Tíminn - 05.02.1965, Síða 12
3. MILLJ. MEÐ IATA
YFIR N.-ATLANTSHAF
NTB-MONTREAL, fimmtudag.
Mikil aukning var í farþegaflug-
inu yfiir Norður Atlantshaf árið
1964. Flugfélög, sem eiga aðild að
IATA, Alþjóðasambandi flugfé-
laga ,hafa í fyrsta sinn í sögunni
flogið með yfir þrjár milljónir
farþega á þessari leið. Jókst far-
þegaflugið á þessari leið um 25.2%
á árinu.
Samkvæmt skýrslu IATA fluttu
flugfélögin alls 3.551.000 farþega
á þessari leið árið 1964, og er það
Matareitrunin
í rannsókn
MB-Reykjavík, fimmtudag.
Rannsóknin á matareitrun
þeirri, sem upp kom að lokinni
matarveizlu í einu af samkomu-
húsum borgarinnar siðastliðið
laugardagskvöld, hefur orðið um-
fanjjsmeiri en haldið var í fyrstu.
f morgun lágu fyrir niðurstöður
upphafsrannsóknarinnar, og var
þá ákveðið að láta fara fram fram-
haldsrannsókn, og munu niður-
stðöur hennar ekki liggja fyrir fyrr
en öðru hvoru megin við helgina.
Keflavík - Suðurnes
Framsóknarvist og dans í Aðalveri
í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.30.
Fjölmennið oa takið með ykkur
gesti.
F.U.F. Keflavík.
25.2% aukning frá árinu 1963.
Fyrir 10 árum, þ.e. 1954, fluttu
IATA-félögin alls 581.000 farþega
yfir Norður-Atlantshafið.
Flestir þeirra, sem flugu með
áætlunarvélunum, völdu ódýrari
flokkinn, en árið 1964 jókst far-
þegafjöldinn í dýrari flokknum
um 22.5% frá árinu 1963. Er það
í fyrsta sinn síðan 1960, að tala
farþega í fyrsta flokki eykst. Tal-
ið er, að aukningin í báðum flokk-
um hafi aðallega átt sér stað
vegna verulegrar lækkunar á far-
gjöldum, sem gerð var í apríl
1964.
Vöruflutningar yfir Norður-Atl-
antshafið jukust um 22% miðað
við árið 1963.
Það eru alls 18 IATA-félög, sem
fljúga yfir Norður-Atlantshafið.
Alls fóru þau í 47.944 flugferðir
árið 1964 miðað við 49.594 flug-
ferðir árið 1963.
Samningaviðræður
hjá yfirmönnum
á kaupskipum
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
Eins og sagt hefur verið frá í
TÍMANUM áður. sögðu yfirmenn
á- kaupskipaflotanum upp samn-
ingum sínum frá og með 1. febrú-
ar s.l. Samningaviðræður ganga
frekar hægt; hefur aðeins verið
haldinn einn fundur í undirnefnd.
Svíinn Blomdahl hlaut fyrstu
tónlistarverSlaun N-ráðsins
NTB-Osló, fimmtudag.
Sænska tónskáldið Karl-
Birger Blomdahl fékk í dag
tónlistarverðlaun Norðurlanda
ráðs fyrir óperu sína „Aniara“,
en þetta er í fyrsta sinn sem
þessum verðlaunum er úthlut-
að. Verðlaunin eru 50 þús.
danskar krónur.
Formaður dómnefndar þeirr
ar, sem úthlutaði verðlaun-
unum, prófessor Nils Sehiörr-
ing frá Danmörku, sagði eftir
að ákvörðun nefndarinnar var
birt, að verk Blomdahls, Ani-
ara, hefði mikið listrænt og
tónlistarlegt gildi, — „og tón
skáldið hefur að okkar áliti
notað elektróntónlistina á
mjög áhrifaríkan hátt og með
auðugu ímyndunarafli", sagði
prófessorinn, og bætti því við,
að með verki • sínu hafi Blom
dahl bætt góðu listaverki í
hóp norrænna óperuverka.
Ópera Blomdahls er byggð á
ritverki eftir sænska rithöfund
inn Harry Martinsson og lýsir
því, hvernig geimskip berst
stefnulaust um himingeiminn í
mörg ár og þeim átökum og
deilum sem rísa upp meðal á-
hafnarinnar.
Til dómnefndarinnar bárust
tillögur um verk tveggja fs-
lendinga, pianókonsert eftir
Jón Nordal og sinfóníu í þrem
köflum eftir Leif Þórarinsson.
Blomdahl sagði í dag, að nú
gæti hann tékið sér ca. hálfs
árs frí, en hann vinnur við
sænska útvarpið, og farið eitt
hvert, þar sem hann gæti sam
ið tónverk í ró og næði, —
m. a. þarf hann að vinna að
óperu, sem hann á að semja
sérstaklega fyrir sjónvarp.
