Alþýðublaðið - 30.09.1947, Síða 1
#•
Veðurhorfurs
Sunnankaldi og rigning,
þegar líður p daginn.
Alþýðublaðið
vantar unglinga til að bera
blaðið til fastra kaupenda*
XXVII. árg. Sunnudagur 28- sept. 1947. 217. tbl.
Umtalsefnið;
Hinar nýju skömmtunar-
fyrirskipanir.
Forustugrein:
Raupir um JRússlands-
markaðinn.
imfmí i
m
ifcill
Alsnenn birgðatalíiing fer fram í dag.
.Hvíta húsið' — forsetabúslaðurinn i Washington.
B r
SKÖMMTUNARSTJÓRI hefur nú gefið út til-
kynningu um víðtæka skömmtun á matvörum, hrein-
lætirvörum, vefnacarvörum, fatnaði cg búsáhöldum,
tik viðbctar þeim vörurh, sem þegar eru -skammtaðar.
'Hefur. þó ekki verið tilkynnt enn þá, hversu mikill
skámmturinn verður af hverri vörutegund, en þeirrar
t-ikynningar má.vænta rnjög bráðlega, senniiega í dag,
að því er skömmtunarekrifstofan skýrði blaðinu frá í
gær. Ekkert liggur fyrir um skömmtun á öðru en talið
er upp í auglýsingu skömmtunarstjóra, til dæmis
Truman fer fram á 580 milliómr doISara
fyrir Frakka, Itali og Ausnrríkismenn.
—-------------------»-------
TRUMAN BANDARÍKJAFORSETI kallaði nokkra ráð
lierra sína, þar á meðal Marshall, og helztu forustumenn
beggja þingflokkanna, repúblikana og demókrata, á ráð-
stefnu í „hvíta húsinu“ í Washington í gær til þess að ræða
bráðabirgðahjálp til þeirra Evrópulanda, sem verst eru
stödd, og varð niðurstaðan af fundinum sú að kalla yrði
Bandaríkjaþingið saman til aukafundar til að taka ákvörð-
un um slíka hjálp.
Truman boðaði á ráðstefnunni, að hann myndi fara
fram á við þingið, a'ð það veitti 580 milljónir dollara, sem
skipt yrði á milli Frakklands, Ítalíu og Austurríkis til þess
að hjálpa þeim yfir næstu mánuðina eða þar til Marshall-
hjálpin gæti komið til framkvæmda.
Ráðstefnan í „hvíta hús-
inu“ í gær var af öllum hin-
um mörgu stjórnmálamönn-
um, sem nú dvelja í New
York, talin hin mikilvæg-
asta, og biðu menn frétta af
henni með eftirvæntingu. •—•
Marshall flaug frá New
York til Washington til þess
að sitja ráðstefnuna.
Talið var, að ætlun Tru-
mans héfði verið, að veita
Frakklandi, Ítalíu og Austur
riki bráðabirgðahjálp án
þess að kalla saman Banda-
ríkjaþingið, en að forustu-
menn repúblikana, sem eru í
meirihluta í þinginu, ha/fi
verið því mótfallnir.
Sagði einn öldungadeildar-
maðurinn, sem sat ráðstefn-
una, eftir að henni var lok-
ið, að Truman hefði talið
bráðabirgðahjálp til handa
hinum þremur áður nefndu
ríkjum mjög brýna og jafn-
vel velferð Bandaríkjanna
velta á því, að hún yrði
veitt. Hins vegar hefði for-
setinn ekki talið neina nauð-
syn á því að hjálpa Bret-
landi fyrr en Marshalláætl-
unin sjálf kæmi til fram-
kvæmda.
Húsðleiguvísifðlan
HÚSALEIGUVÍ SIT ALAN
hefur nú verið reiknuð út
fyrir tímabilið 1. október
til 31. desember og er hún
143 stig eða einu stigi hærri,
en síðustu þrjá mánuði-
tóbafci.
Þá hefur skömmtunar-
stjóri lagt fyrir bæjar-
stjórnir og hreppsnefndir
að athenda skömmtunar-
seðla þá fyrir næsta
skömmtunartímabil, sem
þeir hafa verið sendir, og
mun hin nýja skömmtun
hefjast frá og með morg-
undeginum, sem er 1. októ
ber.
Þá hefur nefndin fyrir-
skipað öllum þeim, sem
hafa á hendi skömmtunar-
vörur, að láta fram fara
birgðatalningu í dag eða
fyrir morgundaginn þeg-
ar hin nýja skömmtun
hefst. Mun því flestum
verzlunum verða lokað i
dag. Þá hefur og verið
lagt fyrir alla þá sem hafa
með höndum vörur, sem
ekki eru sakammtaðar. en
framleiða má skömmt-
unarvörur úr, að gefa
skýrslu um birgðir og verð
slíkra vara. Nær þetta þó
ekki til varnings, sem ein-
göngu er til heimilisnotk-
unar.
