Tíminn - 05.02.1965, Blaðsíða 4
16
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 5. febrúar 1965
BRÉF TIL BLAÐSINS
Það hefur heyrzt nokkuð af
óánægju á undanförnum árum
með kjarnaáburðinn frá Áburðar-
verksmiðjunni h.f. í Gufunesi.
Áburður þessi „Kjarninn" (það
nafn hlaut hann í upphafi) er
33% % sterkur köfnunarefnis-
áburður og rífur því mikið gras
úr jörðinni þegar önnur efni eru
þar til staðar, og jarðvegurinn er
ekki of súr.
En nú er það svo, að mikið af
einkum mýrarjarðvegi er dálítið
súr og kalksnauður, og þannig er
einmitt mikið af íslenzkum jarð-
vegi, og þá er það auðskilið, að
ekki er heppilegt að bera til
lengdar mikið af sterkum köfnun-
arefnisáburði á þannig land, án
þess að sjá jarðveginum fyrir
kalki, því að kjarnaáburðurinn
er kalksnauður), svo nauðsynlegt
sem það er, ekki einungis sjálfum
gróðrinum, sem á landinu á að
vaxa, heldur og líka lífsnauðsyn
skepnunum, sem eiga á grasinu
og heyjunum að lifa, þó alveg
sérstaklega öllum mjólkurpeningi,
kúnum og lambánum, því ef mjólk
urkýrin fær ekki nægilega mikið
kalk í því fóðri, sem hún lifir á,
þá fer svo að hún veiklast ýmist
af doða og beinaveiki, sem stund
um endar með dauðanum. Þetta
orsakast af því, að þegar mjólkur-
kýrin fær ekki nægilegt kalkríkt
fóður, þá leysir lífsstarfsemi kýr
innar kalkið úr hennar eigin bein
um, til þess að fullnægja eðlilegu
kalkmagni mjólkurinnar, svo að
mjólkin fullnægi eðlilegri þörf
vaxandi ungviðis.
Þannig verndar móðir náttúra
hið vaxandi líf í lengstu lög, með-
an nokkur leið er til þess.
Svo þegar fer að bera á alvar-
legum sjúkdómseinkennum koma
dýralæknar og dæla atórum kalk-
sprautum undir húð gripanna og
bjargar það í bili, enda ekki um
annað að gera, þegar í þetta óefni
er komið.
Það er svo annað mál, að þetta
þarf ekki að ganga svona til, enda
þótt kjarnaáburðurinn sé hvort
tveggja sterkur köfnunarefnis-
áburður og kalksnauður. hann er
framleiddur og seldur sem slíkur
og allir sem kaupa hann og nota
í stórum stíl, verða að gera sér
grein fyrir því, hvað það er, sem
þeir eru með.
Það vill nú svo vel til, að það
mikla og góða fyrirtæki. Sements-
verksmiðjan á Akranesi vinnur og
selur áburðarkalk eftir pöntun
um og hefur selt það a ruma 50
aura kílóið í umbúðum, hvort
heldur er komið á bíl eða í skip.
Þetta er nauðsynlegt að bera á
flest bau lönd, sem kjarnaáburð-
urinn er borinn á árlega, og því
nauðsynlegra því meira sem not
að er af kjarnanum.
Það var vorið 1961- ið ég flutti
tillögu á aðalfundi K.S. á Sauðár
króki þess efnis að framkvæmda-
stjórn K.S. hæfi viðskipti við Sem
entsverksmiðjuna á áburðarkalki
og útvegaði bændum hér í Skaga
firði a.m.k. eftir pöntunum eða
hefði það til sem aðra söluvöru,
því mér var þá Ijóst, að þetta
áburðarkalk er full nauðsynjavara
fyrir grasræktina, ef ve) ■ að fara,
og hver er ekki sem vill að svo
verði?
En það er nú svona með svo
margt, sem fengizt er við. það
þarf á ýmsan hátt nokkuð fyrir
því að hafa svo vel fari. Og svo
er með þetta, það ei víst ikki
svo fáir, sem óskuðu sér þess, að
kjarnaáburðurinn væri kalkríkur
áburður. án oess að gerr sér
grein fyrir því hvað bað kosti
í framkvæmd. Er til muna f járhags
legar hagstæðara að kaupa sitt i
hvoru lagi, kjarnann og áburðar
kalkið, og kalkið óorið einu sinni
á með 8-10 ára millibili ca. 2 tn.
4 hektara ef ekki er borið árlega
meira á af kjarna en 5-6 pokar
á hektarann. Ef borið er meira á,
allt upp í 8 pokar á hektarann
af kjarna árlega, verður að bera
áburðarkalkið á helzt sjötta hvert
ár 2 tonn á hektara.