Blomdahl hefur nýlokið við
aðra óperu, „Herr von Hanck-
en“, sem byggð er á skólasögu
eftir Hjalmar Bergmann.
FA SÆNSK BLOD
STYRK FRÁ RÍKI
NTB-Stokkhólmi, fimmtudag.
Fá sænsk d-agblöð ríkisaðstoð
I sem nemur um 20 milljónum
I sænskra króna árlega? Heimildir
í Stokkhólmi segja, að þeir tveir
jafnaðarmenn, sem eru í nefnd
þeirri, sem ríkisstjórnin skipaði
til þess að athuga möguleika á
slíkri aðstoð, hafi lagt til, að
| þessi upphæð yrði árlega veitt
til dagblaðanna. Telja þeir rétt,
að þessari upphæð sé skipt niður
á milli stjórnmálaflokkanna eftir
atkvæðamagni þeirra, og flokk-
arnir deili sínum hlut síðan milli
sinna flokksblaða.
Nefnd þessi var skipuð af
sænsku ríkisstjórninni fyrir rúmu
ári, og mun líklega skila áliti
sinu innan tveggja mánaða. f
nefndinni eiga sæti tveir jafnað
armenn og þrír fulltrúar frá
borgaralegu flokkunum. For-
maður nefndarinnar er jafnaðar-
maður.
Miklar umræður hafa lengi ver
ið um þetta atriði í sænskum blöð
um, og eru jafnaðarmenn á önd-
verðum meiði við borgaralegu
flokkana, sem telja, að ríkið eigi
ekkert að skipta sér af dagblöðun
um og samkeppni þeirra.
Jafnaðarmenn telja aftur á
móti, að mikil hætta sé á blaða
einokun, ekki sízt í ýmsum stærri
bæjum. Var nefndin skipuð á
sínum tíma vegna þess, að mörg
blöð urðu að gefast upp í sam-
keppninni um auglýsingar og
að mikil hætta sé á hkoðanaeink-
sérstaklega blöð jafnaðarmanna,
sem urðu „blaðadauðanum" að
bráð, m. a. „Ny Tid“ í Gauta
borg. Telja jafnaðarmenn því,
að mikil hætta sé á skoðanaeiok-
un.
Orðrómur hafði verið á kreiki
um, að jafnaðarmenn vildu verja
50 milljónum sænskra króna til
aðstoðar við dagblöðin, en í
morgun skrifar Dagens Nyhet
er, að þeir hafi lagt til í nefnd
inni, að aðstoðin næmi 20 milljón
um sænskra króna, sem skipt yrði
niður á flokkanna eftir atkvæða
magni þeirra, og sem flokkarnir
myndu síðan skipta niður á milli
blaða sinna.
Seltjarnarnesið hefur ekki
alltaf verið „lítið og lágt“
borrablót
r
Arnessýsla.
j Málfundanámskeið verður hald-
'ið næstu vikur i Aratungu. Stjórn-
andi er Sigurfinnur Sigurðsson,
Selfossi. Námskeiðið hefst mánu-
dagskvöldið 8. febrúar kl. 21.
Þátttaka tilkynnist Garðari
20. Nánar auglýst síðar I Hannessyni. Aratungu. — FUF í
— Stjómin. Árnessýslu.
Þorrablót Framsóknartélaganna
i Kópavogi verðui haldið i efri
salnum í Félagsheimili Kópavogs.
laugardaginn 13. febrúar og hefst
það kl
| MB-Reykjavík, timmtudag.
í dag voru gerðar nokkuð frek-
ari athuganir við borunina á Sel-
tjarnarnesi Fón Jónsson, jarð-
fræðingur, sagði blaðinu í dag, að
: þar hefðu óneitamlega merkilegir
hlutir komið í tjós. Gamla bergið,
sem er hulið 80—120 metra þykku
; qrágrýti undir Reykjavík, a.m.k.
þar sem borað nefur verið, kemur
upp úr fjörunni á Seltjarnarnesi.
Lítt hirt um Leif
JHM-Reykjavík, fimmtudag.
Fyrir 34 árum færði banda-
ríska þjóðin okkur íslending-
um styttuna af Leifi Eiríkssyni
að gjöf. f 34 ár hefur þessi
sama stytta staðið á Skólavörðu
holtinu í algjöru hirðuleysi.
Það er slæmt að vita til þess
að styttan skuli fá svo óvandaða
meðferð af okkar hálfu, en
óefað munu fulltrúar Norður
landaráðs vilja sjá styttuna.
í fyrra var lögskipaður sér
stakur minningardagur um
Leif heppna og Vínlandsfund-
inn í Bandaríkjunum. Norð-
menn færðu Johnson forseta,
gjöf við þetta tækifæri, en
við létum sem ekkert væri. Við
mótmæltum að vísu að Norð-
menn gætu eignað sér Leif.
