Alþýðublaðið - 19.10.1955, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 19.10.1955, Qupperneq 3
Miðvikudagur 19. október 1955. AlþýSublaSiS 3 Húsmæður í úraniumleii á eyðimörk. URANIUM er nú verðmeiri málmur en gull. Er nú hafið úraníumæði, sem er miklu meira en gullæðið í Kaliforn- íu, og slíkt æði hefur ekki grip ið um sig á þessari öld. White Canyon, sem er miðpunkur úraníumsvæðisins, er sólu svið in eyðimörk og fáeinar brattar klappir og einmanalegir kaktus ar er eina tilrbreytingin á flat- neskjunni. ÆÐIÐ BREIÐIST ÚT Þúsundir manna leita að úr- aníum í fjallasvæðunum milli Suður-Dakota og Kaliforníu. Sumir eru þaulreyndir málm- leitarmenn, en aðrir kúasmal- ar, sem rétt nýlega hafa sleppt reiðhestinum, índíánar, hus- mæður eða skrifstofuþrælar. Öll hugsanleg farartæki eru notuð í leitinni, sem að mestu fer fram á svæðinu kringuni Coloradosléttuna. Vörubifreið ír, jeppar og flugvélar eru al- geng sjón í eyðimörkinni, og fer útbúnaðurinn auðvitað eftir því, hve mikil fjárráð leitand- inn hefur. Upp á síðkastið er einnig farið að nota heli- koptervélar, en fáir eru svo fjáðir að geta notað þær, því að leigan er 100 dollarar á klst. KISAEÐLUBEINAGRINDUR Svæði þetta er að heita mó gersneitt lífi. Það er algeng úr aníumnema fyndni, að þar hafi aldrei komið nokkur lifandi vera nema slöngur og risaeðl- ur, því að algengt er, að þav finnist breinagrindur úr risa- eðlum, og þarna munu þær hafa verið endur fyrir löngu, þótt öðru vísi hafi verið þá um að litast en nú. NÝTÍZKU MÁLMNEMA- JBORG. White Canyon, sem er brott- fararstaður flestra leiðarigr- anna minnir á margan hátt á bæina, sem risu upp í gullæð- inu til Kaliforníu. Kringum verzlun eða matstofu er dálítil húsaþyrping, timburhús fyrir svo sem 50 hræður. Borgin er annars í sambandi við umheim inn með flugvélum, og póstur kemur þangað þrisvar í viku. Lítil rafstöð framleiðir raf- magn fyrir staðinn, en að öðru leyti verða íbúarnir að bjarg- ast eins og bezt gengur eins og jafnan hefur verið hjá landnem unum í villta vestri. Uranium er lifibrauð allra í þessu sam- félagi. Hafi einhver heppnina með sér, kemur hann til bæjar ins og eys um sig peningum, og á matstofunni þarf ekki að panta matinn. Hann er settur fyrir mann, hvort sem hann vill eða ekki. LEITIN EINFALDARI Svæðið er svo stórt, að óger- legt væri fyrir leiðangur, sem notar bifreiðir, að fara yfir það allt, þótt varið væri til þessa mörgum árum. Allir hafa geislamæla, er sýna, ef rad.íum finnst í nágrenninu. Þetta gérir leitina einfaldari, en það kemur þó ekki í veg fyrir það, að þeir, sem eru að leita að gæfunni þarna á auðninni, finni til sömu eftirvætingar og gullr.em arnir forðum, er þeir héldu, að þeir mundu finna gullið og gæí una bak við næsta leiti. Krabbameinsrannsóknir á hundum STOKKHÓLM, 12. okt. S.I.P: Dr. Lennart Krooh, prófessor við dýralækningaháskólann i Stokkhólmi, hefur birt niður- stöður af margra ára rann- sóknum á krabbameini í hund- um, með tilliti til kynþátta- bundins mótstöðueiginleika. Hafa 7200 krufningar leitt i ljós, að hundakyn hafa mjög mismunandi sterka mótstöðu, og fer það saman við niðurstöð ur rannsókna á krabbameini í mönnum. Telur prófessorinn að þessar rannsóknir geti ef til vill leitt til þess, að vísinda- mönnum takizt að finna í hverju mótstöðukrafturinn er fólginn. Þá telur hann það og hafa komið í ljós, að líkur séu til þess, að krabbamein sé ekki út breiddari sjúkdómur nú en áð ur, heldur sé það lenging mannsæfinnar, útilokun ýmissa 1 dánarmeina og öruggari sjúk dómsákvörðun, sem valdi því, að svo virðist. Þó sé lungna- krabbinn þar undanskilin, hann fari sífelt í vöxt, og hlýti ekki neinum reglum um „krabba- meinsaldur'1. lllilll!! HANNES A HORNINU■ VETTVANGUR DAGSINS |l!