Rétt er að minnast þess, að tún
ið, jarðvegurinn, verður alltaf að
fá sinn vissa skammt af fosfórs-
sýru og kalíi í sem réttustu hlut.
falli við köfnunarefni eða magn-
íð, sem á er borið, enda þótt
áburðarkalkið sé notað, og sé alls
þess gætt, þá er kjarnaáburðurinn
öruggur að gefa mikið og gott
gras og þá er ástæðulaust undan
honum að kvarta eins og hann
nú er.
Nóvember 1964
Hróbjartur Jónasson,
Hamri, Ilegranesi.
Fangelsismálin eru og hafa ver-
ið mestu vandræðamál hér
landi. Við engan valdsmann er að
sakast, aðeins Aliþingi, sem ekki
hefur haft getu til að leysa þetta
mál. Nú er ástandið svona. í
Reykjavík er gamaldags tugthús
frá öldinni, sem leið. — Einhverjar
fleiri málamynda fangageymslur
munu vera til í nýrri hfisium, sem
þó voru ætluð til alls annars í
upphafi. Jónas Jónsson fyrrv.
dómsmálaráðherra ákvað út *úr
vandræðum að gera gamalt hús á
Eyrarbakka að fangelsi, er þar
var upphaflega hugsað og byggt
sem spítali. Sagt er að dæmdir
menn verði að bíða misserum sam-
an eftir að geta tekið út refsingu
og jafnvel gleymist þeir vegna öng
þveitis í húsnæðismálum auk vand
ræða með staðsetning slikrar stofn
unar. Þetta er vandræðaástand.
„En eitthvað verður -að reyna“
eins og vitur maður sagði hér á
árunum. Fyrir nokkru las ég í
blaði, að Viðey væri í eyði. Þá
datt mér í hug, hvort ekki væri
tilvalið að setja þar upp fangelsi.
Þarna er hægt að hafa stórbú og
fangagæzla yrði þar auðveldari en
í landi. Væri ekki rétt fyrir dóms
málastjórnina að athuga þetta?
Kolbeinn.
Einn hinna frægu bítla, John Lennon, dvelst um þessar mundir j St. Morizt i Sviss, þar sem hann eyðir
frítíma sínum vi3 skíðaiSkanir. Hann sést hér ásamt konu sinni, Cynthiu, lengst til vinstri og tveimur einka-
rlturum. Og bítiliinn sjálfur er lengst til hægri — Ljósmynd UPI.
ÍSL. MÁLLÝZKUR —
; Framh. af lri. síðu.
123. hefti í Studia Islandica, og
i hins vegar með aðaltitlinum „Mál-
I lýzkur II,“ með sama ytri frá-
! gangi og Mállýzkur 1, sem kom
| út 1946. Ritstjóri ritsafnsins er
j prófessor Steingrímur J. Þor-
j steinsson.
AFENGIÐ
Framhald af bls. 17.
var á sama tíma árið áður 77,
182.372 krónur. Salan skiptist
þannig milli staða (tölur frá 1963
innan sviga): Reykjavík 73.346.
513 (63.714.204), Akureyri 8.531.
400 (6.401.829), ísafirði 2.811.425
(2.130.189), Siglufirði 1.589.015
(1.440.471), og Seyðisfirði 3.356.
925 (1.667.052).
SKIPAÚTGCR0 RIKISINS
Ms. Esja
fer vestur um land í hringferð
9. þ.m. Vörumóttaka á föstudag
og árdegis á laugardag til Pat-
reksfjarðar, Sveinseyrar, Bíldu-
dals, Þingeyrar. Flateyrar. Suð-
ureyrar, ísafiarðar, Siglufjarð-
ar, Akureyrai Húsavíkur og
Raufarhafnar
Farseðlar seldir á mánudag.
Ms. Herðubreið
fer austur um land i hringferð
11. þ.m. Vörumóttaka árdegis á
laugardag >g mánudag til
Hornafjarðar
Breiðuvíkur
Borgarfjarðar
Bakkafjarðai
Kópaskers
Farseðlar seidir á miðviku
dag.
Djúpavogs,
Stöðvarfiarðar.
Vopnafiarðar.
Þórshafnar og
BILAKAUP
Mercury comet 63, ekinn 15
þúsund, skipti koma til
greina. Verð 225 þús.
Volvo 544 ’60. Skipti á Amason
eða öðru Verð 100 þúsund
Willys jeppi 47, nýtt hús og
og karfa. skipti möguleg.
Verð 45 þúsund.
Mercedes Benz 190 58, skipti
á amerískum bíl.
Mercedes Benz 220 ’55, viðgerð-
ur fyrir 105 þús., skipti mögu
leg. Verð 110 þúsund.
Simca sl ’63. lítið ekinn. fast-
eignatr.bréf kemur til greina,
skipti möguleg.
Chevrolet ’57, góður. Verð
75.000.
V.W. ’65, skipti á eldri V.W.