Sá sem áleið um Skóla-
vörðuholtið þessa dagana, sér
þar átakanlegt dæmi um af-
skiptaleysi okkar og lítilsvirð
ingu þá sem við sýnum staðn
um. Þarna stendur Leifur mitt
í svaði og for, og einhver hef
ur hent moldarköggli í undir-
stöðuna. Bílum er lagt þvers
og kruss í kringum styttuna,
þannig að þeir útlendíngar sem
leggja leið sína til að sjá Leifs
styttuna, verða að láta sér
nægja að horfa á hana úr
fjarlægð. Hvað skyldu þeir
Norðmenn segja, sem sitja
munu fundi Norðurlandaraðs
hér i næstu viku, þegar þeir
sjá hvernig búið er að stytt-
unni á Skólavörðuholtinu?
Blaðið átti tal við Jörund
Pálsson, arkitekt, sem er ann
ar af tveimur mönnum, sem
vinna að skipulagsuppdrætti
fyrir svæðið í kringum Leifs
styttuna. Hann sagði að það
væri mjög áríðandi að flýta
þessum framkvæmdum eins
mikið og mögulegt væri. „Hann
eykst stöðugt sá straumur af
ferðamönnum sem koma hingað
og vilja sjá Leifsstyttuna, sér
staklega síðan Bandaríkjamenn
fyrirskipuðu Leifs-daginn. Það
er skammarlegt að sýna þessu
fólki staðinn eins og hann er
í dag, eins var það skammar
legt að sýna Johnson staðinn
á sínum tíma, vegna þess hve
ömurlegt umhverfið var.“ Jör
undur sagði að lokum að lokið
yrði við skipulagstillögurnar
með vorinu og þá þyrfti nauð
synlega að hefja framkvæmdir
á verkinu.
mrm
Er því ekkl óscnnilcgt að jarðhiti
sé þarna allmikit: ofar í berginu
en þar sem borað hefur verið í
Reykjavík. Þetta sýnir m.a. að Sel-
tjarnarnesið hefur ekki alltaf ver-
ið „lítið og lágt" heldur staðið all-
miklu hærra en meginhluti þess
svæðis, sem Reykjavík stendur á.
Jón kvað erfitt að segja til um
raunhæfa þýðinpu þessarat upp-
götvunar, en hinu væri ekki að
neita, að sú staðreynd, að berglög
þau, sem heitt vatn hefur fundizt
í hér í nágrennrnu, eru þarna við
yfirborðið, gæfi auknar vonir um,
að þarna væri auðfengið heitt
vatn. Hitaaukmngin hefur einnig
verið góð, nálægt 0.3 gráðum á
metra, en þar sem hitastigullinn
hefði verið mestur í Reykjavík,
væri hann 0.5 gráður á metra.
— En það verður að bora þarna
meira, áður en unnt er að slá
neinu föstu, sagði Jón. — Kannski
höfum við hitt þarna beint á bezta
blettinn, það parf líka að gera
þarna meiri mælingar. sennilega
verða þarna gerðar segulmælingar
nú alveg á næstunni.
Það er vissuiega ekki ósenni-
legt. að grunnt sé á gamla berg-
inu í Vesturbænum, kannski geta
Reykvíkingar fengið heitt vatn
úr jörðu ..vestast í Vesturbænum“
— Það rifjaðist upp fyrir mér,
þegar ég sá borKjarnana, að þegar
ég var að kortleggja þetta svæði
ári 1954 þá fann ég í f.iörunnni
norðan við Valhúsahæðina berg.
sem mér fannst einkennilegt og
áttaði mig ekki á þá, en taldi samt
I að væri ekki gragrýti. Og þegar
i ég fór að athuga þetta nánar í
|dag, þá sá ég, að gamla bergið
| kemur upp úr sávarmálinu við
i Bollagarða við fjöru, en sést ekki
| um flóð. Og ég sá sitt hvað
skemmtilegt í þessu, mjög sér-
kennilegar myndanir, meðal ann-
ars þóttist ég sjá þó nokkra gervi-
gígi sem myndazt höfðu i þessu
ævaforna basalti. líkt og vera
munu t.d undir Landbrotshólun-
um.
— Og þetta gefur okkur óneit-
aniega jarðfræðilega vísbendingu
um það, að þarna hlýtur í fyrnd-
inni að hafa vertð fjall eða hæð,
sem grágrýtishraunið hefur runn-
jið kringum. Alla vega hlýtur það
að hafa verið hærra en þar sem
Framhald á 16. síðu.
'mmm
1 Neskaupstað hafa orðið skipti
■á umboðsmönnum. Þorleifur Árna-
son sem hefur verið umboðsmað-
ur undanfarið, lætur nú af störf-
um. Blaðið þakkar honum vel
unnin störf. Við störfum hans við
blaðið tekur nú. að minnsta kosti
fyrst um sinn, Katrín Guðnadóttir,
Þiljuvöllum 19
Hún' mun hafa með höndum alla
þjónustu við kaupendur blaðsins,
og til hennar geta þeir snúið sér,
sem vilja gerast áskrifendur að
i Tímanum.