||ll!li![ll!||lill[||i|||||||ill|[|lll!HI| Stýdentafélagið og blaðamennskan — Blöðin bet- ur skrifuð nú en fyrrum — Smáletursbíaða- mennska — Kaldhæðni og gamanskrif í stað þung- búinna árásarskrifa. ÉG ÞAKKA Stúdentafélaginu fyrir að efna til umræðu um blaðamennsku. Þetta var ekki nógu vel undirbúið. Sérstakiega var slæmt að önnur framsögu- ræða skyldi ekki vera fiutt af blaðamanni. HINSVEGAR VORIJ umræð- urnar góðar. Framsöguræða Sig urðar Einarssonar var góð. Hann var sanngjarn í garð blaða- manna, en þó gætti misskilnings, en ekki í stórum atriðum. Hann kvað niður draug, sem kverúl- antar hafa magnað árum saman. Hann hélt því rnjög ákveðið fram, að fyrrum hefðu blöð alls ekki verið betur rituð en nú, heldur þvert á móti. Hins vegar væri vitanlega hægt að finna í blöðum fyrri tíma ýmsar grein- ar afburða vel ritaðar, en það væri líka algengt nú. Og þegar á heildina væri litið, væru blöð- in nú miklu betur skrifuð. SIGURÐUR VAR einna þung- orðastur í garð okkar smáleturs höfundanna. Hann hélt því fram, að of rnikið kenndi kergju og alvöru, en minna væri um gam- ansemi, kaldhæðni og hæðni heldur en hjá smáletursblaða- mönnum erlendis. — Þetta er misskilningur. Hins vegar hafa ákveðnir menn eriendis það hlut verk að skrifa gamanstíl. FRÆGUSTU smáletursblaða- menn nútímans, Er.glendingarn ir Hannan Svaffer í „Daily Her- éld“ og Cassandra í „Daily Mirr or“ eru fyrst og fremst blaða- menn í ádeilustíl, það er þeir beita fyrst’ og fremst þungum árásarvopnum, hæðni bregður fyrir einstaka sinnum, en sjald- an þvi, sem menn kalla gaman. VITANLEGA er bezt að stíll blaðamanns sé sem fjölhæfastur og „breiður", ef svo má að orði komast, en það er ekki öllum gefið og að sjálfsögðu mættum við smáletursblaðamennirnir bæta stíl okkar — og þá fyrst og fremst iðka kaldhæðnina meira en við gerum. Og mér er það vei ljóst, að sá stíll bítur bezt — á suma. Annars bið ég Sigurð að minnast þess, að íslendingar ráöa ekki yfir miklum ,,humör“ — og það er erfitt að skrifa í gamni svo að almenningur skilji. ÝMSIR BJUGGUST við hörð- um umræðum á Stúdentafélags- fundinum, en beim varð ekki að von sinni. Ræðurnar voru mjög saglegar og báru svip af viðleitni til þess að kryfja umræðuefnið til mergjar. Gagnrýni kom fram. á blöðin — og mest af henni var réttmætt. Stúdentafélagið á þakkir skiidar fyrir frumkvæð- ið Hannes á horninu. Ur ölltifn áftu osxx-xsxxx frá Mjólkursamsölurtni Á morgun, miðvikudag, verður að taka upp skömmt un á mjólk á sölusvæði Mjólkursamsölunnar. Fyrst um sinn gildir hver skömmtunarreitur fyrir Vá Itr. af mjólk. Afgreitt verður gegn reitum nr. 1 á morgun og síðan einu nr. daglega í réttri númeraröð. Gerið svo vel að koma með reitina afklippta í búðirnar. Mjólkin verður seld gegn skömmtunarreitum til kl. lVz á daginn en. óskömmtuð eftir þann tima ef eitthvað verður óselt. Mjólkursamsalan. í DAG er miðvikudagurinn 