjavík verður
haldin 2. október og skorar því
deildin á alla velunnara sína að
leggja henni til góða muni, sem
veitt verður móttaka í skrifstofu
Slysavarnafélagsins, Grófinni 1:
Ennfremur munu deildarkonur
heimsækja ýmsar stofnanir, sem
eru beðnar að sýna þeim velvild
eins og áður.
Kvöldskóli KtF.U.M.
Innritun nemenda fer fram
daglega í verzl. Vísi, Laugavegi
1.
Kvenfélag óháða safnaðarins.
Félagskonur og aðrir, sem
hafa hugsað sér að gefa kökur
með kaffinu á kirkjudaginn, eru
vinsamlegast beðnir að koma
þeim kl. 10 á sunnudaginn í
Góðtemplarahúsið.
Drykkjumannahæli
(Frh. af 1. síðu.)
fulltrúi Alfreð Gíslason, er
veitt hefur Áfengisvarnarstöð-
inni forstöðu, kvaðst styðja til-
lögu Petrínu xxm frestun þar til
séð yrði, hvernig erindi Áfeng-
isvarnarstöðvai'innar til Heilsu
verndarstöðvarinnar reiddi af.
Skýrði Alfreð frá því, að hálft,
ár væri nú liðið frá því að
Áfengisvarnarstöðin hefði farið
þess á leit við stjórn Heilsu-
verndarstöðvarinnar að fá nokk
ur sjúkrarúm fyrir drykkju-
Jsjúklinga. En ennþá hefði því
; erindi ekki verið svarað. Minnti
I Alfreð á, að bærinn hefði á sín-
um tíma gengizt fyrir stofnun
1 Áfengisvarnarstöðvarinnar og
rekið hana og bæri því að hlúa
1 að henni fyrst og fremst.
jKvaðst hann óttast, að fjái'hags
skuldbindingar bæjarins við
aðrar hliðstæðar stofnanir
kynnu að bitna á Áfengisvarn-
arstöðinni.
Boi'gai’stjóri kvaðst vilja full
vissa bæjarfulltrúa um, að lán
bæjarins til „Bláa bandsins"
myndi ekki á neinn hátt bitna
á Áfengisvarnarstöðinni. Sagði
hann, að Áfengisvarnarstöðin
mvndi því eins fyrir því geta
fengið sjúkrarúm í Heilsuvernd
arstöðinni. — Samþykkti bæj-
ars.tjórn siðan lánveitingu til
„Bláa bandsins".
Hjartans þakkir öllum þeim, er auðsýndu mér samúð vifT
andlát og jarðarför mannsins míns,
SÆMUNDAR BENEDIKTSSONAR,
Fífilgötu 8, Vestmannaeyjum, sem andaðist 5. þessa mán.
Sérstaklega þakka ég lækni og hjúkrunarfólki sjúkrahúss
Vestmannaeyja einstaka umönnun í veikindum hans.
Ástríður Helgadóttir.
Nýkomið í enska bíia
Lucas-dynamóar 6 og 12 volta
Startarar 6 og 12 volta
Anker í dynamóa og startara
Þurrku-mótorar 6 og 12 volta.
Straumlokur 6 og 12 volta.
Háspennukefli 6 og 12 volta.
Kveikjulok, kveikjuhamrar
Kveikjuþéttar, kveikjuplatínur
Framljósarofar, ljósaskiptarar, startarabotnar.
Raftækjaverzíyn
Halidórs Óiafssenar
Rauðarái'stíg 20 — sími 4775
hefur opið allan sólarhringinn.
Síiiil
HEF OPNAÐ vei'zlun með ýmis konar smávörum og
barnafatnaði. >
Kynnið yður verð og gæði. “
Tek einnig á móti fatnaði fyrir Efnalaug Aust- «
urbæjar, Skipholti 1.
Vönduð vinna. — Fljót afgreiðsla.
Verzlunin Sopvegi 12
út af úrskurðum skattstjórans í Reykjavík og nið-
urjöfnunarnefndar Reykjavíkur á skatt- og útsvars
kærum, kærum út af iðgjöldum atvinnui'ekenda
og tryggingariðgjöldum rennur út þann 1. október
næstkomandi.
Kærur skulu komnar í. bréfakassa skattstofu
Reykjavíkur í Alþýðuhúsinu fyrir klukkan 24
þann 1. október næstk.
Yfirskattanefnd Reykjavíkur.