Ford ’55 í skiptum fyrir sendi-
ferðabifr.
Mozkowitz 57, góður. Verð
25000.
Opel Kapitan ’60, skipti mögu-
leg á jeppa. Verð 150 þús-
und.
Taunus 15m ’55. Verð 40 þús-
und, góður.
Austin ’60, sendiferðabifr. (lít-
ill). Verð 7C þús.
Ennfremur höfum við fjöldan
allan af alls konar bifreið- '
um, eldri sem yngri, í alls |
konar skiptum og með margs >
konar greiðslumöguleikum.
BÍLAKAUP
(Rauðará) Skúlagötu 55.
Sími 15812
NYR FIAT
í næsta mánuði kemur á mark-
aðinn nýr Fíat bíll, FIAT 850,
og er hann millistærð á milli 600
og 1100 gerðanna.
Fíat 850 er tveggja dyra, með
vélina aftur í. Hann er gefinn
upp fyrir 4—5 manns, hefur
fjóra gíra áfram — eins og all-
ir Fíat bílar, og eru allir gírarn-
ir samhraða. Vélin er fjögurra
strokka, 843 rúmsentimetrar, og
gefin upp fyrir 40 hestöfl.
Dekkjastærðin er 5.50x12, ben-
zíntankurinn tekur um 30 lítra.
Kælikerfið er innsiglað, og á
ekki að þurfa að hugsa um það,
hvorki á sumrin eða veturna, því
kælivökvinn þolir 35 gráðu frost.
Fíat 850 er laglegur í útliti,
línurnar eru mjúkar og ávalar og
þótt 850 gerðin líkist 600 gerð-
inni er hér um að ræða algjör-
lega nýjan bíl, yzt sem innst.
Hægt er að leggja bakið 1 aft-
ursætinu niður, og koma þar fyr-
ir farangri ef mönnum sýnist,
svo, en auk þess er farangurs-
geymsla frammí, og þar er geym-
irinn líka og varahjólið. Tveir
stólar eru frammí, og á milli
þeirra er gírstöngin og hand-
bremsan. Útsýni fyrir ökumenn
er sagt gott, og öll stjóntæki vel
staðsett.
Bíllinn vegur um 670 kíló, og
kemur til með að kosta hér um
131 þúsund krónur. Nánari upp-
lýsingar fást hjá Orku h.f.
Slys í Kópavogi
KJ-Reykjavík, fimmtudag.
í dag varð aivarlegt umferðar-
slys á Kársnesoraut í Kópavogi.
Níu ára drengui varð fyrir veg-
hefli, og slasaðist drengurinn mik-
ið. Hann mun þó ekki í lífshættu.
Slysið varð rétt eftir klukkan
fimm, vestarlega á Kársnesbraut-
inni. Veghefill var þar að verki,
og tveir drengii á eftir honum á
reiðhjólum. Veghefilsstjórinn seg-
ist hafa stanzað þarna til að taka
upp tönnina og bakka. Leit hann
út um afturgluggann á stýrishús-
inu, en sá engan fyrir aftan. Þeg-
ar hann svo heíui ekið aftur á bak
Kaupmenn - Kaupfélög
Fyrirliggjandi:
Fjölbreytt úrval af kaffi- og matardúkum.
Kr. Þorvaldsson & Co.
Heildverzlun. — Grettisgötu 6.
Símar 24478 og 24730.
|2—3 metra, verður hann var við
að framhljólið fer yfir einhverja
ójöfnu, og þar sem hann átti ekki
von á því, stöðvaði hann tækið og
'fór út til að aðgæta þetta, Sá
hann þá drenginn og hjólið liggja
fyrir framan framhjól hefilsins.
Drengurinn, sem varð fyrir slys-
inu, heitir Guðmundur Kristjáns-
son, níu ára gamall, til heimilis að
Hlíðarvegi 16 í Kópavogi.
Félagi hans, sem var þarna með
honum, segir að þeir hafi ætlað
að ná heflinum, og þegar þeir
voru komnir nærri honum, segist
hann hafa séð hefilinn stanzá, og
varað Guðmund við að fara nær,
því nú ætaðii txefillinn að bakka.
Segist hann hafa kallað aftur, en
Guðmundur ekkí heyrt vamaðar-
orðin.
SELTJARNARNESIÐ —
Framhajfi al 24 siðu
nú er 120 metrar niður á gamla
bergið. Þarna eru ákaflega sér-
kennilegar myndanir, ekki ólíkar
því að hraunið hafi runnið út í
fjöru, eins og æðar eða net úr
grágrýti, en innan um það basalt-
björg, sem skera sig úr, m.a. vegna
annars litar, ég býst ekki við að
maður sjái slíkar myndanir víða.
Að endingu Jon. hvað er borihn
kominn langt niður og hvað er orð-
ið heitt?