19. október 1955. FLU GFERÐIR Loftleiðir. Hekla, millilandaflugvél Loft- leiða, er væntanleg kl. 19.30 í kvöld frá Hamborg, Kaupmanna höfn og Gautaborg. Vélin fer kl. 21 til New York. PAA. Flugvéi lcom snemma í morg- un frá New York til Keflavíkur flugvallar og hélt áfram eftir skamma viðdvöl til Norður- landa. SKIPAFRETTIR Eimskip. Brúarfoss kom til Hamborgar 13/10. P'er þaðan til Reykjavík- | ur. Dettifoss kom til Ventspils 17/10. Fer þaðan til Leningrad, Kotka og þaðan til Húsavíkur, Akureyrar og Reykjavíkur. Fjallíoss . fer frá Reykjavík i kvöld til Gufuness og þaðan á morgun til Patreksfjarðar, ísa- fjarðar, Siglufjarðar, Akureyrar og Húsavíkur. Goðafoss kom til Gautaborgar 17/10. Fer þaðan til Flekkefjord, Bergen og þaðan til Reyðarfjarðar. Gullfoss fór frá Leith í gær til Kaupmanna- hafnar. Lagarfoss fór frá New York 16/10 til Reykjavíkur. Reykjafoss kom til Hamborgar 16/10. Fer þaðan til Hull og Reykjavíkur. Selfoss kom til Liverpool 16/10. Fer þaðan til Rotterdam. Tröllafoss fór frá New York í gær til Reykjavík- ur. Tungufoss fór frá Reyðar firði 14/10 til Neapel og Gen- ova. Drangajökull lestar í Ant- wérpen ca. 25/10 til Rvíkur. FUNDIR Konur í Kvenfélagi Hallgríms kirkju. Munið fundinn að Röðli niðri í kvöld kl. 8.30 e. h. DAGSKRÁ ALÞINGIS Sameinað alþingi: 1. Fyrir- spurnir: a. Húsnæðismálastjórn. ^ b. Aðstoð við togaraútgerðina. c. Bátagjaldeyrir. d: Verðlags- uppbætur úr ríkissjóði. 2. Varn- Nokkrir lítið notaðir pelsar úr ýnisum skinrmm, til sölu hjá Kristni Kristjánssyni feldskera — Sími 5644 — Tjarnargötu 22. Staða II. aðstoðarlæknis við Kleppsspítalann er laus til umsóknar frá 1. desember næstkomandi að telja. Grunnlaun á mánuði eru kr. 2.700.00. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember. Umsóknir sendist stjórnarnefnd ríkis- spítalanna., Ingólfsstræti 12, box 667, Reykjavík. Reykjavík, 17. okt. 1955. Skrifstofa ríkísspítalanna. arsamningur milli Islands og Bandaríkjanna. 3. Sama. 4. Frið junarsvæði fyrir Vestfjörðum. 5. ^Nýbýli og bústofnslán. 6. Vélar I og verkfæri til vega- og hafna- spon Sirs og Tvisteíui m .h.f. | gerða. 7. Vestmannaeyjaflugvöll ur. 8. Vegagerð úr varanlegu efni. 9. Eyðing refa og minka. 10. Kjarnorkumál. — * — Kaffiltvöld Skotfélagsins. Skotfélagið héldur kaffikvöld með kvikmyndasýningu að Breiðfirðingabúð kl. 814 ' á fimnrtudag. Stjórnin. Næsta saumanámskeið Húsmæðrafélags Reykjavíkur hefst á mánudaginn. Væntanleg- ir þátttakendur gefi sig fram í símum 1810 og 2585. Frímerkjasafnarar. Blaðinu hefur borizt bréf frá ungum sænskum frímerkjasafn- ara, er gjarnan vill komast í sam band við íslenzkan frímerkja- safnara eða einhvern annan, er vildi senda honum íslenzk frí- merki. Heimilisfang hans er: Jan, Erik Halikvist, Wenstoms- vagen 6III ts. Hjarthagen, Sverige. Kariakór Reykjavíkui’. Dregið var í hlutaveltuliapp- drætti Karlakórs Reykjavíkur hjá borgarfógeta í gær og komu upp eftirtalin númer: 5986 Flug- ferð til Khafnar. 11471 Ferð með Gullfossi til Kaupmannahafnar. 7001 Ferð1 á vegum Orlofs til Norður- og Austurlands. 1511 1 poki strásykur. 5758, 1919, 2565, 7969, 624, 11995 1 kútur súrsað rengi. Vinninganna ber að vitja til hr. Kristjóns Kristjánssonar jtrésmíðameistara, Laugav. 34 (Birt án ábyrgðar.)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.