HINAR SKÖMMTUÐU
VÖRUR
Á öðrum stað í blaðnu
birtist í auglýsingu skrá yfir
vörur þær sem skammtaðar
verða. Er fyrsti flokkurinn
matvörur, og eru þær þessar:
Smjör (ei’lént og íslenzkt),
baunir, kaffi (óbrennt,
brennt eða brennt og malað)
rúgur rís hvers konar, mjöl
úr hveiti. rúg eða rís, grjón
úr hveiti höfrum eða ris,
strásykur, molasykur, flór-
sykur, púðursykur, kandís
toppasykur og síróp.
Þá eru í annan stað hrein-
lætisvörur en þær eru upp
taldar: grænsápa og önnur
blaut sápa, sápuduft og sápu-
spænir, hvort sem er með eða
án ilmefna eða sótthreinsandi
efna og loks þvottacíuft.
í þriðja lið eru vefnaðar-
vörur og fatnaður cg er þetta
langstærsti liöurinn, eins og
sjá má af auglýsingunni. Skó-
fatnaður er næstur. Loks eru
upp talin búsáhöld úr hvaða
efni sem er. Má sjá nánari
skilgreiningu þessaVa vöru-
flokka í auglýsingunni. Síð-
ast er svo upp talið benzín.
Sumt af vörum þessum, til
dæmis búsáhöld og sum vefn-
aðarvaran, er_ skammtað til
þess að koma í veg fyrir ó-
þarfa hamstur, brask og
svartan markað þegar inn-
flutningður á vörum þessum
verður minnkaður.
Mjólkurskömmtun
gefur skollið á hve-
nær sem er.
MJÓLKURSKÖMMTUN
getur skollið á hvenær sem
er eftir 1. októher, ef nauð-
syn ber til að takmarka mjólk
1 ursöluna til einstaklinga.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið hefur fengið hjá
forstjóra Mjólkursamsölunn-
ar, hafa verið prentaðir
skömmtunarseðl. fyrir mjólk,
en ekki verður þó gripið til
þeirra fyrr en nauðsyn kref-
ur og verður þá um leið á-
kveðið fyrir hve miklu magni
af mjólk hver reitur gildir.
Sagði forstjórinn, að októ-
bermánuður væri jafnan erf-
iðasti mánuðurinn með mjólk
ina, en það er sá mánuður, er
kýr eru venjulegast teknar í
hús- Hins vegar eru horfur á
því í þeissu tíðarfari að hætt
verði að beita kúm nú þegar,
og má þá búast við mjólkur-
skorti í október. Aftur á móti
verði tíðarfar gott og bændur
FramhaLi & 7. síðu.
Kélera breiðlsl úl á
Egipialandi.
AlSsherjar bólusetn
ing fyrirskipuö.
KÓLERA hefur gosið upp
í Egiptalandi og hafa þegar
hundruð maíins tekið veikina
og yfir 80 dáiðc Hefur stjóm
in í Kairo ákveðið, að allir í-
búar landsins, um 17 milljón
ir, skuli í skyndi, eða á 10
dögum, bólusettir gegn hinni
hættulegu pest. s
Brezkar og amerískar flug-
vélar hafa þegar byrjað að
flytja bóluefni, bólusetning-
artæki og hjúkrunargögn til
Egiptalands, en auk Breta og
Bandaríkjamanna hafa einn-
ig Rússar og Frakkar .boðið
aðstoð sína.
Lögreglusföðin í
Haifa var sprengd
í loff upp í gær.
10 manris biðu bana
en 54 særðust.
LÖREGLUSTÖÐIN í Haifa
í Palestínu var sprengd í
loft upp í gærmorgun, og
hiðu 10 manns bana við
sprenginguna, en 54 særð-
ust meira eða minna.
Öaldarflokkurinn Irgun
Zwai Leumi lýsti yfir því í
gær, að hann hefði látið
sprengja^ lögreglustöðina í
loft upp, og hrósaði sér af
því-
Af þeim 10, sem biðu bana,
voru 6 brezkir lögreglumenn,
en 4 Arabar, einnig lögreglu
menn.
í
Afhending skömmt-
unarseðla hefst
í dag.
AFHENDING skömmtun-
arseðla hefst í dag í Good-
templarahúsinu, og stendur
hún næstu þrjá daga til kl.
10—5.
Jafnhliða hinum venjulegu
skömmtunarseðlum verða
einnig afhentir mjólkur-
skömmtunarseðlar.
Skömmtunarseðlarnir verða
aðeins afhentir gegn stofnum
eldri miða, greinilega áletr-
uðum.
Þeir, sem eiga miða sína
hjá öðrum, t. d- matsölum,
verða að nálgast þá og fram-
vísa stofnunum sjálfir og hafa
þá síðan í eigin vörzlu.